Dagblaðið - 24.09.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980.
3
'
Hindrum veiðiskap skaðræðisdýrsins:
BJÖLLUÁ
ALLA KETTI
fyrr skynjað hættuna. Þá ketti, sem
ekki hafa bjöllu, ætti lögreglan að
taka i sina vörzlu og „koma fyrir
kattarnef”.
Raddir
lesenda
Esja er bezta hótelið
Kona í Keflavík skrifar:
Mig langar að koma á framfæri finnst Esja vera albezta hótelið í
þökkum til Hótel Esju. Ég hef gist í borginni. Maður slappar mjög vel af
Reykjavík á flestum hótelum og mér þarna og nýtur góðrar þjónustu.
Fuglavinur hringdi:
Nú er svo komið að þrestir sjást
varla í borgum og bæjum hér á landi.
Allir eru sammála um það hver sé
sökudólgurinn. Það er blóðþyrst,
litið rándýr af kattaætt, sjálfur kött-
urinn. Það er mál til komið að
borgarbúar rísi upp gegn þessu skað-
ræðisdýri og hindri veiðiskap þess í
görðum. Kötturinn er lúmskt kvik-
indi sem læðist og oft erfitt fyrir
fugla að varast hann. Þess vegna
eigum við að snúa dæminu við, fugl-
unum í hag. Við eigum að krefjast
þess að kattaeigendur setji bjöllu um
háls villidýrsins þannig að fuglar geti
BEOCENTER4600
Pyrlr þá sem vilja
spara pláss án þess
að förna gæóunum!
Bang&Olufsen
VIÐ ERUMÁ ALLT ANNARRI LÍNU!
ÞEGAR HLJÓMGÆÐIN
GLEYMDUST...
Þróunin í hljómtœkjaframleiðslunni
hefur uerið sú að draga margar einingar
saman í eina heild, suonefndar sam-
stæður. Þetta hefur sína góðu kosti. Þú
kaupir útuarpsmagnara, kassettusegul-
band, plötuspilafa og hátalara í einum
og sama pakkanum. Þú sparar pláss og
sú leið er ódýrari en kaup á einstökum
einingum.
En þetta hefur líka sínar slœmu
hliðar. Ein er sú að hljómgæðum hefur
oftast uerið fórnað til þess að halda uerði
í lágmarki. Þuí það getur enginn boðið
allan pakkann á hálfuirði án þess að gefa
eftir í gæðunum. Það liggur Ijóst fyrir.
BEOCENTER 4600
HINN SANNI TÓNN HÖNNUNAR
OG HLJÓMGÆÐA.
Bang og Olufsen uoru óánægðir með
þessa þróun og hönnuðu þuí samstœðu
sem er ólík öllum þeim hljómtækjum
sem fyrir eru á markaðinum.
Það er BEOCENTER 4600. Þar er
ekkert gefið eftir í gæðum, þuert á móti er
lögð áhersla á óskerta eiginleika huerrar
einingar fyrir sig. Samstæðu með há-
marks hljómgæði á sanngjörnu uerði.
Plássins uegna uerða hér aðeins
talin upp nokkur þeirra atriða sem gera
BEOCENTER 4600 samstœðuna ein-
staka í sinni röð.
SEGULBAND.
• Hraðanákuæmni (wow and flutter
DINjer 100% ± 0.2%, en það útilokar
falska tóna.
• Margföld ending slitflata á tón-
bandsnema (en þeir eru í sífelldri snert-
ingu uið bandið) er tryggð með sérhertum
málmi.
• DOLBY, en það er útbúnaður sem
eyðir suði uið upptökur og afspilun.
PLÖTUSPILARI.
• Spilarinn hlaut uerðlaun nýuerið
sem “beztu kaup„ á Európumarkaði.
• Armurinn og tónhausinn marka
tímamót í hönnun á plötuspilurum, þuí
samanlögð þyngd þeirra er aðeins 50g
sem er 10 sinnum minna en þekkist.
Háfægð demantsnálin huílir þuí í raun
með 0,3g þunga á plötunni í stað 1 til 2g
Þessi staðreynd ásamtfullkominni gorm-
fjöðrun tryggir hámarks upptökugæði
og fyrirbyggir að hljómplata eða nál
bíði tjón, jafnuel þó að utanaðkomandi
titringur eða hnjask komi til.
GERÐUSVO VEL.
Viljir þú sannreyna þessa aug-
lýsingu er þér uelkomið að ræða málin
til hlítar uið sölumenn okkar um
BEOCENTER 4600 og reyna tœkin.
Fyrir alla muni gerðu samanburð.
Ver8lið í sérveralun með
LITASJÓNVÖRP OG
HLJÓMTÆKI
BUPIN
SKIPHOLTI19
SÍMI29800
Verð á BEOCENTER 4600
er kr. 801.360 kr.
Góflir greiflsluskilmálar,
ca 300.000 kr. út og
afgangur á 6 mán.
Staðgreiðslu-
afsláttur
BrS%
, S
A að vernda starfs-
stóttir gagnvart
tækninýjungum?
Frantz Pétursson, starfsmaður SVR:
Já, að svo miklu leyti sem það gengur
ekki í berhögg við alla skynsemi.
Guðmundur Lárusson, vinnur hjá
ÍSAL: Já, það finnst mér endilega.
Magnús Kristinsson atvinnurekandi:
Nei, það ætti alls ekki að gera það þvi
þá byggjum við enn i moldarkofum.
Viðeigum að húgsa til morgundagsins.
Sigurður Hallgrimsson rafmagnsverk-
fræðingur: Það er ekki hægt að gera
það.
Önundur Björnsson guðfræðinemi:
Að forðast allar tækninýjungar I dag er
jafn fáránlegt og þegar starfsstéttir í
gamla daga mótmæltu gufuvélinni.
Hins vegar verða menn að fara mjög
varlega. Þessi spurning krefst eiginlega
heillar ritgerðar.
Bjarni Marteinsson arkitekt: Já, það
verður að vernda fólk að einhverju
leyti ef um nýjungar er að ræða sem
valda atvinnumissi. Alger verndun
getur hins vegar ekki orðið því
tækninni fleygir stöðugt fram.