Dagblaðið - 18.07.1980, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JÚLf 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
út skai hún! J Kalott-keppnin háð
í Reykjavík í ágúst
glæsileg Toyota-bifreið „
í verðlaun hjá Keili um helgina
The Viclory Toyota Cup golfkeppnin 1980 fer
fram hjá Golfklúbbnum Keili á Hvaleyrarvelli
dagana 19. og 20. júlf nk.
Toyotakeppnin fer nú fram I tíunda slnn á
Hvaleyrinni, og hefur Toyota-umboðið af þvi tilefni
ákveðið að gefa bifreið af gerðinni Toyota Corolla
1980, að verðmæti 6,5 milljónir, f keppnina og skal
hún ganga út. Ákveðið hefur verið, að sá : kylfingur
sem slær næst holu á 5. eða 17. flöt i teighöggi skuli
hreppa bifreiðlna.
Fyrirkomulag Toyota keppninnar var fyrstu sjö
árin öldungakeppni, en var breytt fyrlr 2 árum í
flokkakeppni, þannig að keppt er i öldungaflokki,
meistaraflokki, I., II. og III. fl. karla, kvennaflokki
og unglingaflokki 16 ára og yngri.
Laugardaginn 19. júli hefst keppnin kl. 18.00 og
verður III. fl. karla ræstur út fyrst. Sfðan kemur II.
fl. karla, ungllngarog kvennaflokkur.
Sunnudaginn 20. júlf verður I. fl. karla ræstur út
kl. 8.00, siðan öldungaflokkur og að siðustu
meistaraflokkur karla. Leiknar verða 18 holur i
öllum flokkum.
Að vanda verða verðlaun hin veglegustu fyrir
utan hina glæsllegu Toyota bifreið og eru þau
sömuleiðis gefin af Toyotaumboðinu.
Bifreiðin verður afhent komin til landsins, án
söluskatts, en verður að öðru leyti skattfrjáls.
Þátttökugjald f keppninni verður kr. 10.000.
Vonast er eftir mikilli þátttöku i keppninni, og
eru þátttakendur beðnir að skrá sig fyrir kl. 18 i dag í
sima 53360.
Heldur slakt á
„friðarleikum”
„Friðarleikarnir”, sem Bandarikjamenn efna til
fyrir ýmsar þjóðir, sem ekki taka þátt í ólympíu-
leikunum í Moskvu, hófust i Philadelphiu í gær-
kvöld. Heldur slakur árangur náðist. Nagui Assad,
Egyptalandi, sigraði i kúluvarpi með 19.69 m. Ian
Pyka, USA,varpaði 19.58 m. Ben Plucknett, USA,
sigraði f kringlukasti — kastaði 61.48 m en gamli
ólympiumeistarinn A1 Oerter, USA, varð annar með
60.76 m. Billy Konchellah, Kenýa, sigraði i 400 m á
45.59 sek. Kasheff Hassan, Sudan, varð annar á
45.60 sek. og Bill Green, USA, þriðji á 45,79 sek.
Renaldo Nehemiah, USA, sigraði i 110 m grinda-
hlaupi á 13.31 sek. — langfyrstur. Don Paige, USA,
sigraði í 800 m á 1:47.19 min. en Omat Kalifa,
Sudan, varð annar á 1:47.27 min.
Athyglisverður árangur náðist í spjótkasti
Kinverjinn Chen Maomao sigraði með 89.14 m.
James Walker, USA, sigraði i 400 m grindahlaupi á
48.6 sek., SteveScott, USA, í 1500 m á 3:40.19 min.,
Kip Rono, Kenýa, i 5000 m á 13:37.52 mfn., og Mel
Lattany, USA, í 100 m hlaupi á 10.31 sek.
Bæjarblaðið
og ÍA með
hjólreiðakeppni
Á morgun fer fram hjólreiðakeppni á Akranesi og
er það i fyrsta skipti að slik keppni er haldin þar í bæ
i rúman áratug svo vitaö sé með vissu. Eru það
Bæjarblaðs-stórveldið og íþróttabandalag Akraness
er gangast fyrir keppni þessari.
Nú þegar hafa um 40 manns skráð sig til þátttöku,,
þar af einhverjir úr höfuðborginni. Keppnin mun1
hefjast kl. 13.30 við íþróttavöllinn og er keppendum
skipt í aldursflokka. Verða farnar mislangar vega-
lengdir i samræmi við hvern aldursflokk.
