Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 12
13- d DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ1980. Iþróttir Iþróttir íþróttir óttir Iþróttir Öster enn á toppnum Teilur Þórðarson og félagar hans í Öster hafa nú tekið þriggja stiga forystu i sænsku 1. deildinni, All- svenskan, er flest liðin hafa leikið 13 leiki. Öster hefur sýnt fádæma sterkan varnarleik — aðeins fengið á sig 3 mörk i 13 leikjum og skorað nokkuð mikið líka. Staðan er nú þessi: Öster 13 7 6 0 18—3 20 IFK Göteborg 13 6 5 2 25—17 17 Malmö FF 13 6 5 2 20—12 17 Hamarby 13 6 4 3 26—15 16 Brage 12 5 5 2 14—8 15 Elfsborg 13 4 6 3 16—14 14 IFK Sundsvall 12 5 3 4 15—17 13 Hamstad 13 3 6 4 14—16 12 Djurgárden 13 4 3 6 14—17 11 Kalmar 12 3 4 5 9—16 10 Átvidaberg 12 2 5 5 9—14 9 Norrköping 12 3 4 5 11—19 9 I.andskrona 12 3 I 8 12—22 7 Mjállby 13 2 2 9 8—21 6 Mögenburg hársbreidd frá heimsmeti Dietmar Mögenburg var aðeins hársbreidd frá því að setja nýtt heimsmet í hástökki, 2,36 m á móti í Stokkhólmi í gærkvöld. Hann felldí hæðina naum- lega en heimsmetið á hann ásamt Jacek Wzsoia 2,35 m. Mögenburg vann hástökkið i gær með stökki upp á 2,30 metra en Wzsola stökk 2,28 m. Þriðji varð Dwight Stones með 2,24 metra. Filbert Bayi virtist stefna í heimsmet í 3000 metra grind því hann var innan við metið er tíminn var tekinn eftir 2000 metra. Hann varð síðan að gefa eftir á síðasta kílómetranum og kom i mark á 8:17,98 mín. Heimsmetið á Henry Rono. Rono sjálfur tók þátt í 5000 metra hlaupinu en varð aðeins 5. í röðinni. Thomas Wessinghage, V- Þýzkalandi, varð fyrstur á 13:19,76, Brendan Foster frá Englandi annar á 13:20,47, Suleiman Nyambui frá Tanzaniu þriðji á 13:21,21 og Rono varð svo 5. á 13:24,37. KFK30áraá þessu ári Knattspyrnufélag Keflavikur minnist á þessu ári - 30 ára afmælis síns (stofnað 12. júlí 1950) með nokkrum keppnum og hefst afmælismótið með hjól- reiðakeppni á laugardagsmorgun kl. 10. Hjólað verður frá íþróttavellinum i Keflavík út í Garð um Miðnesheiði til Sandgerðis og þaðan til Keflavíkur og er markið við íþróttavöllinn. Vegalengdin er 25 km og er óhætt að reikna með um klukkutima lotu. Allmargir hafa verið að hjóla hringinn í æfingar- skyni og finnst það skemmtileg tilbreyting í góðu veðri. Skráning þátttakenda fer fram á íþrótta- vellinum þessa viku. Á sunnudag fer fram hið árlega viðavangshlaup KFK, hlaupið er í 4 flokkum karla og 2 flokkum kvenna. Hlaupin hefjast og enda á íþrótlavellinum. Glæsileg verðlaun eru í boði í öllum flokkum. Allttilalls í Kerlingarf jöllum Skiðaskólinn í Kerlingarfjöllum tók til starfa 19. júní sl. Fr þetta tuttugasta starfsár skólans. Fyrsta árið voru farnar tvær skíðaferðir í Kerlingarfjöll, en í sumar verða þar 11 skíðanámskeið auk 8 helgar- ferða. Námskeiðsferðirnar standa yfirleitt frá sunnudagsmorgni til föstudagskvölds, en helgar- ferðir frá klukkan 13.30 á föstudegi til sunnudags- kvölds. Kennt er á skiðum um helgar og að öðru leyti boðið upp á sömu þjónustu og í námskeiðunum. Hægt er að fá leigð skíði, skó og stafi hjá skólanum svo að ekki þarf að láta skort á eigin skíðabúnaði