Dagblaðið - 20.10.1980, Page 16

Dagblaðið - 20.10.1980, Page 16
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÖBER 1980. fleira , FOLK Þórir Baldursson í stuttri íslandsheimsókn: Dauft yfir tónlistarlífmu í New York aö undanfömu Leiftursókn Thatcher komin tillslands Tveim grónum starfsmönnum brezku utanríkisþjónustunnar á ís- landi hefur verið tilkynnt um lausn frá störfum með löglegum fyrirvara. Þessir menn eru Brian D. Holt ræðis- maður og viðskiptafulltrúi sendi- ráðsins, Ralph Hannam. Þeir eru _báðir kvæntir íslenzkum konum og hafa dvalizt hér á landi frá stríðs- árunum. Ekki þarf að kynna þessa menn. Þeir eiga hér mjög stóran vinahóp og hafa lagt lið góðum samskiptum íslendinga og Breta. Ekki eru menn sammála um það hvort hér gætir á sérstakan hátt leiftursóknar Margaret Thatcher og stjórnar hennar eða verið sé að yngja brezku utanríkisþjónustuna upp með framagjörnum flokksmönnum frúar- innar. Að minnsta kosti er vandséð að þetta þjóni þeim tilgangi að skerða ríkisgeirann í rikisfjármálunum. Báðir fara áðurgreindir menn á frem- ur lág eftirlaun er þeir hætta störfum sínum. „Ég er eiginlega í stuttu, síðbúnu sumarleyfi núna. Mig langaði til að heilsa upp á foreldra og ættingja, jafnframt því að leggja lokahönd á upptöku nýrrar hljómplötu með hljómsveitinni Geimsteini,” sagði Þórir Baldursson tónlistarmaður þegar blaðamaður DB hittti hann að máli um helgina. Þórir kom hingað til lands frá Múnchen í Þýzkalandi. Þar var hann að taka upp plötu með ítölsku hljóm- sveitinni La Bionda. Hann útsetti öll lög plötunnar og lék á hljómborð. Þórir er fyrir nokkru alfluttur frá Þýzkalandi til New York. Hann flaug heim á leið ásunnudagsmorguninn. ,,,Það er búið að vera dauft yfir tónlistarmarkaðinum í New York í sumar en mér virðist líf vera að færast þar í tuskurnar núna,” sagði hann. „Það bíða mín nokkur verk- efni þegar ég kem heim. Ég þarf að ganga frá plötu með Michelle Mills, leika inn á nokkrar til viðbótar og sinna nokkrum útgáfuverkefnum.” Vegna starfs Þóris með Donnu Summer og fleiri þekktum disko- stjörnum var hann inntur eftir því hvort hann fengist aðallega við þá tegund tónlistar. „I guðanna bænum, farðu ekki að stimpla mig sem einhvern diskó- mann,” svaraði Þórir. „Ég fæst jöfnum höndum við allar tegundir tónlistar og hef gert það. Diskótón- listin hefur verið mjög áberandi að undanförnu og því hefur ekki farið hjá því að störf mín á þeim vettvangi hafi vakið mesta athygli. Nei, nei, ég bind mig siður en svo við neina ákveðna stefnu.” Þórir Baldursson kom hingað til lands frá Þýzkalandi þar sem hann vann að hijómpiötu með ítölsku hljómsveitinni La Bionda. Ljósm. Jóhannes Long. Bragi stokkar upp spilin Það var mikill herskari manna að Listasafn í uppsiglingu Áhugi er nú sagður á því að stofna safn þeirra bræðra Ríkarðs og Finns Jónssona í húsi því við Grundarstíg sem Ríkarður heitinn bjó i lengst ævi sinnar. Hann lézt fyrir fáum árum en Finnur starfar enn að list sinni. Bræðurnir voru hvor á sinn hátt að mörgu leyti brautryðjendur og miklir listamenn, Ríkarður tréskurðarmeist- ari og listateiknari en Finnur málari. Þeir bræður áttu eða eiga mikið safn góðra listaverka. Væri það mikill fengur íslenzkri list og þjóðinni allri ef af þessari hugmynd gæti orðið. Dr. Gunn- arogfor- setinn Anddyrið í gamla stjórnarráðshús- inu skilur að skrifstofur forseta ís- lands og forsætisráðherra. Kun.iugir segja að ekki sjaldnar en einu sinni í viku fari dr. Gunnar Thoroddsen yfir anddyrið þvert og inn á skrifstofu frú Vigdísar, forseta íslands. Sitja þau á hjali æðistund, þegar þetta ber við. Fullyrt er að dr. Gunnar segi forsetanum það af gangi mála í þjóðlífinu sem henni má að gagni verða að vita um og honum stendur nær að þekkja til en forset- anum. Leitun er á fróðari mönnum en dr. Gunnari. og reynslu hefur