Dagblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 24
Sameiginlegt verkfall
f lugmanna Flugleiða
—vegna aukins leiguf lugs annarra flugf élaga á áætlunarleiðum félagsins
Flugleiðaflugmenn hafa ákveðið
að fara sameiginiega í verkfall laug-
ardaginn 5. júlí og siðan afiur laugar-
daginn 12. júlí. Stéttarfélög flug-
mannanna, Félag islenzkra at-
vinnuflugmanna og Félag Loftleiða-
flugmanna, standa að verkfalls-
boðuninni og var hún send stjórn
Flugleiða i gær.
Verkfalliðer boðað vegna þess að
flugmenn sætta sig ekki við aukið
leiguflug annarra flugfélaga á
þeirra eigin áætlunarleiðum.
Verkfall þetta stendur í engu sam-
bandi við launamálin eða yfirstand-
andi samningaviðræður milli flug-
manna og stjórnar og samninga-
nefndar Flugleiða.
Þar standa stéttarfélög flugmanna
f lugleiða ekki sameinuð og semja sitt
i hvoru lagi. Samstaða hefur ekki
náðst um sameiningu starfsaldurs-
lista flugmannanna, en það er krafa
Flugleiða að svo verði áður en gengið
verður til kjarasamninga.
-JH.
frjálst, úháð daghlað
LAIJGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980.
Hvassyrt deila borgar-
verkfræðings og
byggingarnefndar um
Höfðabakkabrúna:
„Upplýsingum
var stungið
undir stól”
Tveir fulltrúar i 'iygginga. r.el'nd
Rvikur hafa sent frá sér yfirlýsingu
þar sem þeir saka borgarverkfræðing,
gatnamálastjóra og yfirverkfræðing
gatnadeildar um að stinga yfirlýsingum
visvitandi undir stól svo þær nái ekki
að koma fyrir augu byggingarnefndar.
Einnig ásaka þeir „embættis-
verkfræðingana” um að koma ekki á
framfæri hugmyndum um ódýrari
lausn á Höfðabakkabrúnni heldur en
nú liggur fyrir. Er þar um að ræða hug-
myndir Hönnunar hf. um aðra kosti en
fyrirliggjandi teikningar að Höfða-
bakkabrúnni. Hefur borgarverk-
fræðingur kveðið svo sterkl að orði að i
bréfi til byggingarnefndar talar hann
um „skemmdarstarfscmi eins verk-
fræðings hjá Hönnun”. Þykir bygging-
arnefndarfulltrúunum Gunnari H.
Gunnarssyni og Magnúsi Skúlasyni
sem hér sé borgarverkfræðingur að
vega að einum verkfræðingi á
ógeðfelldan hátt. En „skemmdarstarf-
semi” verkfræðingsins samræmist
lyllilega siðareglum Verkfræðinga-
lelagsins og hafi honum borið að
minnast á hint. ód\ vn möguleika og i
raun verið skylt að gera það. -BH.
Það hefur ekki svikið veörið undanfarna daga og vikur — og á heldur ekki að bregðast nú um helgina þegar
fjórði forseti lýðveidisins verður kosinn. DB-mynd: R.Th.
Gott veður um allt
land á kjördaginn
— en þoka gæti sett strik í reikninginn varðandi f lug
með atkvæðakassa
Helgi H Zoéga
iinihu'V.'iiaöur
Heeiwood.
l)B-m>'id
Hörður.
„Það er ekki útlit fyrir annað en
veður verði gott um allt land á kosn-
ingadaginn,” sagði Hafliði Jónsson
veðurfræðingur i spjalli við DB.
„Spáin fyrir sunnudaginn er hæg-
viðri um land allt.”
Hins vegar mun viss hætta vera á
því að þoka læðist inn yfir landið
viða við strendur og gæti slíkt haft
áhrif á flug með atkvæðakassa og
þannig seinkað talningu atkvæða.
„Það er hætta á þoku víða við
strendur,” sagði Hafliði. „Það á
einkum við á Vestfjörðum og á
Norðurlandi og viss hætta í þessum
efnum er einnig á S-Austurlandi.
Hins vegar er spá um þoku erfið og í
raun vitleysa að spá nokkru þar um.
Við vitum hins vegar áf þoku úti fyrir
og hún verður þar áfram. Þarf ekki
mikinn vind til að hún berist inn yfir
land. En ég vil þó ekki vera allt of
svartsýnn varðandi þetta,” sagði
Hafliði. -A.St.
Unnur Steinsson var ekki á því að taka
á móti glæpamönnum án þess að reyna
að verja sig, jafnvel þó þeir væru fjórir
á móti henni einni.
DB-mynd Ragnar.
Bensinlítrinn
í 481 krónu
Samþykkt hefur verið hækkun á
bensíni og gasolíu og kemur hún þegar
til framkvæmda.
Einn lítri af bensini hækkar úr 430
kr. í 481 eða um 12%. Einn lítri af
gasolíu hækkar úr 155,20 kr. í 196,40
eða um 26%.
-GM.
Islenzkir
bátar hafa
fengið gott
verð í
Fleetwood
— markaðurinn hefur
farið dagbatnandi
undanfarna tíu daga
Fiskmarkaður fyrir íslenzkan fisk í
Fleetwood hefur batnað mikið undan-
larna daga eftir að hann hafði verið
daufur um tíma. Helgi Zoéga,
umboðsmaður John N. Ward fisk-
kaupanda, sagði í gær að undanfarna
daga hefði hver dagurinn verið öðrum
betri og hefði fengizt hærra verð í
Fleetwood en á austurströndinni.
„Þetta á að haldast ef ekki verður
hrúgað of mörgum skipum í einu á
markaðinn,” sagði Helgi. „Ef það er
gert, þá eyðileggja menn fyrir sjálfum
sér. Minni veiði hefur verið hér á
bolfiski, þorski og ýsu og því hafa
islenzku bátarnir fengiðgott verð fyrir
afla sinn.”
íslenzkir bátar hafa landað nær
daglega að undanförnu í Fleetwood og
verð farið hækkandi. Siðasti bátur,
sem fréttist af, var Þórtmn Sveins-
dótlir, en fyrir hvert kt fen usl 579 kr.
-JH.
LUKKUDAGAR:
28. jíjnI 2830
Henson æfíngargalli.
Vinningshafar hringi
isíma 33622.
Unnur tók
hraustlega
ámóti
skúrkunum
— þegar ráöízt var
á fulltrúa ungu
kynslóðarinnará
járnbrautarstöð
íParís
Ráðizt var á Unni Steinsson,
fulltrúa ungu kynslóðarinnar, á járn-
brautarstöð í París á föstudagskvöldið í
fyrri viku. Unnur var á leið út á flug-
völl þaðan sem hún ætlaði með flugvél
til Marseilles. Fjórir menn réðust á
hana í þeim tilgangi að ræna hana.
Unnur tók hins vegar á móti þeim og
það ekki með neinum silkihönzkum.
Tveir lögregluþjónar með alvæpni
komu henni svo til hjálpar. Þegar
glæpamennirnir urðu varir við lög-
regluna hlupu þeir hver í sína áttina og
hafa ekki sézt síðan.
Unnur var slæm í baki eftir átökin,
en að öðru leyti ómeidd. Hún hélt eins
og ekkert hefði i skorizt áfram til
Marseilles þar sem hún vann þá helgi.
A mánudag sneri hún svo aftur til
Parísar þar sem hún starfar sem ljós-
myndafyrirsæta. -DS.