Dagblaðið - 29.05.1980, Síða 10

Dagblaðið - 29.05.1980, Síða 10
10 Framfcvamdastjóri: Svoinn R. Eyjórisson. Ritstjóri: Jónas Krístjónsson. 'Ritstjómarfutttrúi: Haukur Halgasoa Fréttastjóri: Ómar Valdimarsson. Skrifstofustjóri rítstjómar Jóhanóos Reykdal. Iþróttir Hallur Simonarson. Monning: Aóalstoinn Ingóifsson. Aðstoöarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. j Handrit Ásgrimur Pélssop. Hönnun: Hllmar Karisson. Blaflamonn: Anna Bjamason, Atii Rúnar HalldórssonL Adi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurflsson^ Dóra Stefánsdóttir, Elin AJbertsdóttir, Ema V. IngóHsdóttir, Gunnlaugur A. jónsson* Ólafur Geirsson, Sigurflur Svorrisson. __ ' Ljósmyndir Ámi Péll Jóhannsson, BjamleHfur Bjamleifsson, Hörflur Vilhjélmsson, Ragnar Th. Sigurfls- son, Sveinn Þormóflsson. Safn: Jón Saavar Baldvinsson. Dugðií fyrra, en ekki íár Við getum ekki endalaust látið of- veiði fiskistofna mæta nýjum vanda- málum í utanríkisviðskiptum okkar. Við gerðum það í fyrra og erum nú komnir vel á veg með að endurtaka það í ár. Með þessu erum við að éta útsæðið. Við höldum jafnvægi á líðandi stund með því að búa okkur til gífurleg vandræði í náinni framtíð. Slíkt getur aldrei gengið til lengdar. Olía hækkaði mjög í verði á síðasta ári, fór úr 12% innflutningsins í 19%. Þessi breyting rýrði viðskipta- kjör okkar gagnvart útlöndum um 10% og dró úr þjóðartekjum semsvarar4%. Við vitum, að olían mun halda áfram að hækka í verði. Við vonum, að það verði ekki á þessu ári, að minnsta kosti ekki í verulegum mæli. En satt að segja vitum við ekkert um næstu skriðu. Hitt áfall síðasta árs var hrunið í tekjum okkar af flugi yfír Norður-Atlantshafið. Það eitt olli rúmlega helmingi af 16 milljarða króna tapi á þjónustu- jöfnuðinum gagnvart útlöndum. Við vitum, að samkeppnin í fluginu mun áfram verða grimm. Við vonum, að við getum dregið úr tilkostnaði okkar. En við vitum, að hinum miklu flug- tekjum náum við ekki aftur. Áföllum flugs og olíu mættumvið i fyrra með því að auka sjávarvöruframleiðsluna um 12—15% og út- flutninginn í kjölfarið um tæp 10%. Þetta nægði nokkurn veginn til að halda jafnvægi. Viðskiptajöfnuðurinn i fyrra varð aðeins óhag- stæður um rúma sjö milljarða króna, sem jafngildir tæpu einu prósenti þjóðarframleiðslunnar. Út af fyrir sig lítur þetta vel út. Á yfirborðinu virðist skuldabyrðin gagnvart út- löndum einnig vera í lagi. Afborganir og vextir eru 14% af árlegum tekjum af útflutningi, svo sem verið hefur í nokkur ár. Þar eru hins vegar blikur á lofti, þvi að upp eru greidd gömul lán með lágum vöxtum, en í staðinn tekin ný með háum vöxtum. Að óbreyttu mun því skuldabyrðin þyngjast mjög á næstu árum. Meðan við ofveiðum til að hafa upp í útgjöld okkar, erum við að lifa um efni fram. í fyrra jókst einkaneyzla um 2% og samneyzla um 2%. Hvort tveggja hefði átt að standa í stað. * Af þessu má sjá, að nú og á næstunni getum við ekki bætt lífskjörin. Það eina, sem hægt er að gera, er að lagfæra launakjör hinna lægst launuðu á kostnað hinna, sem betur mega. Enn augljósara er, að ríki og sveitarfélög verða að stöðva þenslu samneyzlunnar þegar í stað. Á erfiðum tímum höfum við ekki efni á að bæta við meintar sameiginlegar þarfir okkar. Erfiðara verður fyrir okkur að spara í fjárfestingu. Hún hefur á fimm árum minnkað úr 33% af þjóðar-* framleiðslu í 25%. Það er hættulegt að klípa meira af henni en orðið er. Við getum hins vegar dregið úr opinberri stýringu fjárfestingarinnar til óarðbærra greina á borð við landbúnað og til óhóflega stórs fískiskipaflota. Við getum nýtt fjárfestingarkrónurnar betur. Aflatakmörk nægja ekki ein til að koma þorskafla ársins niður í 300 þúsund tonn og hindra ofveiði í öðrum stofnum. Núverandi kerfí er sjávarútveginum of dýrt í skauti. Finna þarf leiðir til að minnka flotann, sem notaður er, og til að tryggja um leið, að arðbærasti hluti hans sé notaður. Uppboð eða sala veiðileyfa er hugsanleg leið til þess. Ef ekki tekst að finna leið til að sameina minnkun afla og hagkvæmari útgerð fiskiskipa, er aðeins um það að ræða að sameina minnkun afla og minnkun á einkaneyzlu og samneyzlu okkar allra. ^ DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980. Afganistan: Skæruliðar samein- ast gegn sovézkum innrásarmönnum | — verið að koma á útlagastjórn í Pehawar í Pakistan „SJÁLFSÖGÐ MANNRÉTTINDI” —á uppsprengdu verði Fyrir skemmslu var frá því sagt i Ijölmiðlum, að fyrir hendi væri i borginni talsverður fjöldi ibúða, sem gengi kaupum og sölum manna í milli á „manneskjulegu” verði. Hér er um að ræða ibúðir þær, sem byggðar hafa verið á vegum Byggingafélags alþýðu, Byggingafélags verkamanna, Framkvæmdanefndar byggingar- áætlunar, Stjórnar verkamannabú- staða og Reykjavíkurborgar. Þegar eigendaskipti verða á þessum íbúðum er verðið á þeim ótrúlega lágt, 2ja herbergja íbúðir eru seldar á verði, sem nemur allt frá 8 millj. króna og upp í 12—15 millj. króna. Sama gildir um stærri íbúð- irnar. Og enginn getur kvartað, sízt af öllu seljandinn, hann fær í sinn hlut það sem honum ber samkvæmt þeim reglum, sem þar um gilda og honum var fullkunnugt um, þegar hann keypti — hann fær sinn eignar- hluta verðbættan til fulls og á ekki rétt á meiru. Sá einn fær, sem nóg hefur Með þessum hætti hefur tekizt að koma þvi til leiöar, að almennt séð halda þessar íbúðir áfram að þjóna tilgangi sinum, þ.e. þeim að vera hús- næði þess fólks, sem á undir högg að sækja í því sjúka markaðsþjóðfélagi, sem við lifum i, og metur alla hluti til fjár, þar á meðal þau mannréttindi, sem þykja „sjálfsögð”, en eru það ekki i raun nema maður eigi nógu mikla peninga. En nákvæmlega þau eru sjónarmið markaðsþjóðfélagsins í þeim mikilvægu mannréttinda- málum, sem húsnæðismálin eru. Sá, sem ræður yfir nógu miklu fé, á flestra eða allra kosta völ i húsnæðis- málunum. En vei þeim, sem ekki hefur nógu mikið fé handa í milli, því

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.