Dagblaðið - 09.07.1980, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1980.
Portúgal:
TUTTUGU 0G FIMM BORN
AF FJÖGUR HUNDRUD LÁTIN
— nhpkktur ciiíkrlnmnr hnrinr íctærcta fajiinu'arciúkrahiíci Pnrfnarolc
AWarlegs sjúkdóms sem veldur
aauða hefur orðið vart á stærsta
fæðingarspítala í Portúgal og hefur
ekki reynzt unnt að greina hann.
Þegar hafa um 25 af um 400 börnum,
sem sjúkdóminn hafa tekið, látið
lífið, samkvæmt upplýsingúm læknis
á spitalanum.
Þessa óútskýrða sjúkdóms varð
fyrst vart á Alfredo da Casta-
spítalanum í desember á síðasta ári
og dr. Jose Miguel Ramos de
Almeida, forstöðumaður spítalans,
segir að enn hafi engin leið fundizt til
að ná tökum á honum.
Börnin taka sjúkdóminn oftast á
fyrstu tveimur vikunum eftir
fæðingu, missa þyngd og rænu. Hins
vegar verður fyrstu einkenna ekki
alltaf vart þegar í stað og fyrir hefur
komið að börn yfirgefi spitalann án
þess að vart hafi orðið sjúkdómsins,
en fá hann nokkrum dögum siðar. Þá
er öll aðstaða til lækninga orðin mun
verri, og hætta á farsótt.
Starfsfólk spítalans vinnúr nú að
því að kanna orsakir og einkenni
þessa dularfulla sjúkdóms. Sjúk börn
hafa verið einangruð til að koma i
veg fyrir að sjúkdómurinn breiðist
út, en dr. Ramos de Almeida kveðst
þó enn óttast að svo kunni að fara að
útbreiðsla hans verði ekki stöðvuð.
Þess má geta að á Alfredo da
Costa-spítalanum fæðast um 2/3
allra barna i Portúgal og hefur gripið
um sig mikill ótti í landinu eftir að
fréttir bárust um sjúkdóminn.
Oheppnin elti ræn-
ingjann f rá byrjun
Vopnaður ræningi greip eitthundrað
og áttatíu dollara úr peningakassa
verzlunar í Los Angeles á dögunum.
Eftir það gekk allt á afturfótunum hjá
manngreyinu. Á flóttanum rifnaði
pokinn sem hann geymdi feng sinn í og
peningarnir dreifðust út um allt.
Næst missti ræninginn óheppni byss-
una og skildi hana eftir í æsingnum.
Síðan rann gríman af andliti hans rétt
áður en hann skautzt inn i bifreiðina
sem hann notaði á flóttanum.
Einnig og hálfri stundu síðar sneri
ræninginn aftur á ránsstaðinn ásaml
ökumanni sínum. Var ætlunin að
kanna hvort eitthvað væri eftir af
fengnum og einnig að fela sannanir um
verknaðinn. Lögreglumaður einn sem
þar var þekkti þá ræningjann af lýsingu
sjónarvotts. Þegar hann gekk að
bifreiðinni þurfti hann ekki lengi að
leita sannana. I honum lá hulstrið utan
af byssunni, sem ræninginn óheppni
hafði misst á flótta sinum af ráns-
staðnum. Fengu tvímenningarnir,
ræninginn og ökumaður hans, gistingu
hjá lögreglunni og segir ekki meira af
ránsferli þeirra aðsinni.
Jan Bonde Nielsen forstjóri og aðaleigandi hlutafjár í Burmeister og Wain skipa-
smíðastöðinni dönsku á ekki sjö dagana sæla. Fyrirtækið er á hausnum, fær ekki
ríkisábyrgð og getur þar af leiðandi ekki hafið smíði skipa fyrir erlendan markað.
Síðustu fregnir herma að starfsmenn stöðvarinnar krefjist nú tryggingar fyrir þvi
að þeir fái laun sin greidd.
Óbökuö
lifrarkæfa
KJÚTBÚÐ
SUÐURVERS
STIGAHLIÐ - SÍMI35645
Verðbólgan
Í99,2% úr
94,7%
áeinum
mánuði
Verðbólgan varð 99,2% i Brasilíu
síðustu tólf mánuði, sem enduðu við
lok júnímánaðar. Hefur þá hraði
verðbólgunnar aukizt úr 94,7% frá þvi
við lok maímánaðar á undan.
REUTER
> ■
Norðmenn, eins og margar aðrar þjóðir, telja að viðskipti við írak geti gefið af sér drjúgan skilding í náinni framtið. Ástæða
hefur þótt til að vara kaupsýslumenn við að ráðamenn í landinu reyni allt sem þeir geti til að útrýma þeim gamla sið að
beita mútugreiðslum til að liðka fvrir viðskiptum.
r
lrak:
Mútur geta kost-
að lífstíðar
fangelsisvist
írak þykir eitt þeirra landa heims
þar sem mestir möguleikar bjóðast
fyrir erlenda kaupsýslumenn á næstu
árum. Er það vegna mikilla auðæfa
sem myndast við olíuvinnslu í land-
inu. Nokkrir kaupsýslumenn sem
þangað hafa haldið hafa hinsvegar
farið flatt á að reyna mútur við
embættismenn og kaupsýslumenn í
Írak.
Við mútum og tilraunum til múta
eru allt að lífstiðar fangelsi. Forustu-
menn í Baathsósialistaflokknum, sem
ræður i landinu eru mjög harðir í
baráttunni á móti spillingu. Fyrir
nokkrum árum voru mútur aðeins
venjuleg viðskiptavenja i Írak en eru
núaðsögn algjörlega horfnar.
Bent er á þessa hættu fyrir erlenda
kaupsýslumenn í norsku dagblaði
þar sem skýrt er frá miklum
viðskiptamöguleikum í Írak. Þar er
frásögn af brezkum kaupsýslumanni
sem fyrir rúmlega einu ári var
dæmdur í ævilanga fangelsisvist
fyrir tilraunir til mútustarfsemi. Situr
hann enn í fangelsi rétt fyrir utan
Bagdad. Allar tilraunir til að fá hann
lausan sem gerðar hafa verið af
brezkum yfirvöldum hafa hingað til
reynzt árangurslausar.
Útlendingar fá lífstíðar fangelsis-
dóm fyrir mútur en refsing sú sem
innlendir menn fá i írak fyrir hið
sama er oftast ekkert nema lífláts-
dómur.
Norskur kaupsýslumaður sem
kunnugur er í frak segir að ekki þýði
annað en gæta þess að forðast mútur
eins og heitan eldinn. Reyndar sé
öruggt að slik starfsemi komist
upp sé henni beitt að einhverju
ráði. Meira að segja er oft á tíðum
farið mjög strangt í að meta. smá-
vægilegar tilraunir til að liðka til fyrir
viðskiptum sem túlka mætti sem
mútur. Fyrir þvi eru þá einnig refs-
ingarásamagrundvelli.