Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 14

Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. 'mmuum frjálst, úháð dagblað Cltgafandi: Dagblaðifl hf. FramkvamdaatJÓH: Svainn R. Eyjótfsson. RhstJÓH: Jónas Kristjánsson. Aflstoflariitstjóri: Haukur Halgason. Fréttastjóri: ómar Vaidimarsson. Skrifstofustjóri rítstjómar: Jóhannes Raykdal. Iþróttlr: Haflur Sknonarson. Menning: Aflalsteinn Ingótfsson. Aflatoflarfréttastjórí: Jónas Haraldvson. Handrit: Asgrknur Pálsson. Hflnnun: Hilmar Karisson. Blaflamann: Anna Bjamason, Atil Rúnar HaHdórsson, Atii Steinarsson, Ásgair Tómasson, Bragi Sig- urflsson, Dóra Stefánsdóttir, Elfn Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, ólafur Gairsson, Sigurflur Sverrisson. LJÓsmyndir: Bjarnlaifur Bjarnleifsson, Einar ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Þorri Sigurflsson og Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þoríeifsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halldórs- son. Dreifingarstjóri: Valgerflur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siflumúla 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhohi 11. Aflaisfmi blaflsins er 27022 (10 Ifnur). Sotning og umbrot: Dagblaflifl hf., Sfflumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf., Siflumúla 12. Prentun Arvakur hf., Skeifunni 10. Askriftarverfl é mánufli kr. 5.500. Verfl í lausasölu 300 kr. eintakið. Hvemær ræóur þjóðin? Alþingi endurspeglar ekki vilja meiri- hluta þjóðarinnar í mörgum stórmál- um. Ómenguð aronska á liklega ekki einn einasta málsvara á Alþingi. Samt sýndi skoðanakönnun Dagblaðsins fyrir nokkrum árum, að mikill meirihluti landsmanna vildi, að Bandaríkjamenn greiddu gjald fyrir aðstöðu sína hér á landi. Að líkindum nýtur aronskan enn meirihlutafylgis. Dagblaðið birtir í dag niðurstöður athugana á gögn- um úr tveimur skoðanakönnunum, um stjórnmála- flokkana og herinn. Andstaðan við herinn nær langt út fyrir raðir Alþýðubandalagsins. Töluverður hluti stuðningsmanna Framsóknar og Alþýðuflokks er and- vígur hernum. Gunnlaugur Stefánsson, fyrrverandi þingmaður Al- þýðuflokksins, naut stuðnings fleiri kjósenda flokksins en hann hefur haldið, þegar hann andæfði gegn ríkj- andi flokksstefnu í varnarmálum. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknar, hefur fylgi mikils fjölda framsóknarkjósenda, ef hann hyggst andæfa gegn ríkjandi stefnu Ólafs Jóhannes- sonar og Steingríms Hermannssonar í þeim efnum. Taka verður með fyllstu varkárni þá skiptingu á flokksfylgi Framsóknar og Alþýðuflokks, sem út kemur, vegna þess hve tölurnar eru orðnar lágar og frekari sundurgreining þeirra takmörkunum háð. Engu að síður má af þeim draga þær ályktanir, að það sé að vísu minnihluti en talsvert sterkur minnihluti kjósenda þessara tveggja flokka, sem vill söðla um i varnarmál- um. Okkur ber við ríkjandi aðstæður að taka þátt í vörn- um Atlantshafsbandalagsins en krefjast þess jafnframt af Bandaríkjamönnum, að þeir beri kostnað við efl- ingu samgöngukerfis okkar og almannavarna. Varnar- málin eru hér nefnd sem dæmi um, hvernig samsetning þingmannasveitar flokka getur gefið ranga mynd af vilja kjósenda þeirra. Enginn hersandstæðingur mun nú vera í þingliði Alþýðuflokksins, og í þingliði Fram- sóknar heyrist ekki frá þeim hósti eða stuna. Skoðanakönnun Dagblaðsins sýnir, að mikill meiri- hluti landsmanna vill hafa varnarliðið áfram að sinni. Fyrri skoðanakannanir hafa sýnt minni mun. Varnar- málin eru þess eðlis, að réttmætt er að útkljárþau við þjóðaratkvæði. Þau mál eru nánast ekkert rædd í próf- kjöri eða á frambóðsfundum. Um þau hefur aldrei verið kosið í þingkosningum. Að sinni geta menn sagt, að skoðanakönnun Dag- blaðsins sýni ótvírætt meirihlutafylgi við varnarliðið og því sé óþarft að bera það mál undir þjóðaratkvæði, að óbreyttu ástandi í heimsmálum. En ekki hafa valds- menn breytt samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnun- ar Dagblaðsins um aronskuna. Þá væri rökréttast, að það mál, sem er ótvírætt stórmál, verði borið undir þjóðina og tekið úr höndum alþingismanna, sem kunna ekki með það að fara. Bjórmálið er enn eitt slíkra mála. Sannarlega hafa frambjóðendur til þings ekki verið valdir með tilliti til afstöðu til bjórsins. Engin ástæða er til að ætla, að hlutföll á Alþingi endurspegli vilja meirihluta þjóðar- innar í því máli. Þess vegna á að bera undir þjóðina við atkvæða- greiðslu, hvort leyfa skuli sölu á áfengu öli hér á landi. Fjölda mála af þessu tagi ber tvímælalaust að fara með á þann hátt. Þingmenn eru þess ekki umkomnir að túlka