Dagblaðið - 18.07.1980, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1980.
29
PRISCILLA í FRAM-
HALDSFLOKKI
Priscilla Presley, fyrrum eiginkona
rokksöngvarans Elvis heitins Presleys,
hefur síðan maður hennar dó fengið
fjölda tilboða um að leika i sjónvarps-
þáttum og kvikmyndum. Það tilboðið
sem mest laun fól í sér fyrir hana var að
taka við af Shelley Hack í Englunum
hans Kalla, þeim fræga framhalds-
flokki. En öllu þessu hefur hún hafnað.
Það var ekki fyrr en á dögunum að
henni var boðið hlutverk i framhalds-
flokki um dýralíf í Afríku að Priscilla
sló til. Flokkurinn heitir Those
Amazing Animals og auk Priscillu leika
i honum þeir Burgess Meredith og Jim
Stafford. Flokkurinn er að hluta tekinn
i Afríku og mun það vera ein af á-
stæðunum fyrir þvi að Priscilla tók
hlutverkið að sér. Hún ku vera mjög
hrifin af þeirri álfu og dýralífinu þar.
Priscilla er nú orðin 35 ára og þykir
alveg gullfalleg. Hvort hún er hins veg-
ar góð leikkona kemur í ljós er flokk-
urinn kemur á skjáinn.
MATTHAU
SKAMMAR
FRÉTTAMENN
Walter Matthau , bandaríski leik-
arinn, jós úr sér skömmum í garð
þarlendra sjónvarpsfréttamanna i
gleðskap vestra á dögunum. „Enginn
gagnrýnir þá,” sagði hann. „Hafið
þið tekið eftir hversu margir af þeim
eru misheppnaðir? Flestir eiga við
málgalla að stríða eða þá að þeir
gretta sig hroðalega. Flestir tala með
röngu hljóðfalli.” Rétt hjá Matthau
í veizlunni sat sá frægi fréttamaður
Barbara Walters, sem einmitt hefur
hlotið mikla gagnrýni fyrir óvandað
mál í sjónvarpsfréttum. Einn gest-
anna móðgaðist fyrir hennar hönd og
spurði hvernig Matthau gæti sagt
svona hluti í hennar viðurvist. ,, Ég Fréttamaðurlnn Barbara Walters
hef aldrei tekið eftir neinum mál- hefur hlotlð nokltra gagnrýni fyrir ó-
göllum hjá henni,” sagði leikarinn að vandað málfar I fréttaskýringum sín-
bragði. um.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 - Simi 15105
trlO sjpmrQ «/*
Vönduð dönsk hústjöld.
Verð frá kr. 188 þús. ,
6 ára reynsla hérlendis.
Viðgerða- og varahluta-
þjónusta.
Kynnizt þeim af eigin raun og skodið þau
uppsett að
Tjafdbúdum, Geithálsi
vió Sudur/andsveg - Sími44392.****
uppsett aí
jþL
„Sjáðu, égermeð tréfót”
Ted Kepnedy, sonur
Edwards Kennedys
öldungadeildarþingmanns
í Bandaríkjunum, hefur
unnið sér virðingu margra
er hann ferðaðist um með
föður sínum í kosninga-
baráttu hans fyrir forseta-
embættinu þar vestra.
Teddy þótti afar
aðlaðandi og baráttuþrek-
ið var mikið. Meðal
annars heimsótti hann
sjúkrahús þar sem hann
hitti fyrir þennan litla
dreng. Snáðinn hafði lent
í bílslysi fyrir tveim
mánuðum og neitaði að
gera tilraun til þess að
ganga. „Ekkert mál,”
sagði sonur þing-
mannsins. „Sjáðu bara,
ég er með tréfót”. Og svo
dró hann upp buxnaskál-
ina og sýndi tréfótinn sem
hann fékk fyrir hálfu átt-
unda ári er fóturinn var
tekinn af honum vegna
krabbameins. Snáðinn,
sem er 7 ára, horfði á
þetta af mikilli athygli og
tveim dögum siðar var
hann farinn að labba um
allt.
Gripið simann
gerið góð
kaup
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22