Dagblaðið - 29.05.1980, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1980.
„Keppni við Dani tímabær”
— segir Gunnar Páll Jóakimsson, f rjálsíþróttamaður — Góður árangur
íslenzkra frjálsíþróttamanna í Kaliforníu
,,Ég held, að það sé orðið mjög tíma-
bært að huga að landskeppni við Dani i
frjálsum íþróttum,” sagði Gunnar Páll
Jóakimsson hlaupari er DB ræddi við
hann í Kaliforníu i morgun þar sem
Gunnar hefur dvalið i vetur ásamt hópi
íslenzkra frjálsiþróttamanna við
æfingarog keppni.
Margir íslenzku frjálsíþróttamann-
Óskar Jakobsson kúluvarpari hefur
tekið mjög stórstigum framförum að.
unanförnu og vantar nú aðeins herzlu-
mun i 20 metra markið.
anna hafa tekið mjög stórstígum fram-
förum og ber þar hæst árangur Óskars
Jakobssonar i kúluvarpi. Þar hefur
hann bætt árangur sinn í nærri hverri
keppni. Hann hefur kastað lengst 19,82
metra. Þess er þvi greinilega skammt að
bíða að við getum státað af tveimur 20
metra kösturum i kúluvarpi og er það
meira en margar stórþjóðir geta.
Tugþrautariandslið eiga íslendingar
einnig orðið mjög sterkt því að þeir
Stefán Hallgrímsson, Elias Sveinsson
og Þráinn Hafsteinsson hafa allir náð
yfir 7300 stigum að undanförnu og
hafa allir sett stefnu á ólympíulág-
markið í greininni sem er 7650stig.
,,Það eru nokkrar greinar sem eru»
ennþá veikar hjá okkur,” sagði
Gunnar Páll. ,,Það eru greinar eins og
langhlaup, stangarstökk og grinda-
hlaup. Hins vegar ættum við að hafa
yfirburði yfir Dani i köstunum og fleiri
greinum. Það er mikill metnaður i
mönnum að ná upp þeirri breidd i
þessum greinum sem þarf,” sagði
Gunnar Páll.
Mörg ár eru nú liðin síðan íslend-
ingar öttu kappi við Dani en hér á
árum áður báru íslendingar oftsinnis
sigurorð af Dönum á frjálsiþróttavell-
inum.
-GAJ.
22. tbl. 42. árg. 29. maí 1980 Verð kr. 1200
Skozki landsliðsmaðurinn John Robertson skoraði
mark á 20. minútu leiksins. Það reyndist eina mark li
Connorsáh
Jimmy Connors, tennisleikarinn skapheiti
frá Bandaríkjunum, sem hefurá undanförnum
tveimur árum fallið mjög i skugga Björn Borg
frá Svíþjóð.komst heldurbeturá hálan ís í gær-
kvöld á opna franska mcistaramótinu í tennis.
Hann lék gegn fransmanninum Jean Francois
Caujolle og maraþonviðureign þeirra hélt
hinum 17.000 áhorfendum í heljargreipum
lengi vel.
Caujolle vann fyrstu tvær loturnar 6—3 og
6—2 og í þríðju lotunni var hann kominn í 5—
2 er hann missti sendingu klaufalega aftur fyrir
viÉÍlÍÍ
■•'■p
0
Delfs-baninn
Gonzales steinlá
F.ins og við greindumfrá hér í gær steinlá
Fleming Delfs fyrir Ray Diaz Gonzalez frá
Mexikó á heimsmeistaramótinu í badminton í
Jakarta I gær. Þetta tap Delfs virðist hafa
verið heldur betur óvænt því Gonzales þessi
tapaði með miklum mun fyrir Ray Stevens frá
Englandi i næstu umferð sem háð var I gær.,
Stevens lét sig ekki muna um að tuska
Mexíkanann hressilega til og sigraði, 15—6 og
15—0.
Annars var það Indónesinn gamli og góði,
Rudy Hartono, sem stal senunni í gær. Hann
sigreði Steen Fladberg frá Danmörku 15—11
og 15—5 i gær og tryggði sér sæti í 8 manna úr-
slitum.
Smári
til Svíþjóðar
Smári Jósafatsson, einn helzti
markaskorari Ármenninga undanfarin
ár, mun ekki ieika meira með félögum
sínum í sumar þar sem hann hélt til Svi-
þjóðar fyrir skömmu. Er þetta nokkurt
áfall fyrir Ármenninga, sem eiga í
harðri baráttu i 2. deildinni.