Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 16

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 16
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980. 16 FÓLK Hljómsveltin Stelnl bhinöur spann þrjá til fjbra time af tónlist Inn i band. Hépunktamir voru stðan vaklir á ptötuna Oatan og sótin. Fri vinstrí eru Graham Smith, Magnús Þór Sigmundsson, Jónas BJörnsson, Richard Korn og Gostur Guönason. LJósm.: Haraidur Skarphóðinsson. Ný plata Magnúsar Þórs Sigmundssonar er aö koma út: TÝNDIST, TAFÐIST, BROTNAÐI OG LENTI t VERKFÖLLUM „Þessi plata er búin að vera mikið vandræðabarn. Hún hefur tafizt og týnzt í ýmsum löndum, lent 1 tveimur verkföllum, móðurskurðurinn brotnaði svo að skera varð upp á nýtt og þannig mætti lengi telja. En nú um helgina ætti hún loksins að koma út,” sagði Magnús Þór Sigmundsson er rætt var við hann um nýjustu plötu hans, Götuna og sólina. .■„Upphaflega átti hún að koma út 1 sumar. Égvarbúinn að fáFálkann til að gefa hana út og búinn að velja réttu hljóðfæraleikarana, en þá hætti Fálkinn við,” sagði Magnús. ,,Ég var búinn að vera lengi með efni plötunn- ar í huganum og varð að losa mig við það, svo að ég talaði við Svavar Gests. Hann tók síðan útgáfuna að sér og platan var að mestu tekin upp í stúdíóinu hjá honum.” Steini blundur spinnur Gatan og sólin skiptist í tvö verk. Á A-hliðinni er Gatan og Sólin á B- hlið. öll eru lögin eftir Magnús Þór og hann og Kristján skáld frá Djúpa- læk skipta með sér textunum. Þeir sem leika með Magnúsi á plötunni eru Graham Smith, Richard Korn, Jónas Björnsson og Gestur Guðna- son. — Þessir fimmmenningar skipa hljómsveitina Steini blundur. „Upphaflega var Graham einn með mér í þessu, en síðan bættust hinir við einn af öðrum,” sagði Magnús Þór. „Við spunnum í raun og veru alla tónlistina upp í stúdióinu. Við tókum upp þrjá eða fjóra tímal af tónlist og völdum síðan hápunktana á plötuna.” Vinnslan tók sjö mánuði „Það hefur aldrei nein plata valdið mér viðlika vandræðum og Gatan og sólin,” sagði Magnús ennfremur. „Ég hélt satt að segja á tímabili að ég myndi missa vitið — slíkur var rugl- ingurinn orðinrt. Ég byrjaði að vinna að plötunni í maí, svo að útgáfan í heild hefur tekið sjö mánuði. Svona nokkuð borgar sig að sjálfsögðu eng- an veginn, en þetta dæmi kennir manni að fylgjast betur með vinnsl- unni á öllum stigum næst. Það þarf ekki nema eina kærulausa manneskju einhvers staðar úti í heimi til að öll vinnslan fari úr böndunum.” Magnús Þór og félagar hans í Steina blundi koma fram á sameigin- legu skemmtikvöldi SATT, Jazz- vakningar og Vísnavina á miðviku- daginn og kynna þá efni plötunnar Gatan og sólin. Áöur óútgefið lag á nýrri hljómplötu með Vilhjálmi Vilhjálmssyni Sverrir. Watergate í Valhöll Sumir foringjar Sjálfstæðis- flokksins virðast hafa sama veikleika og Nixon og ætla að fara flatt á því. Nbton dáðist svo að orðum sínum, að hann lét taka upp á bönd hvers konar leynifundi sína — og geyma. Á þessu lá Nixon síðan i Watergate- málinu, eins og frægt er. Sverrir Hermannsson alþingis- maður og fleiri foringjar Sjálfstæðis- flokksins hafa sama hugarfarið og liggja á. Sverrir lýsti því i Morgun- blaðinu fyrir skömmu, hvernig höfundar bókarinnar „Valdatafl í Valhöll” hefðu komizt í spólur með , .leyniræðiT’ Sverris, sem geymdar voru í Válhöll. Sverrir segir: „Ákveð- ið var að læsa ræðurnar, sem fluttar voru, inni í peningaskáp í Valhöll. Vélrituð voru tvö eintök eftir upptök- unni, en spólan og annað eintakið st'ðan læst inni í peningaskápnum með yfirlýsingu um, að aldrei yrði birt nema með leyfi viðkom- anda . . .” „Harðnaðir unglingar” og nýjar Ijóðabækur Síðastliðinn miðvikudag sögðum við frá „hörðnuðum unglingi” sem pundaði eftirfarandi orðum á fjöl- skyldu sína: væri ég bilað sjónvarp mundi ég örugglega valda frekari truflunum ílíftykkar. Nú hefur lesandi frætt okkur á því að stráksi hefur sótt þessar hendingar úr ljóðabókinni „Er nokkur í Kór- ónafötum hér inni?” eftir Einar Má Guðmundsson, sem nýlega var gefin út af Gallerí Suðurgötu 7. Einar á greinilega lesendur meðal táninganna. Stutt virðist nú orðið milli skáld- skapar og