Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.09.1980, Qupperneq 9

Dagblaðið - 24.09.1980, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980. 9 The Platters fara á fjögurra mánaða tónleikaferð um Skandinavíu FÓLK Sonur Roberts Kennedy ætlar að kvænast i marz Michaei Le Moyne Kennedy, 22, ára sonur Róberts Kennedy, hefur planiagt að kvænast í marz á narsta ári. Hin hamingjusama er Vicky Gifford, 24 ára dóttir Franks Gifford. 142 ára hjólreiða- maður Wu Yungin er 142 ára og líklega elzti maður í Kina. Hann býr i norðvesturhluta Kína á stað sem heitri Quinhuabian. Heilsusamleg líkamsþjálfun og rólegt líf hefur gert þennan mann svo háaldraðan að því er hann segir. Á myndinni er Wu Yungin í sínum daglega hjólreiðatúr. Þannig líta Platters út í dag. Aóetns einn af upprunalegu liðsmönnum söngsveit- arinnar er nú eftir. Stereogræjumar minnka stöðugt: Walkman nefnist minnsta stereo-segulbandstækið — það rúmast í brjóstvasa notandans Nýjasta æðið i músíkinni báðum megin Atlantshafsins nefnist Walkman. Þetta er ekki nýbylgju- hljómsveit eða neitt í þeim dúrnum, heldur lítið apparat, sem með góðu móti má troða í brjóstvasann. Walkman er sem sagt pínulitið segulbandstæki sem hefur það fram yfir önnur tæki af sömu stærð að hægt er að spila af því í stereo. Það er Sony sem sendir Walkman á markaðinn. Þetta litla stereotæki hefur þegar náð miklum vinsældum. Brezka konungsfjölskyldan hefur meira að segja orðið sér úti unr eitt. Ekki gengur tækið alls staðar í heim- inum undir nafninu Walkman. Sums •staðar er það kallað Stowaway, ann- ars staðar Soundabout. Helzti kostur Walkmans er að sjálfsögðu smæðin. Alls staðar er hægt að smella á sig heyrnarhlífum og setja segulbandstækið í gang. Not- andinn getur verið í strætisvagni, á reiðhjóli eða jafnvel í gufubaði (!) og notið Beethovens, Bítlanna eða hvaða tónlistar sem er í stereo. Talsverður munur er á jjví hvað Walkman kostar í ýmsum heims- hlutum. í New York og Amsterdam kostar tækið rúmlega eitt hundrað þúsund krónur. í London er tækið selt á 130 þúsund og í París á um 170 þús. En verðið skiptir engu máli að I þvi er virðist. Búðirnar eru varla búnar að stilla Walkman út þegar allt tæmist. Og Sony verksmiðjurnar ■ hafa engan veginn undan að framleiða þessar örsmáu stereogræjur. Væntanlega batnar þó ástandið þegar fleiri framleiðendur bætast i hópinn. Japanska fyrirtækið Aiwa kynnti nýlega sína útfærslu, dálitið stærra og dýrara stereosegulband, sem kallaðer Record man. Panasonic og Toshiba hafa einnig nýverið kynnt sin smátæki á sýningum. Hver kannast ekki við söngsveitina The Platters? Þessa einu sönnu, sem náði miklum vinsældum á sjötta ára- tugnum með lögum eins og Only You, The Great Pretender, Twilight Time og Smoke Gets In Your Eyes. Hafi einhver haldið að sveit þessi væri týnd og tröllum geftn þá er það mesti mis- skiiningur. The Platters eru einmitt að fara i hljómleikaferðalag um Skandi- navíu í næsta mánuði. Það var árið 1953 sem Platters tóku upp sína fyrstu plötu. Tveimur árum síðar — fyrir nákvæmlega 25 árum — sungu þau síðan Only You inn á plötu. Eftir það lá gatan til frægðar greið. Á þessum tæpu þremur áratugum hafa mannabreytingar orðið miklar hjá Platters. Aðeins einn af núverandi liðs- mönnum hennar hefur verið með frá upphafi. Sá heitir Herb Reed. Aðrir i söngsveitinni eru Nate Nelson, Duke Daniels, Robert Moore jr. og söng- konan Regina Shearer. Hljómleikaferð Platters um Skandinavíu tekur um fjóra mánuði. Að henni lokinni liggur leið söngfólksins til Miami og þaðan til Trinidad. — Og hvers konar tónlist skyldu Platters svo flytja í dag, 25 árum eftir að þau slógu í gegn? Sei, sei, jú, það eru að sjálfsögðu Only You, The Great Pretender og öll hin gömlu góðu lögin, sem fólk virðist aldrei ætla að þreytast á að heyra. Hún eyði- lagði hið konung- lega Monaco- hjónaband Þessi stúlka hefur valdið miklu fjaðrafoki í heiminum. Hún eyðilagði konunglegt hjóna- band þeirra Karólínu prinsessu og Philippe Junot. Það var vinátta hennar, fyrirsætunnar Gianina Facio, og glaumgosans Philippe sem kom Karólínu til að sjá að hann var ekki nógu góður fyrir hana. Karólína fór frá Philippe skömmu eftir að mynd af honum og þessari stúlku birtist í blöðum. Myndin var tekin af þeim á diskóteki í New York. Gianina er 24 ára og Philippe 40 ára. Karólína og Philippe hafa verið gift í tvö ár og að því er sagt er er Gianina ekki sú fyrsta sem hann hefur verið með eftir að hann kvæntist Karólinu. Það tók þó út yftr allt annað þegar hann bauð Gianinu með sér til Tyrklands. Þrátt fyrir allt þetta segir Gianina að þau séu aðeins góðir vinir. Hver kannast ekki við hósla hér og þar á almennum samkomum, t.d. guðsþjónustum, tónleikum og fleiru slíku. Þannig var það á sinfóníutónleikum einum úti í hinum stóra heimi að hóstinn í salnum yfir- gnæfði tónleikana. Að vísu var þetta um vetur og kalt i veðri en engu að siður fór þetta í taugarnar á spilurunum. Til að ráða bót á þessu vandamáli var tekið til þess ráðs að gel'a hverium þeim sem á tónleikana kom ókeypis hóstasaft. Þá var þetta góðgæti einnig veitt í hléi. Þetta vat að vísu á siðastliðnum vetri en þar GAFU GESTUNUM HÓSTASAFT sem þetta ráð þótti takast með ein- dæmum vel verður sami háttur hafður á nk. vetur. Þetta kemur m.a. fram í timaritinu Psychology today. Þá segir einnig að hósti stafi oft af laugaveiklun og sálrænum vanda- málum. Háskóli i Virginiu hefur fundið það út að fólk hósti frekar ef það er statt þar sem fjölmennt er og þegar það heyrir aðra hósta. Þetla mun einnig eiga við um þá sem eru með kvef eða aðra smákvilla. Fólk hóstar frekar þar sem margt er um manninn, t.d. á tónleikunf*og viö guösþjónustur. Hósti vandamál á tónleikum:

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.