Áhugasamir keppendur geta skráð sig á lögreglu-
stöðinni og á ritstjórn Bæjarblaðsins, Vesturgötu
48. Nú fyrir skömmu gengust Keflvíkingar fyrir
keppni í hjólreiðum og þótti hún takast vel. Virðist
því augljóst að áhugi á hjólreiðum hefur aukizt
mikið víða um land enda er orkukreppan að ganga
af landsmönnum hálfdauðum. -SSv.
— í annað sinn sem keppnin er háð hér á landi
og íslendingar hafa sigurmöguleika.
Aldrei verið með jafn-sterkt frjálsíþróttalandslið
Hlupu rúma 100 km
Laugardaginn 7. júnf sl. fóru félagar úr Umf.
Baldri á Hvolsvelli i áheitahlaup. Var þetta i annað
skipti sem slfkt hlaup fer fram á vegum féiagsins.
Söfnuðu ungmennafélagar áheitum i Hvolhreppi,
ákveðinni upphæð á hvern hlaupinn km.
Hlaupið sjálft var nokkurs konar boðhlaup. Hver
hlaupari hljóp eins langa vegalengd og hann gat
og tók þá annar við. Hlaupið hófst á Hvolsvelli kl. 9
morguninn og lauk á Hvolsvelli seinnipartinn.
Hlaupið var inn Fljótshlið og niöur að Dímon.
Þaðan framhjá Hólmabæjum, Miðey, Lágafelli,
Úlfsstöðum, Klauf, Eystri-Hól og allt að Ártúnum.
Sfðan upp með Þverá að Dufþaksholti og endað á
Hvolsvelli. Alls tóku 18 hlauparar þátt i hlaupinu.
Voru þeir á aldrinum 21 árs og niður i 4 ára. Hlupu
þeir að meðaltali 6,5 km hver. -ÖG
Kalottkeppnin i frjálsum íþróttum
fer fram í Reykjavik dagana 9. og 10.
ágúst næstkomandi. Þetta er í annað
sinn, sem keppnin fer fram á íslandi,
en islenzkalandsllðið hefur tekið þátt í
þessari ánægjulegu samvinnu viö:
norðurhluta Noregs, Sviþjóðar ogj
Finnlands siðan 1972 og hefur ávallt
verið með síðan nema árið 1973. Finnar
hafa verið mjög sigursælir í þessari
keppni og altaf borið sigur úr býtum
siðan ísland varð þátttakandi utan
1975, er keppnin fór fram i Tromsö, en
þá sigraði íslands.
Þó að ísland þreyti hér kapp við
hluta áðurnefndra ianda, eins og
tíðkast hjá mörgum löndum, er|
íbúafjöldi þessara landshluta hvers
fyrir sig meiri en íslands. Þessi
viðureign hefur alltaf verið mjög
skemmtileg og jöfn og er skemmst að
. ^minnast keppninnar hér í Reykjavík
1976, þar sem baráttan var mjög hörð'
j milli Finnlands og Islands, en lauk með ,
naumum sigri Finnlands. íslenzku
|stúlkurnar báru þó sigurorð af þeim,
Tinnsku.
Keppendur og fararstjórn norrænui
bræðraþjóðanna skipa á þriðja;
hundrað manns og auk þess munu
koma 70 áhorfendur frá Noregi til að
hvetja sína menn, en norska liðið hefur
verið í framför undanfarið og stundumj
Heimsmet
á stöng
— Frakkinn Houvion
bætti met landa
síns í 5,77 m
Frakkinn Philippe Houvion setti í
gær nýtt heimsmet i stangarstökki —
stökk 5,77 m á móti i París. Houvion er
22ja ára og bætti heimsmet landa sins
Thierry Vigneron, 5,75 m, sem sett var
1. júnisl.
j Á mótinu hljóp Bandaríkja-
maðurinn Craig Virgin 1000 m á
27:29.16 min., sem er bezti tími, sem
náðst hefur á vegalengdinni í ár.
Heimsmet Henry Rono, Kenýa,
er 27:22.05 min.
sótt fast að íslenzka liðinu, sem alltafi
hefur hlotið annað sætið, utan einu
sinni, þegar ísland sigraði.
