Dagblaðið - 29.05.1980, Side 28

Dagblaðið - 29.05.1980, Side 28
frjálst, nháð dagbJað FIMMTUDAGUR 29. MAl 1980. Þing- lausnir ídag — Kristján Eldjárn slítur Alþingi ísíðasta sinn Þinglausnir verða í dag kl. 17 á furidi i sameinuðu þingi. Samkomulag náðist um það milli þingflokkanna í gær. Forseti íslands Kristján Eldjárn slítur Alþingi nú í siðasta sinn, þar sem hann gefur ekki kost á sér tii endur- kjörs. Samkomulag náðist um afgreiðslu húsnæðismálafrumvarpsins og var þriðja og síðasta umræða um það i morgun. Fyrir þinglausnir var og fyrir- hugað að ræða skýrslu um vegamál. Þá var frumvarp til lánsfjárlaga afgreitt. -JH. Nýrkjarasamningur verkafólks í Álverinu að fæðast: Samningsþóf íallanótt Samningafundur fulltrúa verkafólks í Álverinu í Straumsvík og íslenzka ál- félagsins hf. sem hófst i gær stóð enn yfir þegar siðast fréttist í morgun. Var ekki vitað hvort samningar væru á næsta leiti eða hve lengi fundur myndi standa. í gærkvöldi var talið að ekki ýkja breitt bil væri á milli sjónarmiða samningsaðilanna. Kröfur verkafólks í Álverinu voru upphaflega um 13% hækkun grunn- kaups, flokkatilfærslur og fleira. í kjarasamningnum sem er að fæðast er kveðið á um að taka upp „afkasta- hvetjandi vinnufyrirkomulag” — bónuskerfi. Það hefur ekki áður verið til staðar í Álverinu. -ARH. Skógræktarferð kvenna: Pétur ef stur Í skógræktarferð kvenna 28. mai var gerð skoðanakönnun um fylgi forseta- frambjóðenda. Atkvæði féllu þannig: Pétur Thorsteinsson 12 atkv. Albert Guðmundsson 4 atkv. Guðlaugur Þorvaldsson 4atkv. Vigdís Finnbogadóttir 1 atkv. Auðir seðlar voru 6. -GAJ. Borgarstarf smenn ætluðu að rífa starfsvöll bamanna en— ÞAU FLÆMDU HREINS- UNARKARLANA BURT „Krakkarnir hér í hverfinu hafa byggt sér upp fallega litla kofa á opnu svæði hér og dunda sér þar allan daginn án þess að nokkur læti hafi verið. Siðan gerist það i dag að hreinsunardeild borgarinnar er komin á staðinn og ætlar að hreinsa alil burt og þar á meðal kofa barnanna. Mér skilst að það hafi komið kvörtun frá dvalarheimtli aldraðra hér i Furugerði I,” sagði einn íbúi við Espigerði í samtali við DB i gær. Hann sagði að mikil óánægja væri meðal íbúanna að bærinn væri að hreinsa burt það sem börnin hefðu byggt sér upp. DB heimsótti börnin sem sögðu stolt frá því að þau hefðu flæmt hreinsunarkarlana burt en bjuggust þrátt fyrir það við að þeir kæmu aftur á morgun og héldu áfram. Sveinbjörn Hannesson verkstjóri hjá hreinsunardeild borgarinnar sagði i samtali við DB í morgun að nú færi fram lóðarhreinsun um bæinn og haft þessi lóð verið ein af þeim sem ætti að hreinsa. „Það var aðeins byrjað að hreinsa til þarna, en síðan hætt við það. Við munum láta þennan stað eiga sig að minnsta kosti þangað til starfsvellir borgarinnar taka til starfa. Við skiljum vel barna- fólkið í hverftnu en það hefur borizt til okkar kvörtun um þetta svæði og þar á meðal frá dvaiarheimili aldraðra. Bærinn hefur skrifað upp á annað þúsund lóðir í bænum, sem byrjað er að hreinsa þessa dagana. Hins vegar munum við sleppa þessari lóð, en