Dagblaðið - 24.09.1980, Blaðsíða 15
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980.
ð
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
í
Mark'inn Guirsson þrumar húr i jiirðina ou vllr mark lividouc i liu/.la læri sem h'ram fékk i útileiknum.
DB-mynd Bjarni I riðriksson.
„VIÐ HÖFUM ALLT AÐ VINNA”
— segir Hólmbert Friðjónsson, hinn eitilharði þjálfari Framaranna og er hæfilega
bjartsýnn á sigur gegn Hvidovre á sunnudag
„Með þvi að spila sóknarleik gegn
Hvidovre í sírtari leiknum á sunnudaginn
gefum vifl þeim tækifæri lil afl spila þá
knatlspyrnu, sem þeim hentar langbczt,"
sagrti Hólmbert KriAjónsson, þjálfari
Framara, við blaðamann á mánudag. ,,Við
verðum að slíla upp á að skora mark
snemma í leiknum og reyna að brjóla þá
niður. Þeir byggja ákaflega mikið á mjóg
beitlum skyndisóknum — láta andstæðing-
inn um að sækja en freista þess svo að ná
knettinum og byggja upp gagnsóknir.
Hvidovre-liðið er greinilega þaulvant slík-
um leik og þar sem við neyðumst lil að
sækja gegn þeim er viðbúið að það komi
þeim til góða. Við höfum hins vegar ekki
neinu að lapa og verðum því að leggja allt í
sölurnar. Vissulega er skarð fyrir skildi hjá
okkur að gela ekki teflt okkar skæðasta
sóknarmanni, Pétri Ormslev, fram en ég er
engu að síður hóflega bjarlsýnn," sagði
Hólmbert.
Þeir leikmanna Fram sem á fimdinum
voru, voru hins vegar bjartsýnni og töldu
HVAÐ ER HVIDOVRE?
Hvidovre ldræls Forening, eða HIFeins'
og liðið er jafnan kallað af stuðningsmönn-
um þess, var stofnað 15. október 1925. Það
var samt ekki fyrr en árið 1934 að liðið tók
fyrst þátt í Danmerkurkeppni í knatt-
spyrnu. 1949 tókst því fyrst að komast upp
í 3. deild, en féll aftur niður 1953. Árið
1960 komsl Hvidovre svo aftur upp í 3.
deild og hefur verið með í deildakeppninni
síðun. Það var svo árið 1966 sem liðið varð
Danmerkurmeistari og aftur árið 1973. Þá
var markhæsti maður liðsins Hans Aabech
með 28 mörk. Hann var síðan seldur til
Hollands í atvinnumennsku og við það
komst los á lið Hvidovre og féll það í 2.
deild 1974 eða strax árið eftir að liðið varð
Danmerkurmeistari. 1978 vann Hvidovre
svo 2. deildina og varð danskur bikarmeist-
ari í fyrsta skipti sl. vor.
Þetta er í 4. skipti sem Hvidovre tekur
þátt í Evrópukeppni í knattspyrnu. Þeir
hafa m.a. keppt á móti sömu liðum og
FRAM hefur leikið á móti, Reai Madrid og
Basel frá Sviss. Á leikinn á móti Real
Madrid á Idrætsparken í Kaupmannahöfn
komu 42.000 áhorfendur.
Allir leikmenn Hvidovre liðsinseru hálf-
atvinnumenn, nema svertinginn Leroy
Ambrose, sem er í láni frá enska atvinnu-
mannaliðinu Charlton. Hann hefur knatt-
spyrnu alveg sem atvinnu.
Hjá Hvidovre eru 9 lið eldri leikmanna
(senior hold) og 34 unglingalið. Hvidovre
hefur nú á síðustu árum getið sér mjög gott
orð fyrir unglingastarf og eru mörg
unglingalið þeirra Danmerkurmeistarar.
Þetta sést bezt á því liði sem spilar á móti
FRAM á sunnudaginn, þar sem flestir leik-
menn eru á milli 19—22 ára og eru þeir all-
flestir komnir upp úr unglingaliðum Hvid-
ovre.
