Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 10
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980.
DB á ne ytendamarkaði
JOLAGLOGGA
JOLAFÖSTU
— Bæði áfengt og óáfengt
Tími jólaglöggsins er runninn upp.
Hér á eftir fer uppskrift að glöggi
sem hægt er að nota bæði áferigt og
óáfengt rauðvín í. Ráölegra er að
nota þetta óáfenga svona dagsdag-
lega, annars getur farið illa fyrir
ákveðnum innyflum manna.
2 fl rauðvín
S stk. heilar kardemommur
2 stk. heill kanill
21/2 dl sykur
100 g rúsinurog
100 g afhýddar möndlur.
Rúsínurnar og kryddið látið liggja í
bleyti í víninu í allt frá 2 tímum og
upp í 24 tíma. Þá er vínið hitað í potti
og sykurinn látinn út í ásamt möndl-
unum, sem sneiddar hafa verið niður
í flísar. Vínið má ekki sjóða, aðeins
hitna vel.
Glöggið er siðan borið fram í púns-
glösum og ef þau eru ekki til má
notast við venjuleg rauðvínsglös á
fæti. Mörgum þykir skemmtilegra að
láta kryddið (kardemommur og
kanil, einnig má nota negulnagla í
glögg) í grisju í stað þess að láta það
fljóta í glöggskálinni. En þarna
ræður hver og einn hvernig hann
hefur það. En fyrir þá, sem ekki
þekkja krydd í svona heillegu
ástandi, má taka fram að heill kanill
litur út líkt og tjásulegur vindill sem
einhver hefur misst ofan í glöggskál-
ina.
í áfengisverzlunum ríkisins fást
margar tegundir af rauðvíni á mjög
breiðu verðbili, eða allt frá 2.800 kr.
og upp í 9.000 kr. Það ódýrasta
(Trakía) hefur fengið meðmæli
Jónasar Kristjánssonar ritstjóra sem
skrifað hefur um vín af mikilli þekk-
ingu í Vikuna.
Ef notað er óáfengt vín (sem fæst í
öllum stærri matvöruverzlunum)
verður glöggið um það bil helmingi
ódýrara en með áfenga víninu.
- A.Bj.
Onnu isinn er hálflinaður upp og siðan frystur á nýjan leik.
^ ^ ^ DB-mvnd Einar Olason.
0NNU-IS
— íshringur með möndlum og sérríriísínum
Önnu-ís er með möndlum, suðu-
súkkulaði og sérrirúsínum.
Höfundur hans er Erna Valdimars-
dóttir Reykjavík.
100 g rifið suöusúkkulaöi
1 dl hakkaðar möndlur
1 dl hakkaöar rúsínur, lagöar í bleyti
í sérrí, madeira eöa annaö vin.
1 1/21 vanilluís.
Mýkið ísinn. Hrærið öllu saman og
setjið í fallega lagað form. Frystið í
um það bil einn sólarhring. -A.Bj.
Þarna eru þær komnar pöddurnar sem voru i páfagaukafóðrinu. Tvær þeirra voru enn lifandi þegar myndin var tekin og Ijós-
myndarinn átti fullt i fangi með að vera nógu handfljótur að mynda þær áður en þær voru komnar út um alla ritstjórn.
Stærðin á pöddunum er nú e.t.v. nokkuð ýkt á myndinni, en það varð að nota linsu sem stækkar nokkuð mikið tii þess að
pödduskammirnar kæmu út á mynd! DB-mynd Einar Olason.
Bráðlifandi pöddur
í páfagaukafóðri
— „ Við sem vinnum utan heimilis prjónum líka og saumum
ábörnin okkar”
Kæra Neytendasíða.
Beztu þakkir fyrir gott blað og sér-
staklega fyrir neytendasíðuna.
Ég bý á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og er með fimm manna fjölskyldu,
þrjú börn frá þriggja til þrettán ára.
Ég vinn hálfa vinnu og verzla alltaf í
stórmarkaði (á frystikistu).
Kostnaðurinn er ca 50 þús. kr. á
mann.
Ég fyllist alltaf gremju þegar ég les
bréf frá konum sem ekki vinna úti og
telja upp það sem þær spara með
vinnu heima, saumaskap, prjóni og
bakstri. Það má lesa milli línanna að
við hinar gerum þetta ekki.
Það er alrangt. Við gerum þetta
nefnilega líka og kannski ekki minna,
en með heilsdagsvinnu verður sjálf-
sagt aðdraga úr.
