Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 15

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980. 15 LandsfundurLÍA islandsmeistaramir krýndir Ólafur Vilhjálmsson starir á snúningshraðamælinn mcð fjölina í gríllinu og steikir afturdekkin fvrir spyrnu. Ólafur sýndi mikla yfirburði I spyrnunni og fór létt með að grilla andstæðinga sina. íslandsmeistararnir i akstursiþróttum voru krýndir á fundinum og sjást þeir hér með verðlaunabikarana slna. Lengst til vinstri er Örvar Sigurðsson, formaður LÍA. Honum á vinstri hönd eru Ómar og Jón Ragnarssynir rallmeistarar. Þá koma Jón S. Halldórsson (rallícross), Ólafur Vilhjálmsson (kvartmila), Bragi Finnbogason (sandspyrna), Oddur Vifilsson (mótocross 500cc) og Gunnar Þ. Jónsson (mótocross 50cc). Á myndina vantar Gunnlaug Bjarnason, Islands- meistara I torfæruakstri. Landssamband íslenzkra aksturs- íþróttafélaga, LÍA, hélt haustfund sinn laugardaginn 6. des. á Hótel Esju. Var fjöldi mála á dagskrá fundarins en meðal þeirra voru skýrslur fulltrúa hinna ýmsu íþróttagreina í akstursí- þróttaráði LÍA. Kom þar fram að starfsemi akstursíþróttaklúbbanna hafði verið með miklum blóma síðast- liðið ár og hafði mikill fjöldi keppna verið haldinn. Allar höfðu þær farið vel fram og án slysa enda eru allar öryggiskröfur LÍA mjög strangar og öryggisráð þess sér um að þeim sé fylgt til hins ýtrasta. Næsta keppnistímabil var mikið rætt og var meðal annars samið keppnisalmanak fyrir næsta ár og sam- kvæmt þvi munu umsvif aksturs- íþróttaklúbbanna taka annað stökk fram á við næsta ár. Gömlu klúbbarnir fjölga sínum keppnum, en auk þess munu margir yngri klúbbanna víkka út starfssvið sitt og taka upp nýjar greinar. Bifreiðaíþróttaklúbbur Húsa- víkur hefur t.d. byggt ralb'crossbraut og munu þeir Húsvíkingar byrja að keppa í þeirri grein með vorinu. Bifreiða- íþróttaklúbbur Vestur-Húnavatnssýslu verður með rallíkeppni næsta sumar, en mestum undirbúningi þeirrar keppni er þegar lokið. Sauðkræklingar verða með ísaksturskeppni og íscross, þeir sýna einnig rallícrossinu mikinn áhuga og munu að öllum líkindum halda íslandsmótið í sandspyrnu næsta sumar. Lengi mætti telja þær nýjungar sem bryddað verður upp á í akstursí- þróttum næsta sumar en eg læt þetta nægja að þessu sinni.En eitt er víst að áhugamönnum um akstursíþróttir ætti ekki að leiðast næsta sumar. Kvöldið eftir fundinn var verðlauna- afhending þar sem-'íslandsmeistarar í hinum einstöku akstursíþróttagreinum voru krýndir. Veitt eru stig fyrir þátt- töku og árangur í akstursíþróttakeppni og sér LÍA um að reikna út og halda stigunum saman. Að keppnistimabilinu loknu er svo stigahæsti maðurinn krýndur íslandsmeistari i viðkomandi grein. Rall Bræðurnir Ómar og Jón Ragnars- synir urðu íslandsmeistarar í ralli að jtessu sinni. Þeir bræður sigruðu í Borgarfjarðarrallinu í vor og einnig Húsavíkurrallinu. í öðru sæti urðu þeir Hafsteinn Hauksson og Kári Gunnars- son en þeir voru íslandsmeistarar i fyrra og unnu þá Borgarfjarðar- og Húsavíkurröllin en í ár lentu þeir í öðru sæti í þessum keppnum. í stóra rallinu í sumar duttu bæði Jón og Ómar og Hafsteinn og Kári úr keppninni svo að hvorugur þeirra náði sér í stig þar. Þeir Kári og Hafsteinn unnu svo Kaaber- rallið en það gaf ekki stig til íslands- meistaratitils. Rallícross í rallícrossi voru haldnar fjórar keppnir á vegum BÍKR, sem gáfu stig til íslandsmeistaratitils. Jón S. Halldórsson sigraði í þrjú skipti af þessum fjórum og var reyndar búinn að tryggja sér titilinn eftir aðra keppnina, slíkir voru yfirburðir hans í crossinu. Kvartmfla Á kvartmílubrautinni við Straums- vík lék Ólafur Vilhjálmsson sér að and- stæðingum sínum eins og köttur að mús. Enginn þeirra hafði nokkra möguleika á móti honum og jjegar Gunnlaugur Bjarnason brýzt um á hæl og hnakka I drullugrvfjunni í Grindavik þar sem hann tryggði sér íslandsmeistaratitil- inn I torfæruakstri. DB-myndir Jóhann Kristjánsson. Ólafur spymti „fjölinni í grillið” máttu þeir horfa á eftir Kókosbollunni út á brautina. Keppt var fjórum sinnum í kvartmílu síðastliðið sumar og sigraði Ólafur alltaf. Auk þess fékk hann bónusstig fyrir fslandsmet og brautar- met sem hann setti. { júní bætti hann íslandsmetið í street alterd flokki þegar hann fór kvartmíluna á 10,89 sek. í sömu keppni setti hann einnig brautar- met, 10,27 sek., en í þeirri spyrnu notaði hann nitrous oxide gas á véliná en það er bannað í flokkakeppninni. f júlí bætti Ólafur íslandsmetið í SA aftur og fór þá brautina á 10,58 sek. Sandspyrna Þrisvar var keppt í sandspyrnu siðastliðið sumar, við Akureyri, á Sauðárkróki og að Hrauni í Ölfusi. íslandsmeistari i sandspyrnuakstrinum varð Bragi Finnbogason frá Akureyri og vó þar þyngst stórglæsilegt íslands- met hans í keppninni fyrir norðan. Fór hann sandspyrnubrautina á 4.11 sek., ,og bætti gamla metið um meira en heila sekúndu. Motocross fslandsmeistari í 500 cc flokki varð Oddur VíFilsson. Vélhjólaíþróttaklúbb- urinn hélt sjö keppnir síðastliðið sumar og varð Oddur þrisvar sigurvegari. Hann lenti tvisvar í öðru sæti og einu sinni í fimmta sæti en einni keppninni tók hann ekki þátt í. í 50 cc flokki varð Gunnar Þ. Jónsson fslandsmeistari en hann lenti í öðru sæti í báðum keppnunum í þessum flokki sem gáfu stig til íslands- meistaratitils. Torfæruakstur Síðastliðið sumar voru haldnar fjórar torfærukeppnir. Tvær þeirra hélt Bílaklúbbur Ákureyrar en hinar voru á Hellu og í Grindavik. Gunnlaugur Bjarnason keppti í bæði skiptin fyrir sunnan og sigraði. Fyrir það afrek hlaut hann nógu mörg stig til að hreppa fslandsmeistaratitilinn í torfæruakstri. Jóhann Kristjánsson. Ertu buinn ad fá þér Hnetustaur eöa F/orida í dag? mme. lílpÉ^5® ' V ««030» # ■ ■ UagfcxTPí * ,, im -fjjy -■ — : '. AiXsíx; i'1 gSg^ íju'rSor. - is Sftílgætisgeinðin GOA Reykjuvikurveqi 72. hf., sinii 53466

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.