Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 09.07.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1980. Útvarp 23 Sjónvarp Nýr útvarpsþáttur HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? - kl. 20 í kvöld: Ólympíuleikamir og andófíð í austurvegi —til umræðu ífyrsta þættinum „Þetta er fréttaskýringaþáttur fyrir ungt fólk um mál sem eru ofar- lega á baugi,” sagði Bjarni P. Magnússon í samtali við DB. Hann er annar umsjónarmanna nýs útvarps- jiáttar, Hvað er að frétta?, sem hefur göngu sina i kvöld kl. 20 og verður vikulega á dagskrá í sumar. Hinn um- sjónarmaður þáttarins er Ólafur Jó- hannsson. í þættinum í kvöld verður þátttaka íslendinga i ólympiuleikunum í Moskvu tekin til umræðu, svo og andófsmál í austurvegi almennt. Til viðræðu stendur til að fá Agúst Ásgeirsson blaðamann, Ingu Jónu Þórðardóttur, formann íslenzku andófsnefndarinnar, Svein Björns- son forseta ÍSI og Hannes Hólmstein Gissurarson. -GM. Frá iipptiiku þáltarins Hvað er að frétta? HREYFING HINNA REIÐU—útvarp kl. 21,10 íkvöld: Barátta fyrir umbótum í geðheilbngðismálum Þrir islenzkir sálfræðinemar i Dan- ntörku, Andrés Ragnarsson, Baldvin Steindórsson og Sigriður Lóa Jóns- dóttir, hafa tekið saman dagskrárþátt l'yrir útvarp unt geðheilbrigðisntál þar í landi. Nefnist þátturinn Hreyfing hinna reiðu og fjallar um baráttu fyrir umbótum á þessu sviði heilbrigðismála. Þátturinn hefst kl. 21.10 og er 35 mínútur i flutningi. - GM SPÖRÐ HÉÐAN 0G ÞAÐAN Erfitt er að skrifa þennan dálk í dag. Eftir samvizkusamlega hlustun á alla dagskrárliði útvarps i gærkvöldi og raunar i allan gærdag situr litið eftir. Var þá ekkert í útvarpinu? Jú, sitt iitið af hverju. Sparðatiningur héðan og þaðan sem næsta litið átti sameiginlegt og gerði litið til að fjörga hlustendur og gera þeim þolanlegt aðsitja inni i bliðunni. Eini þátturinn sem hafði hressilegt yfirbragð var hinn nýi þáttur um vinnumarkaðinn. Áreiðanlega þarfur þáttur og lítur út fyrir að ætla að verða góður. Honum fylgdi söngur fráeinhverri finnskri tónlistarhátið. í þvi atriði fóru smekkur minn og tónlistar- deildar útvarpsins sinn í hvora áttina. Sungið var vel, það verð ég að viður- kenna, en lögin voru að mínu mati ömurleg. Gunnlaugur Þórðarson kom þar á eftir með erindi um yfirgang „frænda” okkar Norðmanna yftr okkur sem aðra. Gott erindi en í þvi var ekkert að finna sem ekki hafði komið fram i fjölmiðlum áður. Sigurður Björnsson kom þar næst á dagskrá og söng Hönnu litlu og önnur íslenzk lög. Meira hvað tón- listardeildin hefur gaman af slíkum lögum. Þar á eftir kom lestur einhverrar kvöldsögu sem i mínum eyrum var óskiljanlegur, ef til vill af því að ég hafði ekki heyrt fyrri lestra. Dag- skránni lauk svo með seinni hluta leikrits sem ég hafði ekki heldur heyrt fyrri hlutann af. Ég gafst upp og setti .plötu á fóninn. Þegar ég setti svo bifreið mina í gang i morgun var verið 'að leika uppáhaldslagið hennar Ragnheiðar Ástu, Hvem kan segla för utan vind. Leikið í nær hverju einasta morgun- útvarpi hennar. -DS. Sigmar B. Hauksson segist vera i hlutvcrki „producers” i útvarpsþætti i kvöld. Hvað ættu menn að kalla það á íslenzku? Tillögur eru vel þegnar. DB-mvnd Ari. KJARNIMÁLSINS - nýr útvaipsþáttur kl. 22,35: Eru vísindi og listir andstæður? Kjarni málsins heitir nýr út- varpsþáttur„sem hefur göngu sína í kvöld og verður á dagskrá vikulega i sumar. Umsjónarmenn eru Emir Snorrason sálfræðingur og Sigmar B. Hauksson sem hlustendum er kunnur af Morgunpósti útvarpsins. „Ernir hefur veg og vanda af þættinum,” sagði Sigmar í samtali við DB. „Mitt hlutverk er það sem í út- löndum er nefnt „producer” og er það nýmæli hjá útvarpinu að skipta þannig störfum með mönnum.” Efni þáttanna eru „þungir mála- flokkar”, eins og Sigmar komst að' orði; þ.e. álitamál eins og: Eru vísindi og listir andstæður? sem rætt verður í fyrsta þættinum, og „tvöfalt siðgæði” sem rætt verður síðar i suntar.,, Mál þessi verða skoðuð á þröngum grund- velli, ekki breiðum,” sagði Sigmar. í fyrsta þættinum í kvöld ræðir Ernir Snorrason við þau Brynju Bene- diktsdóttur leikstjóra og Valgarð Egils- son lækni og spurningin er sem fyrr segir: Eru vísindi og listir andstæður? -GM. Viltu breyta til? Við aðstoðum Hárgreiðslustofan TURKIS Langholtsvegi 17. Sími 34979 Bfldshöfða 16 - SIMI81530

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.