Dagblaðið - 20.10.1980, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980.
Þarna fauk tyggigúmmíiö og vakti mikla hrifningu. Hér er greinarhöfundur, Kristinn Snæland, I hópi æsku Sovétrikjanna.
fi • '
menn eftir fulltrúa frá friversluninni,
en hann kemur að skipshlið og flytur
mann í svartri station Volgu að frí-
versluninni. Þegar í fríverslunina er
komið, þá skal það játað að hún
minnir mann helst á verslun lítils
einokunarkaupmanns uppi á hinu ísi
kalda landi.
Sumir vildu líkja versluninni við
sum gömlu kaupfélögin sem mér datt
vitanlega ekki í hug sem góðum
framsóknarmanni. Nú, nú, í
þessari verslun fékkst svo ýmislegt
sem augað girntist, skemmtilegir
sovéskir minjagripir, dúkkur í
sovéskum búningum, skinnavara,
trémunir handunnir á sovéska vísu,
Vodka, kampavín og kavíar og loks
má nefna guilfallegt postulín. Þegar
búið er að versla í fríhöfninni, en það
verður að greiða allt með hörðum
gjaldeyri. Rúblur vilja þeir ekki sjá í
fríversluninni. Að loknu fríverslunar-
stússinu er okkur ekið aftur í svarta
Volgubilnum niður að skipshlið, og
við löggum um borð með kampavin,
kavíar og postulín. Eftir hádegi
göngum við frjálsir í land en höfum
þó vit á að fela Instamatik vélina frá
Kodak innan klæða. Myndavélar eru
taldar óæskilegur hlutur í Sovét
a.m.k. á hafnarsvæðinu. Hvers
vegna? Æ, ætli járnbrautarkonurnar
séu ekki einhver feluhlutur?
Leifar keisara-
dæmisins komnar
aðfalli
Ég geng upp landganginn með
instamatikvélina djúpt í frakkavas-
anum, enn hefur ekki veriö leitað á
okkur, þó við megum ekki gefa rúss-
neskum hundi að éta. Ég hef utan
myndavélarinnar í vasanum fimm
pakka af amerísku tyggigúmmíi, það
kvað vera ein besta verslunarvara í
sovét. Ég er ekki kaupmaður en hef
þetta með svona hinsegin. Ég hef
verið varaður við: Lögregla eða her-
menn brjálast ef tekin er mynd innan
hafnarsvæðisins. Ég geng frá höfn-
inni inn í plássið, hvarvetna á vegi
mínum verða fyrir skakkar og
skældar götur og vegir, teinar kran-
anna við höfnina eru undnir og
snúnir, gömlu timburhúsin eru mörg
hver skökk og snúin, en samt er búið í
þeim. Að degi til í Arkangelsk eru
það einkum sóðaskapur og hirðu-
leysi, sem sker í augun: skakkar
götur, timburgangstéttar (ramm-
skakkar á köflum) óhirtar lóðir og
skökk og skæld hús frá keisaratímun-
um.
Er til skýring?
Kannski er skýringin sú að Arkan-
gelsk er byggð á freðmýri.
Jarðvegurinn er allur meira og minna
á hreyfingu. Eldri húsin eru byggð
ofan á klakalaginu. Því verður áhorf-
andinn að taka tillit til þeirrar erfiðu
baráttu sem íbúar Arkangelsk eiga
við frost og heljarkulda freömýr-
anna. Sýnilegt er að Lenin og læri-
sveinar hans hafa náð tökum á freð-
mýrinni, öll nýleg hús og byggingar í
Arkangelsk eru byggð á undirstöðum
sem ná niður fyrir frost.
Áður en lokið er timburkaupsferð
til Arkangelsk skal enn sagt frá þvi að
fólkið í þessum kaupstað sýndi
íslenskum farmönnum mikla
vinsemd, þegar við mættum á
skemmti- eða dansstöðum í borginni.
Þá fengum við forgang inn á dans
eða skemmtistaði, stórlega borða-
lagðir hermenn úr hinum mikla
svoéska her, voru látnir biða en sjó-
menn af tslandi voru teknir beint inn.
- K.Sn.
Nýju blokkirnar eru myndarlegar, en lóðirnar sitja á hakanum. Blokkin sem
byggð var á 60 ára afmæli byltingarínnar er veglegt hús, svo sem vera ber um
minnismerki.
,23
VANTAL. FRAMRUÐU?
fTT
Ath. hvort við getum aðstoðað.
VííéSi^ Isetningar á staðnum.
BÍLRÚÐAN aSH-
AUGLÝSING
Tilkynning:
Vekjum athygli viðskiptavina okkar á því að vörur sem
liggja í vörugeymslum okkar eru ekki tryggðar af Eimskip
gegn bruna, frosti eða öðrum skemmdum og liggja þar á
ábyrgð vörueigenda.
Athygli bifreiðainnflytjenda er vakin á því að hafa frostlög
i kælivatni bifreiðanna.
Simi 27100.
*
VERKFRÆÐINGAR
TÆKNIFRÆÐINGAR
Rafmagnsveita Reykjavíkur vill ráða raforku-verkfræðing
'eða tæknifræðing til starfa við áætlanagerð fyrir raforku-
virki.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá starfs-
mannastjóra, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu. Umsóknar-
frestur er til 28. október 1980.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
NORRÆNA HÚSID
Prófessor Mogens Bröndsted heldur erindi í Nor-
ræna húsinu mánudag 20. október kl. 20.30 og
nefnir: „Villy Sörensen og hans historiesyn”.
Verið velkomin
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 — SÍmi 15105
[SANDBLASTUR hf[
MELABRAUT 20 HVAIEYRARHOITI HAFNARFIRDI 4
TIMBUR - HÚSGÖGN
Sandblásum timbur, hurðir, húsgögn og fleira.
[539171
KARLMENN
eldri en 25 ára óskast til að leika í kvik-
myndinni ÚTLAGANUM sem kvik-
mynduð verður næsta vor.
Uppl. isima 19960.
ISFILM