Dagblaðið - 25.10.1980, Page 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980.
I
litvarp
Sjónvarp
25
i
Enskir riddarar
í Holly woodstíl
Bíómynd sjónvarpsins i kvöld ætti
að vera vel þess virði að horfa á hana.
Nógu dýr var hún i það minnsta í
framleiðslu, kostaði 15 milljónir
dollara árið 1976. Á gengi íslenzku
krónunnar í dag væru þetta um 9
milljarðar ef ferðamenn ættu að greiða
upphæðina. Fyrir tíma Stjörnustríða
þótti þetta álitleg upphæð, jafnvel í
Hollywood.
En myndin hefur fleira sér til á-
gætis. í henni leika þeir ágætu leikarar
Richard Harris og Vanessa Redgrave
aðalhlutverkin. Myndin er um Arthúr
konung, drottningu hans og hina
hraustu riddara hringborðsins. Myndin
ber nafnið Camelot eftir sögu T.H.
White, sem upphaflega var gerð um
þetta fólk. Þeir Lerner og Loewe gerðu
síðar söngleik eftir bókinni og var sá
sýndur á Broadway við miklar
vinsældir.
Þá er næstan að nefna til sögunnar
Joshua Logan leikstjóra sem fékk
Redgrave og Harris til liðs við sig og
Þorgeir grípur til örþrifaráða
Á morgun kl. 16.20 verður flutt
framhaldsleikritið Leysing, sem
Gunnar M. Magnúss færði í leikbúning
eftir sögu Jóns Trausta. Að þessu sinni
er fluttur 4. þáttur: „Ráðstefnur”.
Leikstjóri er Benedikt Árnason, en
meðal leikenda má nefna Jón Sigur-
björnsson, Klemenz Jónsson, Þórhall
Sigurðsson og Þráin Karlsson.
Flutningstími er 59 mínútur, og tækni-
menn eru Hreinn Valdimarsson og
Georg Magnússon.
í 3. þætti sagði frá því að Þorgeir
faktor ætlar að koma Einari í Bælinu
úr landi með norsku skipi. En Einar
hrapar til dauðs í sjávarhömrum á leið
til skips, og Þorgeir gripur til örþrifa-
ráða, sem þó kunna að duga skammt
þegar til lengdar lætur.
í 4. þætti erum við leidd inn á fund
í barnaskólahúsinu í Voga-
búðakaupstað, þar sem m.a. er lagt
fram bréf frá Þorgeiri faktor. Ragna
dóttir Þorgeirs og Friðrik sonur
Sigurðar hreppstjóra eru að draga sig
saman og er hreppstjórinn ekkerl
hrifinn af þeim tengdum.
Róbert Arnfínnsson leikur Þorgeir
faktor sem lætur Einar i Bælinu brenna
niður verzlun keppinauta sinna.
DB-nynd E.Ó.
LEYSING — útvarp á morgun kl. 16,20:
bjó til kvikmyndina. Hann breytti
söngleiknum örlítið, svo hann hentaði
betur hvíta tjaldinu og felldi hann að
Hollywood-stílnum. Brezku leikararnir
voru hins vegar fengnir að til þess að
ekki gleymdist með öllu hvaðan sagan
er upprunnin. Það hefði komið hálf-
asnalega út að leikarar með sterkum
Texas-hreim, til dæmis, lékju miðalda
Englendinga.
Myndin fær góða dóma í kvik-
myndahandbókinni okkar, þrjár
stjörnur af fjórum mögulegum. Sérlega
þó þau Richard Harris og Vanessa
Redgrave fyrir góðan leik. Þó mönnum
kunni að þykja það furðulegt er þess
getið að Richard Harrissyngi sjálfur
þau lög, sem Arthúr konungur er látinn
raula.
-DS.
Hinir hraustu riddarar hringborðsins með Arthúr konung i hásæti.
CAMELOT—sjónvarp f kvöld kl. 21,25:
Laugardagur
25. október
Fyrsti vatrardagur
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tón-
leikar.
7.10 LeikFimi. 7.20 Bæn.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). (8.15 Veðurfregnir).
Dagskrá.
8.30 Norðurlandamótið í hand-
knattleik i Noregi. Hermann
Gunnarsson lýsir frá Elverum
siðari hálfleik í keppni íslendinga
og Dana (beint útvarp).
9.10 Frétlir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Óskalög sjúklinga: Ása
Finnsdóttir kynnir. (10.00 Frétt-
ir. 10.10 Veðurfregnir).
11.20 Eyjan græna. Gunnvör
Braga stjórnar barnatíma, rifjar
upp tónlist og sitthvað fleira frá
írlandi. Einnig les Hjalti Rögn-
valdsson írska ævintýrið „Tvo
kappa” i endursögn Alans
Bouchers og þýðingu Helga
Hálfdanarsonar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 I vikulokin. Umsjónarmenn,
— tveir syðra: Ásdís Skúladóttir
og Óli H. Þórðarson, — og tveir
fyrir norðan: Áskell Þórisson og
Björn Arnviðarson.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Tónllstarrabb; — III. Atli
Heimir Sveinsson fjallar um Dia-
belli-tilbrigðin eftir Beethoven.
