Dagblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1980.
3
Seltjarnarnes:
HÆTTA A AUKINNI
AFENGISNEYZLU
með opnun útsölu
Anna K. Oddsdóttir skrifar:
Næstu helgi fara fram tvennar
kosningar á Seltjarnarnesi. Það mun
ekki hafa farið framhjá neinum að
forsetakosningar standa fyrir dyrum.
Á Seltjarnarnesi verður einnig kosið
um það, hvort opna skuli áfengisút-
sölu í bænum.
Mig langartilað bcnda á nokkur
atriði stm vert er að hafa í huga þegar
gengið er til slíkrar atkvæðagreiðslu.
Hætta er á aukinni áfengisneyzlu
þar sem aðgangur er gerður greiðari
að áfenginu. Fleiri en okkur grunar
munu eiga erfitt með að standast þá
freistingu að koma við i áfengis-
verzluninni um leið og komið er úr
vinnunni, eða skroppið út í búð.
Hætta er á að unglingar leiðist frekar
út i áfengisneyzlu, þar sem þeim
verður gert auðveldara að nálgast á-
fengið. Því miður eru alltaf einhverjir
sem leggjast svo lágt, að kaupa á-
fengi fyrir unglinga. Umferð úr ná-
grannabyggðunum mun aukast og
auka hættu í umferðinni og taka upp
bílastæði Nesbúa. Hætta á
drukknum öi. inönnum mun aukast.
Áfengisútsalf mun laða að sér
Jrykkjufólk og skapa samfélagsleg
vandamál. Löggæzlu mun þurfa að
efla og ekki er ótrúlegt að einnig
þyrfti að koma upp fangageymslum.
Allt mun þetta stuðla að auknum út-
gjöldum bæjarfélagsins, böli,
hættum, ónæði og margs konar
óþægindum fyrir bæjarbúa.
Aukum ekki á böl annarra.
Bjóðum ekki hættunni heim.
Greiðum atkvæði gegn áfengisútsölu
á Seltjarnarnesi.
Frá Seltjarnarnesi, bréfritari segir
untfcrð muni aukast og alls kyns ónæöi
með tilkomu áfengisútsölu á nesinu.
DB-mynd Hörður.
Kauphækkun þingmanna:
RANNSOKN NU ÞEGAR
S.S. skrifar:
Mikið hneykslismál hefur nú
komið upp í íslenzkum stjórnmálum
þegar upplýst var, að þingmenn
hefðu hækkað kaupið hjá sjálfum sét
um 160 þús. kr. á mánuði og gert
hækkunina afturvirka um sex mán-
uði. Laun ráðherra áttu að hækka
um hálfa milljón á mánuði. Á sama
tima bauð Ragnar Arnalds fjármála-
ráðherra opinberum starfsmönnum
0,37%—1,98% hækkun. Ákvörðun
um 20% kauphækkun þingmanna
var tekin með leynd í þingfararkaups-
nefnd og hefur Sverrir Hermannsson
upplýst, að nefndin hafi samþykkt
samhljóða að láta ekkert frá sér fara
opinberlega um málið. í lögum um
þingfararkaup er ákvæði samkvæmt
hvaða launaflokki þingmenn skuli fá
laun. í lögunum er hvergi veitt heim-
iid til þess að greiða þingmönnum
fyrir yfirvinnu, hvorki mælda né
ómælda. Þar sem engar almennar
breytingar hafa orðið á launum
starfsmanna ríkisins og greiðslur til
þingmanna fyrir ómælda yfirvinnu
eiga ekki stoð i lögum, er ekki annað
að sjá en að þingfararkaupsnefnd
hafi með ákvörðun sinni um 20%
kauphækkun til þingmanna stefnl
að þviað brjótalög.
Rannsókn verði
sett í gang
Að undanförnu hefur mikið verið
rætt og ritað um þessa ákvörðun þing-
fararkaupstiefndar og sýnist sitt
hverjum hvernig tekið skuli á þessu
hneykslismáli. Heyrzt hefur krafa um
að þeir þingmenn sem sæti eiga i
þingfararkaupsnefnd segi af sér.
Aðrir telja að þingmönnum öllum
hafi verið kunnugt um ákvörðun
nefndarinnar og séu því samsekir.
Þeir eigi þvi allir 60 að tölu að segja
af sér þingmennsku. Enn aðrir vilja
að rannsókn verði sett i gang og það
kannað og siðan upplýst, hvernig
ákvörðunin um 20% launahækkun
þingmanna varð til og verður það að
teljast gáfulegasti kosturinn. Ýmsar
spurningar vakna í þessu sambandi.
1. Á þessi ákvörðun þingfarar-
kaupsnefndar einhver fordæmi í
sögu lýðveldisins og ef svo er, þá
hve oft og hvenær?
2. Var þetta mál tekið fyrir og rætt í
þingflokkum allra stjórnmála-
flokkanna?
3. Var öllum þingmönnum kunnugt
um þessa ákvörðun þingfarar-
kau psnefndar?