Samvinna jaðarsvæða Norður-
landanna hefur farið mjög vaxandi
undanfarinn áratug, ekki aðeins á í-
þróttasviðinu. Ferðir hafa verið
skipulagðar af islenzkum ferða-
skrifstofum á hverju ári og hefur farið
fjölgandi með með ári hverju. Er
vonandi að íslenzkir íþróttaunnendur
kunni að meta þetta framtak Frjálsí-
þróttasambandsins og fjölmenni á
keppnina 9. og 10. ágúst, bæði til að
hvetja íslenzka liðið og sjá skemmtilega
viðureign.
Watson og Trevino
í efstu sætunum
— á brezka meistaramótinu í golfi
Bandarikjamennirnir Tom Watson
og Lee Trevino höfðu forustu eftir
fyrstu umferðina á opna brezka
meistaramótinu i golfi, sem hófst í
Muirfield á Skotlandi i gær. Báðir léku
á 68 höggum, þrátt fyrir mjög slæmt
veður. „Versta veður á mótinu síðan
1964,” sagði Jack Nicklaus eftir
keppnina i gær. Hávaðarok og rigning.
Nicklaus var ekki meðal hinna beztu í
gær. Á 69 höggum léku Glenn Ralph,
Bretlandi, Nick Faldo, Bretlandi,
Vicente Fernandez, Argentinu, Mark
Jones, Bretlandi, og Jack Newton,
Ástraliu. Með 70 högg voru Mark
Hayes, USA, Ben Crenshaw, USA,
Sany Lyle Bretlandi, Ken Brown, Bret-
landi og Gil Morgan, USA.
Af öðrum árangri má nefna, að
meistarinn frá í fyrra, Severino
Ballesteros, Spáni, lék á 72 höggum.
Tony Jacklin, Bretlandi, Tom
Weiskopf, Manuel Pinero, Larry
Nelson, USA og Simon Owen, Nýja-
Sjálandi, léku einnig á 72 höggum.
Einherji tapaði stigi
á Reyöarfirði
— en hefur leikið
þess að fá
Það var ekki að sjá, að það væru
efsta og neðsta liðið i F-riðli 3. deildar,
sem kepptu á Reyðarfiröi á
miðvikudagskvöld. Það var jafnræði
með liðunum og jafntefli í lokin, Valur
0 — Einherji 0. Sjötti leikurinn í röð,
sem Einherji fær ekki á sig mark og þá
er meötaiinn sigurleikur liðsins ^egn 1.
deildarliði Keflavíkur á UIA-há-
tíðinni á dögunum. Liöiö er i efsta
sætinu.
Reyðfirðingar stóðu fyllilega í
Einherja á miðvikudaginn og fengu
fyrsta tækifæri leiksins á 20 mín.
Skotiö yfir af stuttu færi — en rétt á
sex leiki í röð án
á sig mark
eftir björguðu Valsmenn naumlega. Á
48. mín. var dæmd vitaspyma á Val
fyrir brot innan vítateigs. Einar
Friðþjófsson, þjálfari Einherja, tók
spyrnuna en spymti knettinum framhjá
markinu við mikinn fögnuð áhorfenda.
Nokkru síðar lék Pálmi, vinstri útherji
Vals, upp kantinn og inn i vftateig.
Skaut laglega á markið en Magni
markvörður varði glæsilega. Beztu
tilþrif leiksins. Jafntefli varð staðreynd
og það voru nokkuð sanngjörn úrslit.
Einherji hefur nú leikið í 540 mín. án
þess aðfáásigmark.
-VS.
Guðmundur Þorbjörnsson, Val,
jafnaði fyrir ísland, rétt fyrir leikslok.
Vítakeppni
þjálfaranna
— þegar Súlan vann
Hrafnkel í 3. deild
Hrafnkell, Breiðdalsvik, tapaði á
heimaveili i F-riðli 3. deildar á
miðvikudag fyrir Súlunni, Stöðvar-
firði, 2—4 eftir 0—0 í hálfleik. Það má
segja að leikurinn hafi að nokkru verið
vítaspyrnukeppni milli þjálfaranna.
Ársæll Kristjánsson, þjálfari Hrafn-
kels, fyrrum ieikmaður Þróttar,
skoraði tvívegis fyrir lið sitt úr vita-
spyrnunni. Súlan fékk eitt víti, Jens
Einarsson, landsliðsmarkvöröur í
handknattleiknum, sem þjálfar Súlu-
menn og leikur i marki, skoraði úr
vítinu. Hin mörk Súlunnar skoruðu
Helgi Jensson og Óttar Ármannsson,
tvö. -VS.
