Dagblaðið - 20.10.1980, Page 15

Dagblaðið - 20.10.1980, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. 15 norðurs frá höfuðborgarsvæðinu. Þetta svæði nær því yfir meginhluta Árnessýslu og allan Borgarfjörð eða yfir um 10.000 km1 svæði. Áætlað hefur verið að orkaþessa svæðis sé um 13.000 Twh alls, sem þýðir að það samsvarar orku stærstu olíusvæða heims. Háhitasvæðin hafa iítillega verið nýtt til raforkuframleiðslu. í Svarts- engi eru nú framleidd 2 MW og áætlanir eru um 6 MW og við Kröflu 5—7 MW, en áform eru þar um 60 MW vinnslu. Háhitasvæðin eru einnig lítillega nýtt í iðnaði. Má þar nefna Kisil- iðjuna við Mývatn, þörungaverk- smiðjuna að Reykhólum og tilrauna- verksmiðju við saltvinnslu á Reykja- nesi. Áform um aukna nýtingu háhitasvæðanna til iðnaðar eru margvísleg. í því sambandi má nefna 30.000—60.000 — tonna saltverk- smiðju, sykurhreinsun í Hveragerði, ylræktarver pappírsframleiðslu o.s.frv. Stefnt er að því, að öHum helstu hitaveitum, sem nýta jarðhita_ verði lokið 1982 og í lok 1983 verði 95% þeirra sem kynda hús sín með olíu farnir að nota innlenda orkugjafa. Sérstök ástæða er til að ítreka nauðsyn öflugra rannsókna á háhita- svæðunum ef unnt á að vera að nýta þau í næstu framtíð. Leggja ber áherzlu á að rannsaka fyrst þau svæði, sem best liggja við nýtingu, en rannsóknir háhitasvæðanna eru tímafrekar og dýrar vegna nauðsyn- legra rannsókna boranna. Á síðasta miðstjórnarfundi Fram- sóknarflokksins var gerð ítarleg ályktun i orkumálum. Um rann- sóknir háhitasvæðanna segir í þessari ályktun: Gerð verði heildaráætlun um rann- sóknir á háhitasvæðunum. Rannsóknir beinist fyrst og fremst að þeim háhitasvæðum, sem liggja best við nýtingu, þ.e. svæðin á Reykja- nesi, við Hengil, við Námafjall, Kröflu og Þeistareyki, svo og Torfa- jökulssvæðið. Vegna kostnaðar- samra rannsóknaborana verður að veita auknu fé til jarðhitarannsókna. Orka háhitasvæðanna verði endurmetin Til gamans má geta þess, þegar menn velta fyrir sér orku jarðhita- svæðanna, að Gunnar Böðv'arsson áætlaði á sínum tíma að árlegt varmauppstreymi frá islensku jarð- hitasvæðunum samsvaraði orku um 3,5 milljónum tonna af olíu eða um sex sinnum meiru en ársinnflutningur okkar er. Ekki er fjarri lagi að áætla að nýtanleg orka okkar i vatnsafli og jarðhita samsvari 8—10 milljónum tonna af olíuáári. Vatnsorkan Landsvirkjun hefur með hag- kvæmnissjónarmið í huga skipað virkjanlegu vatnsafli landsins í fjóra flokka: I. Hagkvæinasti hluti vatnsaflsins, sem að öðru jöfnu verður virkjaður fyrst. II. Sá hluti vatnsaflsins, sem i mörgum tilvikum verður nýttur sam- tímis hagkvæmasta hluta þess vegna sérstakraaðstæðna. III. Vatnsafl, sem án efa verður virkjað og ber því að halda til haga, þannig að fyrri framkvæmdir útiloki ekki nýtingu þess síðar. IV. Vatnsafl, sem ekki er talið nýtanlegt nú, en gera má ráð fyrir að virkjað verði, þegar annað vatnsafl er fullnýtt. Þegar heildarvatnsafl íslands er þannig metið og orkuvinnslugetan talin 30 Twh/ári er ekki gert ráð fyrir verulegri vatnsmiðlun í Þjórsárverum né virkjun fallsins við Gullfoss af náttúruverndarsjónarmiðum. Gert er ráð fyrir algjörri friðun vatnsfalla í Borgarfirði að undantek- inni Hvítá við Kljáfoss. Fleira mætti þannig telja. Þannig reiknað höfum við nú virkjað um 10% af heildarorku vatnsafls. Virkjunarframkvæmdir standa nú yfir við Hrauneyjafoss og er gert ráð fyrir að virkjunin verði um 210 MW í endanlegri stærð. Fyrsta aflvélin mun hefja fram- leiðslu í árslok 1981 önnur aflvélin