hindra þátttöku. í vor lét skólinn ryðja snjó alla leið að skíðabrekk- unum, þannig að örstutt er frá bílunum i snjó, sem er nægurog góður. Skiðalyftur eru að jafnaði opnar frá klukkan 10— 11 á morgnana til klukkan 5 síðdegis. Skólinn starfar að vanda til ágústloka. Mikil aðsókn er að honum í sumar — flest námskeið full- bókuð, en ennþá nóg pláss í flestum helgarferðum. Ferðaskrifstofan Úrval sér um farmiðasölu og gefur nánari upplýsingar um starfsemi skólans. Setti met í400 m Jarmila Kratochvilova frá Tékkóslóvakiu setti í gær nýtl landsmet i 400 metra hlaupi er hún kom í mark á 50,51 sek. Þetta er fjórði bezti tíminn i grein- inni i ár. Ekki er með sahni hægt að segja annað en að mikið fjör hafi verið í leikjum 3. deildar i síðustu viku. Mörg skemmtileg og þá einnig miður skemmtileg atvik hafa komið upp en það sem fyrir mestu er að mörkin hafa ekki látið á sér standa, a.m.k. i flestum tilvikum. Við birtum nú i fyrsta sinn í sumar stöðuna í öllum riðlum, áhuga- mönnum um 3. deildina til þæginda. Að vanda hefjum við gönguna í A-riðl- inum og höldum siðan vestur um land og endum á Austfjörðum en þar er alltaf eitthvað spennandi að gerast. A-riðill Hekla — Katla 3-5(3-11 Heklumenn brenndu sig þarna illa á úthaldsleysinu því eftir nokkra yfir- burði í fyrri hálfieiknum hrundi liðið eins og spilaborg og missti öll tök á leiknum. Gestirnir þökkuðu fyrir sig og sigruðu örugglega. Mörk Kötlu skor- uðu þeir Salvar Júliusson 2 (1 víti), Þorsteinn Guðmundsson, Kjartan Páll Einarsson og eitt markanna var sjálfs- mark. Fyrir heimamenn skoraði Angantýr Sigurðsson tvívegis og þriðja markið átti Tryggvi Skjaldarson en hann fór illa að ráði sinu er hann nýtti ekki vítaspyrnu sem Hekla fékk. Völlurinn á Hellu var ómerktur er leikurinn átti að hefjast og varð því að bíða í rúman hálftima á meðan það var gert. Að sögn heimildarmanns DB voru netin í mörkunum götótt og völlurinn afar ójafn svo eftir lýsing- unni að dæma hefur ekki verið spenn- andi að leika á honum. Óflinn — Leiknir 1—1(0—0) Þetta þótti jafn leikur og sótt var á báða bóga. Mark Óðins skoraði Magnús Ásgeirsson en ekki tókst að fá uppgefið nafn þess er skoraði fyrir Leikni þrátt fyrir mikla leit. Þessa ntynd tók Sveinn okkar Þormóðsson af fræknustu sundköppum lögreglunnar er þeir höfðu sigrað i vaktakeppni lögg- tinnar fvrir skömmu. Á meðal sundkappanna má greina Gunnlauu Kristfinnsson, er getið hefur sér gott orð i knattspyrnu en er .aú í timabundinni slökun i þeirri íþrótt. Hilmar og Óskar hafa skorað flest mörkin —báðir með 7 mörk í jaf nmörgum leikjum Er við birtum töfluna yfir stöðu lið- anna í 1. deild er nöfnum markahæstu leikmanna gjarnan bætt aftan við svo og fjölda marka þeirra. Á þessu hefur orðið nokkur misbrestur í 2. deildinni hjá okkur, sem og öðrum blöðum, þó svo að þar leynist margir skæðir skorarar. Þeir, sem nú eru efstir í markalistanum eru Fylkismaðurinn Hilmar Sighvatsson og Þórsarinn Óskar Gunnarsson með 7 mörk- Næstir á eftir þeim koma Gunnar Gíslason, KA, Andrés Kristjánsson og Haraldur Leifsson, ísafirði aliir með 6 mörk hver. Þráinn