Dagblaðið - 20.10.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980.
3
Hlutlaust fréttamat?
— Ríkisfjölmiðlamir gerólíkir því sem þeir voru áður
Hringið ísín’a
20
Reykvíkingur skrifar:
Ég hef horft á þróunina núna síð-
ustu árin með sívaxandi furðu. Það
getur verið að ég sé hætt að fylgjast
með en það er víst að ríkisfjölmiðl-
arnir eru gerólíkir þvi sem þeir voru
áður. Ég hef grun um að þeir séu að
þróazt í átt til Skandinavíufjölmiðl-
unarinnar, þ.e. verða róttækari.
Þetta leitaði á hugann þegar ég var að
horfa á sjónvarpið laugardaginn 11.
október. Þá var sýnt frá því þegar
menn úr Vináttufélagi Eistlands og
Íslands gróðursettu tré í Heiðmörk
undir stjórn Sigurðar Blöndals og
síðan var sýnt frá ráðstefnu Lífs og
lands um hungrið í heiminum. Þá
duttu mé í hug þrjár spurningar sem
ég bið auðmjúklega starfsmenn sjón-
varpsins, sem hlut eiga að máli, að
svara því að þeir eru starfsmenn
fólksins í Iandinu og hljóta að telja
það skyldu sina að gera því grein fyrir
máli sínu.
1. Skipti það engu máÚ að Eistland
er nú undir járnhæl sovézkra
kommúnista sem hafa að sögn
reynt að má öll þjóðleg einkenni
af eistlenzkri menningu og að eist-
lenzka menningarvináttufélagið
er félag einlægra sovétsinna? Er
ekkert ósmekklegt við að sýna
þetta? Megum við með sama
hætti eiga von á að gróður-
setningarferðir pólitískra félaga
verði kvikmyndaðar og sýndar i
sjónvarpi þeim til vegsauka? Ég
var fyrir mörgum árum í Heim-
dalli og þá fórum við í gróður-
r———i
setningarferðir í Heiðmörk. Ekki
datt okkur í hug að við yrðum
kvikmynduð við það, allra sízt við
að syngja einhverja baráttu-
sóngva, en sýnt var þegar kór frá
Sovétríkjunum söng við gróður-
setningarstaðinn.
2. Er ekki umfjöllun fjölmiðla um
hungurvandamálið í heiminum
alltof yfirborðsleg? Það er ákaf-
lega auðvelt að sýna í sjónvarpi
myndir af hungruðu fólki í þriðja
heiminum og siðan feitt fólk að
háma í sig mat í okkar ríka heims-
hluta. En er ekki sú þróunarað-
stoð hæpin sem felst i því að
senda hinni nýríku og gerspilltu
valdastétt þessara ríkja þriðja
heimsins peningagjafir sem eru
aðeins notaðar til að treysta þessa
valdastétt í sessi? Er ekki miklu
skynsamlegra að búa í haginn
fyrir iðnað í þessum löndum og
landbúnað í þeim með því að leyfa
þeim að framleiða fyrir markað í
vestrænum ríkjum, en hlaða ekki
tollmúra? En samt krefjast sumir,
einkum í róttækari horni stjórn-
málanna, þess að sett séu á inn-
flutningshöft. Slik innflutnings-
höft myndu hafa í för með sér að
fólk í vanþróuðu ríkjunum gæti
ekki bætt kjör sín með því að
framleiða ódýrar vörur á okkar
markað, en það hefur til dæmis
gerzt i Suður-Kóreu, Japan og
Hong Kong. Þar hefurtekizt að
sigrast á verstu eymdinni með því
að auka framleiðsluna á grund-
velli kapítalismans. Á sama
tíma sitja sumar aðrar þjóðir í
hungurgildrunni því að valdastétt-
in í löndunum, studd af vestrænu
hjálparfé, heftir alla þróun með
ríkisafskiptum og höftum. Og
meðal annarra orða: Sjónvarpið
sýnir frá sumum ráðstefnum, t.d.
alltaf mjög vel frá ráðstefnum
Lífs og lands, en ekki frá öðrum.
Hvaða reglur gilda um slíkt?
3. Fyrir skömmu reis mikil mót-
mælaalda vegna máls fransks
manns sem vildi ekki gegna her-
þjónustu i landi sínu. Stuðnings-
menn hans á íslandi efndu til
blaðamannafundar. Sjónvarpið
sýndi frá þessum blaðamanna-
fundi. Hvaða reglur gilda um það
hvenær sjónvarpið fer á blaða-
mannafundi og sýnir frá og
hvenærekki?
Ég tek það fram að ég er ekki að
andmæla gróðursetningu, þróunar-
aðstoð eða hjálp við umkomuleys-
ingja, heldur að spyrja hvaða reglur
gildi um sjónvarpið í því efni.
Hvað
líður
bóta-
kröfum
Boga?
„Forvitinn” hringdi og spurði
hvort nokkur vissi hvað liði máli því
og fjárkröfum sem Bogi Hallgríms-
son frá Stóra-Grindli í Fljótum hóf
gegn Ragnari Arnalds fjármálaráð-
herra. Bogi, sem er fyrrverandi
handavinnukennari Grindvíkinga,
hefur að undanförnu vakið á sér
athygli sem sjálfskipaður fulltrúi
ríkissaksóknara í fjölmiðlum.
Hvernig væri að hann upplýsti nú
sjálfur almenning um bótakröfur
sínar á hendur ráðherra?
RAUNl
ÞURRU
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA
Verð 91.100
Spurning
dagsins
Fylgist þú með umræð-
um um fjárlagafrum-
varpið?
Guðmundur Ingvarsson sjómaður:
Nei, þetta er allt sama vitleysan.
Jón Jóelsson kennarí: Maður kemst
ekki hjá því að fylgjast með
umræðunni. Ríkið er örugglega verst
rekna fyrirtækið i veröldinni.
Guðrún Sigurðardóttir, vinnur við
uppvask: Nei, nei, ég hef ekkert fylgzt
með þeim. En ég hef áhuga á málinu.
Gunniaugur Guðmundsson matsveinn:
Nei, ég hef ekki tíma til að fylgjast
mikið með fjárlagaumræðunni.
Flosi Ólafsson leikari: Voða lítið, ég
bara nenni þvi ekki.
Heiða Jensdóttir búðardama: Nei, ég
fylgist ekkert með þeim.