Dagblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980. 13 N Ameríku og því hefur efnahagsá- stand i þessum löndum sjaldan riölast tiltakanlega nema samfara styrjald- arástandi. Allt tal um „hliðarráðstafanir” samfara myntbreytingu er út í hött, enda hefur enginn þeirra, sem slíkar ráðstafanir heimta, getað bent á neinar slíkar. Og allir hafa þeir forðast að nefna lögbindingu kaupgjalds og verðlags, hvað þá að þeir hafi nefnt fastagengisskráningu. Hvernig geta Danir haldið stöðugu gengi? Enginn getur borið á móti því, að i Bretlandi og þá ekki síður i Dan- mörku hafa verið miklir efnahags- efiðleikar á síðustu áratugum. Lækk- un sterlingspundsins og dönsku krón- unnar er þó hverfandi miðað við þau ósköp, sem dunið hafa yftr íslenzku krónuna. Árið 1950 t.d. var einn Banda- ríkjadollar jafnvirði 6.00 d. kr. — í dag, 30 árum síðar, er hlutfallið enn tæpar 6.00 d. kr. gagnvart dollar! Þegar islenzkir sérfræðingar í fjár- málum eru spurðir um ástæðuna fyrir þessu og um það, hvernig Danir t.d. geti haldið sínu gengi í slíku jafn- vægi vefst þessum sérfræðingum tunga um tönn og enginn þeirra hefur enn getað skýrt þessa staðreynd fyrir þeim, er þetta ritar, eða birt um það langhunda á borð við þá, er þeir gera, þegar þeir réttlæta gengissig að þrábeiðni þrýstihópa „undirstöðuat- vinnuveganna”. Sanhleikurinn er auðvitað sá, að Danir hafa kappkostað að halda gjaldmiðli sínum stöðugum, hvað sem á hefur dunið, og hefur ýmislegt yfir dunið í dönskum efnahagsmálum á 30 ára ferli. Þeir vita sem er, að sé gripið til þess óyndisúrræðis að fella gengi dönsku krónunnar við hvert áfall sem yfir dynur í þjóðar- búskapnum, missir fólkið trú á gjald- miðilinn og upplausn verður algjör í atvinnu- og efnahagslífi. Danir geta því, eins og aðrar þjóðir Vestur- Evrópu, notað sinn gjaldmiðil hvar sem er í heiminum. Frakkar og Finnar, sem fóru þá leið sem við ráðgerum nú í gjald- miðilsbreytingum, gerðu engar sér- stakar ráðstafanir í efnahagsmálum, haldast vel á starfsfólki, þá er hið eina erlenda félag, ísal, mjög ofar- lega á vinsældalistanum hjá íslensku verkafólki. Það er t.d. mjög algengt að verkafólk sem hættir þar hættir aðeins um stundarsakir, þ.e.a.s. fær aðeins frí frá störfum með fyrirheiti um að mega koma aftur. Þá er það alkunn staðreynd að laun hjá álverk- smiðjunni eru mun hærri en gengur og gerist á hinum almenna vinnu- markaði. Því hefur jafnvel heyrst fieygt að laun væru þar enn hærri ef ekki kæmi til andstaða ríkisvaldsins og atvinnurekenda. Almennt séð má fullyrða að álverksmiðjan kemur mjög vel út úr umræðu meðal þjóðarinnar, aðeins einn þáttur er óvinsæll, en það er hið lága orkuverð sem álverið greiðir, en sök í þvi efni hlýtur að falla á íslenska stjórnmála- menn en ekki hið erlenda félag. Auglýst eftir stóriðju Hjörleifur sagði ennfremur: „En ég er á móti þvi, sem sumir virðast helst vilja, að við bara auglýsum okk- ar orku til sölu með tilliti til þess eins að údendingar ráði ferðinni.” Þarna fullyrðir ráðherrannvitanlegaum of, enda mun enginn sem talað eða ritað hefur um stóriðju á íslandi hafa reiknað með því að útlendingar réðu ferðinni. Þetta er ósvífni og ósæmileg fullyrðing hjá