Dagblaðið - 29.05.1980, Page 27

Dagblaðið - 29.05.1980, Page 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980. (i Útvarp •27 Sjónvarp 9 LEIKRIT VIKUNNAR — útvarp kl. 21,15, Völundarhúsið: Karlmannahatari með óhugnanlega ráðagerð Hér sjáum við Brfctí Héðinsdöttur f hlutverki sfnu f I öruggrí borg eftir Jökul Jakobsson. Að þessu sinni er hún leikstjörí Völundarhússins og jafnframt þýðandi leikrítsins. ^ DB-mynd Bj. Bj. UMHVERFIS HENGIL - útvarp kl. 20,00: Völundarhúsið heitir ieikrit vikunnar og er eftir Siegfried Lenz. Það fjallar um systumar Elfi og Tradi sem báðar eru kennslukonur á eftir- launum og búa saman ásamt Artusi stjúpbróður sínum. í garðinum við hús þeirra er sérkennilegt mannvirki, jarðvölundarhús sem gegnir mikilvægu vlutverki i augum systranna og þó tinkum Marlies frænku þeirra. Hún er mikill karlmannahatari og hýggst vinna systumar til fylgis við heldur óhugnanlegaráðagerð sem því er tengd. AUt virðist ganga að óskum þar til Sem betur fer er rayndin ekki tekin þessa dagana heldur í vetnr þegar Tómas Einarsson (i miðið) var farar- stjórí fyrir Ferðafélag íslands. 18 manna hópur gekk unt Svínaskarð, á milli Skálafells og Móskarðshnjúka. -DB-mynd ARH. Knopf veðurfræðingur birtist. Hann hafði þekkt Trudi i gamla daga og af- staða hennar til hans gengur þvert á vilja systur hennar og frænku. Sigfried Lenz er fæddur árið 1926 í Austur-Prússlandi. Hann lifði uppvaxtar- og þroskaár sin i skugga styrjaldar og erfiðleika eftirstriðs- áranna. En það andrúmsloft stældi kjark hans og þor. Hann vUdi ekki skrifa ,,bara til þess aðskrifa”, einsog einhver orðaði það, hann vUdi afla sér góðrar þekkingar á umheiminum. Fyrsta skáldsaga hans, Es waren Habicthe in der Luft (1951) gerist í Finniandi, sú næsta, Ðuell mit dem Schatten (1953), i Afríku. Þótt flest verk hans séu alvariegs eðlís eru þau mörg hver gædd skemmtilegri kimni og ljóðrænu, sem einkum kemur fram i leikritum hans. Þýðinguna gerði Briel Héðinsdóttir og er hún jafnframt leikstjóri. í helztu hlutverkum eru Kristbjörg Kjeld, Guðrún Asmundsdóttir, Kristin Anna Þórarinsdóttir, Bessi Bjamason og Gísli Alfreðsson. Tæknimaður er Hreinn Valdimarsson. -EVI. 2“11 BLAZER 286,1 Til sölu Blazer árg. 1973, þessi biU befur nýlega verið gerður upp. Ttl greina kemur að taka annan bil upp.i eða skuldabréf. HÚS OG EIGNIR Bankastraoti 6, simi 28811. STALDRK) VIÐ 0G SKODIÐ FRYSTIHÚS Þingvallavatn og nágrenni „Hugmyndin að þessum þáttum er sú að gefa inngrip í hvað fólk sér út um bilgluggann af náttúrunni og hvar skemmtilegt væri að staldra við,” sagði Tómas Einarsson kennari. Hann sér um 3 þætti sem nefnast Umhverfis Hengil og er þessi annar i röðinni. Fjallar hann um Þingvallavatn og jarðfræðina i Grafningi. Tómas hafði orð á því að sér virtist að fólk færi oft hringinn án þess að vita nokkuð um hvað fyrir augu ber. Væri þá stoppað í sjoppum á leiðinni og fengið sér eitthvað í stað þess að hafa með sér nesti og skoða sig vel um. Tómas er virkur meðlimur i Ferða- félagi Íslands og hefur verið lengi. Hann hefur verið fararstjóri i allmörgum styttri gönguferðum, aðal- lega í grennd við Reykjavík. Það verður Kristján Sæmundssón, sem