Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 12

Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. DB á ne ytendamarkaði Fjöldi kvartana yf ir skemmdri mjólk: Er eitthvað athuga- vert við mjólkur- geymslur verzlana? Gríðarlega margir hafa kvartað yfir því við neytendasíðuna að þeir fái skemmda mjólk og rjóma. Um- sjónarmaður síðunnar hefur einnig óvenju oft orðið fyrir því sjálfur í sumar að þurfa að hella niður þessum afurðum, vegna þess að mjólkin verður fúl og rjóminn eins og kökkur innan í umbúðunum. — Hvererástæðan fyrir þessu? ,,Á þessu kunna að vera nokkrar skýringar. Ein er ugglaust sú að þess- ar afurðir eru ekki geymdar við nægi- iega lágt hitastig,” sagði Guðlaugur Björgvinsson forstjóri MS. „Þegar breyting varð á mjólkur- sölulögunum árið 1976 og hætt var við mjólkurbúðirnar árið 1977 tóku matvöruverzlanir' við mjólkursöl- unni. Þær urðu þá að kaupa sér kæli- tæki eða útbúa kæliklefa fyrir mjólk- ina. Okkur dettur í hug að e.t.v. sé eftirlit með þessum tækjum ekki nægjanlegt og einhver kæli ekki eins og þeir eigi að gera. í mjólkurreglu- gerð segir fyrir um að mjólk eigi að geyma við hitastig á bilinu frá 0— 6°C. Þá kann einnig að vera að hráefnið sé ekki alltaf fyrsta flokks. Bændur hafa tankvæðzt og þarna getur einnig komið inn spurningin um hvernig hirt er um tankana. Dýralæknar eiga að sjá um að þau mál séu í lagi. Samlögin hafa leiðbeinendur um þessi mál á sínum snærum. Aðalstarf þeirra er að ferðast á milli bænda og benda þeim á ef eitthvað er í ólagi. Þeir hafa hins vegar ekki vald til að gera annað en að leiðbeina. Ef ekki fást úrbætur eiga dýra- læknar og heilbrigðisnefndir að framfylgja þeim. Mikilvægt er að bændur vandi sem bezt meðferð mjólkurinnar. Einn hirðulaus getur spillt heilum tank- farmi af mjólk. Dagstimplun á mjólkurvörum Á dögunum fengum við kvörtun frá konu í Grindavík. 11. september sendi hún barn í kaupfélagið til þess að kaupa skyr. Keypt voru fjögur box og þegar þau voru opnuð var innihaldið gulgrænt og mygluskán ofan á skyrinu. Þegar gáð var á dag- stimpilinn, sem va/ mjög ógreinilegur og raunar ekki læsilegur fyrr en dós- irnar voru opnaðar, kom í ljós að 30. ágúst var siðasti söludagur. Konan henti þremur boxunum en fór með eina til að fá nýjar dósir. Henni var boðið að fá eitt box af skyri í staðinn fyrir hin fjögur. En þegar í ljós kom að ekki var til annað skyr í kaup- félaginu en sem stimplað var með 8.’ og 9. september hætti konan við skyrkaupin, en eins og áður gat um var þetta 11. september. Kona þessi sagði að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem kaupfélagið i Grindavík hefði á boðstólum mjólk- urvörur sem væru með útrunnum dagstimpli. — Hvert á fólk að snúa sér í slíkum tilfellum sem þessum? „Það er nærri því óskiljanlegt hvernig svona nokkuð getur komið fyrir. Skyr og aðrar mjólkurvörur eru sendar daglega í allar verzlanir,” sagði Guðlaugur Björgvinsson. ,,Þó er til í dæminu að þegar verið er að raða í hillurnar nýkomnum vörum að þess sé ekki gætt að láta nýjustu vörurnar innst i hillurnar og þær elztu fremst. En að sjálfsögðu á að taka þær vörur sem komnar eru fram yfir síðasta söludag úr verzlun- inni. Það er ekki heimilt að selja mjólkurvörur sem komnar eru fram yfir síðasta söludag. Það er verkefni heilbrigðisnefndanna að sjá um að ,því sé framfylgt,” sagði Guðlaugur Björgvinsson. „Við viljum gjarnan hafa fram- leiðsluvörur okkar í því bezta lagi sem hægt er að hugsa sér,” sagði Guðlaugur Björgvinsson. „Og til þess að auka enn gæða- eftirlit með söluvörum okkar höfum við nýlega m.a. ráðið matvælafræð- ing, Ingibjörgu Halldórsdóttur, sem sér um daglegar skyndiprófanir á framleiðsluvörum okkar,” sagði for-- stjórinn að lokum. -A.Bj. Tilvalið verkefni fyrir Neytendasamtökin: Verðlaun fyrír góða þjónustu í verzlunum „Kæra neytendasíða DB! Ekki nenni ég lengur að standa fyrir utan þann hóp áhugasamra húsmæðra sem taka þátt í heimilis- bókhaldi neytendasíðu DB og sendi ykkur hérmeð í fyrsta sinn heimilis- reikninginn minn fyrir setp. 1980” segir m.a. í bréfi frá E. J„ húsmóður í Reykjavik. „Fyrir nokkru þegar viðurkenning var veitt fyrir fallegustu götu, falleg- asta garðinn o.s.frv. datt mér í hug að ekki væri svo fráleitt að veita slíka viðurkenningu