ráðherranum, en þó vissulega í fullu samræmi við mál- fiutning kommúnista. Einræðishneigð kommúnista er vissulega slík að þeir telja eðlilegt að fáir kommissarar velji á bak við tjöldin þjóðinni þá stóriðju sem þeim hentar. Það er aftur á móti eðlis- hneigð frjálshyggjumanna að bjóða út, auglýsa, fá tilboð og velja síðan „Þá er það alkunn staðreynd, að laun hjá álverksmiðjunni eru mun hærri en gengur og gerist á hinum almenna vinnumarkaði,” segir greinarhöfund- ur. „Nýkrónan boðar þvl nýja siði I viðskiptaháttum, þegar til lengdar lætur ...” aðrar en þær að treysta gjald- miðilinn með stöðugrí gengis- skráningu, auk þess sem þeir fram- kvæmdu niðurskurð núllanna. Gjaldmiðill þessara þjóða er líka enn- þá sterkur á hinum alþjóðlega við- skiptamarkaði. Enginn þarf þó að halda, að Finnar og Frakkar eigi ekki við sín innanlandsvandamál að stríða. En gengið fella þeir ekki fyrir þrábeiðni þrýstihópa. Nýkrónan, nota- leg nlðurstaða Eftir langvarandi forystu íslendinga í lífsgæðakapphlaupi, sem hófst að lokinni seinni heims- styrjöldinni, er nú svo komið, að við erum orðnir langsíðust, en byrjuðum fyrst og höfðum mikið forskot. Viö urðum brautryðjendur í viðarklæðningum og tvöföldu rúðugleri. Aðrar þjóðir stóðu orðlausar af undrun yfir velgengni okkar, meðan þær voru að rétta úr kútnum eftir heimsstyrjöldina, en fóru hægt af stað í viðarklæðningar- kapphlaupinu. íslendingar settu á svið sjónleik um „Húsbændur og hjú” og fengu Færeyinga til að vera „downstairs” hjá sér um tíma, á bátaflotanum, meðan gjaldeyri var eytt látlaust. — Færeyingar skutust síðan fram úr íslendingum, svo til í sama mund og þeir hættu að vera I húsmennsku hjá þeim síðarnefndu. Það er öllum ljóst, að gjald- mlðillinn fslenzki I núverandi ástandi er meinsemd I þjóðfélaginu. Ailt frá því að sá er þetta ritar byrjaði að koma þeirri hugmynd á framfæri, að siðvæðing gjaldmiðilsins væri nauðsyn, hefur sú hugmynd átt fylgi að fagna hjá öllum almenningi. Greinar undirritaðs hafa þó ekki átt miklu fylgi að fagna hjá stjórnmála- mönnum að þvi er gjaldmiðils- breytinguna áhrærir, og það er ekki fyrr en á allra síðustu misserum, að hugmyndinni um siðvæðingu gjaid- miðilsins hefur skotið upp á Alþingi. Og enn er viðbúið, að sér- fræöingar í íslenzkum fjármálaheimi telji, að miklar og róttækar aðgerðir þurfi til, svo að myntbreytingin komi að gagni, og reyni jafnvel að tefja framkvæmd breytingarinnar á síðustu stundu! Auðvitað má með fullri sanngirni segja, að lögbinding kaupgjalds og verðlags, ásamt því að binda gengis- skráningu fasta, séu róttækar aðgerðir. En því miður eru það ekki þessar aðgerðir, sem stjórnmálamenn eiga við, þegar þeir tala um „hliðar- ráðstafanir”. Þeir meina eitthvað allt annað, sem þeir hafa ekki getað út- skýrt fyrir almenningi. Lögbinding kaupgjalds og verðlags og íhaldssemi i gengismálum eru engu að síður forsenda fyrir því, að gjaldmiðilsbreytingin sé lausn til langframa. Gjaldmiðilsbreytingin er þó góðra gjalda verð, ein út af fyrir sig, og mun auka trú manna á gjald- rniðli sinum og leiða til þess, að íslendingar verði ekki, um sinn a.m.k. ölmusumenn á alþjóðlegum svartamarkaði með erlendan gjald- eyri. Nýkrónan