Dagblaðið - 29.05.1980, Side 15

Dagblaðið - 29.05.1980, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAl 1980. >. vf<r« 15 i .v.V T»jT>a</k'J<, <'+. "A f *A</ álumísígær sig. Það nægði til að koma Connors á sporið. Hann vann þá lotuna 7—5 og þar með virtisl allur vindur úr honum. Connors vann síðustu tvær loturnar 6—I og tryggði sér sigur. Viður- eign þeirra stóð í 160 mínútur, sem er ærið langt á tennisvísu. Skotarteknir íkennslustund Pólverjar tóku Skota í kennslustund í knatt- spyrnu i vináttulandsleik, sem fram fór i Póll- andifgær. Sigur Pólverja I—0 þótti mjög litill miðað við gang leiksins og geta Skotar einkum þakkað markverði sínum Alan Rough að tapið varð ekki stærra. Þeir áttu aðeins tvö skot á mark Pólverja allan leikinn. Varnarleikmaður- inn Willie Miller var einnig eins og klettur í vörn Skota og strönduðu margar sóknarlotur Pólverja á honum. Það var hinn 24 ára gamli Zbingniew Boniek sem skoraði sigurmark Pólverja á 76. minútu leiksins. Þessi sigur Pólverja kemur í kjölfar tveggja jafntefla og fjögurra ósigra í síðustu sex leikjum þeirra. EÓP-mótið íkvöld Hið árlega EÓP-frjálsiþróttamót veröur haldið á Laugardalsvellinum í kvöld og hefst kl. 8. Mótið er haidið árlega til minningar um Erlend Ó. Pétursson, sem var formaður KR um langt árabil. Mótið i kvöld verður ekki eins vel skipað og ofl áður þvi flestir okkar beztu frjálsiþrótta- menn eru enn við æfingar í Bandarikjunum. Meðal keppenda verða menn eins og hinn síungi Valbjöm Þoriáksson, sem er mjög sigur- stranglegur bæði í 110 metra grindahlaupi og stangarstökki, þrátt fyrir að hann sé kominn hátt á fimmtugsaldur, Erlendur Valdimarsson kringlukastari, sem vantar aðeins herriumun til að ná ólympíulágmarkinu í sinni grein og spjótkastarinn cfnilegi Sigurður Einarsson. Miami Beach borg fjörefnanna á Floridaskaganum Hress þarftu að uera til að rxýta þérallt það fjör, sem efni standa til á Miami. Þareru: Frumsýningabíó • leikhús, bæðiklassískogrevíu • næturklúbbar • listasöfn • japanskir garðar • aragrúi diskóteka • jai-olai leikhallir og öll veðmálin sem þeim fylgja • jassklúbbar• tennisuellir • keilusalir • golfvellir • hljómleikahallir • reggaeklúbbar • ueitingastaðir úr öllum heimshomum • stórfiskaveiðar • ueðhlaup og veðreiðar • hraðbátar til leigu • páfagaukaskógur • slöngu- og krókodílagarður • lagardýrasafn • rodeokeppnir kúreka • uaxmyndasöfn • latneska hverfið • kennsla á sjóskíði og í reiðmennsku • stangarveiði og skyttirí. Og svo cru það búðimar: Antikbúðir og tískubúðir, sport- og Ijósmyndavörubúðir, skartgripabúðir, hljómplötu- og hljóðfærabúðir - ogsvo má lengi telja. Staðreynd er aðfólk úrMið- og SuðurAmeríku flykkist til Miami í verslunarleiðangra. FLUGLEIDIR Farskrá, sími 25100 Engu að síðurgetur þúfarið til Miami til þess eins að slaka á, sleikja sólskinið og stunda sjóböð þértil heilsubótar. Vikulegar brottfarir, islenskur fararstjórl á staðnum. I■ ^Nottingham Forest Evrópumeistari annað árið í röð: FRABÆR LEIKUR SHILTON TRYGGDIFOREST TITIUNN síðari hálfleik er hinn hávaxni Horst Hrubesch kom inn á sem varamaður í sókn Hamburger. Á 60. mínútu bjargaði Shilton enn glæsilega með því að kasta sér og hirða þannig boltann af tánum