Ásmundsson í Ármanni hefur skorað 5 mörk og þeir Jóhann Jakobsson og F.lmar Geirsson KA, Ólafur Jóhannesson, Haukum og Bjarni Kristjánsson, Austra hafa allir skorað 4 mörk hver. Framvegis munum við reyna að birta markahæstu leikmenn deildarinnar jafnframt stöðunni ef þess er nokkur kostur. Katla-I'K 1-7(1-41 Leikmenn Kötluliðsins eru þeir dreifðustu á landinu því með liðinu leika menn allt frá Kirkjubæjarklaustri til Reykjavíkur. Eins og gefur að skilja er erfitt að smala saman í leiki og svo reyndist í þessu tilviki. ÍK-liðið var miklu betra í leiknum en okkur tókst ekki að fá uppgefna markaskorar- ana. Hins vegar skoraði Kjartan Páll Einarsson fyrir heimaliðið. Lóttir — Reynir, 2—3 (1—1) ,,Er þetta fyrsti leikurinn sem þið tapið í riðlinum,” spurði einn Léttis- leikmaðurinn mótherja sinn í Reyni, þegar Léttir hafði skoraði fyrra markið í viðureign þessara félaga um helgina en þar var að verki Svavar Guðnason. Ekki er vitað hverju Reynismaðurinn svaraði í orði en Ómar Björnsson svaraði hins vegar með marki rétt fyrir hlé, sneri Léttisvörnina af sér og skoraði. Mikill hrollur fór um þá Reynis- menn þegar Léttismenn tóku forustuna aftur snemma í seinni hálf- leik. Rúnar Óskarsson skoraði þá eftir mjög skemmtilega leikfléttu, sem sýnir að á ýmsu getur örlað í 3. deildinni. Július Jónsson var svo sá í liði Reynis sem kom í veg fyrir að upphafsorð þessarar greinar, sögð af Léttismanni, rættust. Þegar nálgaðist leikslok, skoraði hann með kollspyrnu, úr horni og svo kom sigurmarkið af fæti hans, eftir að hafa fengið knöttinn úr auka- Ekki reyndist Sigló-síldin gölluð í Laugardal í gærkvöldi — KS sló Fylki örugglega út úr bikamum 2-0 Siglfiröingar, með auglýsingar frá Sigló-síld í bak og fyrir, reyndust ekki gallaðir eins og gaffalbitarnir frá verk- smiðjunni hér um árið, í gærkvöld er þeir tóku 2. deildarliö Fylkis í karphúsið svo um munaði í bikar- keppni KSÍ. Þeir réðu lögum og lofum á vellinum í 75 mínútur af þeim 90 sem leikurinn stóð yfir og sigruðu með 2—0 eftir að staðan hafi vcrið 0—0 í hálf- lcik. Geysileg barátta Siglfirðinganna í gærkvöld kom Fylkismönnum greinilega í opna skjöldu því gestirnir gengu inn og út um vörnina hjá Ár- bæjarliðinu eins og hún væri ekki til. Það var aðeins snilldarmarkvarzla Ögmundar Kristinssonar, sem hélt Fylki á floti í fyrri hálfleiknum svo og klaufaskapur framherja Sigl- firðinganna. Síðari hálfleikurinn hafði ekki staðið nema nokkrar mínútur er Björn Sveinsson færði Siglfirðingum forystuna með góðu marki. Þeir réðu siðan gangi leiksins lengst af og á 72. mínútu bættu þeir síðara marki sinu við. Einn varnarmanna var þá ■ itthvað að dedúa með tuðruna er Björn Ingimarsson hir.ti hana af honum. Bjöm lék síðan áfram og á einn varnarmann til viðbótar, áður en hann skoraði gott mark þrátt fyrir góða tilburði ögmundar í markinu. Fylkismenn sóttu aðeins í sig veðrið undir lokin enda þá greinilegt að KS lagði kapp á að halda fengnum hlut. Fylkir náði aldrei að skapa sér eitt einasta almennilegt færi í siðari hálf- leiknum en í marki KS er öruggur og sannfærandi markvörður. Einar