Ali gegn
Holmes
— 2. október
Það hefur nú verið ákveðið að Larry
Holmes, heimsmeistarinn i þungavigt í
hnefaleikum, verji heimsmeistaratitil
sinn gegn Muhammad Ali, fyrrum
heimsmeistara, hinn 2. október næst-
komandi í Las Vegas. Fyrirhugað hafði
verið að leikurinn yrði i Taipai með Rio
de Janeiro og Kairo sem varastaöi en
nú hefur öllu verið breytt hvað það
snertir. Muhammad Ali er 38 ára og
hefur ekki keppt síðan hann endur-
heimti heimsmeistaratitilinn frá Leon
Spinks 15. september 1978. Hann mun
fá átta millljónir dollara fyrir leikinn
við Holmes. Larry Holmes er 30 ára og
hefur sigrað í öllum 35 leikjum sinum,
sem atvinnumaður. Hann fær sex
milljónir dollara fyrir keppnina við Ali.
Bréf til íþróttasíðunnar:
Magnamenn svara fyrir sig
Grenivík 10.7. 1980.
Við Magnamenn sjáum okkur ekki
fært að láta ósvarað svivirðilegum
skrifum um þjálfara Magna, Magnús
Jónatansson, og aðra leikmenn liðsins í
Dagblaðinu þann 9.7. 1980. Þar er sagt
frá leik Magna og HSÞb sem fram fór
5.7. 1980. I grein þessari er aðallega
fjallað um ósvifni og gróflega fram-
komu leikmanna Magna, og þá sérstak-
lega nefndur Magnús Jónatansson,
bjálfari liðsins.
Lítum nú á nokkrar staðreyndir:
1. „Að sögn Mývetninga . . .”
Lið HSÞb á að vera í lamasessi eftirj
þennan leik og þá aðallega vegna grófr-
ar framkomu Magnúsar. Sá leikmaður
HSÞb sem fékk högg á nefið fékk það
ekki frá Magnúsi.heldur skallaði hann í:
jhnakka Jóns Lárussonar. Hverjum er1
þar um að kenna? Magnamönnum ,,að
sögn Mývetninga . . .”?
Um rifbrotið vitum við ekkert, en
hitt vitum við, aðsá sem „rifbrotnaði”:
þurfti ekki að yfirgefa leikvöllinn.
Siæmt brot það!
Um þann mann sem meiddist í and-
liti er þetta að segja: Boltinn kom
hoppandi út af vítateigshorninu að
hliðarlínunni. Magnús kom hlaupandi
að línunni og HSÞb leikmaðurinn á
eftir. Boltinn var ca á miðju læri
Magnúsar og ætlaði hann að gefa bolt-
ann fyrir markið. Þá kastar HSÞb leik-
maðurinn sér niður og ætlaði að skalla
boltann um leið og Magnús spyrnti.,
Boltinn var á milli andlits og fótar.j
Allir vita að það er háskaleikur að'
skalla niður. Hver var brotlegur?
Dómarinn dæmdi ekkert á þetta atvik.
2. „öllum ber víst saman um að leik-
urinn hafi verið óhemjugrófur.”
Hvaða öllum? Hann var ekki grófari en
það, að ekkert tiltal né spjald var gefið
i leiknum.
Nú spyrjum við: Er Magnaiiðið gróft
lið? Á síðastliðnu ári fengu Magna-
menn svokallaða Drago-styttu fyrir
prúðmannlega framkomu á leikvelli,
og það sem af er árinu í ár hefur eitt
gult spjald verið gefið á leikmann
Magna.
Það sem kom fram um Magnús
Jónatansson teljum við mjög ósann-
gjarnt. Magnús hefur Ieikið 450
meistaraflokksleiki og aðeins fengið
eitt gult spjald allan sinn ferii, og hlýtur
það að vera einstakt afrek og sérstök
framkomaáleikvelli.
Fyrst Mývetningar sietta skyrinu er
bezt að sletta á móti. í leiknum gerðist
atvik sem ekki var minnzt á í Dagblað-
inu. Annar iínuvörðurinn, Arngrímur
Arngrímsson úr Mývatnssveit, dæmdi
rangstöðu á Magna eftir að HSÞb
hafði skorað sjálfsmark. Um leið og
Arngrímur lyfti upp flagginu (þá lá
boltinn í netinu) sagði hann: „Þeir hafa
gott af því að tapa.” Þokkalegt það!