17.20 „Vetrarævintýri um Himin-
kljúf og Skýskegg” eftir Zacha-
rias Topelius. Sigurjón Guðjóns-
son íslenzkaði. Jónína H. Jóns-
dóttir les.
17.40 Söngvar i léttum dúr. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Frétiir. Tilkynningar.
19.25 „Heimur í hnotskurn”, saga
eftir Giovanni Guareschi.
Andrés Björnsson islenzkaði.
Gunnar Eyjólfsson leikari les (5).
20.00 Hlöðuball. Jónatan Garðars-
son kynnir ameriska kúreka- og
sveitasöngva.
20.30 Vetrarvaka. a. Á öræfaslóð-
um. Hallgrímur Jónasson rithöf-
undur flytur fyrsta ferðaþátt sinn
frá liðnu sumri: Kjölur og Hofs-
afrétt. b. Ljóð eftir Jóhannes úi
Kötlum. Torfi Jónsson les út
bókunum „Tregaslag” og „Nýj-
um og niðum”.
21.35 Fjórir plltar frá Liverpooi.
Þorgeir Ástvaldsson rekur feril
Bítlanna — The Beatles; — ann-
ar þáttur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Hetjur á
dauðastund” eftir Dagfinn
Hauge. Ástráður Sigursteindórs-
son les þýðingu sína (5).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir.
01.00 Veðurfregnir).
02.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
26. október
8.00 Morgunandakt. Séra Pétur
Sigurgeirsson vígslubiskup flytur
ritningarorðog bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugrein-
ar dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Hljóm-
sveit Eduards Melkus leikur
gamla dansa frá Vinarborg.
9.00 Morguntónleikar. a Kon-
sert í d-moll fyrir trompet og
orgel eftir Tommaso Aibinoni.
10.25 Erindaflokkur um veður-
fræði; — sjötta erindi. Adda
Bára Sigfúsdóttir talar um
veðráttuna.
10.50 Tríósónala i a-moll eftir
Johann Christoph Pepusch.
Susanna Lautenbacher lcikur á
fiðlu, Johannes Koch á viólu da
gamba, Hugo Ruf á sembal og
Heinrich Haferland á víólu da
gamba.
11.00 Messa í safnaðarheimili
Langholtskirkju. Prestur: Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson.
Organleikari: Jón Stefánsson.
12.10 Dagskráin.Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Spaugað í ísrael. Róbert
Arnfinnsson leikari les
kímnisögur eftir Efraim Kishon í
þýðingu Ingibjargar Bergþórs-
dóttur (19).
14.00 Miðdegistónleikar: Frá
samsöng karlakórsins Fóst-
bræðra i Austurbæjarbíói i
apríl i vor. Söngstjóri: Ragnar
Björnsson.. Einsöngvarar:
Kristján Ámason og Magnús
Guðmundsson. Hljóðfæraleik-
arar: Guðrún Kristinsdóttir,
Kristján Þ. Stephensen, Sigurður
I. Snorrason, Sigurður Markús-
son og Stefán Þ. Stephensen.
15.00 Staldrað við á Hellu. Jónas
Jónasson gerði þar nokkra dag-
skrárþætti í júni í sumar. 1
fjórða þætti talar hann við hjón-
in Sigurð Karlsson og Oldu
Ólafsdóttur, og skroppið er á
fund séra Stefáns Lárussonar
í Odda.
15.50 Inlroduction og Kondo
capriccioso eftir Saint-Saéns.
Eric Friedman og Sinfóníu-
hljómsveitin í Chicago leika:
Walter Hendl stj.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 „Leysing", framhaldsleikril
í 6. þáttum. Gunnar M.
Magnúss færði i leikbúning eftir
samnefndri sögu Jóns Trausta.
Leikstjóri: Benedikt Árnason. 4.
þáttur: Ráöstefnur. Persónur og
leikendur: Þorgeir faktor-Róbert
Arnfinnson, Sveinbjörn í Selja-
tungu — Jón Sigurbjörnsson.
Sigurður hreppstjóri-Klemenz
Jónsson, Friðrik kaupmaður-
Þórhallur Sigurðsson, Grímur-
Þráinn Karlsson, Torfi-Júlíus
Brjánsson, Helgi — Jón
Hjartarson, Sögumaður-Helga
Bachmann. Aðrir leikendur:
Guðmundur Pálsson, Gunnar
Eyjólfsson, Herdís Þorvalds-
dónir, Margrét Ólafsdóttir,
Sigríður Hagalin, Sigurveig
Jónsdóttir og Steindór Hjörleifs-
son.
17.20 Norðurlandamótið i hand-
knattleik i Noregi. Hermann
Gunnarsson lýsir frá Kongs-
vinger keppni íslendinga og
Norðmanna (hljóðritað skömmu
fyrr).
17.40 AKBRAKADABRA, —
þáttur um tóna og hljóð.
Umsjón: Bergljót Jónsdóttir og
Karólína Eiriksdóttir. Til-
kynningar.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Alþingi að tjaldabaki. Bcne-
dikt Gröndal alþingismaður
flytur annað erindi sitt af
fjórum.
