Dagblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980.
17
FÓLK
ÁSGEIR
TÓMASSON
ELIN
ALBERTSDÓTTIR
Þórir Lárusson, nýkjörinn formaður Varðar:
Mœtti vera meira
stjómmálafélag
heldur en ferða- og spilaklúbbur
Þórir Lárusson, nýkjörinn for-
maður Varðar, var varaformaður
fólagsins i fyrra og hafur setið i
stjórn fólagsins i 4 ár.
DB-mvnd Gunnar örn.
Valgarð Briem hrl., einn af fyrstu stúdentum Verzlunarskóla íslands:
„ Valdi mér eina bekkjar-
systur jyrir eiginkonu99
Æ tla í einhvers
konar viðskipti
— og fannst Verzló rétta leiðin
„Faðir niinn var í Verzlunarskól-
anum og það var eiginlega þess vegna
sem ég fór i hann,” sagði Karl Þor-
steins, 16 ára nemandi á fyrsta ári i
Verzlunarskólanum, í samtali við
Fólk-síðuna er við spurðum hvers
vegna hann hefði valið sér framhalds-
nám i Verzló.
,,Ég hef hugsað mér að fara út í
einhvers konar viðskipti og þess
vegna þótti mér þetta rétta leiðin. Ég
var í Langholtsskóla og flestir skóla-
félagar mínir héldu áfram í Mennta-
skólanunt við Sund. Annars er ég
litið farinn að hugsa um frámtiðina
— eða hvort ég tek stúdentspróf.
Það voru mikil viðbrigði að koma í
þennan skóla úr Langholtsskóla, alll
annars konar nám. Hér er lika meiri-
hlutinn stelpur. Ætli einn þriðji sé
ekki strákar,” sagði Karl. Hann
sagði að félagslífið væri mjög gott í
skólanum og að stelpurnar væru al-
gjört æði. . ELA
Kari Þorsteins við skólaborðið i Verzló. „Það voru mikil viðbrigði að
koma í þennan skóla úr Langholtsskóla. Hór er meirihlutinn stelpur."
DB-mynd Gunnar Örn.
Karl Þorsteins, nemandi á fyrsta ári í
Verzlunarskólanum:
,,Það leggst mjög vel í mig að taka
við þessu starfi. Ég hef setið i stjórn
Varðar í 4 eða 5 ár og þar áður var ég
í hverfafélagi. Ég var varaformaður
Varðar í fyrra svo ég er ekkert
ókunnugur þarna,” sagði nýkjörinn
formaður Varðar, Þórir Lárusson.
Þórir verður 44 ára 7. desember
nk., kvæntur Þórunni Árnadóttur og
eiga þau þrjú börn. Hann starfar sem
rafvirkjameistari og rekur eigið fyrir-
tæki. Þórir starfaði með íþrótta-
hreyfingunni i ein 25 ár, var m .a. for-
maður skíðaráðs í 7 ár, eða þau ár
sem Bláfjöllin byggðust upp.
,,Ég hef nú ekki hug á mikium
breytingum. Félagið er allt í mjög
föstum skorðum svo ég sé enga
ástæðu til þess. Það væri frekar að ég
myndi reyna að breyta Verði úr
ferða- og spilaklúbbi í einhvers konar
stjórnmálafélag. Mér finnst að það
mætti vinna meira að pólitíkinni.
Mitt starf er að stjórna fundum,
sjá um að málefnanefndir og aðrar
nefndir starfi. Formaður Varðar á
sæti í stjórn fulltrúaráðs og hann
situr oft i nefndum.”
— Hefurðu hugsað þér að komast
lengra í pólitíkinni, stefnir þú kann-
ski á þing?
,,Ég hef nú ekki hugsað svo langt.
Bjarni Þór Jónsson, nýráðinn bœjarstjóri í Kópavogi:
„Starfið hefur átt
allan minn tíma”
„Mig minnir að ég hafi valiðVerzl- I voru báðir í skólanum,” sagði
unarskólann vegna þess að tveir Valgarð Briem hrl. sem var einn af
frændur mínir, þeir Óttar og Jóhann sjö fyrstu stúdentum Verzlunarskóla
Möller, sembjugguísamahúsiogég, | Islandsárið 1945. í dag eru liðin 75 ár
Valgarð Briem hri. á skrrfstofu sinni að Sóleyjargötu. „Ég hefði líklega
farið á bændaskólann á Hólum ef Verzlunarskóli íslands hefði ekki
fengið róttindi til að útskrifa stúdenta." DB-mynd Sig. Þorri.
frá stofnun Verzlunarskóla íslands
og tók Fólk-síðan því tali einn af
fyrstu stúdentum skólans og nem-
anda á fyrsta ári í skólanunt í dag.
