Dagblaðið - 20.11.1980, Side 15
I4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980. 15
(■Hf íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir ■■)
Púað á leikmenn Englands á Vembley ígærkvöld:
Rétt slefuðu heim sigri á Sviss
„Það var alveg furðulegt hjá leik-
mönnum enska landsliðsins að gefa
Svisslendingum tækifæri til að ná sér á
strik eftir að þcir ensku höfðu yfir-
spilað Sviss i fyrri hálfleik. Mörkin
hefðu alveg eins getað verið fimm í
hálfleik eins og tvö. í þeim siðari
snerist dæmið alveg við. Þá voru það
leikmenn Sviss, sem fengu þrjú opin
tækifæri auk marksins, sem þeir skor-
uðu,” sagði kappinn kunni, Dennis
Law í BBC, eftir að England hafði
sigrað Sviss 2-1 í 4. riðli HM á
Wembley-leikvanginum i Lundúnum í
gærkvöld að viðstöddum 70 þúsund
áhorfendum.
Leikurinn fór rólega af stað. Síðan
fór England að sækja miklu meir.
Terry McDermott átti tvö skot rétt yfir
markið og Erich Burgener, hinn snjalli
markvörður Sviss, varði mjög vei frá
Steve Coppell. En mörkin hlutu að
koma. Á 24. mín. náði Coppell knettin-
um — spyrnti á markið af stuttu færi.
Knötturinn fór af varnarmanninum
Markus Tanner i markið. Sjálfsmark.
Sex mínútum síðar fékk England auka-
spyrnu. Trevor Brooking gaf vel inn í
vítateiginn og Paul Mariner skallaði í
mark. Fallegt mark, 2-0, og eftir það
buldu sóknarloturnar á vörn Sviss.
Hollenzki dómarinn dæmdi mark af,
sem Tony Woodcock skoraði.
„Rangur dómur að mínu mati,” sagði
Law — og annað mark var dæmt af
Mariner fyrir rangstöðu. Þá var Wood-
cock mikill klaufi að skora ekki tvívegis
í góðum færum.
í síðari hálfleiknum benti fátt í fyrstu
til þeirrar breytingar, sem síðar varð.
En síðan fóru „gömlu mennirnir”
Brooking og Mick Mills, fyrirliði, að
þreytast á miðjunni. Svisslendingar
náðu sífellt betri tökum á leiknum og
hættan fór að verða Englands megin.
Heinz Ludi komst einn í gegn og
Shilton hljóp á móti honum. Truflaði
hann það mikið að Mills gat bjargað í
horn. Rene Botteron, Köln, átti
snilldarleik í svissneska liðinu —
maðurinn bak við nær öll upphlaupin.
Hann átti hörkuskot framhjá áður en
Hans Jörg Pfister skoraði með þrumu-
fleyg á 78. min. Shilton sá varla knött-
inn — algjört „draumamark” hjá
Pfister. Loks á 82. mín. var Brooking
tekinn út af og Graham Rix kom í hans
stað. Lokamínúturnar sótti enska liðið
mjög. Fékk hornspymu eftir horn-
spyrnu en tókst ekki að laga markatöl-
una — og ef hún kemur til með að ráða
úrslitum síðar í riðlinum geta Englend-
ingar nagað sig í handarbökin i sam-
bandi við þennan leik. Eftir slaka leiki
að undanförnu — tap gegn Rúmeníu
og nú þennan nauma sigur gegn Sviss
— geta enskir ekki verið öruggir um úr-
slitasæti á Spáni 1982. Tvö efstu lið í
riðlinum komast í lokakeppnina.
Staðan í 4. riðli er nú þannig:
England 3 2 0 1 7—3
Rúmenía 2 110 3—2
Noregur 3 111 3—6
Sviss 2 0 0 2 2—4
Ungverjaland er einnig í riðlinum en
hefur enn ekki leikið. Næsti leikur
Sviss—Ungverjaland 29. apríl 1981.
Eini leikmaður Englands sem þótti
sýna veruleg tilþrif var Bryan Robson,
WBA, sem lék sem miðvörður með
Dave Watson. Brooking og Coppell
góðir í fyrri hálfleik, svo og Mariner.
Við höfum áður skýrt frá skipan enska
liðsins. Lið Sviss var þannig: Burgener,
Wehrli, Heinz Hermann, Ludi, Geiger,
Barberis, Pfister, Tanner (egli),
Schonenberger, Elsener og Botteron.
Eftir leikinn púuðu áhorfendur mjög
á Wembley og létu í ijós óánægju sína
með enska liðið á ýmsan hátt.
„Égbyrjaí
næstu viku”
„Nei, ég byrja ekki fyrr en i næstu
viku,” svaraði Jóhann Ingi Gunnars-
son, fyrrum landsliðsþjálfari i hand-
knattleik, er DB spurði hann hvort
hann hæfi störf hjá Val, sem aðstoðar-
þjálfari Boris Akbashov, i þessari viku.
