Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 10

Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 10
10 Nú er rótti timinn til aö halda við brúna iitnum frá í sumar. • Dömuherra- og hjónatímar, • Sturtur • GROHE vatnsnudd. Setustofa • Kaffí. PANTIÐ TÍMAÍ SÍMA 10256 ATHl Belosol-só/bakkurinn er ekki sléttur, heldur U-laga, þar afleiðandi mjög þægilegur. Ath.: BEL-O-SOL bskkimir aru i 10256 Sútun Tek skinn til sútunar, mót-; taka skinna föstudaga frá kl. 4—8 e.h. að Ránargötu 11 Rvk. Uppl. í síma 66087 eftir kl. 8 á kvöldin. Geymið auglýsinguna - Vesturbær - sérhæð Vorum að fá í sölu 3 herb. íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi. íbúðin er 75 fermetrar. Sérhiti, sérinngangur, þvottaað- staða á baði. Rúmgott eldhús. Góð íbúð. íbúðin losnar eftir samkomulagi. Útb. 21 —22 millj. Uppl. á skrifstofunni, ekki í síma. Eignanaust Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Simi 29555. Til sölu er þessi gullfallegi Ford Bronco Sport árn. 1973, ekinn 21.000 á yél. Krómfeluur, útvarp o« settul- band, breið dekk, rauöur með pulum röndum. Ok hér er cinn svo til beint úr kassan- um: Ma/.da 626 2000 hardtopp, ekin 500 km, silfurgrár. Útvarp og segul- band. Vinsæll og kraftmikill bill. Og hérna kemur svo einn af þessum vinsælu Citroen GS Pallas árg. 1978. — nema hvað hann er hálfsjálfskiptur, engin kúpling, ekinn um 30.000. Gull- sanseraður. Toppútlit innan sem utan. Þetta er einn fallegasti og bezt með farni Rangc Roverinn sem við höfurn fengið i sölu. Hann er árg. 1976, ekinn aðeins 85.000 km, Ijósdrapplitaður. Klassabill. Sjón er sögu rikari: Mercury Marquis árg. 1979, Ijós og dökkgrár, ekinn 18.000 km. Sjálfsk., vökvastýri og vökvabremsur, 8 cyl., 351 cc. Þeir gerast ekki mikið betri, þeir amerísku. Mercedes Benz rúta — 26 manna árg. 1968, ekin 40.000 á vél. Útvarp og segulband. Bill I góðu ásigkomulagi. Þessi glæsilega bifreið, svarta torfærutröllið, er tii sölu. Jeppaunnendur. nú er tækifærið. Til svnis hjá okkur. 77/ synis hjá Bílasöiunni Skeifunni Skeifunni 11 — Símar 84848 og 35035 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBHR 1980. Indland: Fljótin forar- pollarmeð eitri og óþverra - f ólk gerir sér ekki grein fyrir mengunarhættunni f rá hinum heilögufljótum Fljót Indlands eru að breytast í forarpolla sem dreifa sýklum og sjúk- dómum. Áður fyrr voru þessi fljót lifæðar landsins og þær ffuttu lifræn efni með árstrauminum. Indira Gandi, forsætisráðherra Indlands, vakti nýlega sérstaka athygli á þessu í tilefni af því að Heilbrigöisstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að áratugurinn 1981 til 1990 skuli verða helgaður vatninu. Ljóst og sláandi dæmi um hve mengun vatnsins í fljótum lndlands er orðin mikil var nýlega birt af dr. Triapthi, sem er forseti umhverfis- verndarstofnunar Indlands. Hann skýrði frá þvi á ráðstefnu að um það bil eitt hundrað og fimmtíu tonn af hálfbrunnum leifum manns- líkama og dýrahræja bærust niður Gangesfljótið árlega til borgarinnar Varanasi, sem er heilög borg hindúa. Upplýstist þetta er fimmtíu um- hverfisverndarmenn sigldu niður Ganges og komust að raun um hve mengað hið frægasta oghelgastafljót Indlands er orðið. Ganges fljót á upptök sín í Hima- lajafjöllunum og þar rennur það kristalstært. Síðan rennur það um um það bil 2500 kílómetra leið til strandar og á þeirri leið mengast það. Leið þess liggur um hin ofsetnu iðnaðarsvæði Indlands, Uttar Pradesh, Bihar og Vestur-Bengal. Þar renna í það ótalin tonn af leifum frá iðnverum og mannabústöðum og nú er svo komið að eitrið frá iðnaðar- svæðunum drepur brátt allt lif þess. Samt sem áður er Ganges enn fljótið sem trúaðir hindúar kjósa að þvo af