Dagblaðið - 13.12.1980, Side 28

Dagblaðið - 13.12.1980, Side 28
Stuðningsfindur við Gervasoni á Lækjartorgi í dag: „Hörmum að málið skuli flækt íflokkadrættff —Vélstjórar á Suðumes jum f ordæma miðstjorn Alþýðusambandsins fyrir afskipti af málinu Stuðningsmenn Patricks Gervasonis efna til útfundar á Lækjartorgi kl. 14 í dag. Þeir segjast efna til fundarins til að minna á að „fyrst og fremst ber að líta á mál Gervasonis út frá mannúðarsjónar- miðum.” Sömuleiðis harma þeir að „málið skuli hafa verið flækt i laga- króka, pólitíska flokkadrætti og ein- strengingsleg þjóðernisviðhorf.” Ræðumenn á stuðningsfundi franska flóttamannsins eru: Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Hreinn Hákonarson, Heimir Pálsson, Pétur Pétursson, Sigurður A. Magnússon og Anton Helgi Jónsson. Fundar- stjóri er Bryndís Schram. Staðan í máli Gervasonis er óbreytt. Honum er gert að hverfa af landinu innan tíðar og þá til Danmerkur. Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur Gervasonis fór til Dan- merkur á dögunum á kostnað Alþýðusambands íslands til að afla upplýsinga um hver afdrif Frakkans yrðu færi hann þangað. Niðurstaða af ferð Ragnars er sú að engin trygging er fyrir því að Gervasoni verði veitt landvist eða hæli í Danmörku. Jafnlíklegt er að hann verði framseldur til Frakklands þar sem biður hans fangelsi fyrir liðhlaup úr hernum. Skoðanir eru skiptar um Gervasoni-málið, það fer víst ekki fram hjá þeim er renna augum yfir síður dagblaða, sérstaklega lesenda- dálkanna. Afskipti Alþýðusam- bandsins af málinu eru líka umdeild. Stjórn Vélstjórafélags Suðurnesja samþykkti til dæmis á fundi í fyrra- kvöld að „fordæma stjórn ASÍ fyrir að kosta lögfræðing Frakkans Gervasonis til Danmerkur, svo og fyrir afskipti af því máli öllu.” Stjórn Vélstjórafélagsins lýsti stuðningi við orð og gerðir Friðjóns Þórðarsonar dómsmálaráðherra ímálinu. -ARH. Það sá undir neðsta punkt þessa stæðilega F.imskipafélagskrana, likt og á Gunnari á Hlíðarenda forðum, þegar verið 'ar að afferma Dettifoss í gærdag. Hlassið sem kran- inn átti að hífa reyndist talsvert of þungt. Kraninn tókst á loft aö framan og hlassið seig niður á lestargólfið að nýju. F.ngin sl.vs urðu á mönnum og skemmdir litlar sem engar. DB-mynd F.inar Ólason. Forsætisráðherra í snörpum umræðum utan dagskrár: „Getum ekki afsalað okkur rétti til að setja bráðabirgðalög” — ríkisstjómin sökuð um að margbrjóta Ólafslögin ogforsætisráðherra að rjúfa „heiðursmannasamkomulag” „Hverjar eru þær víðtæku ráðstafanir sem ríkisstjórnin ætlar að gera fyrir áramót? Má gera ráð fyrir að þær verði kunnar fyrir næsla laug- ardag, áður en þingmenn fara í jólaleyfi? Og verða sett bráða- birgðalög í fjarveru þingsins eins og forsætisráðherra hefur gefið i skyn i útvarpsviðtali?” Þetta var inntak ræðu Ólafs G. Einarssonar form. þingflokks Sjálfstæðisflokksins utan dagskrár á Alþingi i gær. Í svari sínu vitnaði Gunnar Throddsen í stefnuræðu sína í október, þar sem sagt var að ríkis- stjórnin hefði i huga ýmsar efnahags- aðgerðir samfara gjaldmiðils- breytingunni um áramótin. „Alþingi hefur margsinnis verið skýrt frá að unnið væri að undir- búningi slíkra aðgerða. Undir- búnmgurinn útheimti itarlega könnun á áhrifum þeirra og samhengi. Meðan aðgerðirnar eru á vinnslu- og umræðustigi er ekki tíma- bært að skýra frá þeim opinberlega. Verði þær