20.00 Harmonikuþátlur. Högni
Jónsson kynnir.
20.30 Marstrand og sagan um
Larsa-Maju. Gisli Helgason
tekur saman þátt um „djöfla-
eyju” Svía. Sigrún Benedikts-
dóttir aðstoðar.
21.00 Frá tónlistarhátíðinni i
Dubrovnik i Júgóslaviu í fyrra.
Rudolf Firkusny leikur á píanó:
a. „i mistrinu”, fjögur pianólög
eftir Leos Janácek. b. Noktúrnu
i H-dúr op. 9 nr. 3 — og c.
Scherzo nr. 2 í b-moll op. 31 eftir
Fréderic Chopin.
21.30 Rökljóð — Ijóðrök. Slefán
Snævarr les frumort Ijóð,
i prentuð og óprentuð. Lesari meö
honum: Ragnheiður Linnet.
21.50 Að tafli. Guðmundur
Arnlaugsson flytur skákþátt.
22.15 Vcðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morfeundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Hctjur á
dauðastund” eftir Dagfinn
Hauge. Ástráður Sigurstein-
dórsson les þýðingu sina (6).
23.00 Nýjar plötur og gamiar.
Gunnar Blöndal kynnir tónlist og
tónlistarmenn.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
^ Sjónvarp
Laugardagur
25. október
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Lassie. Bandarískur mynda-
flokkur. Annar þáttur. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knatlspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttirog veður.
'20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.35 Löður. Gamanmyndaflokk-
ur. Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
21.00 Kaktus. Hljómsveitin
Kaktus flytur frumsamin lög.
Árni Áskelsson, Guömundur
Benediktsson, Helgi E.
Kristjánsson og Ólafur Þórarins-
son skipa hljómsveitina. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.25 Camelot. Bandarisk bíó-
mynd frá árinu 1967, byggð á
samnefndum söngleik eftir
Lerner og Loewe. Leikstjóri
Joshua Logan. Aðalhlutverk
Richard Harris, Vanessa Red-
grave og David Hemmings.
Myndin fjallar um Arthúr kong-
ung. droltningu hans og hina
hugprúðu riddara hringborðsins.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
00.15 Dagskrárlok.
Sunnudagur
26. október
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Páimi Matthiasson, sóknarprest-
ur i Melstaðarprestakalli, flytur
hugvekjuna.
18.10 Stundin okkar. Að þessu
sinni verður fjallað urn tann-
skemmdir og tannhirðu. Binni
fer til tannlæknis, og endursýnt
verður leikritið Karius og Bakfus
eftir Thorbjörn Egner, en það
var síðast á dagskrá í apríl 1977.
Blámann og Barbapabbi eru i
þættinum. Umsjónarmaöur
Bryndis Schram. Stjórn upptöku
Tage Anunendrup.
19.10 Hlé.
20.00 Fréttirog veður.
20.35 Auglýsingarogdagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku Kynn-
ing á helstu dagskrárliðum Sjón-
varpsins.
20.45 Dýrin mín stór og smá.
Tólfti þáttur. Andstreymi lifs-
ins. Efni ellefta þáttar: Séra
Blenkinsopp vill fá James til að
segja nokkur orð við börnin i
æskulýðsklúbl i staðarins.
James veit ckken um hvaö hann
á að tala, en Siegfried kernur
honum til hjálpar. Alice
McTavish missir föður sinn og
hcimsækir Tristan öðru sinni.
Hannvill óðurog uppvægurgift-
ast henni, en henni finnst tíminn
óhentugur, nú þegar strið er yfir-
vofandi. Ekki gengur betur hjá
James. Hann kemst i kast við
grimman hund, og óþæg gylta
verður þess valdandi að hann
kemur of seint í æskulýösklúbb-
inn. Þar dynja á honum spurn-
ingar, sem hann á fullt i fangi
með að svara. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
21.40 Vandarhögg. Sjónvarpsleik-
rit eftir Jökul Jakobsson. Frum-
sýnlng. Kvikmyndagerð og leik-
stjórn Hrafn Gunnlaugsson.
Aðalhlutverk Benedikt Árnason,
Björg Jónsdóttir, Bryndís
Pétursdóttir og Árni Pétur
Guðjónsson. Kvikmyndataka
Sigurliði Guðmundsson. Hljóð-
upptaka Jón Arason. Leikmynd
Einar Þ. Ásgeirsson. Frægur
Ijósmyndari, Lárus, kemur heim
til Islands til að vera við útför
móður sinnar. Með honum
kemur Rós, eiginkona hans, sem
er meira en tuttugu árum yngri
en hann. Við heimkomuna rifjast
upp atriði úr æsku Lárusar, og
eiginkonan unga verður þess
fljótlega vör að ekki er allt með
felldu. Leikritið lýsir á nær-
göngulan hátt samskiptum
Lárusar við eiginkonu sína,
systur og vin. Vandarhögg er
ekki við hæfi barna.
22.40 Dagskrárlok.