Annað var það, að fyrir leikinn báðu
Magnamenn formann Eilifs um bolta.
Eftir margítrekaðar tilraunir kom vind-
litill bolti 2 mín. fyrir leikbyrjun.
Síðan, eftir að hafa leikið í 90 rfiín. á
malarvelli og eftir átti að aka 150 km til
Grenivíkur, komust Magnamenn ekki í
sturtu tii að skola af sér svitann og
„syndirnar”.
Að lokum: Léleg þykja okkur vinnu-
brögð Dagblaðsmanna í þessu tilfelli.
Það er engin sanngirni í að leita upplýs-’
inga hjá öðrum aðila í tveggja máli,
ekki sízt þegar svona er skrifað. En
með birtingu þessarar greinar teljum
við hlut okkar réttan.
Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
Björgólfur Jóhannsson,
Grenivik.
Undirritaður vill benda Magna-
mönnum á að hann ber alla ábyrgð á
þeim skrifum er birtast í Dagblaðinu
varðandi 3. deildina. Eins og Magna-
menn sjálfir vita (sbr. nafnabrenglin öll
á sinum tíma) er oft hætt við að upplýs-
ingar fari eitthvað úrskeiðis. Þegar svo
margir leikir eru unnir á jafn skömm-
um tima og raun ber vitni. Ekki er allt-
af hægt að hafa samband við báða
aðila vegna timaskorts og svo vegna
þess að greinarnar um 3. deildina eru
iðulega unnar seint á kvöldin og oft á
nóttunni.
Undirritaður hefur til þessa ekld haft
ástæðu til að rengja heimildarmenn
sina i 3. deildinni og sá ekki ástæðu til
þess i umræddu tilviki. Auðvhað vll oft
koma upp missætti á milli leikmanna
og féiaga og má þá stundum ekki sjá
-gerlega hvor á sökina. Undirritaður
vonar aðeins að slik „ranghermi”
komi ekki fyrir aftur og að Magna-
menn virði það að DB reynir eitt allra
fjölmiðla að halda sambandi við 3.
deildarliðin. -SSv.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
19
I)
Sænski markvörðurinn bjarg-
aði sænska liðinu frá tapi!
— skrifa sænsku blöðin í morgun eftir jafnteflisleik Svíþjóðar og íslands
í Halmstad í gær
„Við vorum með okkar bezta lið —
okkar beztu leikmenn, sem eiga að vera,
á toppnum en samt var það aðeins stór-
leikur markvarðarins Thomas Wernes-
son frá Atvidaberg, sem bjargaði
sænska landsliðinu i knattspymu frá
tapi hér i Halmstad i gær gegn
íslandi,” skrifar Hallandsposten I
Halmstad í morgun um landsleik Svi-
þjóðar og íslands í gær. Önnur blöð
skrifa í svipuðum dúr — sænska liðið
var heppið að ná jafntefli gegn íslandi.
íslenzka liðið kom Svium mjög á óvart
með góðum leik en gróf varnarmistök
höfðu næstum fært Svium sigur á
silfurfati. Guðmundur Þorbjörnsson
jafnaði hins vegar fyrlr ísland i 1—1
rétt fyrir leikslok.
„Þetta er í annað skipti á skömmum
tíma, sem sænska landsliðið er mun
lakara en mótherjinn i síðari hálfleik.
Fyrst gegn ísrael í heimsmeistara-
keppninni — nú gegn íslandi. Við
skulum vona að þetta hafi aðeins verið
slæmur dagur hjá sænska iandsliðinu í
gær gegn íslandi — hjá sænsku liði,
sem á að vera i toppæfingu. Fyrir
aðeins tveimur dögum lék liðið úrvals-
lið frá Halmstad sundur og saman og
sigraði með 10—0 í æfingaleik. Nú var
það aðeins frábær markvarzla sem
bjargaði Svíum,” skrifar Hallands-
posten ennfremur.
