Dagblaðið - 18.07.1980, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1980.
ÚI
Útvarp
31
Sjónvarp
i
NÝÚTVARPSSAGA:
MORÐ ER LEIKUR EINN - útvarp kl. 22,35:
Trúir ekki sögum
um fjöldamorð
—en fer að rannsaka málið þegar gamla konan deyr á
dularfullanhátt
Þeir sem gaman hafa af spennandi
reyfurum aettu ekki að missa af nýrri
útvarpssögu sem hefur göngu sína i
kvöld kl. 22.35. Það er sagan Morð
er leikur einn, sem fyrst kom út í
Bretlandi 1938 undir nafninu „Murd-
er is easy”. Höfundurinn er sjálf
drottning sakamálasagnanna Agatha
Christie.
„Þetta er ein af svokölluðum
sveitaþorpssögum Agöthu sem aðdá-
endur hennar kannast vel við,” sagði
Magnús Rafnsson, sem þýðir bókina
og les í útvarp, i samtali við DB.
Hann kvað þráð sögunnar á þá leið
að maður nokkur væri á leið heim til
Englands eftir langar fjarvistir er-
lendis. Hann hittir í lestinni gamla
konu sem segir honum þá sögu að
fjöldi manna hafi verið myrtur að
undanförnu. Hann heldur fyrst að
þetta sé tómt rugl í kerlingunni, en
þegar hún lætur sjálf lífið í umferðar-
slysi á dularfullan hátt fer hann á
stúfana til að grennslast fyrir um
hvað hæft kunni að vera í sögu
hennar.
Lestrarnir verða alls átján.
-GM.
Agatha Christie, „drottning sakamála-
sagnanna”, er höfundur nýju útvarpssög-
unnar sem byrjar i kvöld.
SÍDDEGISTÓNLEIKAR
— útvarp kl. 16,20:
Fjölbreytt
klassísk
tónlist
Á síðdegistónleikum í útvarpi kl.
16.20 í dag verður leikin fjölbreytt
klassísk tónlist: Björn Ólafsson og Wil-
helm Lanzky-Ottó leika Systurnar í
Garðshorni, svítu fyrir fiðlu og píanó
eftir Jón Nordal; Vladimir Ashkenazy
leikur á píanó Fjórar etýður op. 39 eftir
Sergej Rakhmaninoff; Wendilin
Gaertner og Richard Laugs leika Klarí-
nettusónötu í B-dúr op. 107 eftir Max
Reger.
Síðdegistónleikar þessir eru i eina
klukkustund.
-GM.
Meðal þeirra sem í he.vrist á siðdegistón-
leikum útvarpsins er Vladimir Ashke-
nazy.
DB-mynd Árni Páll.
Föstudagur
, 18.júlí
7.00 Vcdurfregnir. Fréltir. Tónlcikar
7.20 Bæn. 7.25 Tónlcikar. I»ulur vclur og
kynnir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. tútdr.l
Dagskrá Tónleikar.
8.55 Mselt mál. Fndurtckinn þáttur Bjarna
Einarssonar frá kvöklinu áður
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Ása Ragnars
dóttir hcldur áfram að lesa söguna ,5umar á
Mirabellucyju" cftir Björn Rönningen i þýó
íhga Jóhönnu bráinsdóttur (4).
9.20 Tónlcikar. 9.30 Tilkynningar. Tónlcikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfrcgnir.
110.25 „£g ntan það enn”. Skcggi Ásbjarnarson
sér um þáttinn. Aðalcfm: Brot úr bcrnsku-
minningum Ágústs Jósclssonar.
11.00 Morguntónleikar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12 45 Veðurfrcgnir. Tilkynningar.
Tónldkasyrpa. Dans- og dægurlög og iétt
klassisk tónlist.
14.30 Mlódcgissgan: „Ragnhildur” cftir Pctru
Fiagcstad l.arscn. Benedikt Arnkelsson þýddi.
