Dagblaðið - 20.10.1980, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980.
Erlendar
fréttir
Ný ríkisst jórn
Ungverjaland:
Vilja fá meira frelsi
fyrfr verkamennina
Tóku lagið að
loknumdeilum
Allt var upp í loft á þingi Vcrka-
mannaflokksins brezka i Blackpool á
dögunum. Vinstrisinnaðir flokks-
menn báru formann flokksins James
Callaghan og stuðningsmenn hans
hvað eftir annað ofurliði I atkvæða-
greiðslum. Er jafnvel farið að tala
um að flokkurinn sé að klofna. Ekki
létu menn þetta þó aftra sér frá að
syngja einhvern baráttusönginn við
lok þingsins og á myndinni er ekki
annað að sjá en vel sé tekið undir.
Annar frá vinstri er Callaghan
flokksformaður.
—forseti hins opinbera verkalýðssambands segir
„pólsku” leiðina þó ekki hina réttu
Helzti forustumaður hins opin-
bera verkalýðssambands í Ungverja-
landi hefur krafizt þess að launþegar
t landinu fengju meira rít- og mál-
frelsi, auk þess sem málefnum verka-
manna væri meiri gaumur gefinn
opinberlega en gert er. Hann sagði
hins vegar að sú leið sem Pólverjar
heföu farið í að stofna frjáls verka-
lýðsfélög væri ekki rétta leiöin fyrir
Ungverja.
Sandor Gaspar, en svo heitir for-
seti hinna opinberu ungversku verka-
Iýðsfélaga, viðurkenndi að komið
hefði til nokkurra vinnustöðvana í
landinu upp á síðkastið. Ekki var
gefin nein nánari skýring á þeim mál-
um. Kom þetta fram i viðtali sem átt
var við Gaspar i blaði ungverska
kommúnistaflokksins, Nepszabad-
sag.
Sagði hann að skipulag verkalýðs-
samtakanna þyrfti að endurbyggjast,
heimila ætti verkamönnum í auknum
mæli að láta álit sitt í ljós á stjórn
fyrirtækjanna. Einnig ætti að skýra
almenningi meira frá samningaviö-
ræöum á milli verkalýðsfélaga og
ríkisstjórnarinnar.
Frjáls verkalýðsfélög væru aðeins
nauðsynleg i kapitaliskum þjóð-
félögum. i kommúnistarikjum værí
markmið verkalýðsfélaganna og
ríkisstjórnanna hið sama.
Forseti verkalýðssambandsins
sagði að atvinnuleysi yrði áfram
óþekkt í Ungverjalandi en verka-
menn gætu ekki lengur búizt við að
halda sama starfi alla ævi.
Ungverjaland er það ríki í Austur-
Evrópu sem hefur gengið lengst í að
dreifa ákvarðanatöku út til fyrir-
tækjanna og draga úr miðstýringu i
atvinnurekstri. Svo virðist sem einnig
hagvöxtur og framleiðsluaukning sé
þar meiri en í öðrum Austur-Evrópu-
rikjum.
Kadar leiðtoga I Ungverjalandi hefur tekizt betur upp við að bæta lifskjör-
in I landl sinu en öðrum kommúnista leiðtogum.
Við fluttum
um set, að Suðurlandsbraut 18
Samvinnubankinn
Suðurlandsbraut 18
á Ítalíu
Fertugasta ríkisstjórn italíu frá
lokum síðari heimsstyrjaldarinnar
tekur til starfa í dag. Forsætisráðherra
hennar er Forlanes en ráðherrar í
stjórninni eru úr fjórum flokkum.
Mun áætlun í efnahagsmálum verða
lögö fram í ítalska þinginu í dag. Þykir
víst að jafnhliða því verði ákveðnar
verulegar verðhækkanir á neyzluvörum
í landinu.
Ástralía:
Fraser
Ihaldsflokkur
sigraði óvænt
Íhaldsflokkurinn undir forustu
Frasers forsætisráðherra vann mikinn
sigur i þingkosningunum sem haldnar
voru i Ástralíu um helgina. Kom þetta
mjög á óvart því allar skoðanakannanir
og kosningaspár byggðar á þeim höfðu
gert ráð fyrir að Verkamannaflokkur-
inn mundi fá meirihluta á ástralska
þinginu undir forustu Hadens for-
manns flokksins.
Hlutabréf á mörkuðum í Ástraliu
hækkuðu mjög í verði við þessi tiðindi.
Íhaldsflokkurinn hefur verið í ríkis-
stjórn með Frjálslynda flokknum
síðasta kjörtímabil. Eru þeir flokkar
taldir hlynntari erlendri fjárfestingu í
landinu heldur en Verkamannaflokkur-
Til gamalla og nýrra viðskiptavina!
Vegna stóraukinna viðskipta, höfum við flutt í stærra
húsnæði. Við bjóðum ykkur velkomin og væntum þess að
geta boðið enn betri þjónustu.
Starfsfólk Samvinnubankans Suðurlandsbraut 18
Palmi
Gíslason
Guðrun Kristin Egilina
Jóhannsdóttir Káradóttir Guðgeirsdóttir
Katrín
Torfadóttir