Blaðið fer viðurkenningarorðum um
íslenzka liðið — Ásgeir Sigurvinsson
hafi verið aðalmaður í öllu en mest
kom þó Janus Guðlaugsson á óvart að
mati blaðamanna Póstsins. Hann hafi
verið mjög jákvæður í öllu, sem hann
gerði. Sendingar hans oft mjög
snjallar. Marteinn Geirsson, fyrirliði,
batt vörnina saman eins og herforingi
og Þorsteinn Ólafsson kom á óvart í
markinu. „íslenzka liðið i heild kom
verulega á óvart og leikur þess í gær
sýndi að íslenzk knattspyrna er á réttri
leið. íslenzka liðið átti miklu betri
tækifæri til að skora í leiknum,”
skrifar Hallandsposten og öll skrif
blaðsins eru mjög jákvæð fyrir íslenzka
liðið.
„Ég hafði varað Svía við þessum leik,
— íslenzka liðið er miklu betra en úr-
slitin gegn Noregi fyrr í vikunni gefa til
kynna. Það er eins og íslendingar hafi
eitthvert tak á Svíum í knattspyrnunni.
Við höfum þrisvar unnið ísland með
eins marks mun — einu sinni tapað og
nú jafntefli,” sagði sænski landsliðs-
þjálfarinn „Lappan” Arneson eftir
leikinn. Hann viðurkenndi í sjónvarp-
inu að íslenzka liðið hefði verið betra í
leiknum — einkum og sér í lagi í síðari
hálfleiknum.
Þetta var fimmti landsleikur Svía í
sumar. Sænska landsliðið hefur tapað
fyrir Dönum og Sovétmönnum á
heimavelli, unnið Finna úti og gert
jafntefli við ísrael og ísland. Slakur
árangur hjá liðinu að mati Svía.
Frábærir strákar
„Nú er ánægjulegt að vera formaður
landsliðsnefndar. Þetta er bezti leikur,
sem ísland hefur leikið um langt árabil.
Við áttum að sigra Svíana,” sagði
Helgi Daníelsson, formaður iandsliðs-
nefndar og fyrrum landsliðsmark-
vörður íslands (25 leikir), þegar Dag-
blaðið ræddi við hann í gær strax eftir
ieikinn.
„Við lékum miklu betur en Svíar all-
an síðari hálfleikinn og það var í al-
gjöru ósamræmi við gang leiksins,
þegar Svíar náðu forustu átta mínútum
fyrir leikslok. Sorglegt mark — mikil
mistök. Albert Guðmundsson var með
knöttinn og engin hætta sjáanleg.
Albert ætlaði að gefa knöttinn aftur til
Þorsteins Ólafssonar markvarðar.
Sendingin var hins vegar of stutt og
Rudger Backe komst á milli. Náði
knettinum og vippaði honum yfir Þor-
stein í markið.
Þremur mínútum fyrir leikslok
jafnaði Guðmundur Þorbjörnsson,
Ásgeir Sigurvinsson lék upp með knött-
inn og inn í vitateig Svía. Var felldur
þar gróflega en það er alltaf sama
sagan með þessa dómara, sem dæma
leiki íslands — vítaspyrna virðist ekki
vera til í reglum þeirra, þegar ísland á í
hlut. Ekkert dæmt en brotið á Ásgeiri
var ekkert annað en vítaspyrna. Hins
vegar hrökk knötturinn frá honum og
sænsku varnarmönnunum með
nokkrum heppnisbrag til Guðmundar
Þorbjörnssonar, sem sendi knöttinn i
sænska markið. Það var dýrleg sjón,”
sagði Helgi, „og vissulega hefði það
verið sorglegt ef við hefðum ekki
fengið mark þarna.”
„íslenzka liðið í heild var mjög gott
— samstiilt heild og þetta er hreint frá-
bær landsliðshópur. Ásgeir Sigurvins-
son var að mínu mati bezti maður á
vellinum — betri en sænsku leikmenn-
irnir. Miklu meiri stíll yfir leik hans. Þá
lék Örn Óskarsson mjög vel — barðist
hreint stórkostlega. Janus Guðlaugsson
var mjög sterkur og Þorsteinn öruggur
í markinu. Annars er afar erfitt fyrir mig
að hæla einum leikmanni íslenzka
liðsins öðrum fremur. Þetta var fyrst
og fremst leikur liðsheildarinnar —
liðið lék taktiskt mjög vel. Héit boltan-
um vel og samleikur í fyrirrúmi. örugg-
lega bezti leikur íslands í háa herrans
tíð — já, það er langt síðan við höfum
náð slíkum landsleik. Liðið haföi
undirtökin allan síðari hálfleikinn.
