Dagblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 1
1 6. ÁRG. — LAUGARDAGIIR 28. JÚNÍ 1980 — 144. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. rTæplega f immtugur Reykvíkingur í gæzluvarðhaldi: TUGMILUÓNA FJÁR- SVIKAMÁL í RANNSÓKN — Hæstiréttur staðf estir gæzluvarðhaldsúrskurðinn Hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins er nú unnið af miklum krafti að rannsókn meints fjársvikamáls og var nálega fimmtugur Reykvikingur úr- skurðaður i gæzluvarðhald frá síðustu helgi til 2. júli vegna rannsóknar málsins. Hinn sakfelldi maður kærði úrskurðinn til Hæs'a- réttar, sem staðfesti varðhaldsúr- skurðinn með dómi á fimmtudaginn. Fram munu komnar nokkrar kærur á manninn og samkvæmt þeim er hann sakaður um að hafa svikið milljónatugi af öðrum. DB er kunnugt um að ein kærannaersett fram af lögfræðingi í Reykjavik fyrir hönd manns úti á landi. Telur hann hinn kærða hafa svikið af sér hartnær 30 milijónir. Gerðust svikin á þann hátt að kærði tók við samþykktum vixlum af þeim er nú kærir til að framkvæma ýmis kaup, m.a. bílakaup. Ekkert varð siðan úr framkvæmdum hjá kærða en sá er nú kærir telur sig sitja uppi með víxilskuldirnar einar saman. Málið er flókið og umfangsmikið og snertir, að því að talið er, marga aðila. Er ljóst að margvislegt brask mun hafa farið fram með fjár- upphæðina því hálft annað ár er liðið síðan fyrri helmingur víxlanna var samþykktur af kæranda. Hæstiréttur staðfesti varðhaldsúr- skurð hins kærða og segir i dóms- orðum að gögn málsins hafi borizt 23. júni en hvorki hafi borizt greinargerð frá ríkissaksóknara eða skipuðum verjanda varnaraðila. Var því aðeins skírskotað til forsenda hins kærða úrskurðar við staðfestingu varðhaldsins, sem eru frantlögð gögn kæranda og það sem fram hefur komið i yfirheyrslum. ELDURÁ STÓRU SVÆÐI í HEIÐMÖRK — marga tíma tók að hefta útbreiðslu eldsins en illmögulegt er að slökkva hann Mikill mosa- og lyngbruni varð austast í Heiðmörkinni, suðaustan við Silungapoll og vestan Lækjarbotna, um tvöleytið í gær. Voru slökkviliðs- menn kvaddir á vettvang, en bílum varð hvergi komið nálægt bruna- svæðinu og var um 20 mínútna gangur yfir ógreiðfært hraun. Varð því engu vatni komið á staðinn. Hófu slökkviliðsmenn baráttu við eldinn með klórum og göfflum og jafnvel berum höndum. Eldurinn hélt áfram að breiðast út og var til kvaddur liðsauki lögreglumanna og hópar úr unglingavinnunni. Störfuðu þannig tugir manna að slökkvistarfinu. Upp úr klukkan 5- höfðu ntenn grafið hálfs annars metra djúpa rennu kringum brunasvæðið og tókst þá loks að hefta útbreiðslu eldsins, en eld- svæðið var þá talið vera 2—3 hektarar. Eldurinn liggur djúpt í mosanum og er illslökkvanlegur. Er mikil hætta á ferðum ef vind herðir en að óbreyttum vindstyrk nær eldurinn ekki yfir hina gröfnu rennu. Um kvöldmatarleytið leystu vinnufiokkar Reykjavikurborgar og frá Skógræktarfélaginu aðra af hólmi og verða á vakt við brunasvæðið í nótt. Mikinn reyk leggur upp af svæðinu en lítill eldur sést, enda djúpt i mosanum og lynginu. Á brunasvæðinu eru engin tré svo skaði er minni en ella. -A.St. Einkennileg aðkoma að mannlausri íbúð Einkennileg var aðkoman er slökkvi- liðsmenn komu að mannlausri íbúðá 8. hæð í 9 hæða blokk við Engihjalla i Kópavogi á áttunda tímanum i gær. Straumur var á öllum plötum eldavélar en engin húsgögn eða aðrir hlutir i íbúðinni. Er ekki vitað hverstt lengi þetta ástand hafði varað því ekki tókst strax að ná til eiganda. Eldhúsinnrétting var tekin að sviðna og mikill hiti og nokkur reykur í ibúð- inni. Olli þetta talsverðum skemmdum. - A.St. Þrettán ára Bolvíkingar standa í meisturunum Tveir þrettán ára drengir úr Bolung- arvík gerðu jafntefli við Friðrik Ólafs- son stórmeistara og Margeir Pétursson, alþjóðlegan meistara á helgarskákmót- inu í Borgarnesi í fyrstu umferðinni sem tefld var í gær. „Þetta voru hörkuskákir,” sagði Jóhann Þórir Jónsson mótstjóri í við- tali við fréttamann DB er hann spurðist fyrir um gang mótsins. Halldór Einarsson heitir pilturinn sem velgdi alþjóðlega stórmeistaranum undir uggum með frábærri frammistöðu. Júlíus Sigurjónsson heitir sá sem jafnteflið gerði við Margeir Pétursson. Aðra umferð helgarmótsins álti að tefla í gærkvöld en mótinu lýkur á morgun. -BS. Lögreglumenn berjast við eldinn I Heiðmörk siödegis i gær við mjng crfiðar aðstæður. DB-mynd RagnarTh. ' TAKIÐ ÞÁn f KEPPNINNIUM SUMARMYND DB ’80 — glæsileg verðlaun í boði—skilaf restur til 31. ágúst

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.