í ársbyrjun 1982 og sú þriðja sennilega 1983. Með tilliti til orkuskömmtunar síðastliðinn vetur og hugsanlega aftur í vetur er áríðandi að virkjun við Hrauneyjafoss dragist ekki. Orkuspár benda til, að þrátt fyrir tilkomu Hrauneyjafossvirkjunar verði orkuskortur 1985—86 nema þá hafi nýjar virkjanir tekið við. í þessu sambandi ríkir óvissa um orku- vinnslu Kröflu. Af þessu má ljóst vera að ekki má dragast lengur að taka ákvörðun um hvar virkja skuli næst á eftir virkjun við Hrauneyjafoss. í því sambandi ræða menn þrjá valkosti. 1) Blönduvirkjun með orkuvinnslu 715 Twh/ári og afl 120 MW. 2) Sultartangavirkjun með orku- vinnslu 750Twh/ári ogafl 120 MW. 3) Fljótsdalsvirkjun með orku- vinnslu 1350—1800 Twh/ári og afl 3 —400 MW eftir því hversu vatna- veitum er háttað. Landsvirkjun telur að orkuvinnsla gæti hafist við Sultartanga 1985—86 ef ákvörðun um virkjunina væri tekin fljótlega. Líklega gæti Blönduvirkjun staðið þessi tímamörk, en Fljóts- dalsvirkjun er sennilega ári á eftir í undirbúningi þrátt fyrir mikla vinnu í sumar. Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar kveður svo á, að stefnt verði að því að næsta stórvirkjun verði utan eld- virkra svæða. Margt mælir með því að helstu virkjanirnar sú dreifðar um landið. Má þar nefna öryggi orku- framleiðslu og orkuflutnings með tilliti til eldgosa, jarðskjálfta, úrkomú o.s.frv. Blönduvirkjun og Fljótsdals virkj- un eru utan eldvirkra svæða og Landsvirkjun telur Sultartanga- virkjun utan helstu áhættusvæða í eldvirkni. í Ijósi þeirra aðstæðna, sem eru i orkumálum heimsins er afar mikil- vægt að hraða virkjunarrannsókn- um. Jafnframt er mikilvægt að fram- kvæmdir við virkjanir verði samfelld- ar þannig að þekking og reynsla nýtist sem best og virkjanir verði boðnar út í áföngum, sem eru ekki stærri en það að þeir séu viðráðan- legir fyrir íslendinga sjálfa. Olíulindir? Svo sem menn vita er nú borað eftir olíu við strendur Noregs. Talið er að olía finnist við Grænland. ísland liggur þarna á milli og þó fjar- lægðir séu miklar kynni olía að finnast hér við land. Allt fram á síð- ustu ár hefur slíkt þó verið talið frá- leitt vegna þess hversu ungt landið er jarðfræðilega og myndun þess i tengslum við eldsumbrot á Atlants- hafshryggnum. Það kom mönnum því á óvart þegar veruleg setlög fundust úti fyrir Norðurlandi, upp i 4000 m þykk. Bandaríska fyrirtækið Western Geophysical Co. hefir framkvæmt þessar setlagarannsóknir og nauðsyn- legt er að gera frekari athugun á dreifingu og þykkt setlaganna á islensku yfirráðasvæði. Til þess að olía geti myndast, þurfa tvö meginskilyrði að vera uppfyllt. í fyrsta lagi þurfa að vera til staðar jarðlög, sem geta geymt olíuna. Rannsóknir benda til að setlög séu fyrir hendi sem þetta gætu gert þó gætu verið hraunlög inn á milli setlaganna og upplýsingar um gerð setlaganna er ekki unnt að fá nema með borun. í öðru lagi þurfa að vera til staðar lifrænar leifar smádýra, sem um- myndast í þau kolvetni sem við erum að leita að. Þetta er ekki unnt að fá upplýsingar um nema með borun. Svo einkennilega vill til, að Flatey á Skjálfanda liggur einmiit yfir mesta setlagadalnum. Borun i Flatey mundi gefa okkur verðmætar upplýs- ingar. Sjálfsagt eru ekki miklar líkur á olíufundi við ísland. Ýmsar spurningar vakna þó, sem gefa tilefni til vangaveltna. Hver ætti olíu, sem borað væri eftir i Flatey? Eru okkar kostnaðar- sömu framkvæmdir til að útrýma £ „Gunnar Böövarsson áætlaði á sínum tíma, aö árlegt varmauppstreymi frá íslensku