Dagblaðið - 19.06.1980, Page 10

Dagblaðið - 19.06.1980, Page 10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980. ÚftB«fandc Dagblaðið hf. Framkvaemdas^ón: Sveínn R, Eyjótfsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson. Rits^ómarfiiBtrúc Haukur Helgason. Fréttastjórí: Ómar Valdimarsson. Skrifstofust)óri rítstjómar. Jóhannes Reykdal. Í|it6fttir: HaMur Símonarson. Menning: Aflalsteinn Ingólfsson. Aflstoflarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karísson. Plaftanrsmr Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi SigurAsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Ema V. Ingólfsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, ■Ólafur Gairsson. Sigurflur Sverrisson. Ljósmyndir Ámi Páfl Jóhannsson, Bjamlorfur Bjamloifsson, Hörflur Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son. Sveúm Þormóflsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson. Skrifsftofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkerí: Þráinn Þoríoifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing arstjórí: Mór EJM. Hafldórsson. WHstjóra Siflumúla 12. Afgreiflsla, éskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aflalsimi blaflsins er 27022 (10 linur). Seftning og umbrot: Dagbtaflifl hf., Siflumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun Árvakur hf.. SkaHunni 10. Áshríftarverð á mánufli kr. 5000. Veifl i lausasölu kr. 250 eintakifl. Að vísitelja gengið Fjárhirðirinn í sögunni var búinn að hrópa „úlfur, úlfur” ótal sinnum. Menn voru hættir að trúa honum, þegar úlfurinn birtist svo loks í rauninni. Svo virðist sem frystihúsasamtökin séu að ienda í svipuðum vanda. Eins og Listahátíð hélt upp á sjó- mannadaginn, þá fór menntamálaráðherrann í síðustu viku með sjávarútvegsmál. Hann sagðist taka gengis- lækkunarkröfum frystihúsamanna með varúð. Yrði gengið fellt, þá yrði það gert hægt og sígandi. Seðlabankastjórinn var í útlöndum þá dagana. Þess vegna bárust ríkisstjórninni ekki neinar tillögur frá bankanum um lækkun eða sig gengis. Sumum gæti dottið í hug, að ráð gegn gengislækkunum væri að geyma bankastjórann erlendis. Sennilega var fjárhirðirinn í sögunni sjaldnast að segja verulega ósatt. Þegar þorpsbúar, þ.e. ráðherrar og bankastjórar, ruku upp með óhljóðum, þ.e. gengis- lækkunum, fældu þeir úlfinn, svo að hann át ekki lömbin, þ.e. frystihúsin. Úr því að úlfurinn fældist og sást ekki, er hætt við, að sumir telji hann ekki hafa verið til, að minnsta kosti ekki á þessum slóðum. Þetta virðist nú vera eitt af vandamálum fjárhirðisins, þ.e. frystihúsasamtakanna. Að vísu viðurkenna viðsemjendur frystihúsa, út- gerðarmenn og sjómenn, að hækkun fiskverðsins 1. júní hafi verið út í hött. Hún hafí aðeins verið gerð til að sjómenn fengju sömu prósentuhækkun og aðrir landsmenn fengu. Það ætti að vera ábyrgðarhluti að knýja fram hækk- un og viðurkenna svo nokkrum dögum síðar, að kaup- andinn geti ekki greitt hana. Að þessu ábyrgðarleysi stóðu formenn samtaka útgerðar og sjómanna og oddamaður ríkisstjórnarinnar. Hvað er þá til ráða? Formaður Sjómannasambands- ins segist vera andvígur gengislækkun. Hann talar óljóst um „viðeigandi ráðstafanir” ríkisstjórnarinnar. Óneitanlega