Svíar voru betri í fyrri hálfleik án þess
að ná nokkru sinni verulegri pressu —
og síðari hálfleikurinn var stórgóður
hjá okkur. Það var oft gaman að sjá til
Péturs Ormslev, Fram — hann kom
verulega á óvart. íslenzka liðið fékk
mörg góð tækifæri og með smáheppni
hefðum við átt að skora nokkur
mörk,” sagði Helgi Daníelsson að lok-
um.
ísland fékk vissulega góð tækifæri í
leiknum en átti v >ð erfiðan mann að
eiga, þar sem inarkvörðurinn Thomas
Wernesson var. Hann varði snilldar-
lega frá Ásgeiri — og hreint á undra-
verðan hátt frá Janusi á örstuttu færi.
Einnig frá Trausta Haraldssyni, bak-
Ásgeir Sigurvinsson, bezti maður á
vellinum.
verði, Guðmundi Þorbjörnssyni og
fleirum. f heild ákaflega jákvæður
leikur hjá íslenzka landsliðinu. Leikur,
sem munað verðureftir — og landsliðs-
þjálfarinn Guðni Kjartansson á þar
ekki svo lítinn hlut að máli.
íslenzku landsliðsmennirnir héldu
frá Halmstad kl. átta að íslenzkum
tíma í morgun áleiðis til Kaupmanna-
hafnar. Flogið verður heim í kvöld —
þó ekki komið fyrr en undir miðnættið.
- hsím.
r
Ami Indriðason menntaskólakennari, fyrrum fyrirliði íslenzka landsliðsins:
Handknattleiksíþróttin íhættu
Nokkrum dögum áður en ársþing
H.S.Í. var haldið í vor ritaði ég grein
í Þjóðviljann til þess að vekja athygli
á alvarlegu vandamáli, sem H.S.I.
stendur nú frammi fyrir. Hér er átt
við fjárhagslegan grundvöll
sambandsins og stefnumótun næstu
árin. Greinin I Þjóðviljanum varð
ekki til þess að umræöur hæfust i
blöðum eins og vonast var til.
Ársþing H.S.Í. sýndi þó að umræða
um málið er timabær og raunar bráð-
nauðsynleg. Mikillar svartsýni gætir
nú hjá handknattleiksfólki um fram-
tíð þessarar íþróttagreinar og því afar
mikilvægt að forysta H.S.I. taki á
honum stóra sínum og móti af
víðsýni og kjarki stefnu
sambandsins næstu árin. Það yrði til
óbætanlegs tjóns ef áðurnefnd svart-
sýni næði að festa varanlegar rætur.
í útvarpsviðtali eftir ársþingið
fékk formaður H.S.Í. einstakt
tækifæri til þess að gera
hreinskilnislega grein fyrir hvaða
vandamál blöstu við sambandinu í
framtíðinni. En í stað þess að gera
þetta og undirbúa sókn til átaka,
kaus formaðurinn að gera sem
minnst úr öllum vandamálum
sambandsins. Þetta væri ekkert verra
en undanfarin ár eða hjá fyrri stjórn-
um sambandsins og þetta myndi
áreiðanlega blessast allt saman. Það
er út af fyrir sig skiljanlegt að reynt sé
að undirstrika það að hans stjórn
hafi ekki staðið sig verr en fyrri
'
Geir Hallsteinsson, markhæsti leikmaður islenzka landsliðsins, skorar i lands-
leik. •
stjórnir sambandsins. En það kemur
málinu einfaldlega lítið við. Kjarni
málsins er: hvernig standa málin nú,
hver á stefnan að vera i framtíðinni
og hvað þarf að gera til að fram-
kvæma þá stefnu. Eitt af því, sem
veldur vandræðum í þessum efnum
er viðhorf stjórnvalda til íþrótta-
mála. Það er svo augljóst sem verða
má, að engin opinber stefna hefur
verið mótuð sem hægt væri að fylgja
eftir. Stefnuleysi er ríkjandi til
ómetanlegs tjóns fyrir alla
viðkomandi. Aðeins forríkar þjóðir
hafa efni á slíku stefnuleysi og slíkri
sóun, sem viðgengist hefur í þessum
málum. Samanburður við Norður-
lönd gerir okkur hreinlega hlægilega i
þessu efni.
