Dagblaðið - 19.06.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980.
DB á ne vtendamarkaði
Afborganir o.fl. upp á
hálfa þriðju milljón
„Mér ofbjóða þessar tölur, en í
dálkinum sem fellur undir „annað”
eru m.a. afborganir af lánum,
bei 'n, fatnaður og læknis-
ko tnaður l>ar að auki viðleguút-
bún. ðu ,egir í bréfi frá Sonju i
R ykjavik. Lr ekki að undra þótt
henni ofbjóði toiurnar, því dálkurinn
„annað” hljóðar upp á rúmlega tvær
og hálfa milljón kr.!
,,Ég hef ekki skrifað niður
eyðsluna fyrr en nú og finnst mér
þetta allhrikalegt,” segir Sonja enn-
fremur. Hún er með þriggja manna
fjölskyldu og meðaltalskostnað í mat
og hreinlætisvörur upp á rúml.
44.500 kr.
Við bjóðum Sonju velkomna í hóp
þeirra, sem halda búreikninga með
okkur. Þeir sem á annað borð háfa
látið i Ijósi skoðun sína á
túrcikningahnldinu eru allir á einu
n ii um ,ið það sé mjög fróðlegt.
Maign telja eiiinig að þeir spari heil-
rnikið með því að skrifa alla eyðslu
niður.
Við teljum einnig að svo sé. í það
minnsta er þá hægur vandi að
fylgjast með í hvað peningunum
hefur verið eytt. í öllum „alvöru-
þjóðfélögum ”, þaðer þar sem verð-
lag er stöðugt, gerir fólk fjárhags-
áætlanir og hefur þá yfirlit yfir
hverju má eyða í svokallaðan óþarfa.
Öllu erfiðara um vik er fyrir fólk
hér á íslandi, þar sem verðlag er svo
óstöðugt að i hvert sinn sem ný vara
kemur í verzlun hefur hún hækkað í
verði.
Það þýðir þó ekki að fólk verði
ekki að fylgjast með verðlaginu. Við
hvetjum sem flesta að vera með
okkur í bókhaldinu. Fyllið út
maíseðilinn og sendið okkur sem
allra fyrst.
-A.Bj.
Að mörgu þarf að hyggja á vorin
„Aðvenju læt ég fylgja upplýsinga
seðlinum smápistil, aðallega til að út-
skýra liðinn „annað”. Hann er að
þessu sinni yfir hálfa milljón,” segir í
bréfi frá Jóhönnu í Kópavogi. Meðal
þess sem hún hefur greitt i mánuðin-
um er:
tannlæknir (það sem ekki
fæst endurgreitt) 47.500,-
skóráalla 54.600.-
meðul 8.000.-
garðurinn, tré og niold 32,700.-
vixill, hiti og rafm.
tónleikar
bensín
233.200,-
20.000. ■
ea 35.000.
I.oks segir Jóhanna í bréfinu:
„Ég þakka svo kærlega fyrir allar
leiðbeiningar í ræktunarmálum.
Þetta er alveg bráðnauðsynlegt svona
á vorin, þegar allir eru á kafi i
garðræktinni. Það væri heldur ekki
svo galið að leiðbeina einnig í sam-
bandi við viðhald húsa, t.d. máln-
ingu, fúavörn, sprunguviðgerðir o.fl.
o.fl. Það er reyndar alveg merkilegt
hvað margt þarf að gera á hverju
vori. Það eru stórar upphæðir i veði
ef eitthvað er vitlaust gert eða
óvönduð eða jafnvel röng efni eru
notuð.”
Jóhanna sendi okkur jafnframt
sumarlega uppskrift af pylsurétti sem
sjá má annars staðar hér á síðunni.
Kunnum við henni beztu þakkir fyrir.
-A.Bj.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvaö kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þiinnig eruð þér orðinn virkur þátttakandi í upplýsingantiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimilishostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér vonum að fá nvtsamt heimilistæki.