tilbúnar áður en fundum Alþingis verður frestað fyrir jól verður Alþingi þegar skýrt frá þeim.” Gunnar sagði að meðan ekki væri fúllráðið með hverjum hætti aðgerðirnar yrðu væri ekki unnt að segja hvort þörf væri á nýjum laga- heimildum. „Ef fundum Alþingis verður frestað með samþykki þess fram til síðari hluta janúar hefur ríkisstjórnin heimild til að gefa út bráðabirgðalög ef brýna nauðsyn ber til. Ríkis- stjórnin getur ekki afsalað sér þeim rétti en mun að sjálfsögðu nota hann með aðgát eins og stjórnarskráin ætlast til,” sagði ráðherrann. Sighvatur Björgvinsson kvað ráðherrann hafa brotið „heiðurs- mannasamkomulag” um afgreiðslu 21 máls fyrir jólaleyfi með því að fara síðar í útvarpið og gefa í skyn að bráðabirgðalögum yrði beitt. Margir fleiri tóku til máls og fóru mishörðum orðum um úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar, hvernig hún hefði nú margbrotið Ólafslögin og hverja óvirðingu hún sýndi Alþingi með þvi að gefa í skyn að aðgerðir í efnahags- málum yrðu afgreiddar með bráða- birgðalögum meðan þing væri í leyfi. Var viða komið við í umræðunum en til máls tóku Sverrir Hermannsson, Vilmundur Gylfason, Ólafur Ragnar Grímsson, Geir Hallgrímsson, Gunn- ar Thoroddsen, Kjartan Jóhannsson, Þorvaldur Garðar Kristjánsson o.fl. -A.Sl. frjálst, úháð dagblað p LALGARDAGUR 13. DES. 1980. Harðurárekstur: Tveirvoru fluttirísjúkra- húsíReykjavík Fimm manns voru fluttir í sjúkrahús eftir harðan árekstur skammt frá Sand- gerði. Þrír voru lagðir inn á sjúkra- húsið i Keflavík en tveir höfðu meiðzt svo illa að flytja varð þá til Reykja- víkur. Árekstur þessi var tilkynntur til lög- reglunnar í Keflavík um hálffimmleytið í gær. Er blaðamaður DB ræddi við lögreglumenn laust fyrir klukkan sjö var rannsókn ekki enn hafin þar eð þeir sem komu að slysinu þurftu að sinna sjúkraflutningum. Ekkert var hægt að segja um skemmdir á bilum né heldur tildrög slyssins. Hálka var á veginum um þetta leyti. - AT Ríkii: Engar ávís- anir, takk! Dýrðin stóð ekki lengi. Rikið tók við ávísunum frá viðskiptavinum sínum meðan á verkfalli bankamanna stóð. En i gærmorgun leystist verk- fallið. Þá stóð ekki á því: Áfengis- verzlun ríkisins tekur ekki lengur við þeim gjaldmiðli, sem gildir i nánast öllum viðskiptum manna hérlendis, á- vísunum. Þú verður því, lesandi góður, að reiða fram beinharða bankóseðla næst. -JH. — Litlarveður- breytingar „Það verða litlar breytingar á veðrinu um helgina frá því sem verið hefur síðustu daga,” sagði Guðmundur Hafsteinsson veðurfræðingur í samtali við DB í gær. „Þetta verða svona austanþræsingar, lítil úrkoma hér sunnanlands, en einhver él verða á Norðurlandi. Hitabreytingar verða litlar, ætli það verði ekki i kringum frostmark á Suðurlandi og aðeins yfir það fyrir norðan.” -F'LA. i Undrahundurinn íDagblaðsbíói í Dagblaðsbíói í dag verður sýnd ævintýramyndin Undrahundurinn. Myndin var einnig sýnd um næstsið- ustu helgi en þá urðu fjölmargir fráað hverfa og auk þess hafa margir óskað eftir að myndin verði endursýnd. Sýn- ingin verður í Borgarbíói í Kópavogi klukkan þrjú í dag. Þangað er hægt að komast með strætisvögnum númer 11 eða 12 frá Hlemmtorgi og er þá farið út á móts við bensínstöðina í neðra Breið- holti. 13. DESEMBER 26026 Philips vekjaraklukka m/útvarpi. Vinningshafar hringi í síma 33622.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.