Dagblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 28
frjálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 20. NÓV. 1980. Svíar krefj- ast lækkunar á verði fyrir saltsíld Sænskir síldarkaupendur eru nú mjög gramir fslendingum fyrir að hafa leyft siglingar með ísaða síld til Dan- merkur eftir að þeir höfðu gert bind- andi samninga um kaup á miiclu magni af saltsíld frá íslandi. Vegna þessa lága verðs sem Danir fá sUdina á úr íslenzku bátunum óttast Svíar að hægt sé að framleiða saltsUd í Danmörku á mun lægra verði en þeir hafa samið um kaup á frá íslandi. Hefur DB frétt að Svíar krefjist lækkunar á því verði sem samið hefur verið um. íslenzkir síldveiðibátar hafa sem kunnugt er verið að selja síld í Dan- mörku síðustu dagana en fengið mun lægra verð en vonazt var eftir. Óttast sænskir sUdarkaupendur því um sinn hag nú þegar ódýr síld frá íslandi kemur allt í einu á markað. Telja Svíar að íslendingar hafi með þessu komið aftan að þeim. Vegna þessa máls hafði DB samand við Gunnar Flóvenz framkvæmda- stjóra hjá Sildarútvegsnefnd. Gunnar sagðist ekkert geta sagt um þetta mál á þessu stigi. Hins vegar neitaði hann því ekki að þetta væri rétt. -KMU Samið við blaðamenn á elleftu stundu — verkfalli á þremur dagblöðum f restað f ram yfir félagsf und í dag Vísitölu- brauðin hækka Ðakarameistarar hafa auglýst nýtt verð á visitölubrauðum án heimildar stjórnvalia. Nýja verðið á að taka gildi næstkomandi mánudag og er hækkunin á bilinu 20—31 %. Franskbrauð hækka t.d. úr 300 krónum í 366 krónur, normalbrauð úr 263 krónum í 321 krónu, malt- brauð úr 280 krónum í 364 krónur og seydd rúgbrauð úr 314 krónum í 412 krónur. - GE Samkomulag í kjaradeilu blaða- manna og útgefenda tókst laust fyrir hádegi i gær eftir að sáttanefnd hafði gripið inn í. Þá skömmu áður hafði legið við að upp úr slitnaði. Samkomulagið hljóðar upp á 11,06% meðaltalshækkun launa frá og með undirskrift samningsins. Samkomulag náðist einnig um greiðslu fyrir bifreiðaafnot, leigu á ljósmyndatækjum, greiðslu auka- vinnu fyrsta hálfa mánuð veikinda-l fqrfalla og kaupgreiðslur meðan; blaðamenn sækja endurmenntunar- námskeið á Norðurlöndunum, 50— 85 daga á ári, eftir þvi hvort íslenzkur blaðamaður sækir 3 mánaða námskeið Norræna blaðamanna- skólans ÍÁrósum. Blaðamannafélag fslands hafði boðað verkfall á þremur dag- blaðanna, DB, Morgunblaðinu og Vísi, frá og með miðnætti] síðástliðnu. Verkfallinu hefur nú verið frestað og verður tekin afstaða til þess á félagsfundi í Bf í dag hvort því verður aflýst, um leið og greidd verða atkvæði um samningana. Fundurinn verður haldinn á Hótel Heklukl. 15.00. Þegar DB fór í prentun í gær- morgun var staðan í samninga- viðræðunum slæm og leit út fyrir að upp úr væri að slitna. Skömmu síðar kom sáttanefndin inn í. Því var það,i að i um það bil helmingi upplags DB í gær sagði frá tregðu í gangi samningaviðræðna, en í síðari helmingi upplagsins var sagt frá því að samkomulag hefði tekizt. -ÓV. Nýlögumlaun þingmanna hagstæð ríkisstarfsmönnum: Fá þingfarar kaup ofan á helming fyrri launa Á tíu dögum hafa alþingismenn nú afgreitt sem lög frá Alþingi frumvarp um að Kjaradómur ákveði laun þeirra, svo og aukagreiðslur vegna húsnæðis, ferðalaga, símagjalda