Dagblaðið - 13.12.1980, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980.
3
Raddir
lesenda
KRISTJAN MAR
UNNARSSON
Myndi biðja hans
— væriegenn ung
Bjarnrún Theodórsdóttir, Meðalholti
5, hringdi:
Fólk er ákaflega fljótt að koma
með sleggjudóma án þess að hugsa
málið. T.d. talar Stefania Gísladóttir
í DB 10. des. sl. um undirlægjuhátt
dómsmálaráðherra. Ég er sannfærð
um að Friðjón er ekki slæmur
maður, ég held að hann sé ábyrgur og
traustur. Þó held ég að hann eigi erf-
itt með svefn vegna allra þessara
skrifa um Gervasoni.
Regína á Eskifirði segir í sama
blaði ýmislegt um Guðrúnu Helga-
dóttur. Ég er viss um að Guðrún er
góð kona og þjóðfélagið væri betra
ef við ættum fleiri konur eins og
hana. Hún hefur'örugglega hugsað
mikið um einstæðar mæður og þá
sem minna megasin.
Mér finnst vera komin mikil úr-
kynjun í íslendinga. Það væri mjög
gott að fá nokkra fransmenn eins og
Gervasoni til að kynbæta þjóðina,
okkur vantar menn eins og
Gervasoni. Væri ég ung stúlka,
myndi ég biðja hans.
Hvers vegna í ósköpunum hefur
engin stúlka beðið Gervasonis? Ég
maneftirþví á stríðsárunum þegar
ungur maður bjargaði gyðingastúlku
með þvi að kvænast henni. Nú er
þessi maðurlátinn en stúlkan sem
nú .jr orðin fullorðin býr hér ennþá.
ÁSTÆÐULAUS Óni
— um að fleiri fylgi á eftir Gervasoni
Eiginkona lögreglumanns segist
hvergi geta læst að sér og átt sitt
einkalíf í friði þvi eiginmaðurinn
getur opnað allar dyr með lyklatól-
um. DB-mynd: S.
Getur opn-
að allar dyr
— með lyklatólum
lögreglunnar
ef honum sýnist
Eiginkona lögreglumanns hringdi:
Ég er gift lögregluþjóni. Hann get-
ur opnað allar hurðir ef honum sýnist
með lyklatólum sem allir lögreglu-
menn hafa. Hann hefur einhvers
konar vír í húfunni sem hann ásamt
öðrum tólum notar í vinnunni til að
opna hurðir. Þessi tól getur hann
tekið meðsér heim úr vinnunni.
Þetta þýðir það að ég get ekki átt
mitt einkalif í friði og læst að mér ef
ég vil. Hann getur alltaf opnað ef
honum sýnist. Ég get hvergi læst að
mér og verið ein. Hann segist geta
opnað allar hurðir með þessum lykla-
tólum sínum.
Hvað gæti maður með svona tól
gert ef hann væri óheiðarlegur? Það
er misjafn sauður í mörgu fé. Mér
finnst að lögreglustjóri eigi að sjá tii
þess að lögreglumenn skilji lyklatólin
eftir á vinnustaðnum en taki þau ekki
með sér heim.
8931-2841 skrifar:
Mjög hefur verið rætt um mál
franska flóttamannsins Patricks
Gervasoni á lesendasíðum dagblað-
anna að undanfömu. Flestir þeir sem
skrifað hafa, nú hina allra síðustu
daga a.m.k., hafa verið mjög nei-
kvæðir á það að þessi langhrjáði
Frakki fengi hér hæli. Vinsælustu
rökin fyrir þessu virðast vera þau að
ef Gervasoni fengi hér hæli sem póli-
tískur flóttamaður myndi mikill
fjöldi annarra franskra andherþjón-
ustusinna koma hingað í kjölfarið og
krefjast þess að fá hér hæli á sömu
forsendum.
Hring'ð ía'ma
2j(X?
millikl. 13ogl5,
eöaskrifid
Grá
blússa
2663-3419 skrifar:
Síðastliðinn laugardag gleymdi lítil
stúlka nýju, gráu blússunni sinni í
strætisvagnaskýli sem er við Kringlu-
mýrarbraut (við gatnamót Miklu-
brautar). Blússan var í plastpoka.
Litla stelpan, sem heitir Unnur,
yrði mjög ánægð ef finnandinn
hringdi í síma 44026.