boðar þvi nýja siði í viðskiptaháttum, þegar til lengdar lætur, og okkur er ekkert vandara en öðrum þjóðum, sem búa til verð- miklar mynteiningar, að fást við hinar smáu einingar í bókhaldi, tölvuvinnslu og hvers konar viðskiptalegum tilfærslum öðrum. — Nýkrónan er þegar á allt er litið notaleg niðurstaða, sem stjórnmála- mönnum þeim er með völdin fara ber að nýta til hins ýtrasta. Geir R. Andersen. það besta. Þannig ætti að sjálfsögðu að fara að í stóriðjumálum. Við eigum að auglýsa eftir stóriðju um allan heim og síðan á að ræða til- boðin i eldhúsum, á vinnustöðum, í dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi, á Alþingi, í ríkisstjórn og loks eftir þessa almennu umræðu í þjóðfélag- inu á að velja það stóriöjufyrirtæki sem best fellur að þörfum og hags- munum fólksins. Það er vissulega tímabært að vinna að því að koma upp fjölþættari stór- iðju á Íslandi og þó ekki væri auglýst eftir henni þá ætti iðnaðarráðherra að sjá sóma sinn i því að kynna þjóð- inni þá möguleika sem þegar bjóðast. Það er lýðræðislegt að þjóðin fái tækifæri til þess að ræða valkostina áður en ákvörðun er tekin en það er bara trúlega of langt til kosninga til þess að iðnaöarráðherrann telji ástæðu til þess að ræða við kjósend- ur. Austfjarðagrínið Um hugsanlegan orkufrekan iðnað á Austfjörðum sagði ráðherrann, að til greina gæti komið að nýta eitthvað af orkunni (Fljótdalsvirkjun) til islensks fyrirtækis, sem þá félli að eðlilegri uppbyggingu og mannlífi í fjórðungnum. Svona þvælu verður annaðhvort að gráta yfir eöa hlæja að. Þar sem Austfirðingar eru menn gamansamir en ekki grátgjarnir, þá geri ég ráð fyrir að þessi orð ráðherr- ans verði aðeins hlátursefni á Aust- fjörðum. Við skulum aðeins athuga, hvernig fyrirtæki það yrði sem „félli að eðli- legri uppbyggingu og mannlífi í fjórðungnum”. Hin eðlilega þróun á Austfjörðum hefur verið sú, að fólki hefur fækkað i sveitunum en á þétt- býlisstöðunum hefur fjölgað smám saman. Fjölgunin hefur verið frá nokkrum einstaklingum upp í nokkra tugi á ári. Eðlileg þróun væri þá ein- hvers staðar mitt á milli þess að byggð fari í eyði eða að henni bættust nokkrir tugir íbúa, m.ö.o. eðlileg þróun væri þá t.d. sú að 20 til 30 manns bættust við tiltekið byggðar- lag. Austfirski þingmaðurinn, iðnaðar- ráðherrann Hjörleifur Guttormsson, hugsar sér þannig að í tengslum við Fljótsdalsvirkjun verði stofnað til orkufreks iðnaöar á Austfjörðum, sem veiti svona um það bil 10 manns atvinnu. (10 manns myndu væntan- lega fylgja fjölskyldur samtals 25 til 30 manns.). Það er sjálfsagt langt síðan svona „stórhuga” þingmaður sat í stóli iðn- aðarráðherra, og nú er þess eins að vænta að Austfirðingar safni undir- skriftum eða semji bænarskjal þess efnis, að ráðherrann víki úr stólnum fyrir stórhuga manni. Kristinn Snæland. ^ „Við eigum að auglýsa eftir stóriðju um allan heim, og síðan á að ræða tilboðin í eldhúsum, á vinnustöðum, í dagblöðum, út- varpi og sjónvarpi, á Alþingi, í ríkisstjórn, og loks eftir þessa almennu umræðu í þjóðfélag- inu á að velja það stóriðjufyrirtæki, sem best fellur að þörfum og hagsmunum fólksins.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.