jarðhitasvæðunum samsvaraði orku um 3,5 milljóna tonna af olíu eða um sex sinn- um meira en ársinnflutningur okkar er.” olíunotkun skynsamlegar ef olíu- lindir eru hér við landið? o.s.frv. Sjálfsagt er fyrir okkur að halda áfram rannsóknum á setlögunum og kynna okkur vel reynslu t.d. Norð- manna af olíuleit, olíusamningum, olíuvinnslu, mengunarvörnum, olíu- löggjöf. o.s.frv. Orkunýting Allt bendir til, að íslendingar verði að virkja nokkurn veginn eins hratt og þeir ráða við á næstu áratugum, ef þeir eiga að koma í veg fyrir að lífskjörin versni í landinu. Viðskiptakjör okkar við útlönd hafa farið versnandi undanfarin ár. Því er vandsvarað hvernig við nýtum þessa orku best okkur til sem mestra hagsbóta. í málefnasamningi ríkisstjórnar- innar er gert ráð fyrir að setja á fót nefnd er vinni að alhliða stefnumörk- un í orkumáhim. Þará meðal mun nefndin vinna að athngunum á hag- kvæmri orkunýtingu. Ýmsir vilja setja það mark, að íslendingar verði óháðir innfluttu eldsneyti um aldamót. Ekki er fjarri lagi, að íslendingar þyrftu að virkja 12—1400 MW i stað þess innflutta eldsneytis sem þeir nota nú. Þeirri spurningu er enn ósvarað hvert verður eldsneyti framtíðar- innar. Verður það vetni eða munu menn enn um langa framtið framleiða benzín og olíur úr kolum eða með blöndun vetnis og kolefnis. Áherzlu verður að leggja á, að orkumál verða ekki slitin úr sam- hengi við iðnþróun í landinu og um- hverfismál. Nýting orkunnar er ekki hvað síst spurning um hvernig við viljum haga atvinnuuppbyggingu í landinu. Hvers konar iðnþróun viljum við leggja áherzlu á og hve hratt? Nýtin orkunnar er flókið mál og í því sambandi er ítarlegra athuguna þörf. I landinu þyrfti að starfa stöðugt orkunýtingarnefnd er kann- aði alla valkosti í orkunýtingu og gerði áætlanir þar um. í þessu samhengi öllu mega menn heldur ekki gleyma því að hið ómengaða og óraskaða umhverfi okkar í þessu fagra landi er meðal dýrmætustu auðæfa okkar. Framsókn okkar til fagurs mann- lifs í þessu landi hlýtur að byggjast á hlutlægu mati allra þessara þátta. GuðmundurG. Þórarinsson alþingismaður. Mannleg tengsl kaupmanns og viðskiptavinar eru einkurn til staðar i minni verzlununum. og þá hvort langt sé í verzlanir. Þessi þjónustufyrirtæki gegna ekki aðeins mikilvægu félagslegu hlutverki, heldur einnig uppeldislegu. Barn er sent út í búð á fyrstu bernskuárunum með miða til afgreiðslufólksins. Síðar þegar viðskiptareynsla og lestrar- kunnátta hafa byggt upp sjálfstraust og sjálfstæði les það sjálft miðann eða leggur á minnið það sem á að kaupa. Fyrsta reynsla manna af atvinnulífinu er nærri alltaf í verzlun- inni. Ekki nóg að vita af henni Nauðsynlegt er að fólk átti sig á, að ef þessi þjónusta á að vera til staðar er ekki nóg að vita af henni í hverfinu, — það verður að nota hana. Ef öll meiriháttar innkaup fjöl- skyldunnar eru gerð í stórmörk- uðum, en hverfisverzlun aðeins notuð í neyðartilfellum, vakna menn einn góðan veðurdag við það að engin verzlun er í hverfinu. Það er þess vegna gagnlegt í þessu sem öðru að hafa í huga gamla heilræðið, að endinn skal í upphafi skoða. Gunnar Snorrason form. Kaupmannasamtakanna. „... vakna menn einn góðan veðurdag viö það, að engin verzlun er í hverfínu.’ SOLAÐIR OG IMYIR HJOLBARÐAR A llar hjólbarda viógeróir Snjónatilar oi’jafn vœi’isstiUini’ ■Scndum sólaóa hjólbaróu í póstkröfa l.uui’ardui’u kl. 7.30— 16.00 Hjólbarðasólun Hafnarfjarðar Trönuhrauni 2 — Sími 52222

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.