Hafsteinsson, Fylki, var rekinn af leikvelli er I0 minútur voru til ieiksloka. Margir hafa sloppið við rautt spjald fyrir meiri sakir en hann. Hann brá einum sóknarmanna KS nokkuð illa og þar eð hann hafði fengið að líta gult spjald fyrr í leiknum fyrir að yfir- gefa leikvöllinn i leyfisleysi var ekki um annað að ræða en hann fengi rautt. Annars voru mikil áhöld um réttmæti, gula spjaldsins. Einar stóð á hliðar- línunni og hvort hann fór út af eða ekki, skal hér ósagt látið. Hins vegar veifaði Gylfi Gíslason, þjálfari Selfyssinga, til dómarans, Vilhjálms Þór og hrópaði til hans um leið hvort! ekki væri í lagi að Einar færi aftur i leikinn. Virtist Vilhjálmur bæði sjá og< heyra hvað fram fór en gaf ekkert merki um að Einar mætti koma inná. Er dómarinn svo sneri baki i þá félaga Einar og Gylfa skokkaði sá fyrrnefndi inn á völlinn og fékk gult spjald um leið og dómarinn sá til hans. Hvað sem rétt kann að vera í þessu máli var þarna klaufalegaaðstaðið. Siglfirðingarnir þurftu hins vegar engar áhyggjur að hafa og nú verða Breiðabliksmenn að gera svo vel að taka sér ferð á hendur til Siglufjarðar i 8-liða úrslitunum. Margir muna e.t.v. ennþá eftir því er Valsmenn komust í krappan dans á Sigló í hittifyrra og vafalítið mega Blikárnir hafa sig alla við til að vinna, leiki KS-ingar af sama krafu gegn þeim og þeir gerðu í gær- kvöldi. -SSv. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1980. Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir „V0RU HELVÍllS MENNIRNIR AÐ LEIKA HANDKNATTLEIK” —spurði undrandi vegfarandi er hann heyrði tölurnar 94 úr leik Hrafnkels og Vals. Hekla sprakk í leiknum gegn Kötiu og Leiftur-sóknirfærðu Ólafsfirðingum sigur gegn Sigtfirðingum spyrnu. Vel að verki staðið hjá Júlíusi, sem var bezti maður Reynisliðsins, en jafnframt sá elzti. Hjá Létti átti aldurs- forsetinn Gunnar Gunnarsson mjög góðan leik, var alls ráðandi i vörninni. Staðan í riðlinum er nú þessi: Reynir 6 6 0 0 35—5 12 ÍK 6 4 0 2 22—16 8 Leiknir 6 3 1 2 23—7 7 Óðinn 6 2 2 2 12—12 6 Hekla 6 2 0 4 9—31 4 I.éttir 6 114 10—15 3 Katla 6 1 0 5 7—32 2 B-riðill Grindavík — Grótta, 6—1 (5—0) Sigurgeir Guðjónsson, miðherji Grindvíkinga, var Gróttupiltunum þungur i skauti. Skoraði hvorki meira né minna en fimm mörk af sex á laugardaginn, og geri aðrir betur. Þar af var eitt úr vítaspyrnu, annað markið. Aðeins Haukur Andrésson komst á markablað heimamanna, skoraði þriðja markið. Það var ekki fyrr en Gróttupiltar höfðu í fimm skipti þurft að hrista knöttinn úr möskvunum að Árni Cuðmundsson kom Gróttu á blað í seinni hálfleik. Annars hitnaði heldur í kolunum þegar líða tók á leikinn og voru menn mjög ósáttir með úrskurði dómarans. Þar meðeru Grindvíkingar orðnir efstir i B- riðlinum, með 10 stig en næst kemur Afturelding með 9 stig. Njarðvík hefur daprazt flugið, er með 8 stig. Viðir hefur 7, svo að hver leikur sem eftir er verður að teljast úrslitaleikur. Stjarnan — Vlflir, 2—7 (1 —5) Stjörnupiltarnir skoruðu fyrsta mark leiksins, þegar i byrjun. Daníel Einars- son jafnaði fljótlega fyrir Víði með hörkuskoti frá vítateig. Guðmundur