Nokkur eftirvænting ríkti meðal áhorf-
enda i Firðinum í gær hvort hann
myndi sitja á bekknum hjá Val og
stjóma leik liðsins með Akbashov.
Valsmenn mæta Víkingum næst annan
sunnudag og verður Jóhann Ingi þá
væntanlega kominn á sinn stað . -SSv.
KR-Víkingur
f Höllinni
Einn leikur verður i 1. deild karla á
íslandsmótinu i handknattleik í kvöld.
Þá leika KR og Víkingur i.'Laugardals-
höll og hefst leikurinn kl. 20.00. Það er
annar leikurinn í 8. umferðinni. Á
laugardag leika Haukar og Fylkir kl.
14.00 í íþróttahúsinu i Hafnarfirði.
Umferðinni lýkur svo á sunnudag með
leik Fram og Fylkis i Laugardalshöll kl.
20.00.
Mjög á óvart komust bæði Dundee-
liðin i úrslit skozka deildabikarsins er
undanúrslit keppninnar fóru fram í
gærkvöld. Dundee United lagði Ceitic,
3—0, á Parkhead, en fyrri leiknum
lauk 1—1. Þá sigraði Dundee Ayr 3—2
eftir 1—1 jafntefli.
Erwin Van der Bergh skoraði eina mark Belgiu úr vítaspyrnu
en það dugði til þess að leggja Hollendinga að velli i fyrsta
sinn i mörg ár.
Auðveldur sigur
DanaáLuxemborg
Danir unnu auðveldan sigur á Luxemborg i S. riðli undan-
keppni HM i knattspyrnu í landsleik sem fram fór i Kaup-
mannahöfn í gærkvöld. Lokatölur urðu 4-0 Dönunum í vil,
eftir að staðan hafði verið 2-0 í hálfleik. Það voru þeir Frank
Arnesen 2, Preben Elkjær Larsen og Allan Simonsen sem
skoruðu mörk Dana. Áhorfendur voru 10.500 á Idrætsparken
í gærkvöld.
Eftir tapið geta Luxemborgarar þegar farið að skipuleggja
sumarleyfi sitt 1982 þvi þeir eiga enga möguleika á að komast
í úrslitin á Spáni. Staðan í riðlinum er nú þessi:
ítalia 3 3 0 0 6—0
Júgóslavía 3 2 0 1 7—3
Grikkland 110 0 I—0
Danmörk 4 1 0 3 5—5
Luxemborg
6
4
2
0
3 0 0 3 0—11 0
Næsti leikur í riðlinum er á milli ítala og Grikkja þann 12.
desember i Aþenu.
IS marði Víking
Þróttur hélt áfram sigurgöngu sinni i blakinu með öruggum
sigri yfir Laugdælum i gærkvöldi, 3-0 (15-7, 15-13 og 15-0).
Það var aðeins i 2. hrinu sem Laugdælirnir veittu mótspyrnu
að ráði. Þeir náðu að komast í 13-8 en töpuðu hrinunni engu
að síður.
ÍS og Víkingur léku næst. Var leikur þeirra einn sá
skemmtilegasti og viðburðarikasti í vetur enda einkenndist
hann af mikilli baráttu. Stúdentarnir mættu grimmir til leiks
óg unnu fyrstu hrinuna 15-3. En Víkingarnir ætluðu að selja
sig dýrt. Ekki tókst þeim þó að vinna aðra hrinuna þrátt fyrir
mikla baráttu. ÍS vann 15-9 en Víkingur átti ekki minna i
þeirri hrinu. Með smá heppni hefðu þeir eins getað unnið
hana. Þeir þurftu hins vegar ekki á heppninni að halda í næstu
hrinu, þeir unnu hana á baráttuskapi, 15—5.
Fjórða hrinan reyndist sú siðasta, sannkölluð úrslitahrina.
Sáust þar margir fallegir hlutir, menn fórnuðu sér miskunnar-
laust á eftir boltanum í gólfið og drógu ekki af i smössunum.
En á endanum reyndust Stúdentar ofjarlar Vikings og mörðu
sigur, 15-12. Úrslitin 3-1.
Einn leikur var í kvennablakinu i gærkvöld. Áttust þar við
ÍS og Breiðablik. Leikur þeirra varð fimm hrina leikur, ÍS
vann 3-2 (15-9, 2-15,15-10, 14-16 og 15-1). í lokahrinunni átti
ein ÍS-stúlkan, Þóra Andrésdóttir, 9 uppgjafir í röð.
- KMU
Portúgal
vann
Portúgal sigraði N-írland 1—0 í 6.
riðli HM i Lissabon í gærkvöld.
Miðherji Benfica, Jordao, skoraði eina
mark leiksins á 60 mín. Ahorfendur
60.000.
er komin
í jóla- og
samkvœmis-
klœönaði
PÉTUR
PÉTURSS0N
SUÐURGÖTU14
SÍMAR 21020-25101
Stærsti HM-sigur Ira en
Hollendingar töpuðu aftur
lrland vann sinn stærsta sigur í
heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu
í gær, þegar irska landsliðið gjörsigraði
Kýpur í leik landanna í 2. riðli HM.
