Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.09.1980, Qupperneq 27

Dagblaðið - 24.09.1980, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1980. 27 Utvarp Sjónvarp 9 MILLI HIMINS 0G IARDAR — útvarp í kvöld kl. 22,35: Starfsemi á- hugamanna um stjömuskoðun Sjötti þáttur Ara Trausta Guð- mundssonar uni stjörnufræði er á dagskrá útvarpsins í kvöld. í þættin- uni i kvöld verður fjallað um nám í stjörnufræði, starfsemi áhugamanna og stjörnuskoðun. Í fyrri þáttum sinum hefur Ari Trausti fjallað um sögu stjörnufræðinnar, uppbvggingu álheimsins, sólina, sólkeilið og sér- staklega reikistjörnuna Mars. pá var einnig fjallað um aðrar sólir og vetrarbrautinni lýst og loks var l'arið út fyrir hana. Einnig var fjallað um spurninguna um lif á öðrum Imött- um. Upphaflega var gert ráð fyrir að þættirnir yrðu sex talsins og þáttur- 'inn í kvöld hefði þá átt að verða siðasti þátturinn. Hins vegar hefur hlustendum verið gefinn kostur á að senda þættinunt bréf og fyrirspurnir og ef nægilega ntargar fyrirspurnir berast verður sjöundi þátturinn tekinn undir það að svara þeim. -GAJ „Þegar maður hefur einu sinni fengið kórbakteriuna,” segir Þorgerður Ingólfsdóttir. STEMMUR - útvarp í kvöld kl. 21,30: „Krakkamir em alveg yndislegir” — segir Þorgeröur Ingólfsdóttir, stjórnandi Hamrahlíðarkórsins DB-mynd Hörður. „Þegar maður hefur einu sinni fengið kórbakteriuna losnar maður aldrei við hana aftur.” Þannig meðal annars' komst Þorgerður Ingólfs- dóttir að orði i viðtali er blaðamaður DB átti við hana er hún fékk menn- ingarverðlaun DB fyrir tónlist á síðastliðnu ári. í útvarpinu i kvöld fá hlustendur enn einu sinni tækifæri til að hlýða á Hamrahlíðarkórinn sem Þorgerður stjórnar. Hamrahlíðarkórinn er þekktur fyrir annað en að loka sig inni í skólanum. Stundum fer hann syngjandi um göturnar í höfuðborg- inni. Oft — og þá einkum fyrir jólin — syngja krakkarnir á Hrafnistu, Kleppi, Vifilsstöðum og öðrum liknarstofnunum i nágrenninu. Og út á land hafa þau farið margar ferðir. ,,Þá syngjum við í frystihúsum, sláturhúsum, kirkjum og félagsheim- ilum,” segir stjórnandinn. „Við förum ekki af neinum stað fyrr en allir hafa heyrt i okkur. Við skulurn vona að þeir hafi eins gaman af því og við,” segir Þorgerður. „Það er ólýsanleg tilfinning sem fylgir þvi að syngja mörg saman — eins og allir renni saman i eina sál og krakkarnir eru alveg yndislegir, en auðvitað er þetta feikileg vinna sem leggst ofan á kennslu mína við Tón- listarskólann. Það má segja að ég sé gift kórnum. Ef ég ætti mann sem biði heima eftir inniskóm og kjötsúpu þá gæti ég þetta aldrei ” sagði Þorgerður Ingólfsdóttir. I kvöld flytur Hamrahliðarkórinn Stemmur eftir Jón Ásgeirsson. -í:aj HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? - útvarp í kvöld kl. 20,00: íslenzka mannrétt- indahreyfingin kynnt i útvarpsþættinum Hvað er að frétta? i kvöld verður kvnnt nýstofnuð hreyfing ungra manna úr Alþýðu- flokki, Framsóknarflokki og Sjálf- stæðisflokki. Hreyfing þessi nefnist íslenzka mannréttindahreyfingin. í þættinum verður rætt við formann hreyfingarinnar, Anders Hansen blaða- mann á Morgunblaðinu. „Okkur farinst vel við hæfi að kynna þær hugmyndir sem hreyfingin mun starfa eftir,” sagði Ólafur Jóhannsson, annar umsjónarmaður þáttarins. Rætt verður um samtökin vitt og breitt og að sjálfsögðu mun umræðan snúast um mannréttindamál bæði hér á landi og erlendis. Umræðan ntun einkum miðast við Vesturlönd. Þannig verður íslenzka mannréttindahreyfingin var stofnuð 6. september síðastliðinn. Auk Anders eru i stjórn hreyfingarinnar Jónas Guðmundsson, Árni Sigfússon og Sveinn Guðjónsson. • GAJ I þætti Ara Trausta i kvöld verður meðal annars fjallað um stjörnuskoðun. BÖRNIN, BYGGÐIN 0G SNJÓRINN - sjónvarp í kvöld kl. 20,35: Vetrarstemmning til dæmis rætt um minnihlutahópa eins og indíána í Bandaríkjunum og sigauna. Atriði úr Helförinni. Fangar i Sobibor fangelsinu gera upprcisn. I útvarpinu i kvöld vcrður islenzka mannréttindahreyfingin kynnt og verður þar fjallað um mannréttinda- brot viða i hciminum. Þó veðrið undanfarna daga á Suð- vesturlandi hafi ekki gefið til kynna að veturinn sé á næsta leiti þá eru skólarnir byrjaðir og snjóað hefur I fjöll fyrir norðan. Veturinn er á næsta leiti og hvenær sent er má búast við að fari að snjóa á Suður- landi. Það er þvi ekki úr vegi að búa sig undir velrarkomuna með að Itorfa á tólf ára gantla ntynd af börnunt og dýrunt að leik i snjónunt í Reykjavik. Mynd þessi var áður sýnd í sjónvarp- inu árið 1968. Umsjónarmaður með myndinni er Hinrik Bjarnason. - CíAJ Myndin í kvöld sýnir reykvísk börn að leik I snjó fyrir tólf árum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.