Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.07.1980, Qupperneq 5

Dagblaðið - 09.07.1980, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1980. 5 Fjórða dagleið Sjóralls ’80 allsöguleg: Lára dregin til Bakkagerðis og Inga inn til Raufarhafnar - Gustur fór um dýpri ála Vopnafjarðar og tryggði sér sigurinn á Kópaskersleggnum Þegar sjórallsfólk reis úr rekkju á Hótel Egilsbúð á Neskaupstað í gær- morgun var talið að hægt væri að halda áætlun og ræsa keppendur í 4. dagleið, en 5. siglingalegg kl. 10. En svo var nú aldeilis ekki. Ekki varð séð hvað or- sakaði sprengingar og eyðileggingu á púströrsbarka í vél Láru III. Rásmerki var stöðugt frestað og var ekki endanlegagef'ið fyrr enkl. I3.40ígær. Lára III bilar 1 rjómablíðum sjó sigldu bátarnir úr höfn og kl. 15.30 voru Inga, Gustur og Spörri staddirút afVopnafirðien Lára tilkynnti bilun og að hún myndi halda inn á Borgarfjörð eystri. Pakkning hefði aftur farið i púströri. Á þessum tíma var Gáski, sem siglir hægar en öruggar ef nokkkuð er að sjó, ekki kominn í samband við Vopna- fjarðarstöð FR-manna. Norður fyrir Langanes Klukkan 16.45 voru Gustur og Inga komin norður fyrir Langanes en Gáski og Spörri höfðu þá næstum samflot við austanvert Langanes. Bátar á vegum FR-manna höfðu þá tekið Láru i tog og komu með hana til Bakkagerðis um kl. 17. Margir lögðu leið sina niður að höfninni á Höfn i Hornafirði sem og annars staðar þar sem bátarnir hafa viðkomu. fMSiStf \á 1 BSSIt r J : /: ijESá Velfórum railkapp- anaíEyjum Það hefur farið vel um sjórallskappana á gististöðum Sjóralls ’80 til þessa. I Eyjum gistu þeir á sumargististaðnum Heimi í Heiðarvcgi 1, sem er aðeins 100 metra trá Herjólft. Gististaðinn rekur á sumrin Bryndís Karlsdóttir, kona Páls Helgasonar. Á vetrum er þarna heimavist Stýrimanna- og Vélskóla íslands. Á sumrin geta gestir fengið aðgang að fullkomnu eldhúsi og þarna er einnig aðstaða til að taka á móti hópum í svefnpokapláss. Sjórailskapparnir snæddu hjá Pálma gestgjafa á veitinga- staðnum Gestgjafanum i Eyjum. -A.St. Inga bilar Klukkan 17.35 var Gustur frá ísa- firði staddur út af Raufarhöfn, en þá var Inga, sem verið hefur í fararbroddi frá byrjun, með bilaða vél. „Neistinn er farinn af vélinni,” tilkynntu Bjarni Sveins og Óli Skagvík í talstöð. Síðar kom i ljós að háspennukefli var bilað og var Inga tekin i tog til Raufarhafnar og þangað komið kl. 20.06 með bátinn og viðgerð hófst þegar. Gustur til Kópaskers Klukkan 18.50 sigldi Gustur fagur- lega inn á Kópaskerslægið sem sigur- vegari i fyrsta sinn á einum keppnis- legg. Á sama tima voru Gáski og Spörri skammt frá Hraunhafnarvita. En litlu síðar spýttu þeir á Spörra i og komu til Kópaskers kl. 20.06 en Gáski kom þangað kl. 20.56. Meðan þessu fór fram var unnið af kappi við viðgerð á Ingu. Varahlutir, sem nægðu fengust með einhverjum „reddingum” og hægt var að leggja af stað frá Raufarhöfn kl. 21.50. Lára III var þá enn á Bakkagerði. Frekari við- gerða þörf Ljóst var að Gustur þurfti lag- færingar við á Kópaskeri þvi kerta- bilunar var tekið að gæta undir það siðasta til Kópaskers. Inga þarf lika betri viðgerðar við en fékkst á Raufar- höfn og voru pantanir á varahlutum þegar komnar á loftlínur FR- manna. Óljóst var í gærkvöldi hvernig Láru III reiðir af