Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 27

Dagblaðið - 13.12.1980, Qupperneq 27
MMBIAÐW frýálst, úháðdagblað DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1980. Lífið eftir Pablo Picasso. ÍÞRÓTTIR — sjónvarp kl. 16,30 laugardag: Frjálsar íþróttir og knattspyrna „Ég verð með mynd um það fólk sem komið hefur hvað mest á óvart á ólympíuleikum,” sagði Bjarni Felix- son um íþróttaþátt sinn í dag kl. 16.30. Síðan sagði Bjarni að fyrir hverja ólympíuleika væri mikið spáð í það hverjir væru sigurstranglegastir en þrátt fyrir alla spádóma væru alltaf einhverjir sem kæmu á óvart. „Þessi mynd er í svipuðum anda og þær sem ég hef verið að sýna af mestu afreksmönnum í sögu ólymp- íuleikanna. Þetta eru myndir sögu- legs eðlis frá 20th Century Fox. x * Einnig verður körfubolti á dagskrá. Sýndir verða kaflar úr leik KR gegn Val og leik Njarðvíkinga gegn KR sem spilaður var í gærkveldi. Inn á milli verður fótbolti, bæði enskur og evrópskur bolti. Sjáum við þar m.a. Rauðu stjörnuna frá Júgóslavíu leika gegn Basel frá Sviss, Grasshoppers gegn Porto, Juventus gegn Lodz og Inter Milano gegn frönsku meistur- um Nantes. í lok þáttarins verða skíðamyndir eins og tíminn leyfir,” sagði Bjarni að lokum. -GSE Þarna á Janus Guölaugsson i höggi við pólskan varnarmann i landsleik. Janus leikur nú meö vestur-þýzka liöinu Fortuna Köln. LEIFTUR ÚR LISTASÖGU — sjónvarp sunnudag kl. 21,10: LÍFID EFTIR PABLO PICASSO , ,Lífið er mesta verk Picassos frá bláa tímabilinu,” sagði Björn Th. Björns- son sem er umsjónarmaður þáttarins Leiftur úr listasögu. Á sunnudagskvöld tekur Björn Th. fyrir verk Pablo Picasso, Lífið, sem er aðal- og lokaverk Picassos frá því tímabili í lífi hans sem kallað hefur verið bláa tímabilið. Verkið er málað í Barcelona árið 1903. „Þetta er ákaflega torskiiið verk, sumir hafa haldið þvi fram að það væri óút- skýranlegt.” í þætti sínum rekur Björn Th. þær myndir sem Picasso málaði á undan þessu verki, einnig teikningar og skissur sem voru forvinna að þvi. „Reynt er að sýna hvaða þræðir liggja UR B0KA- SKÁPNUM — útvarpkl. 17,20: Myrk- fælni fyrr ognú 'Wl Þórbergur Þórðarson rithöfund- Úr bókaskápnum heitir þáttur sem Sigríður Eyþórsdóttir stjómar kl. 17.20 í dag. „Har- aidur Ólafsson, 14 ára, velur úr bókaskápnum Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson og les ég kafla úr bókinni,” sagði Sigríður. „En áður segir Haraldur frá Þórbergi og verkum hans. í þeim kafla sem ég les segir Þórbergur frá því þegar hann á í hvað hatrammastri baráttu við myrkfælni sína. Út frá frásögn Þórbergs af myrk- fælni sinni spinnast umræður um myrkfælni. Auk min og Haralds koma þau Kári Gissurarson og Bergljót Arnalds. Við tölum saman um myrkfælni og þau rifja upp ýmiss konar reynslu sem þau hafa orðið fyrir. Það kemur fram að börn eru ennþá myrkfælin en þau eru ekki lengur hrædd við drauga eða grýlur eins og áður var, heldur eru þau hrædd við árásir og alls konar ofbeldi. Ástæður þess má ábyggilega finna hjá sjónvarpi. Síðan koma i þáttinn tvær níu ára telpur, Dýrleif örlygsdóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir. Þær lesa þýðingu sína á ævintýrinu Fílnum trampandi eftir brezka rithöfundinn Anítu Hewett.” -GSE að þessari mynd og hvað hún hefur að geyma. Þetta er geysistórt máiverk, 2x 1.30 m. Þetta eru stuttir þættir og einbeiti ég mér að einu verki í senn. Það sem listfræðin getur gert er að geta fólki forsendur og leiðbeina því.” Stjórn upptöku annaðist Valdimar Leifsson. J0LAGETRAUN DAGBLAÐSINS 1980 Heildarverðmæti vinninga í jóla- getraun Dagblaðsins að þessu sinni er hvorki meira né minna en 1.603.650 krónur. Býður nokkur betur? Nord- mende myndsegulbandið kostar 1.525.700 krónur og hvor bók með teikningum Haildórs Péturssonar kostar 38.975 krónur. Jólagetraunin hófst í blaðinu í gær. Hún er i því fólgin að þátttak- endur eiga að geta sér til um nafnið á jólasveini þeim sem birt er mynd af hvern dag. Alls verða birtar myndir af tiu jólasveinum, sú síðasta á Þor- láksmessu. Þeir sem ætla að verða með verða að geyma allar tíu úrlausn- irnar þangað til síðast. Þá eru þær settar í umslag sem merkist Dagblað- inu, Siðumúla 12, 105 Reykjavík, „Jólagetraun”. Skilafrestur er til 30. desember og verða þá úrslitin væntanlega kynnt á þrettándanum. Jólasveinninn sem kernur til byggða í dag er hinn mesti gaur. Hér áður fyrr, áður en mjaltavélar komu til sögunnar í sveitum, var það hans mesta unun að stela froðunni ofan af | mjólkurfötunum er mjaltafólkið þurfti að sinna einhverju öðru. Nú sést hann aðailega á rangli í kringum mjólkurstöðvar, raunalegur á svip- inn. Þessi ágæti jólasveinn á mynd Halldórs Péturssonar heitir: NAFN HEIMILI.................. ........................................ Strikið undir það nafn, sem ykkur þykir líklegast. Klippið síðan mynd■ ina og lausnina út og geymið með þeim níu, sem ú eftir koma. Þegar slð- asti jólasveinninn hefur birzt á Þorláksmessu, setjið þá allar lausnirnar I umslag og merkið það: Dagblaðið „Jólagetraun" Síðumúla 12 105 Reykjavík Skitafrestur á jólagetrauninni er til 30. desember. Gðs Guðmundsson Gunnar Thor RðnfMuw uqagaur II. HLUTI * * * * 4 ***** 4 * *•*'* •'«

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.