Lokatölur 6-0 og írar voru reyndar
óheppnir að skora ekki fleiri mörk.
Áttu skot í stangir og þverslá og
bjargað var á marklinu hjá Kýpur. Lið
Kýpur átti ekki möguleika á að skora
og fékk aðeins tvær hornspyrnur i
leiknum.
Gerry Daly, sem nú lék með írlandi á
ný eftir meiðsli, skoraði strax á 11.
mín. Hann skoraði annað markið úr
vítaspyrnu. Siðan kom Tony Grealish,
Luton, írlandi í 3-0 og á lokamínútu
fyrri hálfleiksins skoraði Mike Robin-
son, Brighton, fjórða markið. Hann
meiddist þegar 15 mín. voru til leiks-
loka og var í fyrstu talið að um fótbrot
væri að ræða. Það var ekki og jafnvel
möguleiki á að Robinson gæti leikið á
laugardag, þegar Brighton and Howe
Albion leikur við Man. Utd. á Gold-
stone Ground í Howe, útborg
Brighton.
f síðari hálfleiknum skoraði Frank
Stapleton fimmta mark írlands í fyrsta
upphlaupi og litli svarti bakvörðurinn
hjá Tottenham, Chris Houghton,
skoraði sjötta markið á 63. mín. eftir
að hafa leikið á fimm mótherja.
Honum var fagnað gífurlega. Fyrsta
landsliðsmark hans — og Robinson
skoraði einnig sitt fyrsta landsliðsmark
fyrir írland. Don Givens kom inn þegar
Robinson meiddist.
Belgar unnu
Hollendinga
í sama riðli Iéku Belgia og Holland í
Brtissel. Belgia, sem komst í úrslit í
Evrópukeppninni í Róm sl. sumar og
tapaði þar aðeins með 2-1 fyrir V-Þjóð-
verjum, vann sinn fyrsta sigur á Hol-
landi um langt árabil. Sanngjarn sigur
1-0 og markið var skorað úr vítaspyrnu
snemma í síðari hálfleik. Erwin van der
Bergh skoraði. Belgar fengu ágæt tæki-
færi til að auka við þann mun — sér-
staklega fór miðherji FC Brugge, Jan
Ceulemans, illa að ráði sínu í opnum
færum.
Leikurinn var harður — fjórir leik-
menn bókaðir — og Hollendingar að
mestu í vörn í fyrri hálfleik. Hollenzka
liðið var aðeins svipur þess stórliðs sem
það var síðasta áratuginn. Aðeins fyrir-
liðinn, Ruud Krol, og Willy van der
Kerkhoff sem eitthvað sýndu. Leikvöll-
urinn í Brússel var þéttskipaður áhorf-
endum eða eins og þar rúmuðust,
50.000. Eftir tap í tveimur fyrstu leikj-
unum í riðlinum eru nú ekki miklar
líkur á að Holland, sem lék til úrslita í
HM 1974 og 1978, komist í úrslita-
keppnina á Spáni 1982.
Staðan í riðlinum er nú þannig:
Írland 5 3 11 12-6 7
Frakkland 2 2 0 0 9-0 4
Belgía 2 110 2-1 3
Holland 2 0 0 2 1-3 0
Kýpur 3 0 0 3 2-16 0
Liðin voru þannig skipuð: Belgía:
Jean-Marie Pfaff, Eric Gerets, Luc
Millecamps, Walter Meeuws, Michel
Renquin, Albert Cluytens, Rene van
der Eycken, van Moer, van der Bergh,
Ludo Coeck, Jan Ceulemans. Holland:
Pim Doesburg, Ben Wijnstekers
(Johnny Metgod), Ernie Brandts,
Hugo Hovenkamp, Ruud Krol, van der
Korput, Willy van der Kerkhof, Jans
Peters, Kees Kist, Pier Tol (Rene van
der Kerkhof), Simon Tahamata.
- hsím.
Guðmundur
Guðmundsson
Skipstjóri á
Mb Verði ÞH 4
Það þarf þrælsterka teina þegar trossa er
dregin upp af 200 faðma dýpi i 6—7 vind-
stigum, e.t.v. með 1000—1500 fiskum /'.
Blýteinarnir frá Hampiðjunni standa sig
mjög vel við þessar aðstæður eftir minni
reynslu. Það er gott að vinna með þeim,
bæði við að draga þá og við fellingu. Auk
þessa standa rúllurnar vel þau mál, sem
upp eru gefin.
Þórður Rafn
Sigurðsson,
Skipstjóri á Mb
Dala Rafni VE 508
Eftir nær þriggja ára reynsiu af blýteinum
frá Hámpiðjunni finnst mér þeir standast
vel þær kröfur, sem gera verður til teina við
núverandi veiðitækni og hraða og á því
feikna dýpi, sem veitt er á.
Auk þorskanetateina hef ég reynslu af rek-
netateinum, fiskilínu, færatógi og almennu
tógi frá Hampiðjunni. Allt þetta tóg er í
háum gæðaflokki.