aðallega fræðir okkur um Grafninginn, um eldsumbrotin sem ollu hraunflóðinu þar forðum, sig sem myndazt hafa og þar fram eftir* götunum. Þá er rætt við Jón Kristjánsson fiskifræðing um lifið í Þingvallavatni, en við gerð stíflunnár i Soginu breyttist lífrikið í vatninu. Lítið er farið inn á veiðar að öðru leyti en því að minnzt er á veiðiskap á Þingvöllum þegar dorgað var þar i gegnum ís fyrir 200 árum og sagt er frá í ferðabók Eggerts Ólafssonar. -EVI. EÐLILEG VIÐBRÖGÐ Við að horfa á dagskrá eins og sjónvarpið bauð upp á i gærkvöldi verða ósköp skiljanleg viðbrögð þeirra fjölmörgu aðila sem hafa ráðizt í að koma sér upp innanhúss- sjónvarpskerfi. Fyrir fáeinum dögum krafðist sak- sóknari ríkisins þess að hald verði lagt á tækjabúnað þann sem notaöur hefur verið í þessu sambandi, svo sem myndsegulbönd, leiðslur og fleira. Grunur er uppi um að þessi starfsemi brjóti í bága við gildandi útvarps- og fjarskiptalög. Ef niðurstaða saksóknara verður sú, í framhaldi af þessari harkalegu rannsókn, að einkanot fólks á segul- bandstækjum sé lögbrot, þá má Ijóst vera að gildandi lög eru engan veginn í takt við tímann. Baráttan gegn tækniþróuninni á þessu sviði hlýtur að vera fyrirfram vonlaus og lögun- um verður einfaldlega að breyta i takt við tímann. Þörfin á aukinni fjölbreytni í út- varps- og sjónvarpsrekstri hér á landi er að verða fólki sífellt og ljósari. Um dagskrá sjónvarpsins í gær- kvöldi má þó segja, að miðvikudag- arnir hafa það fram yfir flesta aðra daga vikunnar að þá býður sjón- varpið upp á nokkra dagskrá fyrir börn á mjög heppilegum tíma, þ.e. milli kl. 6 og 7 á kvöldin. Mér hefur virzt sem sjónvarpið sinni þörfum hinna yngstu áhorfenda ekki nægi- lega. Slik barnadagskrá finnst mér að þyrfti að vera öll kvöld vikunnar og þá tel ég að tíminn milli kl. 6 og 7 sé heppilegastur. Þar ætti að fléttast saman léttmeti og fræðsla alveg eins og var í dagskránni I gærkvöldi. í lok sjónvarpsdagskrárinnar í gærkvöldi sátu þeir Geir Hallgríms- son og Lúðvik Jósepsson fyrir svörum. Frammistaða þeirra og ann- arra stjórnmálamanna að undan- förnu í sjónvarpssal Ieiðir hugann að því, hvort þeir menn er að undan- förnu hafa komið inn á alþingi í stað þeirra sem hafa verið að hætta gefi þeim ekki talsvert eftir. Ungu menn- irnir virðast engan veginn standast samjöfnuð við menn eins og Gylfa Þ. Gislason og Lúðvik Jósepsson. -GAJ. á lóð úr landi Vogahafnar, Vogum Gullbringusýslu, er til sölu. Uppi. eru gefnar á skrífstofu Fiskveiðasjóðs I sfma 24310 og hjá eftirlits- manni sjóðsins I sima 33954. Tilboðum I eignina þarf að skila fyrir 10. júnf nk. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Fiskveiðasjóður íslands. Ttl sölu Ffat 127 sport árg. 1979, VW sendibifreið innréttaöur sem ekinn aðeins 10.000 km. Litur svartur. sumarbústaður, ekinn 20.000 km á vél. Bfll i sérflokki. Ný dekk, sem nýr f útlití. Til sölu Chrvsler Le Baron árg. 1978. Til sölu Blazer árg. 1973. Brúnsanseraður, glæsilegur einkabfll. Blásanseraður m/viðarhiiðar. Allur nýtekinn i gegn. Skipti, skuldabréf. Bílasalan — ——Skerfan Skerfunni 11 Stmar84848-35035

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.