Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 25.10.1980, Qupperneq 6

Dagblaðið - 25.10.1980, Qupperneq 6
6 r DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980. * FundurstarfsfólksFædingarheimilisins með borgarstjóraogborgarfulltrúa: „Einungis blekkingarfundur —segir Hulda Jensdóttir forstöðumaður Fæðingarheimilis Reykjavíkurborgar „Ég verð að segja það eins og er að þessi fundur okkar meöborgarstjóra og borgarfulltrúa var í einu orði sagt blekkingarfundur. Adda Bára Sigfús- dóttir lagði mikla áherzlu á að starfs- fólkið hér fengi aö halda áfram sínu starfi. Við vitum hins vegar betur, þetta er blekking,” sagði Hulda Jens- dóttir forstöðukona Fæðingarheim- ilis Reykjavíkur er hún var innt eftir þvi hvað fram hefði farið á fundi borgarstjóra og borgarfulltrúa með starfsfólki á Fæðingarheimilinu. „Við vitum það hér og höfum frétt það eftir áreiðanlegum heimildum að hugmyndin sé sú að leggja eigi niður fæðingarhjálp á heimilinu og að þar verði einhvers konar sængurkvenna- gangur. Starfsfólkið hér mun aldrei fá sömu vinnu og það hefur verið í og sömuleiðis er óvíst hvort það heldur áfram hér. Þeir reyna að kenna um fjárhags- erfiðleikum, en ástæðan er alls ekki sú. Daggjaldanefnd sem greiða á hallann af Fæðingarheimili Reykja- víkur hefur ekki gert það. Það var fyrir löngu búið að boða okkur á þennan fund, en á síðustu stundu var allt í einu sagt að starfsfólkið ætti ekki að mæta, aðeins ég og yfirlækn- ir. Ég neitaði þessu þar sem ég hafði boðað það starfsfólk sem vildi koma að mæta á fundinn, enda varð hann mjög fjörugur.” -ELA. Sigurjón Pétursson forseti borgarstjómar: ÆTIAJM AÐEINS AÐ LOSNA UNDAN BYRDI Fædingarstofa Fæðingarheimilis Reykjavikur. Vafasamt er hvort tekið verði á móti fleiri börnum þar í framtíðinni.... með því að selja Fæðingarheimilið „Þessi sala á Fæðingarheimili Reykjavíkur hefur verið rædd i borgarráði og á sjúkrastofnunum ítarlega. Þetta vandamál hefur verið lengi á döfinni. Þegar nýja fæðingar- deildin tók til starfa dró verulega úr nýtingu á Fæðingarheimili Reykja- vikur. Fæðingarheimilið er rekið af daggjaldanefnd sem setur ákveðnar kröfur um nýtingu á rúmum. Undan- farin ár hefur Reykjavík þurft að greiða hallann af rekstrinum þar sem um vannýtingu hefur verið að ræða,” sagði Sigurjón Pétursson for- seti borgarstjórnar. „Við ætlum nteð þessari sölu aðeins að færa hallareksturinn yfir á ríkið og losna þannig undan þessari byrði. Það hafa verið ákveðin tengsl á milli fæðingardeildar Landspítal- Sigurjón Pétursson forseti borgar- stjórnar. ans og Fæðingarheimilis Reykjavíkur og þess vegna þykir rétl að sameina reksturinn. Á sínum tíma var rætt um að breyta Fæðingarheimilinu í stofnun fyrir aldraða en það fékkst ekki í gegn. Ég er hlynntur þessari breyt- ingu. Að vísu hefur orðið fjölgun á fæðingum á þessu ári og á því síðasta, en það hefur ekki verið endanlega rætt um skipulagningu á starfsemi Fæðingarheimilisins. Hvernig rekstrinum verður háttað verður Landspítalans að ráða. Ef konur eru almennt á móti því að fæðingarhjálp verði lögð niður á Fæðingarheimilinu þá máalltaf ræða það mál. Ég veit ekki um neina kröfu sem komið hefur um að breyta rekstrinum enda er það ekki mitt mál. Við erum með þessu aðeins að losa Reykvíkinga við byrði og setja hana áalla landsmenn. -ELA. ... i staðinn fæði konur börn sin hér á fæðingardeild Landspftalans. Stórskaði ef Fæðingarheimilið verður selt ríkinu: r KAUPVERD ALLT OF LITIÐ — þó það sé ekki aðalatriðið, segirDavíðOddsson borgarfulltníi „Á þessum fundi var margt rætt, aðdragandinn að því að selja Fæðingarheimili Reykjavíkur oe hvernig reksturinn myndi verða el al sölu yrði. Þetta