vegna endurtekinna bilana, en Gunnar Gunnarsson, sem átti þennan bát í fyrra og þá með sömu vél, var tilbúinn til ráðlegginga i aðal- stöðvum FR-manna í Reykjavík. Málið var orðið æsispiennandi. Stigin höfðu jafnazt nokkuð milli Ingu og Gusts og þó Inga hafi örugga forystu er hún ekki búin að vinna Sjórall ’ 80. Gáski bilar ekki Eini báturinn sem aldrei hefur bilað er Gáski frá Hafnarfirði, sem að ýmsu leyti hefur virkað eins og björgunar- bátur fyrir flotann. Hann er þyngstur bátanna með minnstu vélina, gerður fyrirörugga og þægilega siglingu i öllu veðri en ekki til hraðsiglingar. Spörri sem keppir i sama flokki og Gáski getur því haft samflot við Gáska hvenær sem er og síðan ef allt er í lagi stungið hann af á endasprettinum — og krækt í stigin. En svona er sjórall. -A.St. Þeir eru samhentir vel og samreyndir þeir Bjarni Sveinsson tt.h.) sem á Ingu 02 og Ólafur Skagvik sem siglir með honum — annað árið i röð. Þessir gefast ekki upp þó á móti blási, og eru nú farnir að sigra á siglingaleggjum — loksins. Það er Daði Hinriksson eigandi Gusts sem er til hægri en fjær er Finar Valur. Næst stefna þeir heim á leið I átt til Vestfjarða. Inga er hið glæsilegasta fley og rennileg á sjónum vel merkt Morgunblaðinu, sem nánast gerir bátinn út I þetta rall sem og I fyrra. Þeir hafa það gott um borð I Gáska. Þeir fara i kaffi á réttum tíma þó þeir séu djúpt á flóum staddir. Þeir koma manna minnst þreyttir úr hverjum áfanga, en safna heldur fáum stigum, þvi léttu bátarnir geta stungið þá af á sléttum lokaköflum. Úti fyrir er traust og hald fyrir alla bátana að hafa Gáska I nánd. DB-myndir: Ragnar Th. Sig. og .lóhannes Reykdal. „Hefði ekki getað gengið öllu betur” Blaðamaður DB, Sveinn Agnars- son, staddur á Kópaskeri átti stutt samtöl við áhafnir þriggja fyrstu bátanna sem þangað komu í gær. Daði Hinriksson og Einar Valur á Gusti, sem þangað komu fyrstir sögðu: „Við fengum logn alla leiðina og höfðum 35 milna meðalhraða. Inga tók strax forystuna og hélt henni fram yfir Digranes en á Vopna- firðinum fóru þeir mikið grynnra og héldu að þeir væru á undan okkur. Þegar þeir á Ingu uppgötvuðu að við vorum komnir á undan þeim þá reyndu þeir að setja á fulla ferð en þá bilaði vélin, fór í henni há- spennukefli. — Inga fór síðan í togi inn á Raufarhöfn og er þar líklega enn.” —Slökkvitæki sprakk í Spörra „Ferðin gekk mjög vel hjá okkur og gat varla gengið betur,” sögðu þeir Magnús ogÞrösturá Spörra. „Það amaði ekkert að hjáokkui utan hvað eitt slökkvitæki sprakk i hristingnum og af því gaus upp fýla mikil.” —„ Því miður skall ó góðviðri í gœrdag” „Það amaði ekkert að hjá okkur, nú frekar en fyrri daginn,” sögðu þeir Sigfús og Kristján á Spörra sem vakið hefur verðskuldaða athygli í keppninni sakir öryggis og góðs búnaðar. !Eldsneytiskostnaður hjá honum er lika aðeins brot af þvi sem er hjá bensínbátunum. Gáski er eini báturinn sem ekki hefur bilað á rallleiðinni til þessa. „Við fengum okkur kaffi á venjulegum tíma fimmtán mílur út af Bakkafirði. Það er því miður blanka- logn og yfirburðir Gáska koma þess vegna ekki í Ijós. í gær skall á góðvirði og við eigum þá ósk helzta að eitthvað verði að veðri, svo Gáskf fái að sýna getu sína,” sögðu þeir

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.