Það verður þó að viðurkenna, að í
einum þætti þessara mála hefur hið
opinbera „gefið tóninn” ef svo má
segja. Það er þegar upp koma afreks-
menn í ákveðnum greinum.
íslendingar hafa t.d. eignast tvo stór-
meistara í skák, Friðrik Ólafsson og
Guðmund Sigurjónsson. Þessir menn
hafa komizt í hóp þeirra beztu i
heiminum í sinni grein og hafa haldið
uppi hróöri landsins víða um lönd á-
samt efnilegum alþjóðlegum
meisturum okkar. Þetta hefur hið
opinbera kunnað að meta og styrkt
stórmeistarana tvo svo að þeir gætu
sinnt þessu áhugamáli sínu, æft og
keppt, án þess að hafa verulegar
áhyggjur af fjárhagslegri afkomu
sinni. Um það geta flestir verið
sammála að þetta sé hið rétta og
(nauðsynlegt til að Islandi fái haldið
því áliti og þeirri virðingu, sem það
hefur notið erlendis í þessari iþrótta-
grein.
Hið sama varð uþpi á teningnum,
þegar Hreinn Halldórsson, hinn
frækni kúluvarpari okkar, sýndi það
og sannaði að hann var í hópi þeirra
beztu í heiminum í kúluvarpi. Þá var
aftur brugðist við og honum gert
kleift að sinna æfingum af kappi um
sinn og þótti öllum það sjálfsagt og
jafnvel ekki nóg að gert.
Í þessum tveimur greinum hafa
íslendingar sýnt og sannað að þeir
geta verið í hópi þeirra, sem lengst ná
í heiminum.
Ef nú litið er til handknatt-
leiksins þá er það ekki ágreiningsmál
að íslendingar hafa verið meðal
fremstu þjóða í þeirri grein undan-
farna áratugi. Þrátt fyrir það hafa
viðbrögð stjórnvalda ekki orðið þau
sömu og gagnvart hinum tveimur
fyrrgreindu greinum. Þess sjást
reyndar nokkur merki að við erum
smám saman að dragast aftur úr
öðrum þjóðum í greininni Það er
ekki á mörgum sviðum, sem
íslendingar geta vakið athygli á sér
svo að umheimurinn taki eftir. Það
verður því að gera allt til þess að við
höldum okkar hlut gagnvart öðrum.
Hin auknu ferðalög íslendinga und-
anfarin ár hafa opnað augu manna
fyrir því að útlendingar, jafnvel
Evrópumenn, hafa oft rangar og
niðurlægjandi hugmyndir um land og
þjóð, ef þeir þá hafa yfirleitt nokkra
hugmynd um okkur, sem er það
versta.
Engin þjóð hefur í raun efni á að
gleymast í samfélagi þjóða. Liður til
að vinna gegn því gæti verið að hefja
handknattleikinn aftur til vegs og
virðingar með þjóðinni, gera áætlun
um að koma ísl. landsliðinu i hóp 8—
10 beztu landsliða heims og halda
iþeirri stöðu. Ekki er verið að fara
fram á það að landsliðsmenn í hand-
knattleik verði launaðir árið um
kring til að sinna íþrótt sinni, eins og
stórmeistararnir eða kúluvarparinn.
Hér er aðeins verið að fara fram á að
H.S.Í. sé gert kleift að halda skamm-
Ámi Indriðason.
laust úti landsliði, sem getur átt
öruggt sæti meðal 10 beztu landsliða i
heimi i þessari grein. Það gengur ekki
lengur að formaður H.S.Í. borgi úr
eigin vasa milljónir í ferðakostnað i
hvert sinn sem farið er í keppnisferðir
til útlanda. Og það gengur ekki
lengur að liðsstjórar þurfi að greiða
ómældar fúlgur til þess að út-
búnaður liðsins sé sómasamlegur. Og
svona mætti lengi telja. Það er
kominn tími til að mótuð sé ákv.
stefna af framsýni og kjarki í hand-
knattleiksmálum og henni sé svo fylgt
eftir. Handahófsaðgerðtr t pessum
efnum verða að víkja. Þær hafa
ráðið ferðinni að mestu undanfarna
áratugi og þess vegna er handknatt-
leiksíþróttin á íslandi í hættu.
Árni Indriðason.