Dagblaðið - 16.12.1980, Page 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1980.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I)
Sjö IRA-menn að dauða komnir eftir 50 daga hungurverkfall:
„Grípum tíl víðtækra
aðgerða gegn Englandi
ef fangamir deyja,” segja talsmenn írska lýðveldishersins
IRA-menn hafa áður gripið til
hungurverkfalla. Hér er gröf Michael
Gaughan, sem 24 ára gamall svelti sig
tii bana i Parkhurst fangelsi í Eng-
landi árið 1974.
„Einhverjir fanganna úr írska lýð-
veldishernum, sem undanfarnar
vikur hafa verið í hungurverkfalli í
Long Kesh fangelsinu í Norður-ír-
landi kunna að deyja fyrir jól. Ef það
skeður býst ég við að Irski íýðveldis-
herinn (IRA) muni grípa til víðtækra
aðgerða gegn Englendingum,” sagði
Kieran Nugent á blaðamannafundi í
Noregi. Nugent er sjálfur fyrrum
fangi og er í Noregi í þeim tilgangi að
kynna kröfur fanganna, sem verið
hafa í hungurverkfalli síðan 27. októ-
ber. Fangarnir krefjast þess að þeir
séu meðhöndlaðir sem pólitískir
fangar.pað hafa yfirvöld ekki viljað
fallast á enda líta þau á féfaga írska
iýðveldishersins sem hreina hryðju-
verkamenn.
Nugent, sem sjálfur sat í þrjú ár í
Long Kesh fangelsinu varð fyrsti
fanginn til að krefjast þess að verða
meðhöndlaður sem pólitískur fangi.
Hann sagði á blaðamannafundinum í
Noregi, að ekki væri ólíklegt að frski
lýðveldisherinn beindi spjótum sínum
að einhverju skotmarki í Englandi,
kæmi til þess að fangarnir sem eru í
hungurverkfalli létust.
í gær ákváðu 23 félagar írska lýð-
veldishersins að hefja þátttöku í
hungurverkfalli félaga sinna sjö sem
nú hafa ekki neytt neinnar fæðu í
fimmtíu daga. Þá var og greint frá
því í gær, að líðan þeirra sjö sem eru í
hungurverkfalli færi mjög versnandi.
Ekki þykir þó trúlegt að ríkisstjórnin
gefi sig í þessu máli og talsmaður ír-
landsmálaráðuneytisins sagði í gær,
að ríkisstjórnin harmaði þessar að-
gerðir fanganna en hafnaði því nú
sem fyrr að láta fangana njóta ein-
hverrar sérstöðu.
O’Neal krafinn
um750
milljónir
ískaðabætur
Hinn þekkti kvikmyndaleikari Ryan
O’Neal (Love Story) hefur verið kraf-
inn um skaðabætur að upphæð 750
milljón ísl. króna.
Það er bandarískur ljósmyndari,
David McGough, sem fer fram á þessar
skaðabætur vegna heiftarlegrar árásar
sem hann varð fyrir af hendi O’.Neals
og kvikmyndaleikkonunnar Farrah
Fawcett er hann hugðist mynda parið.
David McGough starfar sjálfstætt
sem ljósmyndari og leggur sig einkum
fram við myndatökur af þekktum leik-
urum.
Sameining
flugfélaga
Tvö af stærstu flugfélögum Banda-
ríkjanna, Eastern Airlines og Braniff
International, hafa í hyggju að samein-
ast.
Samningaviðræður um sameiningu
fyrirtækjanna standa nú yfir. Braniff
tapaði 51,6 milljónum dollara á fyrstu
níu mánuðum þessa árs og er nauð-
beygt til að grípa til róttækra ráðstaf-
ana.