Jens Knútsson skallaði síðan laglega í markið úr aukaspyrnu, 2—I. Guðjón Guðmundsson lék skömmu síðar i gegnum Stjörnuvörnina og skoraði þriðja mark Viðis. Guðmundur Jens lét ekki þar við sitja og bætti fjórða markinu við fyrir hlé. Jónatan Ingimarsson hélt Víði við efnið í seinni hálfleik með þvi að skora fimmta markið, eftir aukaspyrnu. Þá tóku heimamenn við sér og skoruðu beint úr miðju, sitt annað mark, en þvi svöruðu þeir Daniel Einarsson og Pálmi Einars- son með einu marki hvor áður en leik- tíniinn rann út. Þrátt fyrir 15 mörk gegn þremur i tveimur seinustu leikjum er harla lítil von fyrir Víði að komast i úrslitariðil 3. deildarinnar, en þeir eiga erfiða leiki eftir, bæði við Grindavík og Njarðvik á útivelli. Afturelding - UMFN 2-1 (2-1) „Fyrstu 15 mínúturnar voru svo afleitar hjá okkur að engu var likara en við hefðum aldrei leikið knattspyrnu áður,” sagði einn Njarðvíkingurinn eftir leikinn við Aftureldingu á laugar- daginn. Á þessum tíma skoraði Aftur- elding tvö mörk, gátu verið helmingi fleiri, án þess að Njarðvikingar fengju rönd við reist. Fyrra markið var skorað úr vítaspyrnu á þriðju minútu og var þar að verki Stefán Hreiðarsson. En Afturelding lét ekki þar við sitja. Gísli Bjarnason skoraði skömmu síðar seinna mark heimamanna með góðu skoti. En smám saman fóru gestirnir að jafna sig og ná tökum á leiknum. Sigfús Sigfússon minnkaði muninn rétt fyrir hlé með laglegu marki. Seinni hálfleikur var þófkenndur framan af en þegar líða tók á leikinn sóttu Njarðvik- ingar mjög fast, án þess þó að geta skorað. Vörn Aftureldingar og mark- vörðurinn Rafn Thorarensen bægðu jafnan hættunni frá og svo reyndist skotfimi Njarðvíkinga ekki vera upp á marka fiska í leiknum. -emm. Staöan í riðlinum er nú þessi: Grindavík 6 5 0 1 14- -5 10 Afturelding 6 4 1 1 13- -6 9 Njarðvík 6 4 0 2 15- -6 8 Víðir 6 3 1 2 21- -10 7 Grótta 6 1 2 3 8- -13 4 Stjarnan 6 1 0 5 6- -21 2 Hveragerði 6 1 0 5 5- -21 2 C-riðill Skallagrfmur — Snæfell 2—111—1) Ekki vitum við meira um þennan leik en að heimamenn skoruðu sigurmarkið úr vítaspyrnu 5 mín. fyrir leikslok. Höfðu gestirnir þá áður brennt af víta- spyrnu og er það annað vítið, sem forgörðum fer í tveimur leikjum hjá Snæfelli. Bolungarvfk — Reynir 6—0 Reynisliðið er það áberandi lakastá í þessum riðli og átti aldrei möguleika gegn Bolungarvík. Mörk heimaliðsins skoruðu Jóhann Ævarsson 2, Sigurður Guðfinnsson 2 og Svavar Ævarsson I. Ekki vissi heimildarmaður okkar hver gerði sjötta markið. Reynir — HÞV 0—7 (0—5) „Varalið Skagamanna” HÞV, sem er skipað að miklu leyti strákum af Akranesi er ekki hafa fengið náð fyrir augum meistaraflokksins þar, fór létt með Sandara í þessum leik og liðið á nú möguleika á sigri i riðlinum. Fyri hálf- leikurinn var alger einstefna og reyndar sá seinni einnig en mörkin í honum urðu ekki nema tvö. Mörkin skoruðu Sæmundur Viglundsson 2, Gunnar Gíslason 2, Elías Viglundsson l, Daði Halldórsson I og síðan potaði þjálfar- inn, Andrés Ólafsson, einu í netið. Bolungarvfk — Víkingur, Ól. 2—1 Bolvíkingar komu verulega á óvart í þessum leik og báru sigurorð