Hvidovre er nú aðeins þremur stigum á
eftir efsta liðinu í dönsku 1. deildinni þegar
7 umferðir eru eftir.
allar líkur á að þeir gætu unnið Danina 2—
0, en þess má geta að danskt félagslið hefur
ekki áður komið hingað til þátttöku í
Evrópukeppni. Aðspurðir um leik liðanna
úti voru svör leikmannanna mjög á sama
veg. „Þeir voru heldur sterkari en við
áttum að geta hangiðá jafntefli.”
Hvidovre er eitt af sterkari liðum Dana i
dag og forráðamenn þess eru ákaflega
melnaðargjarnir. Leikmenn liðsins eru
flestir ungir að árum og eiga því framtíðina
fyrir sér. Það mun vera stefna forráða-
manna félagsins að gera Hvidovre að stór-
veldi á næstu 2—3 árum og til þess að svo
megi verða ætla þeir að leggja allt í söl-
urnar. Nú hafa þeir hjá sér svertingjann
Leroy Ambrose, l'rá 3. deildarliðinu
Charlton Athletic í Englandi, og er hann
skæðasti sóknarmaður liðsins og sá eini
þeirra er hefur knattspyrnuna að fullu að
atvinnu.
Leikur F'ram og Hvidovre fer fram á
sunnudag kl. 14 á Laugardalsvellinum en
frá kl. 13, mun söngdúettinn Þú og ég
skemmta gestum með söng og lónlistin
verður í höndum Þorgeirs Ástvaldssonar,
alræmds Framara.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf og
kostar kr. 5.000 í stúku, kr. 4.000 í stæði
og 1.000 fyrir börn. Það má búast við því
að áhorfendur fjölmenni í Laugardalinn á
þennan síðasta stórleik ársins hérlendis ef
að likum lætur. Þó er ekki loku fyrir það
skotið að Melavöllurinn verði enn einu
sinni vettvangur Evrópuleiks ef Framarar
ná að komast áfram. Forráðamenn Fram
lelja sig þurfa um 3000 manns á völlinn til
að borga ferðalagið til Danmerkur, auglýs-
ingar og kostnað við dómara að fullu og
’ ætti þeim varla að verða skotaskuld úr því
að krækja í þann fjölda.
-SSv.
Leroy Ainbrose, þeldökkur Englendingur í húð og hár, er skæðasti sóknarmaður Hvidovre. Hann er hér i baráttu við bakvörð Liverpool.j
Avi Cohen, er liðin mættust í vináttuleik í ágúst. Liverpool sigraði 3-1.
Aðeins einn nýliði en engu
að síður mikil uppstokkun
— Gunnar Lúðvíksson í fyrsta sinn í landsliðshóp í handknattleik, en 7 nýir leikmenn frá Baltic
Cup-keppninni í janúar
Gunnar Lúðvíksson, hinn sivaxandi
hornamaður þeirra Valsmanna, er eini
nýliðinn í landsliðinu i handknattleik er
mætir Norðmönnum um næstu helgi.
Val liðsins var tilkynnt á fundi í'gærdag
og er í raun fátt sem kemur á óvart
varðandi það. Flestir gömlu jaxlanna
eru komnir inn aftur þó vissulega séu
nokkrir sem einhverjir efalaust sakna.