4. Hver eða hverjir áttu upphaflega
þá hugmynd að hækka kaup þing-
manna einmitt nú, þegar ríkis-
stjórnin hefur boðað að ekkert
svigrúm sé til almennra grunn-
kaupshækkana?
Dæmdir í næstu
þingkosningum
Ef þeir þingmenn sem ábyrgð bera
á þessari ákvörðun um launahækkun
þingmanna munu þráast við að segja
af sér, verða kjósendur að grípa til
sinna ráða. Hér er um að ræða slíkt
siðleysi að ekki verður við unað.
Þetta mál mun geymt en ekki gleymt í
hugum kjósenda. í prófkjörum
stjórnmálflokkanna fyrir þingkosn-
ingar er t.a.m. hægt að sýna álit sitt.
Alþýðubandalagsmenn telja sig alltaf
geta barið sitt lið saman með slagorð-
unum „ísland úr Nató og herinn
burt”. Þeim fer nú óðum fækkandi
sem trúa á þessi slagorð kommanna.
Ólafur Ragnar Grimsson sendi fyrir
stuttu frá sér yfirlýsingu úr fundar-
gerð þingflokks Alþýðubandalagsins
17. mai 1980. „3. Rætt um launakjör
þingmanna. Talið að ekki sé tíma-
bært að afgreiða þetta mál.” Þessi^ •
bókun þingflokks Alþýðubandalags-
ins segir Ólafur Ragnar, sýna and-
stöðu þingflokksins við að afgreiða
breytingar á launakjörum þing-
manna. Hvilík hræsni. Ennfremur
var i sjónvarpsfréttum haft eftir
Ólafi Ragnari, að vegna anna í þing-
inu siðustu dagana fyrir þinglausnir
Raddir
lesenda
hefðu þingmenn ekkert vitað um
þessa einhliða ákvörðun þingfarar-
kaupsnefndar. Garðar Sigurðsson,
formaður þingfararkaupsnefndar,
segir hins vegar að ákvörðun nefnd-
arinnar hafi verið rædd á þingflokks-
fundi Alþýðubandalagsins sem hann
sat og að þingflokkurinn hafi vitað
allt um málið.
Frumvarp um
þingfararkaup
Eiður Guðnason og Vilmundur
Gylfason lögðu fram frumvarp til
laga um þingfararkaup aiþingis-
manna á 100. löggjafarþingi. Frum-
varpið var lagt fram i neðri deild.
Fyrsta grein þeirra laga hljóðar svo:
„Launakjör alþingismanna skulu
ákveðin af Kjaradómi. Kjör alþingis-
manna að öðru leyti, svo sem hús-
næðis-, dvalar- og ferðakostnaður,
skulu sömuleiðis ákveðin af Kjara-
dómi að fengnum tillögum þingfarar-
kaupsnefndar. Launin greiðast mán-
aðarlega og hefjast greiðslur frá byrj-
un næsta mánaðar eftir kjördag."
Miklar umræður urðu um þetta
frumvarp á sinum tíma og var það
fellt aðviðhöfðu nafnakalli.
Þeir félagar Eiður Guðnason og
Vilmundur Gylfason hafa lýst þvi
yfir að þeir muni endurflytja frum-
varpið þegar þing kemur saman í
haust. Fróðlegt verður að fylgjast
meðafgreiðslu þess þá.
SUÐURNESJAMENN
SUÐURNESJAMENN
STUÐNINGSMENNALBERTS OG BRYNHILDAR
BJÓÐA ÍKAFFIÁ KJÖRDAG
Við bjóðum í kaffi á kjördag I Bergás Keflavík frá kl. 3—6.
Mætum öll og undirbúum sigur Alberts og Brynhildar.
KOSNINGASKRIFSTOFUR Á KJÖRDAG EfíUÁ EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
KEFLAVIK:
NJARÐVÍK:
SANDGERÐI:
GRINDAVÍK:
GARÐUR:
VOGAR OG HAFNIR:
HAFNARGÖTU 26, SÍMI 3000
HÆÐARGÖTU 1, SÍMI 2111
SUÐURGÖTU 27, SÍMI 7552
AUSTURVEGI14, SÍMI 8341
DAGHEIMILI V/SUNNUBRAUT, SÍMI 7166
SKRIFSTOFAN KEFLAVÍK
ATH.: Þeir stuðningsmenn sem hafa tök á því að lána bíla á
kjördag eru beðnir um að hafa samband við skrifstofurnar.
STUÐNINGSMENN Á SUÐURNESJUM
Spurning
dagsins
Ætlarðu að sjá
kvíkmyndina Óðal
feðranna?
Áslaug Sveinsdóttir, s áifboön Ai bjá
Rauða krossinum: Já, pað ætia ée al-
veg örugglega að gera.
Birgir Hennings, vinnur hjá Ölgerð-
inni: Já, alveg pottþétt.
Heimir Karlsson verkamaAur: Ég cr að
spekúlera í því, já.
Helgi Gunnarsson rafeindavirki: Já,
sem fyrst.
Ragna Pétursdóttir afgreiAslustúlka:
Já, alveg hiklaust.
Gunnar örn Gunnarsson nemi: Já, ég
séhanaörugglega.