Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.10.1980, Qupperneq 35

Dagblaðið - 20.10.1980, Qupperneq 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1980. ð Utvarp 35 Sjónvarp LÖG UNGA FÓLKSINS - útvarp kl. 20,40: FLESTIR BIÐJA UM RÖGGU OG BJÖGGA Hildur Eiriksdóttir að störfum hjá tónlistardeildinni. Hún sér um að gera skil á lagaflutningi til STEFS. Hildur Eiríksdóttir hefur nú verið umsjónarmaður Laga unga fólksins um nokkurt skeið, eða frá því Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir hætti eftir fjölda ára kveðjulestur i þættin- um. Hildur hefur starfaö á tónlistar- deild útvarpsins i fimm ár og þegar Ásta hætti sótti hún um starfíð. Hildur er 33 ára og fyrir utan að gera skil á lagaflutningi til STEFs, Sambands tónskálda og figenda flutningsréttar, er hún bara venjtileg húsmóðir. Þó Hildur hafi starfað fijá tónlsitardeildinni öll þessi ár hefur hún aldrei áður verið með þátt i'út- varpinu. ,,Mér finnst gaman að þessu,” sagði hún í samtali við DB. „Fyrir þáttinn i kvöld hafa borizt um 100 bréf og langflesdr biðja um Ragn- hildi Gísladóttur og Björgvin Hall- dórsson á plötunni Dagar og nætur. Nei, það er ekki nokkur leið að lesa allar kveðjurnar sem berast, ætli helmingurinn fari ekki í ruslafötuna. Ég gæti trúað að það væru á milli 40 og 50 kveðjur sem ég get lesið. Þær kveðjur sem ekki komast í þáttinn í kvöld get ég því miður ekki lesið í næsta þætti því þá yrði þátturinn ekkert nema lestur.” — Er mikil vinna við undirbúning þáttarins? „Já, það er heilmikil vinna. Ég þarf að fara yfir öll bréfin og finna lögin sem leikin eru. Þátturinn er siðan tekinn upp sama dag og hann er fluttur,” sagði Hildur Eiríksdóttir. - ELA HLUSTAÐU A 0RD MÍN - sjónvarp kl. 21,15: Afram stelpur „Sé eitthvað sem tengir þáttinn saman er það helzt staða konunnar — frá syndafallinu í paradís og allar götur síðan,” sagði Guðni Kolbeins- son um hálftíma langan söngvaþátt sem fluttur verður í sjónvarpinu í kvöld. Þar koma fram tvær norskar stúlkur, Jannik Bonnevie og Hege Tunaal, og flytja kvæði eftir ýmsa höfunda um konur af öllu tagi. Stundum er það þreytta húsmóðirin sem er heima, stundum unga stúlkan sem ekki fær tækifæri til jafns við bróður sinn. Og þarna verður flutt hið þekkta ljóð Bertolds Brechts um stúlkuna sem aldrei getur gleymt kvennagullinu honum Surabaya- Johnny sem sveik hana í tryggðum. „Það var gaman að fást við þetta sem þýðingarverkefni,” sagði Guðni, sem áður hefur þýtt sönglagatexta fyrir sjónvarpið. Þannig þýddi hann til dæmis tónleika írsku þjóðlaga- hljómsveitarinnar Wolftones sem hingað kom á listahátíð i vor. „En það fer ekki milli mála að stúlkurnar eru rauðsokkur og þeim er alvara í hug þótt þær noti kabarettformið.” Það er nú svo með rauðsokkur að þær skemmta sumum, hneyksla marga en hrista upp í öllum, svo það hlýtur að vera óhætt að mæla með þessumþætti. -IHH Þetta virðist vera norsk útgáfa af Skröltklónni (Clapparclaw), enska kvennahópnum sem skemmti i Reykjavík í siðasta mánuði MATTANZA - sjónvarp kl. 21,55: Túnfisksstofninn talinn f hættu —vegna rányrkju við strendur Sikileyjar — Brezk heimildarmynd íkvöld Mattanza nefnist brezk heimildar- mynd sem sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 21.55. „Myndin fjallar um stórfiska- dráp,” sagði Bogi Arnar Finnbogason er viö spurðumst fyrir um efni myndar- innar, „veiðar á túnfiski vestan