Dagblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980.
3
Holóttur vegur:
Vantar að merkja lífshættu-
lega vegi i grenndinni
Anna skrifar:
Víða úti á landsbyggðinni má sjá
skilti sem á stendur „holóttur
vegur”. Vegagerðin ætti svo sannar-
lega að láta búa til fleiri slík þvi víða
þyrfti að vara vegfarendur við holótt-
um vegi. Um síðustu helgi álpaðist ég
til þess að fara svokallaða „flótta-
mannaleið”, þ.e. upp að Elliðavatni
,,á bak við Hafnarfjörð”. Aldrei á
ævi minni hef ég ekið annan eins
óveg. Það var algjör torfæruakstur,
svo ekki sé minnzt á rykið sem var
alveg hræðilegt.
Ég er viss um að Íslendingar gætu
haft drjúgan pening upp úr þessum
hryllilega vondu vegum með því að
bjóða bílaframleiðendum afnot af
þeim til þess að prófa nýja bila áður
en þeir eru sendir á almennan
markað. Ef bílar brotna ekki niður á
þessum vegleysum ættu þeir að vera
færir í flestan sjó.
Það er til háborinnar skammar að
háfa vegi um landið i þvi ástandi
sem þeir eru.Fyrir nokkru kom fram í
sjónvarpsþætti að viðerum á svipuðu
stigi í bundnu slitlagi vega og Mið-
Afríku keisaradæmið hans Bokassa.
Að vísu höfum við okkur til afsökun-
ar að mjög fáir landsmenn standa á
bak við hvern km vegar með bundnu
slitlagi hér á landi. Sennilega eru þeir
þó ekki færri en hjá Færeyingum,
sem ku hafa prýðilega malbikaða eða
steypta vegi um allar koppagrundir.
„Flóttamannaleiðin” sem um ■
ræðir í upphaft bréfsins er vinsæl
sunnudagsleið og liggur upp i Heið-
mörk, bæði frá Reykjavik, Garða-
kaupstað og Hafnarfirði. Þarna er
fagurt friðland sem borgarbúar
heimsækja gjarnan á góðviðris-
dögum.
Full ástæða er til þess að vara fólk
við þessum vegi, sérlega ef það er i
biluni, sem ekki eru við allra beztu
heilsu.
Petur var góður í utvarpinu, þattur-
inn hefði mátt koma fyrr, segir bréf-
ritari.
PETUR
BARAF
Ásgerður Guðjónsdóttir hringdi:
Eftir að hafa hlustað á útvarpsum-
ræður forsetaframbjóðendanna er ég
ekki lengur i neinum vafa hvern ég
kýs, því að Pétur Thorsteinsson bar
af.
Þesar útvarpsumræður hefðu mátt
koma mikið fyrr og hefðu þær
hjálpað mörgum að gera fyrr upp
hug sinn.
Smáauglýsingar
MMBIABSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Spurning
dagsins
Tókstu þátt í hátíða
höldunum 17. júní?
Þyri Hjartardóttir nemi: Nei, ekki
neitt.
Kristján Jónsson nemi: Nei, ég get ekki
sagt það.
Kgill Björnsson vcrzlunarmaður: Nei,
ég mætti að vísu niður i bæ, cn Tór
fljótt aftur.
Sigurlaug Jónasdóttir, vinnur á Hrafn-
istu: Já, það gerði ég.
Gigja Tryggvadóttir, i sumarfríi: Já.
Halldór Jörgensen, vinnur við garð-
yrkju: Já, en það var ekki gaman.