Má þar nefna Axel Axelsson og Björg-
vin Björgvinsson svo og Þorbjörn Jens-
son. Björgvin er nýkominn úr gifsi
vegna handarbrots og Þorbjörn broln-
aði fyrir skömmu. Axel taldi sér varla
fært að æfa með landsliðinu samhliða
þjálfun Framiiðsins. Þá eru þeir Viggó
Sigurðsson og Sigurður Gunnarsson,
sem báðir leika í Þýzkalandi, inni í
myndinni að sögn Hilmars Björnssonar
landsliðsþjálfara. Landsliðið er annars
skipað eftirtöldum:
Ólafur Benediktsson, Val
Kristján Sigmundsson, Vikingi
Steindór Gunnarsson, Val
Ólafur H. Jónsson, Þrótti
Bjarni Guðmundsson, Val
Ólafur Jónsson, Vikingi
iGunnar Lúðvíksson, Val
Þorbjörn Guðmundsson, Val
Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi
Sigurður Sveinsson, Þrótti
Alfreð Gislason, KR
Atli Hilmarsson, Fram
VIKINGUR KAFSIGLDI
KR í SEINNIHÁLFLEIK
— sigraði 23-18 eftir jafnræði í fyrri hálfleiknum
Stórgóður 12 mínútna sprettur Vík-
inga gegn KR færði þeim öruggan og
um leið sanngjarnan sigur gegn KR-
ingum í Reykjavíkurmótinu i hand
knattleik í gærkvöld. Á þessum 12
minútum breyttu Vikingar stöðunni úr
12—10 í 18-11 og hreinlega skildu KR-
ingana eftir. mestur varð munurinn 8
mörk, 23-15, en KR-ingar náðu aðeins
að laga stöðuna fyrir leikslok og loka-
tölur urðu 23-18 eftir að staðan hafði
verið 7-6 Víkingi i vil í hálfleik.
Það var hinn eitilharði 7-manna
kjarni Vikings sem lék inn á nær allan
timann og það var aðeins um tíma í
siðari hálfleiknum að Gunnar Gunn-
arsson skipti við Árna Indriðason i
sókninni. Þess á milli og fram að þeim
tíma var Víkingsliðið skipað sömu
mönnunum. Ef komið hefði til sæmileg
markvarzla hefði aldrei þurft að efast
um hvorum megin sigurinn lenti. Hins
vegar varði Kristián Sigmundsson,
annar landsliðsmarkvarðanna, varla
skot i leiknum og reyndar voru kollegar
hans i KR-markinu litið betri.
Það var gifurlega sterkur varnar-
leikur Vikinganna sem færði þeim for-
ystuna framan af. Þeir komust í 5-2
þrátt fyrir að Kristján verði lítið sem
ekkert en síðan tókst KR að jafna6-6er
Vikingarnir fóru einn af öðrum út af
fyrir óþörf og á stundum klaufaleg
brot.
KR-ingar hófu síðari hálfleikinn
manni færri og þá náði Víkingur að
skora tvívegis og komast i 9-6. KR
minnkaði muninn i 10-12 en síðan ekki
söguna meir. Er staðan var 10-15
brugðu þeir á það ráð að taka Þorberg
og Pál úr umferð en höfðu síður en svo
erindi sem erfiði þvi hinir Víkingarnir
voru í 90% tilvika sterkari í „maður
gegn manni” stöðum. Mörkunum
rigndi því inn og um leið fór að gæta
kæruleysis. „Búið” hrópaði
Kowalczyk þjálfari Víkings er 8 mín.
voru eftir og staðan var orðin 20-14.
KR-ingunum gekk illa að ráða við
Víkingana lengst af, sem léku oftast 4-2
vörn. Hafi einhver hallazt að þvi að
Hæðargarðsliðið væri að gefa eftir er
réttara að endurskoða þá afstöðu.
Liðið hefur að.vísu lítinn leikmanna
hóp og það gæti komið því í koll gegn
þrautseigari andstæðingum en vestur-
bæjarliðinu. Það var aðeins i smátíma í
fyrir hálfleik að KR náði að ráða við
Víkingana og þá var knötturinn lika
látinn ganga hratt og vel. Um leið og
ESSO-bikar-
inn í kvöld
FH og Haukar leika i kvöld sinn
árlega leik í ESSO-bikarnum, eða
Tobbasjoppubikarnum eins og gárung-
arnir hafa kallað hann. Hefst leikur-
inn kl. 20 og verður í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði.
