Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 4

Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 4
DAGBLAOIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. Gigaröðin um miðjan dag i gær. Hraunið rcnnur sfðan fram nær á myndinni. Snjór er að mestu bráðnaður i grenndinni eins og sést i forgrunni myndarinnar. Þriðja eldgosið í Mývatnssveit á þessu ári: Hraunflákinn nálgað- ist mannvirkin — enfljótlega dróúrgosinu ogþaðvirtist minna en f yrri gos „Þetta gos hagar sér á mjög svipaðan hátt og gosið í júli. Það byrjaði með miklum látum í nokkrar klukkustundir og var mjög kraftmikið fyrstu klukkustundirnar en fljótlega eftir miðnætti fór að draga úr því,” sagði Páll Einarsson jarðfræðingur er blaðamaður DB ræddi við hann á skjálftavaktinni í Mývatnssveit í gær. Þriðja eldgosið í Mývatnssveit á þessu ári hófst kl. 22.04 á laugardags- kvöld og er eldgosið mjög keimlíkt fyrri gosunum en virðist þó heldur minna. í byrjun gaus á 7 kílómetra langri sprungu frá Leirhnjúk og norður fyrir Sandmúla. í fyrstu rann hraunið í allar áttir. Syðsti endi sprungunnar var orðinn nokkuð nálægt Kröflu og um tíma rann hraunfláki, sem virtist nálgast mann- virkin. Það stóð hins vegar mjög stutt og í gær gaus aðallega í norðurenda sprungunnar og hraunrennsli er allt til norðurs. Gosið núna er nokkru minna en áður og telja jarðfræðingar að það gæti leitt til þess að búast megi við enn einu gosi fljótlega, jafnvel á þessu ári. „Þetta er lítil umbrotahrina og lítil kvika á hreyf- ingu. Landsigið við Leirhnjúk er lítið. Ef það hættir núna þá líður stuttur tími þar til búast má við nýrri umbrota- hrinu,” sagði Páll Einarsson. Þetta gos kemur jarðfræðingum ekki á óvart. „Það var löngu Ijóst að umbrotahrina yrði um þetta leyti,” sagði Páll Einarsson. Skömmu fyrir kl. 9 á laugardagskvöld var einsýnt að gos væri á næsta leiti. Þá byrjaði mjög hratt landsig sem ágerðist og þennan klukkutíma leit út fyrir kvikuhlaup til suðurs og óttuðust menn um mannvirk- in í Kröflu en kvikan tók síðan aðra stefnu og varð þá Ijóst að mannvirkin væru ekki í hættu. -GAJ Séð yfir svæðið úr meiri hæð. Hraunið rennur fram i lænum frá gigaröðinni. Hraunáin rennur frá gigaröðinni. Hraunið var mjög þunnfljótandi og rann hratt. Litirnir voru ægifagrir, en njóta sin ekki sem skyldi á svart-hvítri mynd. DB-myndir Sig. Þorri Áhrifamikil sýn: Ægifögur hraun- elfurin rann með ógnarhraða Áhrifamikil sýn mætti DB-mönnum er þeir flugu yfir gosstöðvarnar í gær. Rauður gosstrókurinn stóð sem veggur upp af sléttunni og ægifögur hraunelf- urin rann með ógnarhraða frá kröft- ugri gígaröðinni. Þegar menn horfa sem dáleiddir á slíka sýn gleymast allar hugsanir um hinn mikla eyðileggingarmátt þessa fyrirbrigðis. En eftir á komast menn ekki hjá því að hugsa um þá staðreynd að ískyggilega nærri eldgosinu stendur tugmilljarða gufuaflsvirkjun. Ókleift reyndist að fljúga yfir Kröfluvirkjun þar sem hún var falin í gufubólstrum sem hitinn frá gosinu myndaði. Gosmökkinn lagði undan norðan andvara í suður, í átt að Kröfluvirkjun og Mývatni. Snjókoma sem varð við norðanvert Mývatn er talin eiga rætur að rekja til hitans frá gosinu. Gerði hún flug- mönnum erfitt fyrir en flugumferð við gosstöðvarnar var fremur lítil miðað við oft áður. Má ætla að einkaflug- menn hafi séð nægju sína af eldgosum í ár. - KMU

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.