Dagblaðið - 29.05.1980, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980.
Athugið verðið!
Ódýrír pottar
10 lítrar verð kr. 18.950.-
15 lítrar verð kr. 24.650.-
20 lítrar verð kr. 27.450.-
Sendum í póstkröfu.
Búsáhöld og gjafavörur
Glæsibæ, sími 86440.
—Verzlunin HÖFN auglýsir—
Erfluttað
Laugavegi 69
Sœngurfatnaður, handklœði,
gæsadúnn,
fiður.
Verzlunin Höfn
Laugavegi 69. Sími 15859.
STÁLSTÓLLINN
hannaduraf
rauhaus
Verð
kr. 29.980
Nýborg hf. býður nú þennan frœga stálstól með
beyki- og spansreyrsetu. Vadina stálstóllinn er
fjaðurmagnaður, stílhreinn og hentar ólíklegasta
umhverfi.
Höfum einnig margar gerðir af borðum.
Jón S. Halldórsson ók af mikilli hörku og leikni þegar hann sigraði f rallfkrossinu A mánudaginn. Að þessu sinni lóksl
honum ekki að brjóta neill i biinum en nauösynlegt er að hafa bilana slerka þegar akslursslillinn er eins og Jóns.
DB-mynd Jóhann Krísljánsson.
AKSTURSÍÞRÓTTIR
HELGARINNAR
Rallíkross
Bifreiðaríþróttaklúbbur Reykjavíkur
var með rallíkrosskeppni á braut sinni
við Móa á Kjalarnesi á mánudaginn og
þar voru 18 krossarar mættir til leiks.
Keppni þessi tókst mjög vel og var
geysilega spennandi. Skipulag keppn-
innar og framkvæmd var til fyrirmynd-
ar enda gekk hún fljótt og vel fyrir sig
þrátt fyrir erfitt veður. Þrátt fyrir að
sólskin væri var veðrið ekki upp á það
besta því mjög hvasst var og svo mikið
moldrok að stundum sást ekkert út úr
augum. Þá fylltust öll vit af óhreinind-
um og myndavélar hlupu i baklás.
En keppendur létu veðrið ekki á sig
fá og kepptu af mikilli hörku enda var
keppnin spennandi eins og fyrr sagði. í
úrslitariðlinum var greinilegt að enginn
þeirra fjögurra manna sem komust í
hann ætlaði að gefa keppinautum sín-
um svo mikið sem þumlung eftir. Þegar
bilarnir komu í fyrstu beygjuna rudd-
ust þrir bílar saman í hana og nudduð-
ust og skullu saman. Jón S. Halldórs-
son, sem ók BMW 2002, kastaðist út úr
brautinni, upp sandhól sem þar var og
valt síðan ofan á Fiatinn hans Heimis
Daviðssonar sem hafði snúist við á
brautinni og sneri í öfuga átt. Var
keppnin stöðvuð meðan kranabíll var
fenginn til að hifa BMW-inn ofan af
Fiatinum. Enginn ökumannanna hlaut
svo mikið sem eina skrámu enda er út-
búnaður þeirra og bílanna miðaður við
að ýmislegt geti komið fyrir í keppnum
sem þessum. Þegar búið var að hreinsa
brautina voru bílarnir ræstir aftur og
tókst þá að Ijúka keppninni. Úrslit
hennar urðu þau að sigurvegari varð
Jón S. Halldórsson og var timi hans 5
mín. 45.06 sek. í öðru sæti varð Ásgeir
Sigurðsson en hann keppti á Simcu. Í
þriðja sæti varð svo Heimir Daviðsson
og fjórði var Einar Finnsson á
Vauxhall Viva.
Kvartmila
Fyrsta kvartmílukeppni sumarsins
átti að vera siðastliðinn laugardag en
hún fór út um þúfur, eða brann yfir
eins og sumir sögðu. Reyndar var það
stjórnbox- tímatökugræjanna sem
brann yfir og verður keppnin haldin
eftir eina til tvær vikur þegar búið
verður að smíða nýtt box.
Nokkrir vel sprækir bílar og strákar
voru mættir til að taka þátt i keppninni
en þegar ekkert varð úr henni notuðu
þeirtækifærið'.il aðprófa farartæki sin.
Mesta athygli vakti Ólafur Vilhjálms-
son en hann mætti með Triumphinn
sinn og var búinn að setja í hann nýja
vél. í fyrrasumar vann^Ólafur haust-
keppni Kvartmíluklúbbsins og fór hann
kvartmíluna á 12.52 sek. Þá var 340
kúbika Chrysler vél i Triumphnum sem
gekk undir nafninu Chrysler kókos-
bollan. í vetur setti Ólafur svo 302
kúbika Chevrolet vél í Triumphinn og
er sú vél mögnuð. Þóttust fróðir menn
sjá að billinn hefði bætti sig um eina til
tvær sekúndur þegar Ólafur tók
æfingarspyrnu við Guðstein Eyjólfsson
á sex strokka 1047cc Hondunni og var
langt á undan henni. En timar mótor-
hjólsins voru í kringum 11.50 sek. í
keppnunum í fyrra. Allt virðist því
benda til þess að Ólafi takist að setja
nýtt íslandsmet í næstu keppni.
Jóhann Kristjánsson.
Stœrsta mótorhjól landsins varð að láta I minni pokann fyrír Kókosbollunni þegar kvartmílingar reyndu „hesta” sina
á laugardaginn. DB-mynd RagnarTh'