af gestun- um, sem fyrir upphaf mótsins voru taldir með sterkasta liðið i riðlinum. Annað virðist nú vera að koma í ljós. Það voru þeir Jóhann Ævarsson og Sigurður Guðfinnsson, sem skoruðu mörkin fyrir Bolvíkinga en leikmenn Víkings vöktu helzta athygli fyrir kjaft- brúk og athugasemdir í garð dómara. Staðan í riðlinum er nú þessi: Skallagrimur 6 4 2 0 21—8 10 HÞV 5 3 l I 15—5 7 Víkingur 5 I 3 I 15—6 5 Bolungarvík 5 2 l 2 13—10 5 Snæfell 3 0 I 2 2—6 I Reynir 4 0 0 4 3—34 0 D-riðill Lerftur — Árroðinn 0—2 (0—0) Ekki ber nú öllum saman um gang mála í þessum leik. Heimamenn segja Árroðann aðeins hafa fengið tvær skyndisóknir og skorað úr báðum en heimildarmaður DB segir sigur Árroð- ans hafa verið mjög sanngjarnan. Hvað sem því líður skoruðu þeir Haf- berg Svansson og Baldvin Þór mörkin. Mark Baldvins þótti einkar glæsilegt. HSÞb — Magni 2-1 (1-0) Magni var mun betri aðilinn segir okkar maður en öllum ber víst saman um að leikurinn hafi verið óhemju grófur og dómarinn lítil tök á honum haft. Að sögn Mývetninga gekk Magnús Jónatansson, þjálfari Magna, grimmast fram í baráttunni og ku nú þrír vera óvígir eftir hann. Einn rif- beinsbrotnaði, annar nefbrotnaði og sá þriðji sér ekkert vegna heiftarlegs glóðarauga á öðru auganu. Voru Mývetnir.gar óhressir með framkomu Magnúsar i leiknum ekki --izt vcgna þess að hann er þjálfari jafnframt þvi að leika með. Tvö víti fóru forgórðum — eitt hjá hvoru liði, er staðan var orðin 2—I. Fyrst brenndu heimamenn af víti en siðan fékk Magni færi á að jafna. Magnús Jónatansson tók vitið en skaut framhjá. Annars voru það þeir Jónas Þór Hallgrímsson og Arni Bogason, sem skoruðu fyrir heimamenn en Hringur Hreinsson fyrir gestina. -GS/-SSv. KS — Leiftur 1—2 (0—1) Leiftur kom stórlega á óvart með þvi að sigra KS á þeirra eigin heimavelli. KS sótti miklu meira en náði ekki að skapa sér nein veruleg færi í leiknum. Leifturmenn beittu að sjálfsögðu Leiftursóknum og unnu sigur. Guðmundur Garðarsson skoraði bæði mörkin en Jakob Kárason fyrir Sigl- firðingana. Staðan í riðlinum er nú þessi: Árroðinn 4 2 2 0 8—5 6 HSÞb KS Magni Leiftur E-riðill Efling — USAH 5-3(1-21 Eins og tölurnar gefa til kynna voru Húnvetningarnir sterkari i fyrri hálf- leiknum en heimamenn tóku öll völd i þeim síðari. Þórarinn lllugason skoraði þrennu fyrir Efiingu og Guðmundur Jónsson bætti tveimur við. Fyrir gest- ina skoraði Hafþór Gylfason 2 og Guðjón Rúnarsson 1. Tindastóll — Reynir 2—0 (1 —0) Markvörður heimamanna, Sigurjón Elíasson varði eins og hetja í þessum leik og Tindaslóll fór með sigur af hólmi. Björn Sveinsson skoraði bæði mörkin og var sicurinn mjög sann- gjarn. .