á Milewski. Glæsilegasta markvarzla Shiltons í leiknum var þó á 76. minútu. Þá átti bakvörðurinn Peter Nogly mikið þrumuskot af 35 metra færi, sem Shilton tókst naumlega að verja með því að slá boltann yfir markslána. Mínútu síðar kallaði Brian Clough framkvæmdastjóri Forest á hinn 18 ára gamla Gary Mills og og skipti honum út af fyrir John O’Hare. Fram að því hafði Mills reynt að styðja við bakið á Gary Birtles, sem lengst af var eini sóknarleikmaður Forest. John O’Hare styrkti Forest á miðvellinum og síðustu minútur leiksins tókst Englendingunum jað halda i horfínu og lokamínúturnar liðu án þess að veruiega hættuleg marktækifæri sköpuðust. m - > Ekki sjaldnar en fjórum sinnum i leikn- um, sýndi enski landsliósmarkvöróurinn Peter Shilton markvörzlu á heims- mælikvarða. Enn ein skrautfjöðrin bættist í hatt Brian Cloughs framkvæmdastjóra enska liðsins Nottingham Forest er lið hans varði Evrópumeistaratitil sinn i Madrid í gær. Nottingham Forest sigraði þá þýzku meistarana Hamburger Sport Verein nokkuð óvænt með cinu marki gegn engu þrátt fyrir að þeirra bezti maður, milljón punda maðurinn Trevor Francis, gæti ekki leikið með vegna meiðsla. Hetja Nottingham Forest i þessum 25. úrslitaleik Evrópukeppni meistara- liða var skozki landsliðsútherjinn John Robertson. Er 20 minútur voru liðnar af leiknum skoraði hann glæsilegt mark, mjög gegn gangi leiksins, því Hamburger hafi virkað sterkara lið- ið. Robertson braut fram hjá tveim- ur varnarmönnum Hamburger og skoraði með lágu hægrifótarskoti í stöng og inn, glæsilegt mark. Nottingham liðið gefur ekki síður þakkað enska landsliðsmarkverðinum Peter Shilton sigurinn því fjórum sinnum bjargaði bann á undraverðan hált eftir harðar sóknarlotur Hamburger liðsins, sem sótti stíft undir sljórn fyrirliða síns, Felix Magath. Nottingham er annað enskra liða til. að vinna þennan eftirsótta titil tvö ár í röð. Liverpool sigraði 1977 og 1978. Englendingar hafa því unnið titilinn .fjögursíðustu ár. Sigur Nottingham í leiknum í gær var engan veginn sannfærandi. Þjóðverjarnir sóttu nær látlaust allan leikinn og Nottingham átti tæpast ann- að hættulegt marktækifæri en það sem Robertson nýtti svo vel. Hamburger var næst því að skora á 66. mínútu þegar bakvörðurinn Manfred Kaltz átti þrumuskot í utanverða markstöng Nottingham marksins. Þjóðverjarnir urðu þegar i byrjun leiksins mjög ágengir við mark Nottingham og fengu þrjár horn- spyrnur á upphafsmínútunum, en mið- vörðum Forest, þeim Larry Lloyd og Kenny Burns, tókst í öll skiptin að bægja hættunni frá með skallaboltum. Eina mark Ieiksins kom því eins og skrattinn úr sauðarleggnum og þvert gegn gangi leiksins. Aðeins einni minútu eftir mark Forest skoraði útherjinn Willi Reimann fyrir Hamburger en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Eftir það var um hreinan einstefnuakstur að marki Nottingham Forest að ræða. Á 33. mínútu sýndi Shilton enn einu sinni að hann er einn albezti markvörður heims- ins. Þá varði hann frábærlega vel þrumuskot frá Jtirgen Milewski eftir að Kevin Keegan hafði lagt boltann fyrir hann í opnu marktækifæri. Sókn Hamburger þyngdist enn i GYLMIR ♦ G&H 3.6

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.