veruleika í bókmenntum vorum, ef marka má nokkrar þær bækur sem gefnar hafa verið út að undanförnu. í nýrri bók Ölafs Hauks Símonarsonar, Galeiðunni, fer ein sögupersónan fögrum orðum um vín og matarsmekk Jónasar Kristjáns- sonar ritstjóra DB og í nýrri skáld- sögu Þorsteins Antonssonar, Fína hverfið, koma við sögu Gunnar Thoroddsen og fjölskylda hans, fjölskylda Harðar Bjarnasonar húsa- meistara fyrrv. og fleira þekkt fólk í Revkjavík. Manni nefnist ný hljómplata' sem út er komin með söng Vil- hjálms heitins Vilhjálmssonar. Þrettán laganna hafa áður verið gefin út á ýmsum plötum, en eitt, titillagið, hefur ekki heyrzt áður. „Vilhjálmur heitinn tók þetta lag upp árið 1977, er hann vann að gerð síðustu plötu sinnar, Hana nú,” sagði Jón Ólafsson út- gefandi plötunnar í samtali við blaðamann DB. „Við töldum við- eigandi að hafa þetta lag með núna, ekki sizt vegna boðskapar- ins í textanum. Vilhjálmur samdi einmitt textann sjálfur.” Með Vilhjálmi í laginu Manni koma fram auk hljóðfæraleikara Þórhallur Sigurðsson leikari og Kór öldutúnsskóla. önnur lög á plötunni Manni voru gefin út hjá SG-hljómplöt- um.Fálkanum og Hljómplötuút- gáfunni hf. Þau hafa flest hlotið miklar vinsældir og heyrast mörg enn leikin í útvarpi. Má þar nefna lögin Lítill drengur, Bíddu pabbi ogHeimkoman. -ÁT Hljómsveitin LagEr kornin fram á sjónarsviðið: Leikum hvað sem er nema diskótónlist — segja liðsmenn „Nafnið skrifum við svona aðeins fyrir augað,” sögðu liðsmenn hljóm- sveitarinnar LagEr í samtali við Fólk- síðuna. „Það getur þýtt hvort sem er lag er eða lager.” Hljómsveitin LagEr kom fram á síðasta SATT-kvöldi í Klúbbnum og hefur einnig lítillega leikið í Hafnar- firði. Þeir félagarnir sögðust hafa byrjað að æfa fyrir aðeins hálfum öðrum mánuði og væru rétt að byrja að kynna sjálfa sig. „Það verður dálítið að gera hjá okkur í kringum jólin,” sögðu þeir, „og svo vonumst við til að byrja af fullum krafti eftir áramótin þegar skemmtanavertíðin hefst.” Tónlistin, sem LagEr flytur, er hennar aðallega danslög, „þó ekki diskó,” fannst meðlimum hljómsveitarinnar rétt aðkæmi fram. Dagskrána reyna þeir að blanda þannig að hún geti gengið fyrir sem flesta aldurshópa. Einnig leika þeir nokkur frumsamin1 lög. í hljómsveitinni LagEr eru Jóhann Morávek bassaleikari, Ólafur örn Þórðarson hljómborðsleikari, Jón Björgvinsson, sem leikur á trommur, Jón Rafn Bjarnason söngvari og Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari. Tveir þeir síðastnefndu semja þá frumsömdu tónlist, sem LagEr leikur. Þá er væntanleg með söngvar- anum tvep.gja laga hljómplata nú fyrirjólin. -ÁT Gerast nú skáld- sögur raun- verulegar Hljómsveitin LagEr tók til sterfa fyrir aöekts hUfum öðrum minuði. Hún kom fram i SA TT-kvöldi i Kiúbbnum fyrir nokkru. Hampur gefinn út í takmörkuðu upplagi „Nei, ég á ekki von á þvi aö upp- lagið verði gert upptækt,” sagði Gunnar Vilhelmsson útgefandi bókarinnar Hampur, úti/inni rækt- unarleiðbeiningar. Gunnar sagði að bókin væri gefin út í takmörkuðu upplagi og upplagi hennar dreift í helztu bókaverzlanir. „Bókakaupmenn voru slður en svo hræddir við að taka bókina til sölu,” sagði Gunnar. „Það var aðeins á einum staö, sem kaup- jnaðurinn var í vafa.” f bókinni Hampur gefur höfund- urinn, Þorsteinn Úlfar Björnsson, lesendum leiðbeiningar um, hvernig bezt sé að standa að ræktun kanna- bis í heimahúsum. Gunnar sagði að sumt af efninu væri þýtt, annaö byggði höfundurinn á eigin reynslu. — Þorsteinn hefur einmitt nýverið veriö ákærður fyrir að hafa ræktað og haft 1 vörzlu sinni 27 kannabis- jurtir. Fremst i bókinni Hampur segir: „Neysla hamps og hampafurða er, ólögleg á fslandi. Hvorki hðfundur’ né útgefandi mæla með eða hvetja til neyslu. Ef einhver fer eftir leið- beiningum þessarar bókar gerir viö- komandi það á eigin ábyrgð.” „Við afþökkum alla aðstoð og óþarfa uppblástur við að auglýsa bókina,” sagði útgefandinn. „Við viljum heldur að þetta mál verði skoðaö frá öllum hliðum.” Þorsteinn Úlfar Björnsson er for- maður félagsins SELF, Samtaka um endurbætur á lögum um ftkni- efni. Fk’itú,-. FOLK

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.