þarna var einnig mikil óánægja i fyrra, þegar átti að hreinsa,” sagði Sveinbjörn Hannesson. -ELA. —en ættu að vera fyrirmynd og hætta hvaladrápinu, segja f ulltrúar Greenpeace Almenningur í heiminum mótmælir meira og meira hvaladrápi og fleiri og fleiri hvalveiðiþjóðir hætta veiðum með hverju ári sem líður. Ástralir eru hættir, Suður- Afríkumenn eru hættir, Brasiliumenn eru hættir og jafnvel Japanir, sem nota hvalinn mest allra þjóða til manneldis, eru farnir að sýna skilning á að hvalurinn sé ekki réttdræpur. En íslendingar fara alltaf fram á að veiða upp í sama kvótann, áreftirár. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi með náttúrufræðingunum dr. Sidney Holt, dr. Sylviu A. Earle og •skrifstofustjóra Greenpeace-sam- takanna í London, Alan Thornton, í Reykjavík í gær. Hvalfriðunar- samtökin Greenpeace eru með sýningu í Ásmundarsal um þessar mundir. Dr. Holts og dr. Earle-eru á þeirra vegum. Þau bentu á að fyrr eða síðar myndu hvalveiðar verða algjörlega bannaðar í heiminum. Vonandi áður en búið væri að útrýma þeim tegundum, sem til eru enn. Margar tegundir hafa þegar horfið af sjónar- sviðinu. Þremenningarnir lýstu undrun sinni á að engar skýrslur um hvala- dráp við ísland væru sendar Alþjóða- hvalveiöiráðinu. Ekkert um hvað dauðastríðið stæði lengi hjá skepnunum. * * —- -b—- ——---------o- r-o-- * - hreinsunarkarlana burt.t Hins vegar sögðust þau eiga von á þeim aftur, sem verður þó ekkert úr. DB-mynd Þorri. „ísiendingar gætu verið fyrir- mynd tmnarra þjóða og hætt hvalvciðum áður en hvaladráp væri bannað á alþjóðavettvangi. Hvers vegna að láta nokkra menn í nafni íslenzku þjóðarinar stunda hvaladráp og fá þannig stimpil á sig sem hvalveiðiþjóð, eða hvaladráparar?” sögðu þremenningarnir. Kvikmyndasýning um hvali og fyrirlestrar verða á Loftleiðahótelinu í kvöld kl. 19.30. Aðgangur er ókeypis. -EVI. an Thornton og náttúrufræðingarnir dr. Sidney Holt og dr. Sylvia A. Earle átmæla öll hvaladrápi kröftuglega. Þrátt fyrir mótmæli voru 20 þús. hvalir ennir á sl. ári. DB-mynd Þorri. LUKKUDAGAR: 29. maí 8559 Henson æfingargalli. J Vinningshafar hringi ísíma 33622. Grænf riðungar breyta um baráttuaðf erð gégn hvalveiðum íslendinga: AÐEINS ÍSLENDINGAR HALDA FAST VID SAMA KVÓTANN Ósamkomulagið um bensfnstöð Olís í Kópavogi úr sögunni: ALLTAF FEGINN ÞEGAR STYTTIR UPP —segir Geir Gunnlaugsson bóndi í Lundi „Maður er alltaf feginn þegar styttir hans. upp,” sagði Geir Gunnlaugsson í Geir sagði að deilan hefði eingöngu Lundi um samkomulag það sem varð i staðið um bensínstöðina. „Þeim var vikunni milli hans og Kópavogskaup- velkomið að halda áfram með Nýbýla- staðar út af bensínstöð Olís i landi veg hvenær sem var,” sagði hann. „Það er frekjan í þessum olíukóng- aðstöðu í krikanum milli Hafnar- um og þeirra ósvifni að ætla sér að fjarðarvegar og Nýbýlavegar í landi koma upp olíustöð við bæjardyrnar hjá hans næst brúnni. manni, sem ég gat ekki fellt mig við,” -EVI. sagði hann og bætti við að nú fengi Olis

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.