o. fl. Var hraði afgreiðslunnar svo mikill að Matthías Á. Mathiesen sem boðaði veikindafor- föll í gær fékk ekki að mæla með minnihlutaáliti sinu sem hann gekk frá f fjárhags- og viðskiptanefnd. f frumvarpinu sem nú er orðið að lögum er m.a. ákvæði um að ríkis- starfsmenn sem til þingstarfa eru kvaddir haldi allt að 50% af fyrri launum sínum. Nokkrum þingmönnum blöskraði þetta þó þeir létu kyrrt liggja. Sérálit Matthíasar Mathiesen var á þá leið að ákvörðun launa þingmanna skyldi ekki falin Kjaradómi, heldur skyldu þingmenn ákveða laun sín sjálfir. Undir þetta tóku Albert Guð- mundsson, Karvel Pálmason og Pétur Sigurðsson. Töldu þeir Alþingi mis- boðið með breytingunni. -A.St. Grjóthnulí- ungarflugu innum glugga K&ri Jónasson formaður þvi að taka i nefið. og Páll 'Magnússon á Visi hressa andann með| ! DB-my nd Ragnar Th. Þau mistök urðu við sprengingu í grunni Heilsugæzlustöðvarinnar í Stykkishólmi að grjótflug lenti á húsi skelvinnslu frystihússins. Sprengt var um kl. fimm í gær og voru þá 6 menn í húsinu. 5—7 kílógramma hnullungar flugu inn í verkstjóraher- bergið og kaffistofuna og var mesta mildi að enginn slasaðist af þeirra völdum. Fólk var nýfarið út úr húsinu eftir kaffidrykkju. -DS/ÓHT, Stykkishóimi. Einar Magnússon verkstjóri i kaffi- stofunni. Fimm kilóa hnullungur flaug inn um gluggann, i vegginn á móti og sfðan á gólfið. Sést hann við fætur Einars og gatið i glugganum eftir hann. DB-mynd ÓHT.; Vatnsvirki hefur enn ekki fengið undanþágu frá verkfallinu við Hrauneyjafoss: Reyndu verkfalls- brot i tvígang samninga■ fundur boðaður ídag Samningamál " verkalýðsfél aganna á Tungnaársvæðinu eru enn í hnút en kl. 14 í dag er boðaður samningafundur að nýju hjá ríkis- sáttasemjara. Frekast strandar ál ágreiningi um gildistíma nýs kjara- samnings. Samningamenn verkalýðs- félaganna halda fast við þá kröfu aði samningurinn taki gildi frá 27. október en atvinnurekendur vilja að| hann gildi fráundirskriftardegi. Verktakafyrirtækið Vatnsvirkil sótti um undanþágu frá verkbanni| og verkfalli við Hrauneyjafoss. Vinnuveitendasambandið heimilaði undanþágu frá verkbanni en verka- lýðsfélögin settu sem skilyrði fyrir undanþágu frá verkfalli að Vatns- virki lofaði að greiða umsamda kauphækkun frá 27. október. Yfir- lýsing þar að lútandi er enn ekki komin frá verktakanumogundanþága frá verkfalli því ekki verið afgreidd. Vatnsvirkismenn töldu sig þó hafa fengið undanþáguna og reyndu verk- fallsbrot við Hrauneyjafoss í gær og fyrradag. Á miðvikudaginn gengu eigendur fyrirtækisins og smiðir í störf verkamanna og fluttu krana til og í gær var gengið i störf starfs- stúlkna í mötuneyti Vatnsvirkis. í, bæði skiptin voru verkfaílsbrotin stöðvuð af fulltrúum verkalýðs- féalganna á staðnum. Vatnsvirki mun standa verr að vigi en önnur verktakafyrirtæki við Hrauneyjafoss. Vatnsvirki á að skila verki í desember og stendur tæpt að það takist, sérstaklega eftir að vinna lagðist þar niður vegna verkfalls og verkbanns. -ARH. LUKKUDAGAR:' |20. NÓVEMBER 178641 jKodak Ektra 12 myndavél Vinningshafar hringíj ísíma 33622. sem meta fagra muni /3 JEItH- KMSTALL Laugavegi 15. Reykjavík sími 14320

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.