væri fróðlegt að vita, hvað hann á í raun- inni við. Líklega eru menn orðnir leiðir á að trúa, að krukk í hliðaratriði á borð við vexti geti hindrað vanda af þess- ari stærð. Það væri þá frekar, að landbúnaðarstefna með „viðeigandi” útflutningsuppbótum fái bjargað frystihúsunum! En hver vill ganga fram fyrir skjöldu og óska eftir sjálfvirku landbúnaðarkerfi í sjávarútveginum? Hver vill gera útgerðarmenn, sjómenn og frystihúsafólk að ríkisstarfsmönnum? Er eitt kvígildi í atvinnulífinu ekki nóg? Staðreyndin er sú, að ekki dugir að hafna gengis- lækkun og tala út í loftið um „viðeigandi ráðstafanir” hins opinbera. Það er ekki hægt að vísitölubinda alla hluti í þjóðfélaginu aðra en gengi islenzku krónunnar. Stigið hefur verið skref í átt vísitölubindingar kjara sjómanna eins og annarra landsmanna. Fjárskuldbind- ingar eru smátt og smátt að verða vísitölubundnar. Þetta kerfi kallar á, að gengi krónunnar verði líka vísitölubundið. Þar með væri búið að koma verðbólgunni fyrir á hliðarspori, þar sem hún getur hamazt án tímabund- innar uppákomu á borð við gjaldþrot frystihúsa. Þar með væri búið að sníða verstu vankantana af verðbólg- unni. Enn betra væri raunar að játa, að sjálfstæði okkar byggist ekki á eigin gjaldmiðli fremur en sumra ann- arra smáþjóða. Hví ekki hafna alveg heimatilbúinni verðbólgu og taka upp svissneska franka sem gjald- miðil í stað krónunnar? Djibouti: Peningastraumur vegna hemaðar- legs mikilvægis Einn góðan veðurdag fyrir nokkr- um vikum hrökk syfjaður flugum- ferðarstjóri á flugvellinum í Djibouti upp við vondan draum. Ósk um lend- ingarheimildir barst skyndilega frá tveimur sovézkum flugvélum. Hvorug þeirra hafði látið í sér heyra áður en innan skamms voru vélarnar lentar. Ekki var neitt verið að tvínóna við hlutina heldur voru flugvélarnar affermdar strax. Brátt stóðu tuttugu brynvarðar bifreiðir á flugbrautinni hinum fáu frönsku og innfæddu varðmönnum sem þar voru til mik- illar undrunar. Málið skýrðist brátt. Út úr einni bifreiðinni stökk líbýskur liðsforingi. Hann tilkynnti að bifreiðirnar tuttugu væru sérstök gjöf til Djibouti frá Gaddafi forseta Líbýu. Gjöfin var þegin, viðstöddum Frökkum til mikillar armæðu. Djibouti er fyrrum frönsk nýlenda og fékk sjálfstæði fyrir þrem árum. Frakkaf eru sanit sem áður mjög áhrifamiklir í land- inu, bæði stjórnmálalega og efna- hagslega. Djibouti sem stendur á austur- strönd Afríku, þar sem hún liggur að Rauðahafinu, er fátækt land. Afkoma þess byggist nánast algjör- lega á gjöfum og framlögum frá arabarikjunum og vestrænum ríkj- um. Fyrir skömmu tilkynntu stjórn- endur Saudi Arabíu að þeir hefðu veitt Djibouti 60 milljón dollara styrk og lán. Þar af voru fimm milljónir dollara ætlaðar til aðstoðar vegna síhækkandi verðlags á olíu. Annað arabaríki, írak, tilkynnti skömmu siðar að það legði fram sextíu milljónir dollara til styrktar frændum sínum í Djibouti. Þar af áttu tuttugu og sex milljónir dollara að vera í formi hagstæðs láns en afgangurinn, þrjátíu og fjórar milljónir dollara, var beinn styrkur sem ekki er ætlazt til að verði endur- greiddur. Ekki er þetta í fyrsta skipti sem ráðamenn írak sýna Djibouti rausn sína. Hassan Gouled forseti Djibouti stendur við