Borgarstjóri
myrtur
Stöðug ólga er meðal íbúa jarð-
skjálftasvæðanna á Suður-ltalíu. Um
helgina var borgarstjórinn í Pageni,
hinn 52 ára gamli Marcello Torre,
skotinn til bana. Talið er að morðið
tengist þeirri fullyrðingu frá borgar-
stjóranum, að hjálpargögn er áttu að
berast hinum nauðstöddu hafi komizt í
rangar hendur og verið seld í verzlun-
um ýmissa frammámanna í Pageni.
Bandaríkja-
menn
aðvara Rússa
Fulltrúar Bandaríkjanna á Öryggis-
málaráðstefnu Evrópu í Madrid vör-
uðu Sovétmenn í gær enn við því að
innrás þeirra i Pólland mundi eyði-
leggja möguleika á að tryggja öryggi og
samstarf Evrópuríkja.
' Enn er þess beðið með mikilli eftirvæntingu hver Itreppir embætti utanríkisráð-
herra i stjórn Ronalds Reagan. Hann sagði i gær, að hann tæki ákvörðun um það nú i
vikunni. Alexander Haig fyrruni yfirmaður herafla NATO í Evrópu og yfirmaður
starfsliðs Hvíta hússins á timum Watergate-hneykslisins er enn talinn líklegastur til
að hreppa embættið. Um það sagði Reagan aðeins i gær: „Við komumst að þvi siðar i
vikunni.”
Robert Byrd, leiðtogi demókrata í öldungadeiidinni, sagði, að þáttur Haigs á loka-
i
dögum forsetaferils Nixons yrði kannaður. Talið er að ákvörðun Reagans hafi einmitt
dregizt tegna þessarar fortiðar Haigs.
I siðustu viku tilkynnti Reagan um skipan í átta ráðherraembætti. Þcir eru á mynd-
inni frá vinstri fjármálaráðherra Donald Regan, William Casey vfirmaður CIA,
David Alan Stockman atvinnumálaráðherra, Andrew Lindsay Lewis samgönguráð-
herra, Richard Schultz Schweiker heilbrigðisráðherra, Malcolm Baldrige viðskipta-
ráðherra, William French Smith dómsmálaráðhcrra og Caspar Willard Weinberger
varnarmálaráðherra.
—en fékk aldrei að vita þaö
Alfred, faðir Johns Lennons, skýrði frá þvl skömmu fyrir dauða sinn að John v tti
hálfbróður I Noregi. Barnið, sem kona hans Júlía eignaðist með welskum hermanni á
strlðsárunum, var ættleitt af norskum herforingja i sjóhernum og konu hans.
„Alfred Lennon bað mig um að
segja John ekki frá þessu. Nú þegar
hann er fallinn frá er hægt að greina frá
þessu,” skrifar Short.
Alfred var sjómaður og meðan hann
var fjarverandi á sjónum átti eiginkona
hans vingott við welskan hermann og
eignaðist með honum son. Þessi sonur
var gefmn norskum hjónum sem ekki
gátu eignazt barn og ættleiddu þau
hann. Það var herforingi í norska hem-
um, sem tók þennan yngri bróður
Lennons að sér ásamt konu sinni.
,,Ég sagði John aldrei frá því að
hann ætti hálfbróður. Ég vildi ekki að
til þess kæmi að hann kynni að fyrirlíta
móður sína,” sagði Alfred Lennon.
Eftir þetta stóð hjónaband Lennon-
hjónanna aðeins í tíu ár. Þá skildu þau,
og John Lennon ólst upp hjá frænku
sinni.
Aldrei greri um heilt milli Johns og
föður hans.
John Lennon dó án þess að vita að
hann átti hálfbróður i Noregi. Þetta
kemur fram í grein er náinn kunningi
Lennon fjölskyldunnar, Don Short
blaðamaður, birti í New York Post
eftir dauða Lennons.
Upplýsingar um þetta efni gaf faðir
Lennons, Alfred Lennon, í samtali við
Short áður en hann dó fyrir þremur ár-
REUTER
LENNONÁTTI
HÁLFBRÓDUR
GRÆJURNAR
HJA
GUNNARI
ASGEIRSSYNI
SÍMI 35200