sér allar syndir í. Þeir drekka vatnið úr fljótinu og búa dána ætt- ingja sina undir næsta líf á bökkum þess. Mengunin er mest i Ganges af fljótum Indlands en hún er einnig að koma í Ijós annars staðar og í öðrum fljótum landsins. Vegna trúar al- mennings á heilagleika fljótanna virðist hann vera algjörlega blindur fyrir þeirri hættu sem er vegna auk- innar mengunar í þeim, sagði i ind- verska dagblaðinu Indian Express ný- lega. Milljónir Indverja, sérstaklega í sveitunum, treysta algjörlega á að fá vatn til böðunar, þvotta, neyzlu og til að brynna húsdýrum úr fljótunum, skurðum og uppistöðulónum. Þrátt fyrir aðvaranir heilbrigðisyfirvalda baðar mikill fjöldi fólks sig í Yamuna ánni, sem rennur í gegnum Delhi og sér borginni fyrir mestu af því neyzlu- vatni sem þangað berst. I opinberri skýrslu sem birt var fyrir einu ári var fullyrt að vatnið í Yamuna ánni væri svo mengað að það væri ekki einu sinni hæft til að vökva plöntur og garða. Fyrir tæpum aldarfjórðungi var mengunin í neyzluvatni Delhíborgar þeim ljós sem hana vildu sjá. Þá létust sjötíu manns og tuttugu þús- und veiktust af gulu sem stafaði frá vatni úr Yamuna ánni. Höfðuástæð- an fyrir þvi hve vatnið er mengað er sú að stór hluti af skolpinu frá borg- inni rennur einnig í ána og aðeins Iítill hluti þess er að einhverju leyti hreinsaður. Ástandið er litlu betra í Bombay, sem er helzta stórborgin í vesturhluta Indlands. Þar hefur úrgangur frá iðn- verum fengið að renna óhindrað og án eftirlits og skolpið frá borginni litt verið hreinsað. Er ástandið nú orðið þannig að heilbrigðisyfirvöld vilja banna fiskveiðar vegna eitrunar- hættu rétt við þar sem aðalvatnsból borgarinnareru. Vart hefur orðið við kvikasilfurs- eitrun við vatnsbólin og einnig i Kalu ánni þar nærri. Auk þess má geta þess að vart hefur orðið við húð- sjúkdóma meðal þeirra sem baðað hafa sig í Sone ánni í Madhya Pradesh ríki í miðhluta Indlands. Að sögn æðsta manns þeirrar stofnunar sem ætlað er að koma í veg I l I J I fyrir að fljót Indlands mengist meira en orðið er eru helztu ástæðurnar fyrir hinni miklu mengun þær að ur- gangur frá fólki fær að renna út í fljótin óhreinsaður og leifar frá iðn- verum einnig. í Bombay er aðeins þrettán af hundraði þeirra úrgangsefna sem renna í fljótið frá iðnfyrirtækjum. f Kalkútta borg, í austurhluta Ind- lands, er talið að 89% af menguninni í drykkjarvatninu komi frá borginni sjálfri. Af þeim eitt hundrað fjörutíu og tveim borgum í Indlandi sem hafa fieiri íbúa en eitt hundrað þúsund hafa aðeins sjötíu einhvers konar út- búnað til að hreinsa skolpið áður en það rennur út í árnar og vatnsbólin. Gífurlegar fjárhæðir þarf til að bæta úr skolpfrágangi við indverskar borgir og sjá svo um að vatnsból þeirra séu ekki lífshættuleg. Indira Gandhi forsætisráðherra landsins hefur hvatt til þess að komið verði á fót alþjóðlegri hjálparstarfsemi til að aðstoða fátækar þjóðir við að vinna að framkvæmdum til úrbóta í þessum efnum. Gandhi benti á í ræðu sinni að á nitjándu öldinni, þegar Bretland hafi verið mesta iðnaðar- veldi heimsins, hafi árnar þar í landi verið opin skolpræsi og kólera, taugaveiki og aðrir skæðir sjúk- dórtiar hafa geisað þar hvað eftir annað. Hreinlæti og heilbrigði fylgir vís- indalegum framförum, sagði for- sætisráðherrann. Við verðum að minnast þess þegar rætt er um lélegar heilbrigðisaðgerðir við vatnsból og skolpveitur hinna fátæku og vanþró- uðu ríkja. Samkvæmt könnun sem gerð hefur verið i Indlandi af starfsmönnum Al- þjóða heilbrigðismálastofnunarinnar hafa aðeins tæplega tíu af hundraði íbúa Indlands aðgang að nokkurn veginn boðlegu drykkjarvatni.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.