Undanfarin ár hafa Hafnarfjarðar-
liðin unnið ESSO-bikarinn á víxl, en í
fyrra unnu Haukar stórabróður og eiga
FH-ingar þvi harma að hefna i kvöld.
menn fóru að stinga niður var dauða-
dómurinn kveðinn upp.
Mörk Víkings: Þorbergur Aðal-
steinsson 7/1, Páll Björgvinsson 6,
Ólafur Jónsson 5, Árni Indriðason 4/3,
Steinar Birgisson 1. Mörk KR: Alfreð
Gíslason 6/1, Björn Pétursson 3/2,
Þorvarður Guðmundsson 3, Ragnar
Hermannsson 2, Ólafur Lárusson 2,
Konráð Jónsson og Jóhannes Stefáns-
son I mar.k hvor.
- SSv.
Kristján Arason, FH
Árni Indriðason, Vikingi
Þá hefur Hilmar ákveðið að bæta
I—2 markvörðum i hópinn og munu
þeir koma úr FH og Haukum eftir leik
liðanna i Essó-bikarnum í kvöld. Þá er
rétt að geta þess að FH-ingurinn
Gunnar Einarsson telur sér ekki fært
að æfa og leika með landsliðinu eins og
ástendur vegnaanna við þjálfun.
„Það er mín stefna að a.m.k. tveir
leikmenn berjist um hverja stöðu i lið-
inu,” sagði Hilmar við blaðamenn i
gær. „Gunnar Lúðvíksson hefur ekki
áður verið valinn í landsliðið en ég hff
góða reynslu af honum hjá Val. Hann
er sterkur varnarmaður og geysilega
fljótur og við þurfum slika ntenn i
hraðaupphlaup. Þá er hann orðinn
„agressívari” en hann var þapnig að ég
tel hann geta staðið sig með landslið
inu. Eg hef valið smáan hóp leikmanna
og tel það eðlilegra heldur en að velja
stóran hóp og þurfa síðan að skera
verulega niður af honum. Það má alltaf
bæta mönnurn í hópinn ef ástæða er
til,” sagði Hílmar.
Landsleikirnir við Norðmenn verða á
laugardag og sunnudag og báðir i
Laugardalshöllinni. Sá fyrri hefst kl. 15
á laugardag en hinn er kl. 20 á sunnu-
dagskvöld. Norðmenn eru nýbyrjaðir
sina deildakeppni og því er lið þeirra
varla komið í mikla samæfingu frekar
en íslenzka liðið. Það má því búast við
að nokkur haustbragur verði á þessum
leikjum en að sögn Hilmars hefur hann
einna mestar áhyggjur af markvörzl-
unni. „Ég er ekki ánægður með þá
markvörzlu sem ég hef séð í haust.
Okkur vantar markverði tilfinnan-
lega,” sagði hann. Jens Einarsson, sem
var I. markvörður landsliðsins í fyrra-
vetur, hefur tekið að sér þjálfun úti í
Vestmannaeyjum og þar af leiðandi
hugsanlega fórnað sæti sinu í landslið-
inu. „Vissulega hefur Jens veikt stöðu
sína með að lara út í Eyjar því þar á ég
varla tök á að fylgjast með leik hans,”
sagði Hilmar ennfremur.
Sjö leikmenn eru nú í landsliðs-
hópnum sem voru ekki í honum á
Baltic Cup i janúar sl. Markverðirnir
sem við bætast voru hvorugur með þar.
Ólafur Benediktsson, Árni Indriðason,
Ólafur H. Jónsson, Gunnar Lúðviks-
son, Þorbjörn Guðmundsson, Alfreð
Ciislason og Kristján Arason léku
ekki þar, þannig að ljóst er að um tals-
verða uppstokkun er að ræða i liðinu.
-SSv.
Hornamaðiirinu (öinnar l.úðviksson
úr Val er eini nýliðh n i iandsliðshópn-
* ... 'y . yh ;
Páll Björgvinsson skorar hér eitt sex marka sinna í leiknum í gærkvöld.
'
' ' v V
DB-mynd Einar Olason
Cambridge hélt enn
uppteknum hætti í gær
— sló Aston Villa út úr deildabikamum.