„Þegar ég byrjaði i skólanum þá
hafði hann ekki réttindi til að út-
skrifa stúdenta. Það var ekki fyrr en
ég útskrifaðist úr fjórða bekk sem
þau réttindi fengust,” sagði Valgarð
ennfremur. ,,Ef Verzlunarskólinn
hefði ekki fengið þessi réttindi hefði
ég líklega farið í bændaskólann á
Hólum. Það hvarflaði ekki að mér þá
að fara í lögfræði. Sú hugmynd kom
ekki fyrr en suntarið eftir að ég varð
stúdent.
Jú,' vissulega gerðist margt
skemmtilegt á þessum árum. En það
skemmtilegasta er bundið við stelp-
urnar svo ég ætti nú ekki að segja frá
því í blaðaviðtali. Þær voru afskap-
lega fallegar og góðar stúlkurnar í
Verzlunarskólanum. Ég valdi mér
líka eina bekkjarsysturina fyrir eigin-
konu,” sagði Valgarð Briem.
- ELA
Eiginlega ekkert spáð í það. Maður
veit samt ekkert hvað framtíðin ber í
skauti sér. Ég hefði t.d. ekki trúað
því fyrir nokkrum árum að ég ætti
eftir að verða formaður Varðar.”
Þórir er mikill skíðamaður og fer
svo oft á skíði sem hann kemst. í
nokkur ár keppti hann á skíðum en
því hætti hann árið 1966. Hann hefur
líka smitað fjölskyldu sína og elzti
sonur hans er t.d. að fara í keppnis-
ferð til Austurríkis. Þá hefur Þórir
einnig verið formaður ÍR sl. 4 ár, svo
nýkjörinn formaður Varðar hefur í
mörgu að snúast.
- ELA
,,Ég var settur í eþtta starf um
mánaðamótin ágúst-september. Það
er vandasamt að taka að sér starf
eftir Björgvin heitinn þar sem hann
var mjög vel metinn í starfi,” sagði
Bjarni Þór Jónsson sem sl. föstudag
var ráðinn bæjarstjóri í Kópavogi.
Bjarni Þór er 34 ára gamall. Hann
er fæddur og uppalinn Reykvíkingur.
Bjarni Þór lauk laganámi við Háskól-
ann vorið 1974 og réðst þá sem
bæjarstjóri á Siglufirði. Hann er
kvæntur Margrét Sigríði Jörgensen
og eiga þau tvö börn, stúlku 14 ára og
dreng 5 ára.
,,Ég hafði aldrei séð Siglufjörð
þegar ég réði mig þangað en kunni
strax ljómandi vel við mig þar. Þar
voru nóg verkefni að vinna og mjög
fjölþætt, t.d. uppbygging hitaveit-
unnar. Þetta starf í Kópavogi er
kannski svipað og á Siglufirði. Þó eru
alltaf fleiri verkefni hjá bæjarstjóra í
litlum bæ eins óg á Siglufirði.
Starf bæjarstjóra er eiginlega
framkvæmdarstjórn bæjarfélags.
Hann þarf að sjá um framkvæmdir
sem bæjarráð og bæjarstjórn sam-
þykkja. Þá þarf hann að hafa yfirsýn
yfir helztu málaflokka. Bæjarstjóri
þarf að sitja alla fundi með bæjar-
ráði og bæjarstjórn. Það er erfitt að
gefa viðhlítandi svar því það er mjög
margt sem bæjarstjóri þarf að gera,”
sagði Bjarni Þór.
„Núna eru mörg verkefni sem bíða
og eru efst á baugi, til dæmis þarf að
koma götum í varanlegt horf.
íþróttahúsið hér verður fokhelt á
næsta ári og það er þegar farið að
bjóða það verk út. Skólamál eru
alltaf ofarlega' á baugi og eflir ára-
mótin verður úthlutað lóðunt í
Ástúnshverfi. Það er því nóg að
gera.”
— En hvað gerir bæjarstjórinn í
frístundum?
„Það hafa nú ekki verið margar
fristundir hjá mér undanfarið.
Starfið Itefur átt allan minn tíma,
bæði hef ég verið að komast inn i
þetta starf og einnig unnið sem
bæjarritari. Annars byggði ég ntér
raðhús sem ég hef verið að reyna að
fullklára þann tima sem ég á af-
gangs,” sagði hinn ungi bæjarstjóri
Kópavogs.
- ELA
Bjarni Þór Jónsson á skrrfstofu sinni hjá Bæjarskrifstofunum i Kópavogi.
„Starfið hefur átt allan minn tima þar sem óg hef verið að setja mig inn i
það auk þess sem óghef unnið sem bæjarritari."
DB-mynd Sig. Þorri.