(;s. Staðan í riðlinum r ihi þcssi: Tindastóll 4 4 0 0 9—0 8 Reynir 4 3 0 I 9—4 6 Efling 4 2 0 2 6—14 4 USAH 4 l 0 3 5—8 2 Dagsbrún 4 0 0 4 2—5 0 F-riðill Huginn — Leiknir 2—1(1—01 Þetta var nokkuð jafn leikur en Seyðfirðingar voru þó öllu sterkari aðilinn. Það var Þorgeir Þorgeirsson er fékk fyrsta tækifæri leiksins en skot hans hafnaði í stöng í fyrri hálfieikn- um. Guðjón Harðarson kom siðan heimamönnum yfir með hörkuskoti af stuttu færi um miðjan hálfleikinn. Ekki voru nema 5 mín. eða svo liðnar af síðai hálfieiknum er Leiknis- menn jöfnuðu metin. Svanur Kárason fékk þá fallega sendingu frá Helga Ingasyni og skoraði örugglega. Eftir markið sóttu Leiknismenn mjög í sig veðrið en síðan skoruðu heimamenn á nýjan leik. Var þar Þorgeir Þorgeirsson að verki. Eftir markið gerðist fátt markvert en það var helzt slök dóm- gæzla sem setti mörk sín á leikinn. Sindri — Einherji < 0—7 (0—4) Þetta var ærið undarlegur leikur. Strax á upphafsmínútunum fengu heimamenn vitaspyrnu. Albert Eymundsson tók hana en lét Magna, góðan markvörð Einherja, sem áður lék með Þrótti Neskaupstað, verja frá sér. Við þetta virtist allt lol't úr Sindramönnum og gestirnir röðuðu inn mörkunum. Sigurinn þótti e.t.v. í held- ur stærra lagi en sanngjarn var hann engu að síður. Gisii Davíðsson skoraði 2 mörk og það gerði Steindór Sveinsson einnig. Kristján, bróðir Gísla, og Ingólfur, bróðir Steindórs, bættu hvor sinu markinu við og það sjöunda átti þjálfarinn Einar Friðþjófsson úr víta- spyrnu. Hrafnkell — Valur 9—4 (6—2) „Voru andskotans mennirnir að leika handknattleik?” varð einum áhangenda Hrafnkels að orði er honum bárust fregnir af leiknum. Hafði hann ekki komizt á völlinn vegna vinnu sinnar en ætlaði ekki að trúa sinum eigin eyrum er hann heyrði tölurnar. Heimaliðið kontst i 5—0 i lyrri halt- leiknum og þar með var spilið búið. Gestirnir héldu i við þá það sem eftir lilði leiktímans en heldur þótti ntönnum seint af stað farið. Þorvldur Hreinsson, fvrrum leik- maður Aftureldingar, skoraði 3 marka Hrafnkels og þeir Helgi Pétursson og Sverrir Guðjónsson tvö hvor. Einar Birgisson skoraði eitt og þjálfarinn, Ársæll Kristjánsson, fyrruni Þróttari, skoraði eitt markanna. Fyrir Valsmenn skoruðu þeir Hallgrimur Sigurðsson 2, Gústaf Ómarsson I og Magnús Guðmundsson úr viti. .ys. Staðan i riðlinunt er nú þessi: Einherji 5 5 0 0 23—1 10 Huginn 5 3 2 0 11—7 8 Leiknir 5 3 0 2 8—7 6 Hrafnkell 5 2 12 14—16 5 Sindri 6 2 13 6—15 5 Súlan 5 113 5—7 3 Valur 7 0 16 9—23 I Fræknustu hlaupasystur USA Þessar stæðilegu stúlkur rákumst við á í bandarísku tímariti fyrir skömmu. Þetta eru fjórar systur, sem eru einhverjar þær spretthörðustu i ger- völlum Bandaríkjunum. Þær vöktu fyrst verulega athygli á skólamóti i San Bcrnadino i Kaliforníu i fyrra er þær gerðu sér litið fyrir og hlupu 4x400 metra boðhlaup á 3:44,1 mínútu. Þær heita Denean 15 ára, Tina 16, Sherri 17 og sú elzta er hin 18 ára gamal Artra. Þær systur eiga sér tvö eldri syst- kini sem aldrei hafa nálægt iþróttum komið en foreldrarnir voru báðir mikið í iþróttum og mamman á enn skólamet i einhverju fylkinu ásamt systur sinni og tveim frænkum en þær hlupu einmitt 4 x 400 metra boðhlaup. Það met er nú að nálgast 20 ára aldurinn. Að sögn föður þeirra, sem jafnframt er þjálfari þeirra systra hefur Denean, sú yngsta, me möguleikana á að verða sterl hlaupari þvi hún hefur enn tima til þroskast. „Eina vandamál okkar það að við höfum ekki lengur rúm fy alla verðlaunagripina," segir pabbi og brosir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.