Stórsigrar Liverpool og Forest en Ipswich-vélin hikstaði
Óvæntustu úrslitin í enska deilda-
bikarnum i gærkvöld urðu tvímæla-
laust á Abbey Road í Cambridge.
Heimaliðið lagði 1. deildarlið Aston
Villa að velli í fjörugum leik þar sem öll
þrjú mörkin í 2—1 sigri Cambridge
voru skoruð á fyrstu 18 mínútunum.
Tony Morley kom Villa yfir með marki
strax á 6. mínútu en tveimur mín. siðar
jafnaði Tom Finney. Steve Spriggs
færði Cambridge síðan sigurmarkið á
18. mínútu og þar með hefur smáliðið
slegið út tvö 1. deildarlið i röð. Fyrst
Úlfana, nú Villa. Úrslit i 3. umferð
keppninnar í gær urðu þessi:
Barnsley—Cardiff 3—2
Birmingham—Blackburn I—0
Brighton—Coventry 1—2
Bristol R—Portsmouth 0—0
Bury—Nottingham Forest 0—7
Cambridge—Aston Villa 2—1
Charlton—West Ham 1—2
Ipswich—Norwich 1 — 1
Liverpool—Swindon 5—0
Luton—Manchester City 1—2
NottsCounty—QPR 4—1
Preston—Oxford I—0
Sheffield Wed.—Watford 1—2
Evrópumeistarar Forest voru ekki í
vandræðum rneð að afgreiða 4.
deildarlið Bury þó á útivelli væri.
Raimondo Ponteskoraði þrennu, Gary
Birtles 2 og þeir Gary Mills og Viv
Anderson sitt hvor. Aðeins 16.566
áhorfendur — minnsti fjöldi í tæp 20 ár
— sá leik Liverpool á Anfield. Meistar-
arnir höfðu tögl og hagldir og sigruðu
5—0. Sammy Lee skoraði tvö mark-
anna, Dalglish og Fairclough eitt hvor
ogeitt var sjálfsmark.
Tommy Hutchison skoraði sigur-
mark Coventry gegn Brighton á 88.
mínútu. Áður hafði Tom English
jafnað eftir að Gerry Ryan hafði lært
Brighton forystuna. Russell Osman
skoraði fyrir Ipswich á 14. mínúlu en 6
mín. fyrir leikslok jafnaði Justin
Fashanou. Þeim Don Masson og Andy
King, sem lék sinn annan leik fyrir
QPR, var báðum vikið af leikvelli.
O’Brien, Christie, Kelly og Hooks
skoruðu mörk County.
í kvöld leika Everton — WBA,
Stockport —Arsenal og Tottenham og
Crystal Palace.
-SSv.
Framsigur í
köflóttum leik
Fram sigraði Þrólt 27-21 i Reykja-
vikurmólinu í hándbolla í einhverjum
kaflaskiplasla leik seinni líma. Fram
komsl i 6-2 eftir 10 minúlur, en næslu
sjö mörk skoruðu Þrótlarar. Þá var
aflur komið að Frömurum sem náðu
að komasl yfir og leiða í hálfleik 13-11.
I síðari hálfleik var sigur Fram aldrei i
hællu, og er upp var slaðið munaði sex
mörkum, 27-21.
Þróttarar skoruðu fyrsta mark leiks-
ins, er Páll Ólafsson sendi boltann í
netið, en Dagur Jónasson jafnaði metin
fyrir Fram. Lárus Lárusson náði aftur
forystunni fyrir Þrótt með marki úr
horninu en Lárus átti afbragðs leik og
skoraði fimm mörk i leiknum. En þá
sögðu Framarar hingað og ekki lengra,
og næstu fimm mörk voru þeirra. Á 11.
minútu bætti Lárus við öðru marki
fyrir Þrótt og þá höfðu Þróttarar ekki
skorað i átta minútur. Á eftir fylgdu
önnur sex mörk frá Þrótti, og það er
ekki fyrr en á 22. mínútu, sem Framar-
ar bæta við sínu sjöunda marki. Jón
Árni Rúnarsson gerði það.