Kostnaður í maímánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaó
kr.
AIls kr.
m i ik iv
Fjöldi heimilisfólks
Hárburstinn góði sem hækkaði um 600 kr. á einum sólarhring.
Stöðugar verð-
breytingar
M.S., Raufarhöfn skrifar:
,,Þá er bezt að senda ykkur fyrsta
upplýsingaseðilinn. Það er langt
siðan ég hef haldið bókhald. Það
er gaman að þessu og sjá hve hlutirnir
hækka frá byrjun mánaðar til Ioka.
Það er aldrei sama verðið á hlutunum
hér.”
M.S. er með sjö manna fjölskyldu
og meðaltalskostnað í mat og hrein-
lætisvörur upp á rúml. 33 þús. kr.
Við bjóðum hana velkomna í hóp
heimilisbókhaldaranna.
Til huggunar M.S. og öðrum sem
búa utan höfuðborgarinnar þykir rétt
að taka fram að verðlag hækkar á
öllum hlutum þar ekkert síður en úti
á landi.
Sem dæmi get ég nefnt að á dögun-
um hitti ég stúlku sent hafði keypt
alveg skinandi brúklegan hárbursta,
sem þar að auki kostaði ekki nema
1200 kr. Ég fór i verzlunina þar sem
hárburstinn fékkst og það meira að
segja daginn eftir. Þá kostaði burst-
inn 1800 kr. Þegar ég spurðist fyrir
um þennan verðmismun á milli daga
svaraði elskuleg afgreiðslustúlka að
það væri einmitt verið að ,,taka upp
nýja sendingu” af hárburstunum!
-A.Bj.
Midstöðvarlögnin
kostaði rúmlega
1,3 millj. króna
,,Þá keimn ntai seðillinn með
gífurlegar tölur. I liðnum ,.annað” er
allt talið nenta miðstóðvarlögnin i
húsið. Ég ætla að gamni mínu að geta
þess hvað hún kostaði en það voru
1.375.797 kr.,” segir m.a. í bréfi
frá I.R. sem búsett er á Höfn í
Hornafirði.
I. R. var með kostnað upp á rúml.
1,2 milljónir í dálkinum „annað” á
maí seðlinum. Hún er með fjögurra
manna fjölskyldu og meðaltals-
kostnað í mat og hreinlætisvörur upp
á nærri 39 þús. kr. á mann. -A.Bj.
Tvö af mæli hleyptu
tölunum upp
„Kæra Neytendasiða!
Mér brá þegar ég sá hversu há
upphæð hafði farið í mat og
hreinlætisvörur í maí, rúml. 50 þús.
kr. á mann,” segir í bréfi frá G. A i
Hafnarfirði.
„í þessum mánuði voru tvö barna-
afmæli hjá mér og svo var kjötið svo
að segja búið úr kistunni og er keypt
jafnóðum.”
FU0TLEGUR
PYLSURÉTTUR
Þessi uppskrift er „heimatilbúin”
og segir bréfritari að hún sé vinsæl
heima hjá sér. Segist stundum hafa
þetta á boðstólnum þegar hún nenni
ekki að hafa mikið fyrir matnum og
tíminn naumur:
2 stórir laukar
(skornir í bita)
1 pk. pylsur
(skornar í bita)
1 dós tómatkraftur og örlitið vatn
eða
1 bolli tómatsósa
2 tsk. rósmarin
(ósteytt er bezt)
Pylsurnar og laukarnir steiktir með
kryddinu á pönnu. Þegar þetta er vel
steikt er tómatsósti/krafti bætt út í
og hitað vel. Með þessu er ýmist
borin kartöflustappa eða bara ristað
brauð. Börnunum þykir þetta hið
mesta lostæti.
Okkur telst til að hráefnis-
kostnaður sé nálægt 2300 kr.
-A.Bj.