sumum verzlunum hér í borg sem skara fram úr. T.d. hvað góða og lipra þjónustu snertir eða fjölbreytt og gott vöruúrval, þótt ég minnist nú ekki á verðlagið sem er afar misjafnt. Mundi það að mínu mati hafa hvetjandi áhrif á verzlunareigendur og stuðla að meiri samkeppni milli þeirra. Slík samkeppni er eðlileg og já- kvæð og kemur bæði viðskiptavinum og verzlunareigendum til góða. Gæti ekki neytendasíða DB tekið forystu í þessu máli? Með kveðju og þakklæti fyrir mörg góð ráð.” Gœti verið verkefni Neytendasamtakanna Við bjóðum E.J. velkomna í hóp þessara áhugasömu húsmæðra sem hún minntist á. Því miður tel ég að neytendasíða DB geti ekki haft forystu í því máli að veita verzlunum eða kaupmönnum slíka viðurkenningu eins og þú minn- ist á i bréfi þínu. Slíkt er afar við- kvæmt mál og verður að fara að öllu með þvílíkri gát að ekki er á fa?ri einnar síðu í dagblaði að gera slíkt. Hins vegar finnst mér þetta ágætis tillaga og ætti að vera verkefni fyrir samtök eins og t.d. Neytendasamtök- in. Þau eru algjörlega hlutlaus aðili sem ætti að geta fylgzt með bæði þjónustu, vöruúrvali og verðlagi í hinum ýmsu verzlunum og þannig veitt einni eða fleiri verzlunum viður- kenningu. Það gæti vafalítið haft hvetjandi áhrif á alla aðila ef þessu yrði komið í kring. Ef nógu margir gerast félagsmenn í Neytendasamtökunum verða þau e.t.v. með tímanum fær um að fram- . kvæma svona verkefni. -A.Bj. MEGRUN - MEGRUN Tillögur að viku matseðli Hádaglsvarflur Grænmetissalat. Kjötbollur (60 g), soönar kartöflur (75 g), soðið grænmeti (50 g). Ávöxtur (70 g). Brauð, jurtasmjör, undanrenna (2 dl). Kvöldverflur Grænmetissalat. Steiktur koli (60 g), soðnar kartöflur (75 g), soðið grænmeti (50 g), (piparrótarsósa úr súrmjólk 0,5 dl). Ávöxtur eða ber (70 g). Brauð, vatn eða ávaxtasafi (2 dl). Kaffi, te. g), grænar baunir (50 g), tómatur (30 g). Ávöxtur (70 g). Brauð, jurta- smjör, undanrenna (2 dl). Kvöldverflur Grænmetissalat. Lambakóteletta (með beini 85 g), súrmjólkursósa (0,5 dl). Soðnar kartöflur (75 g), grænar baunir (50 g). Ávöxtur eða ber (70 g). Brauð, sódavatn eða ávaxtasafi (2 dl). Kaffi, te. HAdegtoverflur Grænmetissalat. Lifur, soðin (50 g), leplaskífur og rifnar gulrætur (200 g). Fitusnauður ostur eða smurostur (15 g). Brauð, jurtasmjör, undanrenna (2 dl). Kaffi, te. Kvöldverflur Grænmetissalat. Buff (60 g), laukur (40 g), soðnar kartöflur (75 g), paprika (30 g). Ávöxtur eða ber (70 g). Brauð, vatn (2 dl). Kaffi, te. Hádegtoverflur Grænmetissalat. Soðið saltað eða reykt kjöt (20 g), bakaðar baunir í tómatsósu (150 g), 1 msk. rifinn ostur. Ávöxtur (70 g). Brauð, jurta- smjör, undanrenna (2 dl). Kaffi, te. Kvöldverflur Grænmetissalat. Steiktur eða grill- aður kjúklingur (með beinum 75 g), bakaðar kartöflur (75 g), soðið grænmeti (50 g). Ávöxtur eða ber (70 g). Brauð, ávaxtasafi eða vatn (2 dl). Kaffi, te. Hádegtoverflur Grænmetissalat. Fiskbollur (60 g), sveppasósa (1 dl), soðnar kartöflur (75 g), grænar baunir (50 g). Ávöxtur (70 g). Brauð, jurtasmjör, undanrenna (2 dl). Kaffi, te. Kvötdverflur Grænmetissalat. Pottréttur með lifur (nauta-, lamba- eða kjúklingalifur) (50 g), grænmeti (50 g). Gulrætur (40 g), soðnar kartöflur (75 g). Ávöxtur eða ber (70 g). Brauð og sódavatn eða vatn (2 dl). Kaffi, te. Hádegtoverflur Grænmetissalat. Soðið egg (1 st.), soðinn fiskur (50 g). Súrmjólkursósa með kryddi (1 dl), soðið grænmeti (100 g). Ávöxtur (70 g). Brauð, jurta- smjör, súrmjólk (2dl). Kaffi, te. Kvöldverður Grænmetissalat. Roastbeaf (50 g), bakaðar eða soðnar kartöflur (75 g), laukur soðinn í kjötkrafti (50 g), tómatur (30 g). Ávöxtur eða ber (70 g). Brauð, ostur (10 g), sódavatn eða ávaxtasafi (2 dl). Kaffi, te. HádegisverOur Grænmetissalat. Soðin fiskflök (60 g), sítrónubátur, soðnar kartöflur (75 Hádegtoverflur Grænmetissalat. Ofnsteiktar skenku- rúllur þræddar með plómum (70 g skinka, 15 g plómur), soðnar kart- öflur (75 g), soðið grænmeti (50 g). Ávöxtur eða ber (70 g). Brauð, undanrenna (2 dl). Kaffi, te. Kvöldverflur Grænmetissalat. Rækjur (60 g), súr- mjólkursósa með blaðlauk eða dilli + 1 tsk. sinnep (1 dl). Ávöxtur (70' g). Brauð, jurtasmjör, ostur (15 g), sódavatn eða ávaxtasafi (2 dl). Kaffi, te.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.