Þetta er hins vegar með öllu
ástæðulaus ótti þar sem mál Gerva-
sonis er mjög sérstætt. Gervasoni
hefur verið á stöðugum flótta undan
yfirvöldum í Frakklandi sl. 10 ár
vegna skoðana sinna. Hann er hér
vegna þess að hann hefur verið sviptur
skilríkjum sínum og getur því ekki
ferðazt um að eigin vild eins og hann
gæti hefði hann þau. Það geta hins
vegar hinir frönsku andherþjónustu-
sinnarnir gert.
Það er siðferðileg skylda okkar, i
nafni mannúðar og mannréttinda
sem við höfum hingað til viljað hafa
að okkar leiðarljósi, að koma þessum
hrjáða manni til hjálpar og veita
honum hér hæli eins lengi og hann
kærir sig um.
Það hefur reyndar verið gegnum-
gangandi í máli þeirra sem eru and-
vígir því að Gervasoni fái hér hæli að
þeir velta aðeins vöngum yfir þvi
hvaða áhrif það hefði á ísland og ís-
lendinga en hugsa hins vegar ekkert
um Gervasoni eða hans líðan. Við
íslendingar höfum mikið látið okkur
skipta að mannréttindum sé fram-
fylgt hvar sem er í heiminum og er
það vel. En hvaða rétt höfum við til
þess að gagnrýna mannréttindabrot
annars staðar ef við bregðumst við á
versta veg þegar á okkur reynir?
Hver á kött?
Grábröndóttur, ungur, mjög
fallegur köttur, greinilega heimilis-
köttur, var sl. sunnudagsmorgun
fyrir utan skiptistöðina á Hlemmi.
Strætisvagnabílstjórar tóku hann að
sér. Ef einhver saknar þessa kattar
getur hann hringt í síma 12700 og
beðið um Berg Ólafsson,
Hver saknar reiðhjóls?
Starfsmenn Teppalands við Grens-
ásveg fundu í síðustu viku reiðhjó!
fyrir utan verzlunina. Hafa þeir grun
um að þvi hafi verið stolið. Hjólið er
rautt kvenhjól, frekar lítið með
svörtum hnakk og hnakktösku. Sá
sem telur sig eiganda hjólsins má
hafa samband viðTeppaland.
Hver tók gleraugu
í sturtuklefanum?
Sigrún Guðmundsdóttir, Gautlandi
7, hringdi:
Fimmtudaginn 4. des. sl. voru gler-
augun min tekin í misgripum í sturtu-
klefa sundlauganna í Laugardal.
Gleraugun eru með stórri, brúnni
umgjörð og með lespunkti. Finnand-
inn er vinsamlegast beðinn um að
hringja í síma 36709 eða skila þeim
aftur í laugarnar því þar eru hin gler-
augun sem voru skilin eftir.
Spurning
dagsins
Hvert er að þínu áliti
bezta bítlalagið?
Svanfriður Jónsdóttlr hjákrunarfræð-
ingur: Yesterday, það er fallegt og hug-
ljúft lag.
Herdis Þórðardóttir sjúkraliði: Mér
finnst þau öll stórfin, á erfitt með að
gera upp á milli þeirra. Yesterday er
mjög gott lag.
Jóhanaes Ótafsson sjómaður: Þetta er
allt jafnfrábært, Hard days night er
t.d. mjög gott, til að nefna eitthvað.
Rafn Magnússon sjómaður: Þaö eru
svo mörg, þau eru öll mjög góð.
Sjóðheitt kaffi
góðan daginn!
og ristað brauð
Þessi brauðrist er með nýjum búnaði, lítilli tölvu sem tryggir að
brauðið sem þú glóðar, brennur ekki. Hljóðlaus brauðrist, tvær
sneiðar af brauði á 90 sek.
Verð: 37.000 kr.
Það er notalegt að vakna á morgnana og fá
gott heitt kaffi og ristað brauð. Þessi frábæra
kaffivél og brauðristin valda þér ekki
vonbrigðum . . . nývöknuðum.
Kaffivélin er 45 sek. að hella upp á hvern bolla af frábæru
heitu kaffi. Þýsk gæða framleiðsla. Margar stærðir: 12,10, 8,6 og
18 bolla. Einnig með innbyggðum hitabrúsa og tölvuklukku
(sjálfvirk uppáhelling eftir minni).
Verð frá: 38.000 kr.
FALKIN N rteáM&diteác SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Yngvl Jónsson verkstjóri: Mér finnst
yfirleitt öll lögin góð.
Marteinn Jónsson húsasmlöur: Yester-
day, alveg örugglega. Sergeant’s Pepp-
ers platan er öll mjög góð.