sjónarmið þjóðarinnar. / 0RKA — ORKUNÝTING Margir áratugir eru síðan Islend- ingar létu sig fyrst dreyma stóra drauma um nýtingu hinna miklu orkulinda landsins. í glæstri framtíðarsýn sáu menn fossana mala landsmönnum gull og óþrjótandi afl fljótanna verða undir- stöðu þróttmikils atvinnulífs og bættra lífskjara. Þó þjóðin hafi á síðustu árum í vaxandi mæli virkjað sínar orku- lindir, hefur hún enn ekki tekið í notkun nema tæp 6% þeirrar orku sem liggur í vatnsafli og jarðvarma landsins. Orkulindir íslendinga Meginorkulindir íslendinga eru vatnsafl og jarðhiti. Gróft tekið nemur orkunotkun íslendinga um 2000 MW. þar af sjá vatnsaflsvirkjanir okkur fyrir um 500 MW; jarðvarmaveitur um 500 MW og innflutt eldsneyti nemur um 1000 MW. Heppilegri eining er að nota watt- stundir eða orku í stað afls. Áætlaðar orkulindir landsins nema: (Orkuvinnsla á ári) Vatnsafl: Hagkvæmt vatnsafl 20 Twh Annað ” . 10 Twh Alls 30 Twh. Virkjað 3,3 Twh Óvirkjað 26,7 Twh. Jarðvarmi: Orkuvinnsla á ári miðað við Kjallarinn GuðmundurG. Þérariifsson varmainnihald vatns fyrir ofan 40°C. Alls 80 Twh a) þar af raforka 20 Twh b) þar af orka til iðnaðar þ.e. gufayfir 150°C 45 Twh þegar virkjað 3,2 Twh óvirkjað 76,8 Twh Jarðhitinn Allar áætlanir um orku jarðhita- svæðanna eru mun óvissari en um orku vatnsaflsins. Háhitasvæði okkar eru enn tiltölulega lítið rann- sökuð. Áætluð vinnsluorka þeirra 80 Twh/ári er sjálfsagt lágmarksorka og gæti e.t.v. verið tvisvar til þrisvar sinnum meiri. Jarðhitasvæðum er skipt í háhita- svæði og lághitasvæði. Háhitasvæði rru svæði þar sem hotnhili er hærri en 200°C, en lághitasvæði þár sem botnhiti er lægri en 150°C. Háhítasvæðin skiptast í 5 megin- svæði. Stærð þeirra hefur verið áætluð: Reykjanesskagi 50 km; Hengilssvæði 50 km' Torfajökulssvæði 100 km' Kerlingafjallasvæði 50 km1 Kröflusvæði 150 km' Alls um 400 km! Kröflusvæðið er hér talið ná yfir Námafjall, Ktöflu og Þeistareyki. Lághitasvæðin eru utan eldvirkra svæða og hafa mjög gróft verið áætluð um 20.000 km! að stærð. í jarðhitasvæðunum er fólgin gífurleg orka og þyrfti viðamiklar rannsóknir til þess að áætla hana meðsæmilegri nákvæmni. Sérstaklega er áríðandi að gera rannsóknaráætlun fyrir háhita- svæðin. Lághitasvæðin hafa mest verið notuð til húshitunar og upphitunar gróðurhúsa. Helsta lághitasvæði íslands er talið ná um 100 km bæði til austurs og FELAGSLEGT HLUTVERK VERZL- UNARINNAR Þegar að ég réði mig fyrst til starfa í verzlun sem var við lok stríðsins varð mér fljótlega ljóst hversu ríkur þáttur verzlunin er í samskiptum manna í milli. Á þessum árum voru verzlanir nánast á hverju götuhorni. Þar hittist fólkið úr hverfinu og rabb- aði saman um daginn og veginn meðan það verzlaði. Þetta var ákveð- inn þáttur í daglegu lífi þess. Kaup- maðurinn tók auðvitað þátt i samræðunum og tengsl hans við viðskiptavinina voru afar náin. Oft var til hans leitað þegar vandræði steðjuðu að og gagnkvæmt traust þótti nauðsynlegt milli þessara aðila. Þessi tími er liðinn og mikið vatn runnið til sjávar síðan. Litlu verzlun- unum með kaupmanninum á horninu hefur fækkað mikið og stærri verzlanir (kjörbúðir) tekið við. Þar afgreiöir viðskiptavinurinn sig sjálfur en greiðir fyrir vörurnar við kassann. Hafa tengslin rofnafl? Þó mikill sjónarsviptir séað þessum litlu verzlunum, blandast engum hugur að þjónusta við neytendur hefur aukist verulega með árunum. Kjallarinn Gunnar Snorrason Nú er hægt að gera öll matarkaup undir einu og sama þaki, meðan áður varð að hlaupa búð úr búð. En þá er spurningin: Hafa þessi mannlegu tengsl milli kaupmannsins og viðskiptavinarins rofnað með breytt- um viðskiptaháttum? Sem betur fer er svo ekki þó tengsUn séu auðvitað mismunandi eftir verzlunum og því hvort kaup- maöurínn er starfandi t búðinni sjálfri eða hvort hann annast útrétt- ingar og skrifstofustörf og stjórnar fyrirtækinu frá skrifborðinu. Ég hygg að fyrra tilfelUð sé algeng- ara sérstaklega i hverfisverzluninni. Hlutverk hennar er mikilvægt fyrir íbúa hverfisins og myndi fólki bregða í brún ef hún leggðist niður. Bæði vegna þjónustu sem þykir svo sjálf- sagt að hafa að menn hætta að taka eftir henni, en ekki síður vegna félagslega þáttarins. Hverfi sem hafa engar verzlanir eru ekki að ófyrir- synju kölluðsvefnhverfi. Fyrsta reynsla af atvinnulrfinu Hjá flestum fjölskyldum er það svo að ef hugað er að íbúðar — eða húsakaupum verður fyrst fyrir að kanna hvernig samgöngum er háttað með tilliti til að komast í og úr vinnu, þvínæst hvort skólar séu í grenndinni Si n » § !

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.