Sikil- eyjar. Túnfiskveiðar eru stundaðar um allan heim, oft á stöng, og þykir fínt sport enda aðeins á færi efnamanna,” sagði Bogi Arnar. Túnfiskur er stærsd beinfiskur sem til er, getur orðið allt að hálft tonn á þyngd. Getur hann auðveldlega rotað og jafnvel drepið mann ef hann kemur á hann höggi. „Myndin gengur út á veiöar og sýnir m.a. fiskimenn við veiðar. Þeir króa fiskinn af í torfu og höggva i hann með krókstjökum og goggum sem eru notaðir til að ná fiskinum úr netun- um,” sagði Bogi. „Veiðarnar eru stundaðar einu sinni á ári. Nú hafa þær dregizt mikið saman á Sikiley þar sem túnfiskur hefur verið veiddur í fimm hundruð ár. Er ástæðan talin vera rán- yrkja og er nú svo komið að stofninn er í hættu,” sagði Bogi Arnar. - ELA Þessi mynd sem er frá Sikiley sýnir vel það sem einkennlr staðinn, þvottur milli húsa og á svölum, pottablóm á veggjum og húsmæðurnar hifa vörur upp í körfum. í fimm hundruð ár hafa Sikileyingar veitt túnfisk en nú virðist stofninn vera i hættu vegna rányrkju. Um það fjallar heimildarmyndin i kvöld. ÍÞRÓTTIR—sjónvarp kl. 20,40: Reyniaö vekjaáhuga þeirrasem ekki iðka iþróttir — segir Jón B. Stefánsson „Það er ýmislegt sern liggur fyrir um efni þáttarins en þar sem ég er ekki ennþá búinn að vinna hann gætu hugmyndirnar breylzt á sfðustu stundu,” sagði Jón B. Stefánsson umsjónarmaður iþróttaþáttarins i sjónvarpi í kvöld. „Það sem ég er með á döfinni núna er aö sýna mynd af siglingakeppni um ameríska bikarinn. öskjuhlíðar- hlaupið á laugardag veröur tekið fyrir og Tropicana júdómótið í gær. Siðan ætla ég að sýna eitthvað frá 1. deildarliðinu í handknattleik kvenna, ef það verður hægt sökum samn- inga,” sagði Jón. Þá ætlar hann að minna skíðaunnendur á að snjórinn og skíðafæriö nálgast og kominn er tími til aö pússa skíðin. Um leiö sýnir hann mynd frá Óiafsfirði þar sem skiðaáhugi er kominn i mannskap- inn. Aö lokum ræðir hann við Stefán Kristjánsson íþróttafulltrúa, ef aö likum lætur, um hugsanlegar fram- kvæmdir í Bláfjöllum í vetur. Eins og þeir hafa tekið eftir sem horft hafa á þætti Jóns kemur hann víða við. „Það er einmitt ætiun min að koma víða við og reyna að vekja áhuga þeirra sem engar íþróttir iöka.” Sjálfur segist Jón vera dug- legur við aö stunda iþróttir, hvort sem það heitir sund, hlaup, fótbolti eða eitthvað annað. Á milli þess situr hann sem félagsmálastjóri á Selfossi þar sem hann býr. • ELA Skiðafærið nálgast og timi er til kom- inn að taka fram skiðin og pússa. Á það ætlar Jón B. Stefánsson að minna okkar f iþróttaþættinum i kvöld og kannað verður hvað liður fyrirhuguðum framkvæmdum i Biá- fjöllum i vetur en þar er þessi mynd tekin. föQMVJÐ ORUGG ÍUMFERÐINNI? Kaupfélag Hafnfirðinga Umferðarráð,Klúbburinn Öruggur akstur Hafnar- firði, Slysavarnarfélag Islands og Lögreglan Hafnarfiröi gangast fyrir umferðarfræðslu í verslunarmiðstöðinni Miövangi dagana 20 - 30. þ. m. DAGSKRÁ: 1. Mánud.20.október. Umferðarráó: Notkun endurskinsmerkja og barnið í umferóinni kl.16.00 og 17.15. 2. Mióvikud.22.okt. Klúbburinn Öruggur akstur Hafnarfirði: Notkun bílbelta og vetrar- akstur. kl.16.00 og 17.15. 3. Þriðjud. 28.okt.Slysavamar- félag Islands: Slysahjálp. kl.16.OOog 17.15. 4. Fimmtud.30.okt. Lögreglan Hafnarfirði: Umhverfi búó- arinnar og bestu öku- og gönguleiðir kl.16.00 og 17.15. U mmm VERSUJNARMIÐSIÖÐ NWVANGI41

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.