Dagblaðið - 09.07.1980, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1980.
7
Bandaríkin:
Kennedy tapar síd~
asta háímstráinu
—ekki fékkst leyfi til að f ulltrúar á flokksþinginu fengju að færa atkvæði sitt af
Carter yfir á Kennedy ífyrstu umferð '?;™,r„S'“s„rÆr hTsd“,r,!
kvæðamunur um tillögu Kennedys
varð svo lítill sem raun bar vitni í
Edward Kennedy mistókst að fá
lagadeild Demókrataflokksins til að
breyta reglunum um framkvæmd á
vali frambjóðanda flokksins til for-
setaframboðs. Þar með virðist fokið
i flest skjól fyrir öldungadeildar-
þtngmanninn í baráttu hans fyrir út-
nefningu flokks sins.
Kennedy vildi að reglunum yrði
þannig breytt, að hann fengi
tækifæri til að vinna til fylgis við sig
þá fulltrúa, sem valdir hafa verið á
flokksbingið sem stuðningsmenn
Jimmy Carters núverandi forseta
Bandaríkjanna og væntanlegs fram-
bjóðanda demókrata í kosningunum
i nóvember næstkomandi.
Þessari hugmynd Kennedys var
hafnað í laganefnd Demókrata-
llokksins i gær með áttatíu og sjö at-
kvæðum gegn sextíu og fimm.
Til að hljóta útnefningu
Demókrataflokksins á flokksbinginu
barf frambjóðandi að fá 1666 at-
kvæði. Carter er talinn hafa fylgi
nærri tvö búsur|d fulltrúa. Hafa
bessir fulltrúar skuldbundiðsig til að
kjósa Carter i fyrstu umferð
kosninganna. í síðari umferðum eru
fulltrúarnir aftur á móti frjálsir að
velja aðra frambjóðendur. Ekki eru
hins vegar líkur á öðru en Carter
verði valinn frambjóðandi
Demókrataflokksins begaf i fyrstu
umferð og Kennedy eigi bar með
enga möguleika.
Kennedy vildi að fulltrúar á flokks-
laganefnd Demókrataflokksins hefur
hann heimild til að leggja tillögu sina
fyrir flokksbingið sem kemur saman i
New York í næsta mánuði.
Innf lytjendumir á eyðimörkinni:
Tveir hinna villtu
taldir vera úr
hópi smyglaranna
—sumar konumar hófu eyðimerkurgöngu í hælaháum skóm
Auknar umræður fara nú fram um
það í Vestur-Evrópu hvort rétt sé að
koma fyrir kjarnorkuvopnum á fleiri
stöðum en nú er. Kemur þetta í kjölfar
harðnandi afstöðu austurs og vesturs
sem einkum varð eflir innrás Sovétrikj-
anna í Afganistan. Einnig hafa kjarn-
orkuvopn í Vestur-Evrópu komizt i
hámæli eftir að upplýstist að Frakkar
hafa gert tilraunir með svokallaðar
neftrónusprengjur. Noregur er eitt
þeirra landa, þar sem rætt hefur verið
um möguleikann á að staðsetja þar
kjarnorkuvopn. Vegna þess hluta
landamæranna sem liggur að Sovét-
ríkjunum lita Norðmenn mjög alvar-
legum augum á innrásina i Afganistan.
Ef af slíkri innrás yrði i Noregi mundi
byssan sem sést á myndinni tæpast
verða til mikils gagns enda nánast orðin
safngripur.
Erlendar
fréttir
T/lsö/u
Saab 99 ár«. ’73,
sjálfskiptur, í mjög
góöu standi og vel vió
haldið.
Upplýsinf>ar í síma
18180 í dag milli kl.
17 og 21.
Ekki missa af
góðum bíi.
CITROÉN
VARAHLUTIR
DRIFÖXLAR
FYRIRGS
HLJÓÐDUNKAR
FYRIRGS
E. Óskarsson
Skeifan 5. Sími 34504.
t—
Læknisdómar
alþyounnaf
D.C.Jarvis M.D.
Bókin sem verið hefur
ófáanleg um sinn er nú
komin út aftur. Tak-
markað upplag.
Sendum gegn póst-
kröfu.
P.G.J.-ÚTGÁFAN
Stórholti 29
Keykjavík, Sími 12982
Tveir hinna fjórtán sem komust af
efdr eyðimerkurgöngu í Arizona eru
taldir vera úr hópi smyglaranna, sem
aðstoðuðu fólkið við að fara ólöglega
inn yfir landamæri Bandaríkjanna
frá Mexíkó. Einnig er talið að einn
þeirra þrettán sem létust af vatns-
skorti og ofsahita hafi verið smyglari.
Þetta er álit bandarísku landamæra-
lögreglunnar. Ekki hafa þó neinir
verið ákærðir enn þá. Reyndar munu
fjórtán menningarnir enn vera þungt
haldnir eftir hrakningana um eyði-
mörkina í fjóra sólarhringa.
Þrettán af hópnum þar af níu
konur og einn þrettán ára dreng-
ur létust eftir að þeim hafði ver-
ið smyglað yfir landamærin frá
Mexíkó. Lögreglumenn og landa-
mæraverðir höfðu það í fyrstu eftir
fólkinu að það hefði verið rænt og
skilið eftir bjargarlaust í eyðimörk-
inni þar sem hitinn er að stfðaldri
nærri fimmtiu gráður á Cclsius.
Flestir úr hópnum eru enn mjög illa
haldnir og litið hægt að ræða við
fólkið.
Lögreglan segist þó orðin nokkuð
viss um að ekki hafi verið gerð nein
tilraun til að ræna fólkið eigum
sinum eins og fullyrt var í byrjun.
Verið er nú að kanna þann möguleika
að smyglararnir sem aðstoðuðu hina
ólöglegu innflytjendur til Banda-
ríkjanna hafi sjálfir villzt af leið og
lent í villum á eyðimörkinni. Flest
þykir nú benda til þess að smygltil-
raunin hafi frá byrjun verið mistök.
Einn þeirra sem eftir lifa er talinn
vera Mexíkani og annar úr þeim hópi
annaðhvort Mexlkani eða frá E1
Salvador eins og hinir ólöglegu inn-
flytjendur. Lögreglan segist vera
nokkuð viss í sinni sök með að einn
hinna látnu hafi verið af mexíkönsku
þjóðerni.
KENNARAR!
íþróttakennara og handmenntakennara drengja
og stúlkna, ásamt almennum kennara, vantar viö
grunnskólann á Patreksfirði.
íbúð getur fylgt ef óskað er.
Umsóknir sendist formanni skólanefndar,
Gunnari Péturssyni, Hjöllum 13, Patreksfirði,
sími 1367.