Dagblaðið - 18.07.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1980.
Iran:
LOFA AÐ VERNDA
KAÞÓLSKA SKÓLA
— en páfi ekki fullviss um efndir — landamærin aftur opnuð
Stjórnvöld í íran hafa dregið til
baka fullyrðingar sínar um að þar
verði öllum kaþólskum skólum
lokað. Tilkynning þessa efnis var
gefin út í fyrradag og orsökin sögð
vera sú að tengsl kaþólskra skóla við
Ísraelsríki hefðu komizt upp. Bani
Sadr forseti hefur í orðsendingu til
Vatikansins í Róm sagt að afskipti
byltingarvarða af skólunum muni nú
hætta og ekki verða tekin upp aftur.
Samkvæmt heimildum í Róm eru
ráðamenn í Vatikaninu ekki að fullu
sannfærðir um hvort treysta megi
orðum forsetans.Getur verið að sögn
að sú ákvörðun verði tekin að loka
kaþólskum skólum i fran.
Landamæri frans voru aftur
opnuð snema í morgun. Höfðu þau
þá verið lokuð í tvo sólarhringa. Sú
lokun var í kjölfar meintrar bylt-
ingartilraunar. Meðal annars var ætl-
unin að ráða Khomeiní trúarleiðtoga
af dögum. Koma átti í veg fyrir að
byltingarmenn kæmust úr landi.
Byltingarverðir halda enn skóla-
byggingu í Teheran þar sem einn
hinna kaþólsku skóla er til húsa. Þar
stunda um það bil eitt þúsund og átta
hundruð manns nám. Byltingarverðir
hafa sakað starfsmenn skólans um að
hafa tengsl við ísrael auk þess sem
þeir eru ásakaðir um að neyta áfeng-
is.
Menntamálaráðuneyti irans til-
kynnti í gær að ætlunin væri að loka
öllum trúboðsskólum ílandinu.
Æðstu stjórnvöld hafa þó enn ekki
fallizt á þær fyrirætlanir. Margir
kaþólikkar í íran óttast að innrás
byltingarvarðanna í skólann í Teher-
an sé upphafið að alvarlegri ofsókn-
um á hendur þeim landsmönnum sem
eru kaþólskrar trúar.
.m
■■■ •
; .;■:-:■ ■
V,'-
■
■
MmMmm
Bella Center I Kaupmannahöfn. Myndin er af nokkrum ráðstefnugesta I kaffi-
stofunni.
Mikil kvennaráðstefna stendur nú i Kaupmannahðfn á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Rúmlega þrjú þúsund konur, viðs vegar að úr veröldinni, funda nú f
Erlendar
fréttir
Pólland:
Herinn grípur
inn í verkföll
í Lublin
Aukinn mannafli og tæki frá pólska
hernum hafa verið send til borgarinnar
Lublin vegna verkfalla þar. Heimildir
um þetta eru frá andstæðingum pólsku
stjórnarinnar í landinu.
Bólivía:
Herinn tekur
öll völd og
Bandaríkin
stöðva hern-
aðaraðstoð
Forseti Suður-Ameríkuríkisins
Bólivíu sagði af sér í gærkvöldi og
hefur afhent her landsins öll völd.
Tilkynning um þetta barst I gærkvöldi
frá hernum. Þetta er bylting númer 189
í sögu Bólívíu. Hefur herinn lýst
kosningarnar sem fóru fram hinn 29.
júní síðastliðinn ólöglegar vegna þess
að þar hafi verið brögð i tafli. Sigur-
vegari þeirra kosninga var Hernan Siles
Suazo sem sagður er vinstri maður.
Yfirmenn flughers, flota og landhers
Bólivíu hafa nú tekið öll æðstu völd í
sínar hendur, að því er segir í til-
kynningu hersins. Bandaríkjastjórn
hefur tilkynnt að öll hernaðaraðstoð
við Bólivíu hafi verið stöðvuð. Með því
vilja ráðamenn i Washington sýna and-
úð sína á byltingunni.
Moskva:
Drukknar ólympíuopnun
/ regni og deilum?
Ólympíueldurinn kemur í dag til
Moskvu en ólympíuleikarnir verða
formlega settir á morgun. Ekki er þó
Wst að takist að koma öllu heim og
>aman fyrir þann tíma. Miklar deilur
eru uppi um fyrirkomulag fréttasend-
inga frá leikunum og einnig eru uppi
raddir um alls konar mótmælaað-
gerðir einstakra keppnismanna frá
vestrænum ríkjum. Veðrið hefur
einnig sett strik I reikninginn.
Aðeins nokkrum klukkustundum
áður en afhenda átti ólympíueldinn
formlega í aðsetri æðstu stjórnar
Moskvuborgar var óljóst hvort
nokkuð yrði sjónvarpað frá setningu
leikanna á morgun til vestrænna
sjónvarpsstöðva.
Bandaríkjamenn hafa einnig
haldið uppi hörðum mótmælum gegn
fyrirætlunum um að fáni þeirra verði
hafinn að húni í Moskvu. Getur það
valdið einhverjum erfiðleikum ef svo
verður ekki þar sem næstu leikar eiga
að verða í Los Angeles og við slit ól-
ympíuleikanna er ólympiufáninn af-
hentur fulltrúa þeirrar borgar sem
næst á að halda þá.
Miklar rigningar hafa gengið yfir
skipuleggjendur leikanna að það
kunni að draga eitthvað úr þeim
fjölda sem koma mun til setningarat-
hafnarinnar á morgun. Búið er að
haida lokaæfinguna fyrir opnunina á
Leninleikvanginum í Moskvu. Var
hún í gær. Þar voru hundruð lög-
reglumanna, sem lokuðu öllum að-
gangi að vellinum á meðan æfingin
stóð yfir. Varð það til þess að margir
erlendra fréttamanna urðu ókvæða
við þar sem þeim var meinað að
komast að tækjum sínum.
í það minnsta ein vestræn sjón-
varpsstöð hótaði því í gær að hætta
við allar fréttasendingar frá ólympíu-
leikunum vegna þess að ekki fékkst
leyfi til að sjónvarpa frá lokaæfing-
unni á setningarathöfninni í gær.
Fulltrúar Eurovision, samtaka evr-
ópskra sjónvarpsstöðva, hafa haldið
marga fundi með sovézkum emb-
ættismönnum. Hefur nú verið fallizt
á að sjónvarpsstöðvunum verði út-
veguð myndaf æfingunni.
Um það bil fjögur þúsund þátttak-
endur verða á ólympíuleikunum í
Moskvu þrátt fyrir að íþróttamenn
frá sextíu löndum hafi ekki mætt til
leiks. Opnunarathöfnin verður vafa-
lítið ekki eins tilkomumikil og oft
áður. Tuttugu þeirra þjóða sem taka
þátt í leikunum að þessu sinni hafa á
einn eða annan hátt gefið til kynna að
lið þeirra muni nota tækifærið við
opnunarathöfnina á morgun til þess
að mótmæla hernaðaraðgerðum
Sovétríkjanna í Afganistan. Sumir
hópar iþróttamanna munu ekki
mæta við athöfnina, aðrir munu ekki
ganga inn á leikvanginn undir fána
þjóðar sinnar eins og venja hefur
verið. í stað þess er ætlunin að gengið
verði undir fána með merki ólympíu-
leikanna — fimm samföstum hringj-
um.
Hinn nýkjörni forseti alþjóða ól-
ympíunefndarinnar, Juan Antonio
Samaranch, vinnur nú að því að
reyna að tryggja nokkurn veginn
snurðulausa framkvæmd ólympiu-
leikanna í Moskvu.