Nú skiptu Framarar um markvörð,
Sigmar Þröstur kom inn á fyrir Sigurð
Þórarinsson, sem hafði lítið varið, og
lið Fram tók heldur betur stakka-
skiptum á næstu mínútum. Sigmar
varði af l'ítonskrafti og Fram saxaði á
forskot Þróttar og undir lok hálfleiks-
ins komst liðið yfir 11-10, er Atli
Hilmarsson skoraði úr víti. Staðan i
hálfleik var síðan 13-11, Fram í vil.
Þróttarar náðu að hanga í Fram
fyrstu mínútur síðari hálfleiks, og tölur
eins og 14-13 sáust á markatöflunni. En
þá fóru Þróttarar illa með tvö góð
tækifæri, og það var eins og við mann-
inn mælt, ,'Framarar gerðu fjögur
mörk í röð án svars og breyttu stöðunni
í 18-13. Ólafur H. Jónsson og Páll
Ólafsson minnkuðu muninn í 18-15,
en Fram skoraði næstu þrjú mörk og
sigur liðsins var í höfn.
Birgir Jóhannesson átti góðan leik
fyrir Fram og sömuleiðis Atli Hilmars-
son, þótt hann væri lengi að komast í
gang. Sigmar Þröstur Óskarsson varði
vel í síðari hálfleik, en dapraðist
nokkuð í síðari hálfleik, enda var
honum þáskipt út af.
Hjá Þrótti var Lárus Lárusson
beztur, einkanlega framan af leiknum.
Sigurður Sveinsson var tekinn úr um-
ferð og skoraði aðeins úr aukaköstum,
en mesta furða var hve Sigurður var
rólegur, þótt hann væri bundinn á bás
allan Ieikinn. En við það að niissa
Sigurð hvarf allur broddur úr sókn
Þróttar og spil liðsins varð á köflum
ákatlega ráðleysislegt.
Dómarar voru oft of fljótir að gripa
til flautunnar og höfðu tvö mörk af
Þrótti á þann hátt. Mættu dómarar
temja sér að dæma þannig að brotlegi
aðilinn hagnist ekki á brotinu.
Mörk Fram: Alli Hilmarsson sjö (tvö
víli), Hannes fimm, Jón Árni Rúnars-
son fjögur, Birgir .lóhannesson,
Erlendur Davíðsson og Björn Eiríksson
þrjú hver, og Sigurbergur Sigsteinsson
og Dagur Jónasson eitt hvor.
Mörk Þróttar: Lárus l.árusson
fimm, Ólafur H. Jónsson og Sigurður
Sveinsson fjögur hvor, Páll Ólafsson
þrjú (eitt víti), Magnús Margeirsson
tvö, Sveinlaugur Kristjánsson, Ciisli
Óskarsson og Jón Viðar Jónsson eitt
hver.
- SA
Lágt skor
í körfunni
Valur og KR unnu bæði sína leiki á
Reykjavikurmólinu í körfuknaltleik
sem fram var haldið í gærkvöldi. KR
vann Ármann 67-51 (24-18) I fyrri
leiknum og Valur vann Fram 72-66 (34-
37) þar á eftir. Mótinu verður fram
haldið klukkan 20 annað kvöld en þá
leika Ármann og Fram og ÍR og ÍS.
Island á góða
möguleika
Nú hefur endanlega verið dregið í
riðla í B-keppninni í handknattleik,
sem fram fer i Frakklandi í febrúar á
næsta ári. íslendingar lentu þar í riðli
með Pólverjum, Svíum, Frökkum,
Hollendingum og Austurríkismönnmn.
Aítti landsliðið að eiga ágæta mögu-
leika á einu af þremur efstu sætunum í
keppninni. í hinum riðlinum leika
Tékkar, Danir, Svisslendingar, Búlgar-
ir, Norðmenn og ísraelsbúar.