Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 13

Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 13
Framsóknarmenn og kratar mjög klofnir f hermálinu Fylgismenn Framsóknar- og Alþýðu- flokks eru ákaflega skiptir í afstöðu til hersins. Það kemur í ljós við nánari athugun á niðurstöðum skoðanakann- ana Dagblaðsins, annars vegar spurningunni um afstöðu til flokka og hins vegar spurningunni um afstöðu til hersins. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru nokkuð á einu máli um að styðja herinn, og stuðningsmenn Alþýðu- bandalagsins nokkuð sama sinnis um að losna við hann. DB hefur unnið upp úr skoðana- könnununum, hvernig afstaðan til hersins skiptist eftir flokksfylgi. Niður- stöðum þess ber að taka með mikilli varúð, einkum þegar farið er að skipta lágum tölum, til dæmis 45 aiþýðu- flokksmönnum, upp í frekari grein- ingu. Segja má að athugunin segi til um, að yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins vilji hafa herinn áfram, þótt greinilega séu einnig til i þeim röðum menn, sem vilja, að herinn fari. Einnig má segja, að ljóst sé, að yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna Alþýðubandalagsins' vilji, að herinn fari, þótt þar sé að finna nokkra, sem vilja hafa herinn, merki- legt nokk! Athugunin sýnir, að Fransókn og Alþýðuflokkur eru mjög kiofnir í afstöðu til hersins, þegar litið Herstöðvaandstæðingar eru skv. könnun Dagblaðsins úr öllum flokkum — en áberandi fæstir eru I Sjálfstæðisflokknum og flestir I Alþýðubandalaginu. DB-mynd: Ari K. Afstaða fólks í skoðanakönnuninni til hersins skiptist þannig eftir flokkum (Sjá skýringar): Sjálfstæðismenn Fylgjandi 142 eða 88,8% Andvígir 10 eða 6,3% Óákveðnir 8 eða 5% er til óbreyttra stuðningsmanna. En varast ber að draga þá ályktun, að til dæmis þriðjungur Framsóknarkjós- enda sé á móti her eða yfir fjórðungur krata, til þess verða tölurnar ekki nógu marktækar, þegar farið er að skipta. svo lágum tölum. Engu að síður er augljóst, að hlutur hersandstæðinga i stuðningsliði þessara flokka hlýtur að vera talsvert stór. Ut fyrir raðir Alþýðubandalagsins Skoðanakönnun DB um afstöðu til hersins gaf til kynna, að 53,8 prósem væru fylgjandi áframhaldandi dvöl hersins hér, 30,8 prósent andvígir og 15,3 prósent óákveðnir. Fylgi hersins er með meira móti um þessar mundir, miðað við fyrri skoðanakannanir. Af tölunum er greinilegt, að fleiri eru and- vígir hernum en stuðningsmenn Alþýðubandalagsins einir. Nánari athugun leiðir í ljós, að viðbótina er að finna meðal stuðningsmanna Framsóknar og Alþýðuflokks og auð- vitað í röðum þeirra, sem ekki vildu nefna neinn flokk í könnun DB á fylgi flokkanna. Af stuðningsmönnum Sjálfstæðis- flokks segjast 88,8 prósent vera fylgj- andi áframhaldandi dvöl hersins, rúm 6% eru andvígir og 5% óákveðnir. Af fylgismönnum Framsóknar í könnuninni segjast um 45 prósent vera fylgjandi hernum, um 33 prósent and- vigir og um 21 prósent eru óákveðnir. Af stuðningsmönnum Alþýðubanda- lags segjast rúm 90 prósent vera and- vigir hernum, tæp 5% fylgjandi og tæp 5% óákveðnir. Af stuðningsmönnum Alþýðuflokks segjast rúm 53 prósent fylgjandi hern- um, tæp 29 prósent andvigir og tæp 18 prósent óákveðnir. Af þeim stóra hóp, sem annaðhvort var óákveðinn um stjórnmálaflokk, segist „engan flokk” styðja eða vildi ekki svara spurningunni um flokkana, síyðja 'um 47 prósent herinn, um 30 prósent eru andvígir og rúm 22 prósent óákveðnir. Auk þess kom upp í könnuninni einn marx-lenínisti, sem er 100% andvígur hernum! -HH. Framsóknarmenn Fylgjandi 34 eða Andvígir 25 eða Óákveðnir 16 eða 45,3% 33,3% 21,3% Alþýðubandalagsmenn Fylgjandi Andvígir Óákveðnir 3 eða 59 eða 3 eða 4,6% 90,8% 4,6% Alþýðuflokksmenn Fylgjandi Andvígir Óákveðnir 24 eða 53,3% 13 eða 28,9% 8 eða 17,8% Óákveðnir um flokk eða svöruðu ekki spurningunni um flokk Fylgjandi 120 eða 47,2% Andvígir 77 eða 30,3% Óákveðnir 57 eða 22,4% Auk þess 1 marx-lenínisti, sem er andvígur hernum. þaóerekkisama jónog mínusjón Framkvnmdastjóri saltfisk- og skreiðarframleiðslu í Kanada H. B. Nickerson & Sons, Limited er leiðandi fiskveiðafélag í Kanada, sem veiðir, verkar og selur framleiðslu sína á alþjóðamarkaði. Þar til nýverið hefur framleiðsla og sala bolfisks í salt og skreið verið veigalítill þáttur í viðskiptum okkar. En á yfirstandandi ári höfum við lagt mun meiri áherzlu á þennan þátt starfsemi okkar. Viljum við auka framleiðslu og sölu þessara vörutegunda mun meira. Við þurfum að fá fullkomlega hæfan og reyndan fram- kvæmdastjóra til að taka algjörlega að sér rekstur núver- andi viðskipta okkar og skipuleggja aukningu þeirra. Ef þér teljið yður vera þann einstaka aðila, sem við erum að leita að, biðjum við yður að hafa samband við: Peter B. Tait, P. O. Box 130, North Sydney, Nova Scotia, B2A3M2, CANADA. Góðfúslega svarið á ensku. ,,Margt bendir til aö mikið magn jákvætt rafhlað- inna agna (+jóna), geti haft slæm áhrif á líðan og heilsu fólks.Loftmengun t.d.tóbaksreykur, inni- heldur gjarnan mikið af pósitívum ögnum.“ ÚRUMSÖGN hleiIbrigðiseftirIit ríkisins . Raflindin MODULION eykur magn neikvætt hlaóinna agna (-jóna) í andrúmsloftinu og stuölar því aó minni loftmengun, samtímis sem hún hefur jákvæð áhrif á líóan og heilsu fólks. söluskrifstofa sími 91-82980 Fellsmúla 24 -105 REYKJAVÍK Sími 91-82980 veitir allar frekari upplýsingar. Meðlimir Ofnæmis-, Astma-, og Mígrenifélaga fá 10% afslátt. Verð tækjanna er kr. 68.750. — Auk þess höfum við fjölda upplýsingagagna á boðstólum. •..Jónir í lofti” eftir Dr. Albert Krueger •,,The lon effect” eftir Fred Soyka • Gagnaskrá yfir jónarannsóknir.Sendum í póstkröfu um land allt.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.