voru mjög opinskáar umræður. Starfsfólkið allt virtist mjög óánægl og talaði skýrt og vel unt það. Frá hálfu borgaryfirvalda var rætt um það atriði að ennþá stendur til að selja ríkinu heimilið. Mér finnst með öðrum orðum að ríkið sé að svæla stofnunina undan borginni,” segir Davíð Oddsson borgarfulltrúi sem var meðal þeirra sem sátu fund með starfsfólki Fæðingarheimilisins í fyrradag. „Fæðingarheimilið mun vera eina af því sem á vantar í nýtingu. Það stofnunin sem ekki er greiddur halli verður stórkostlegur skaði ef þessi breyting verður. Konur eiga að geta valið hvort þær fæði börn sin á stofnun sem er því sem næst gjörgæzla eða á heimilislegri stofnun. Aðdragandi þessa máls er allur hinn furðulegasti. Kaupsamningur var allt í einu kominn inn á borð hjá borgarmönnum undirritaður af tveimur ráðherrum og hagsýslustjóra <c Davíö Oddson borgarfulltrúi. ríkisins. Kaupverðið er líka undarlegt innan við 500 milljónir fyrir 1200 fermetra húsnæði. Það sjá allir að það er allt of lítið verð sem þó er ekki aðalatriði þessa máls. Ég mun berjast gegn þessari breytingu í borgarráði og ég vona að fleiri geri það einnig.” -ELA. / Eldra messuform tekið upp á ný —Kirkjuþing fjallar um nýja handbók kirkjunnar „Alþingismenn mættu minnast þess, að forfeður okkar skipuðu trúarlega löggjöf 1 fyrsta sæti,” sagði Friðjón Þórðarson, kirkjuntála- ráðherra í ræðu er hann flutti við setningu Kirkjuþings í Hallgrtms- kirkju í gær. Kom Friðjón þar inn á atriði scm kirkjuþingsmenn hafa lengi verið mjög óánægðir með, þ.e. hversu mál sem Kirkjuþing hcfur af- greitt, hafa átt erfitt uppdráttar á Alþingi. • Sjálfur er Friðjón Þóröarson gamalreyndur kirkjuþingsmaðu'r. í setningarræöu sinni vakti herra Sigurbjörn Einarsson biskup athygli á því, aö Friðjón hefði sérstöðu meðal kirkjumálaráðherra í því að hann hefði setið á Kirkjuþingi sem kjörinn kirkjuþingsmaður. „Hann er reyndur af góðvild í garð kirkjunnar,” sagði biskup um Friðjón. Viðstaddir setningu Kirkju- þings var einnig dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra og kona hans, frú Vala Thoroddsen. Aðalmál þingsins að þessu sinni verður frumvarp að nýrri handbók kirkjunnar sem santþykkt var á Prestastefnunni I vor. Kirkjuþing mun starfa um tveggja vikna skeið og er Hallgrímskirkja þinghús þess. Sr. Trausti Pétursson prófastur predikaði við setningu þingsins en kór Langholtskirkju leiddi söng og fylgdi þar hinum nýju tillögum að messuformi. Helzta breytingin á formi messunnar samkvæmt frumvarpinu er að teknir eru upp aftur þættir sem felldir voru niður á siðustu öldum. -GAJ. Fáskrúðsfjörður: Sfldin eins og happdrættisvinningur Tuttugu þúsundasta tunnan var stöltuð á síldarsöltunarstöðinni Pólar- síld á Fáskrúðsfirði um kaffileytið í gær. Bergur Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri bauð öllu starfsfólki stöðvarinnar kók og súkkulaði í tilefni þessa áfanga. Pólar-síld er eina söltunarstöðin á staðnum. Hefur þar verið uppgripavinna, „eins og happdrættisvinningur”, segja menn þarna fyrir austan. Allt niður í 14—15 ára skólabörn hafa tekið til hendinni í sildarvinnunni. Fengu þau sum hver um 150 þúsund krónur fyrir vikuna útborgað í gær, án þess þó að hafa sleppt úr degi í skólanum. Ekki er alveg laust við að menn kvíði nýjum, óvæntum tilskipunum um söltun innanhúss við upphitun, hvernig sem viðrar. Óttast menn, að Tunnustaflarnir stækka óðum á Aust- fjörðum. DB-mynd: Emil, Eskifirði. með þessu sé verið að beina síldinni til stöltunarstöðva fyrir sunnan, án þess að bein nauðsyn þyki hér til þessa fyrirkomulags, nema því sé beitt af varúð og gætni. -Ægir/BS.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.