Helgi F.liasson Iestl4)
15.00 Popp. Vignir Sveinsson kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir.
16.20 Síðdcgistónleikar. Björn Ólafsson og
Wilhelm Lan/.ky Ottó leika ..Systumar i
Garðshorni”. svitu fyrir fiðlu og þianó cftir
Jón Nordai / Vladimir Ashkenazy leikur á
pianó Fjórar etýöur op. 39 eftir Scrgej
Rakhmaninoff / Wendilin Gaenner og
Richard Laugs leika Klarínettusónötu í B dúr
op. 107 cflir Max Rcger.
17.20 Litli harnatíminn. Nanna Ingibjörg Jóns
dóttir stjórnar barnatima á Akurcyri.
17 40 Lesin dagskrá næstu viku.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Vcðurfregnir Dagskrá kvöklsins.
19.00 Fréttir. Víðsjá. 19.45 Tilkynningar
20.00 Þetta vil ég heyra. Áður útv. 13 þ.m.
Sigmar B. Hauksson talar viö Gunnar Reyni
Sveinsson tónskáld. sem vclur sér tónlist til
flutnings.
2115 Fararheiltl. Þáttur um útivtst og fcrðamál
i umsjá Birnu G. Bjarnlcifsdóitur áður á
dagskrá 13. þ.m.
22.00 „Sónata per Manuela” eftir Lcif Þórarins
son. Manuela Wiesicr leikurá llautu.
22.15 Veðurfregnir. Frétlir. Dagskrá
morgundagsins. j
22.35 Kvóldsagan: „Moró cr leikur einn” eftir
Agóthu C'hristie. Magnús Rafnsson byrjar
leslurþýðingarsmnar.
/23 00 Djavsþáttur i umsjá Jóns Múla Árna
sonar. y
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld. DB-mynd Árni Páll.
ÞETTA VIL ÉG HEYRA - útvarp kl. 20,00:
Spjallað við
Gunnar Reyni
Þeir sem misstu af spjalli Sigmars B.
Haukssonar við Gunnar Reyni Sveins-
son tónskáld sl. sunnudag ættu að
leggja við hlustir þegar þátturinn
verður endurtekinn í útvarpi kl. 20.00 í
kvöld.
Milli santræðna þeirra Sigmars og
Gunnars verður leikin tónlist sem
Gunnar Reynir hefur valið.
-GM.
BARNATÍMI—útvarp í fyrramálið
kl. 11,20: y
SAGT FRA FJÖL-
BREYTTRISTARF-
SEMIVINNUSKOL-
ANS í KÓPAV0GI
— starfskynningu, fomleifauppgreftri,
íþróttamóti, sveitaferð og félagslíf i
Barnatimi Valgerðar Jónsdóttur er
á dagskrá útvarpsins kl. 11.20 í fyrra-
málið — fjölbreyttur að vanda. Þátt-
urinn ber yfirskriftina Þetta erum við
að gera, og eru það 15 ára nemendur
úr Vinnuskóla Kópavogs sem taka
efniðsaman.
Þátturinn hefst á því að fjögurra
manna strákahljómsveit skólans,
Óróagaurarnir, leikur lög. Síðan
rekur hvert atriðið annað: Rætt er
við Einar Bollason forstöðumann
skólans um starfsemina i sumar og
Adolf J. Petersen um náttúruminjar í
Kópavogi. Tveir nemendur flytja
leikþátt sem þeir nefna Kaffitíminn.
Viðtöl eru við tvo flokksstjóra vinnu-
skólans, Lindu Gisladóttur söngkonu
og Sigurð Þorsteinsson.
Þá er fjallað um starfskynningu
sem vinnuskólinn hefur beitt sér fyrir
í sumar og sagt frá heimsóknum á
nokkra vinnustaði. Sagt er frá sveita-
ferð skólans og skógræktarferð og
fornleifauppgreftri sem einn flokkur
nemenda stendur fyrir í Digranesi.
Enn fremur segir frá kvikmynd sem
nemendur gera um starfsemi vinnu-
skólans og loks er greint frá félagslif-
inu og iþróttamóti sem staðið hefur
yfir í allt sumar á vegum vinnuskól-
ans.
Þátturinn er 40 mínútna langur.
-GM.
Valgeröur Jónsdóttlr umsjónarmaður
barnatimans.