mynni Rauðahafsins og er því hernaðarlega mjög mikilvægt. landsins þáði nýlega að gjöf tveggja hreyfla „forstjóraflugvél” frá írökum. Er hún ætluð til einkanota fyrir’forsetann. Ennfremur má geta þess að sérfræðingar frá Kuwait standa fyrir byggingaáætlun en sam- kvæmt henni verður fjöldi skóla og moska byggður viðs vegar um landið. Ekki má siðan gleyma efnahags- aðstoð þeirri sem Frakkar leggja Dji- bouti til. Er hún talin nema tvö hundruð milljónum dollara árlega. Þriðjungur fjárhæðarinnar gengur til þess að standa straum af kostnaði við réttarkerfi Djibouti og einnig skóla- kerfið. Talið er að átta af hverjum tíu kennurum við skóla í landinu séu franskir. Afgangurinn af tvö hundr- uð milljónum gengur síðan til þess að kosta her landsins. Uppistaða hans eru þrjú þúsund sex hundruð og fimmtíu franskir hermenn. Djibouti hefur því ríkulega notið góðs af rausn nágranna sinna og vina. Mikið er af frönskum vörum i verzlunum. Nýjar bifreiðir aka um götur borganna. Hótelbyggingar spretta upp til að mæta vaxandi eftir- spurn erlendra kaupsýslumanna sem sækja i vaxandi mæli til landsins. Þrátt fyrir þessa velsæld er talið að meðaltekjur á íbúa í Djibouti séu ekki nema 250 dollarar á ári eða jafn- virði einhvers staðar nærri 25 þúsundum íslenzkra króna. Hinir :ólf þúsund Frakkar sem enn búa í land- inu njóta þó mun betri kjara. Meðal- tekjur þeirra eru taldar vera jafnvirði 5000dollara á ári. Ekki er búið að telja upp allar þær peningalindir sem Djibouti hefur V ■ ......... Launahækkun alþingismanna: RANNS0KN FARIFRAM Þegar íslenzkt þjóðfélag rambar á barmi gjaldþrots vegna vanhæfni þeirra lýðskrumara, sem valizt hafa til starfa að stjórnmálum og sitja á Alþingi íslendinga, gera þessir sömu lýðskrumarar sér lítið fyrir og sam- þykkja í þeirri fáránlegustu nefnd allra nefnda, sem þeir hafa stofnað, að skammta sér 20% launahækkun — frá síðustu áramótum! öllum gleymdir „Þingmenn hafa dregizt aftur úr í launum og þessi ákvörðun er leiðrétt- ing á þvi, en ekki það, að við höfum ætlað okkur að fá meira en aðrir!” Þetta lætur einn fulltrúinn í svokall- aðri þingfararkaupsnefnd hafa eftir sér! Það er von, að aumingja maðurinn telji sig hafa dregizt aftur úr í laun- um, þegar búið er að „hækka laun” allra annarra í þjóðfélaginu. Hvað er þessi svokallaði þingmaður að fara, hvaða launum hafa þingmenn dregizt aftur úr, hvaða „aðra” er maðurinn að meina? Hann veit, að enginn launahópur hefur fengið neina launa- hækkun frá áramótum — launamálin öll eru í biðstöðu. Hafa þingmenn ekki heyrt þess getið? Þótt svokallaðir alþingismenn séu þjóðinni gleymdir, um leið og þeir Ijúka sinum furðulegu vinnubrögð- um í sölum Alþingis, þá máttu þeir vera þess fullvissir, að útilokað var, að þeir gætu samþykkt samhljóða, að „nefnd” þeirra veitti þeim 20% launahækkun, án þess að opinber- lega væri um málið fjallað. Fjölmiðlar og starfsmenn þeirra láta slíkt ekki fram hjá sér fara, þeir tímar eru liðnir, að mál séu „svæfð”, þótt talsmenn nefnda og ráða „vilji ekkert um málið segja að svo stöddu”. Þegar þannig er svarað, er einmitt sérstök ástæða til þess að kanna málin ofan í kjölinn og birta opinberlega. V

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.