Þrjú gæludýr eru á heimilinu.
Smáhundur sem er fjarska léttur á
fóðrum og vill ekki sjá rándýran
hundamat og tveir páfagaukar.
Páfagaukarnir fara líklega bráðum
að verða hungurmorða, þó ljótt sé
frá að segja.
Þrátt fyrir að hafa átt fugla og
keypt fuglamat i tuttugu ár er nýtt
vandamál búið að skjóta upp kollin-
um. í fjögur síðustu skiptin, sem ég
hef keypt mat, hef ég orðið fyrir
óskemmtilegri reynslu. Ég kaupi
jafnan bláa pakka sem merktir eru
„parakeet seed”, með mynd af páfa-
gauk utan á. Pakkarnir hafa bókstaf-
lega verið á iði af einhverjum skor-
dýrum sem minna mig mest á lúsina i
náttúrufræðinni.
Ég hef keypt pakkana á fleiri
stöðum og alls staðar er ég sú eina
sem kvartar.
Þar sem gert er ráð fyrir að pakk-
arnir séu opnaðir og geymdir þannig í
skápum vil ég vara fólk við. Hellið
innihaldinu í dós og verið i við-
bragðsstöðu að skella loku á þegar
þær fljótustu vilja spásséra eftir eld-
húsborðinu.
5663-7893
Pöddurnar
bráðlifandi
Bréfritari sendi okkur Sýnishorn af
fuglafóðrinu og pöddunum, sprelllif-
andi! Þetta var vandlega vafið inn i
plastpappír og límt aftur með lím-
Heiimlisbókliald vikuna: tíl
Mat- og drjdsk arvörur, hreLnlætísvörur og þ.h.:
Sunnud Mánud Þridjud Midvikud FLmmtud Föstud Laugard
SamL Samt. Samt Samt SamL Samt Samt v
önnur útgjold:
Sunnud Mánud Þridjud Midvikud FLmmtud Fbstud Laugard
SamL Bamt SamL SarnL SamL SamL Bamt.
bandi. Pöddurnar voru mjögsnarar í
snúningum og ljósmyndarinn varð að
vera snöggur við myndatökuna til
þess að missa ekki kvikindin út um
alla ritstjórn! Það er svo sannarlega
ástæða til þess að vara fólk við þess-
um ófögnuði. Það væri lítið
skemmtilegt að fá svona pöddur i eld-
hússkápana sína. Kannski verður
páfagaukunum ekki meint af því að
borða pöddurnar, en engu að síður er
það athyglisvert að bréfritari skuli
vera sá „eini sem hefur kvartað”
undan pöddunum, fyrst hún hefur
keypt kornið á fleiri en einum útsölu-
stað.
Við höfum áður lýst aðdáun okkar
á þeim ungu konum sem vinna hálfan
og heilan vinnudag utan heimilis með
börn. Svo ekki sé minnzt á þær sem
þar að auki sauma og prjóna, þvo all-
an þvott og baka allt til heimilisins.
En við hverfum ekki ofan af því að
fjárhagslegur ávinningur sé ekki ýkja
mikill fyrir útivinnandi konur ef þær
þurfa að greiða fullt barnaheimilis-
gjald fyrir fleiri en eitt barn. Ekki má
gleyma því að greiða þarf skatt af
tekjunum sem inn vinnast. -A.Bj.
íbúðir hjá Bygginga-
samvinnufélagi
Kópavogs enn ódýrari:
30-35%
undir
markaðs-
verði
í blaðinu fimmtudaginn 4. des.
sögðum við frá hagstæðum bygging-
um hjá Byggingasamvinnufélagi
Kópavogs. Sem dæmi var nefnt að í
blokk sem félagið er að afhenda
kostuðu íbúðir á uppreiknuðu verði
16—20% minna en íbúðir á almenn-
um markaði. Þessi tala reyndist hins
vegar ekki vera rétt reiknuð, verðið er
enn hagstæðara. í raun eru íbúðirnar
30—35% ódýrari.
Mistökin lágu í því að fram-
kvæmdastjóri Byggingasamvinnu-
félagsins reiknaði mun á verði íbúða
á frjálsum markaði og íbúða þeirra
sem húsnæðismálastjórn miðar lán
sín við. En þar sem ibúðir Bygginga-
samvinnufélagsins eru enn ódýrari en
íbúðirnar sem Húsnæðismálastofnun
miðar við var samanburðurinn ekki
réttur. - DS