hann flest- um meiri á sviði stjórnmála og þjóð- mála yfirleitt. Er sagt að forsætisráð- herrann sé aufúsugestur i skrifstofu forsetans. Það fylgir sögunni að ekki megi á milli sjá hvoru þyki meiri ánægja af viðræðum þessum. Björg Þorsteinsdóttir á vinnustofu sinni við Háaieitisbraut „Það verður örugglega erfitt að standa sig eins vel og BJamveig hefurgert" DB-myndSig. Þorri. Björg Þorsteinsdóttir myndlistarmaður tekur við forstöðu Ásgrímssafns um áramótin vinna við að koma upp yfirlitssýn- ingu Braga Ásgeirssonar að Kjarvals- stöðum á fimmtudaginn þegar DB kom þar að. Þarna mátti þekkja þekkta listamenn eins og Ágúst Petersen, Sigurð Sigurðsson, Haf- stein Austmann, Guðmund Benediktsson, Sigurð Örlygsson o.fl. Var hálft FÍM komið þangað til að styðja við bakið á Braga? „Við erum að dútla þetta, vinir hans og kunningjar,” sagði Hafsteinn Aust- mann. Myndir lágu út um allt húsið I hundraðatali: málverk, grafík, teikn- ingar, samsetningar ýmiss konar, nóg til að betrekkja veggi alveg upp i Loftið góða. Innan um verkin stóð Bragi sjálfur, þungt hugsi milli þess sem hann verkstýrði myndflutning- um. Við aðvifandi blaðamann sagði hann: ,,Ég er að stokka upp spilin, líta til baka. Slíkt gera listamenn gjarnan í útlöndum.” Verður þetta stærsta sýning sem haldin hefur verið að Kjarvalsstöðum? „Ætli myndirnar verði ekki hátt I 300, þær spanna 33 ára feril minn.” Verður ekki að fækka myndum?” Senni- lega,” svaraði Bragði. í þann mund kom einn eigandi með sina mynd. Bragi tók við henni, ögn raunalegur á svip. „Sjáðu,” sagði hann svo við blaðamann DB, „ég gef út sérprent af myndskreyt- ingu minni við Áfanga Jóns Helga- sonar í tilefni sýningarinnar. Þetta hefur aldrei verið gert áður hérlendis. Bókin með Ijóði og myndum kemur út hjá Helgafelli um leið og sýningin hefst.” Tókst Braga að koma upp sýning- unni? Gátu Kjarvalsstaðir hýst allar myndirnar? Um þetta geta menn gengið úr skugga með því að fara á staðinn en sýning Braga verður opin já límanum 14—22 næsta hálfa [mánuðinn. -AI. ERFITTAÐ FETAIFÓTSPOR BJARNVEIGAR — sem séð hefur um safnið frá stofnun þess „Það var leitað til mín og mér boðið þetta starf. Ég þurfti dálítinn umhugsunarfrest, en ákvað síðan að taka því,” sagði Björg Þorsteins- dóttir myndlistarmaður sem um ára- mótin tekur við forstöðu Ásgríms- safns af Bjarnveigu Bjarnadóttur, en hún hefur séð um safnið frá stofnun þess fyrir tuttugu árum. „Mér lízt mjög vel á að taka þetta starf að mér. Safnið hefur verið undir frábærri stjórn Bjarnveigar og það verður örugglega erfitt að standa sig eins vel og hún hefur gert. Bjarnveig hefur látið gera við og innramma verkin erlendis og hefur það verið frábærlega vel gert.” Björg Þorsteinsdóttir myndlistar- maður er fædd árið 1940, gift Ragnari Árnasyni og eiga þau eina dóttur Guðnýju, þá sömu og lék í Landi og sonum, 17 ára gamla. Björg tók stúdentspróf árið 1960 og snéri sér að myndlist eftir það. Hún er lærður teiknikennari frá Myndlista- BragiÁsgeirsson innan um myndir sinar. (DB-mynd Gunnar örn) og handíðaskólanum. Fór síðan í listaháskóla I Stuttgart. og í tvö ár nam hún í París sem styrkþegi frönsku ríkisstjórnarinnar. Þá hefur Björg einnig starfað mikið að félagsmálum myndlistar- manna.Tetið í stjórn félagsins íslenzk grafík og félags FÍM og verið meðlimur í ráði Norrænu myndlista- miðstöðvarinnar í Finnlandi. Hún hefur haldið sex einkasýn- ingar og tekið þátt í 200—300 sam- sýningum. Björg hefur einnig kennt í Myndlista- og handíðaskólanum. „Ég hef ekki hugsað nákvæmlega hvernig ég muni haga starfinu við safnið. Það kemur þegar ég er byrjuð,” segir hún ennfremur. „Það er mjög skemmtilegt að koma inn á heimili listamannsins þar sem maður finnur hlýlegt og þægilegt andrúms- loftiðsem þarer.” ELA. FÓLK

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.