Dagblaðið - 16.12.1980, Page 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1980.
Islendingar og Þjoðverjar lögðust a eitt og vönduðu sig við lautabrauðsskurðinn.
íslenzk siðvenja íÞýzkalandi:
DB-mvndir: Hans Sætran, Hamborg,
ISLENZKIR „HAMBORGARAVT
í LAUFABRAUÐSGERD
Laufabrauðsgerð tilheyrir
íslenzkum jólaundirbúningi og því tóku
íslenzkir „Hamborgarar” rösklega til
hendinni fyrir skömmu og skáru laufa-
brauð og steiktu. Uppskriftin og ná-
kvæmar leiðbeiningar bárust sér-
staklega frá íslandi.
Þátttakendur gamansins voru 15
talsins, íslenzkir og þýzkir í bland, á
öllum aldri. Þegar fólk mætti til leiks
höfðu eldabuskur Félags íslendinga i
Hamborg þegar útbúið deigið, svo
aðeins var að hefjast handa við út-
skurðinn.
Linda Sigurbjörnsdóttir, þrælvön
austfirzkri laufabrauðsgerð, var félög-
um innan handar og hafði strangt eftir-
lit með því að ailt færi eftir settum regl-
um, svo árangur yrði sem erfiði.
Við útskurðinn náði skreytilistin
fljótlega yfirhöndinni og því var ekki
alltaf laufabrauðið skorið á
hefðbundinn hátt — en eins og vera ber
skemmtu sér allir hið bezta og hug-
Þátttakendur i laufabrauðsgerð „Ham-
borgaranna” voru á öllum aldri — og
fékk sköpunargleðin góða útrás.
myndaflugiðbirtist i ýmsum myndum.
Síðan var steikt, pressað og þerrað,
allt samkvæmt kúnstarinnar reglum, —
en neyzlan bíður síns tíma þegar jóla-
hangikjötið hefur borizt.
Þegar laufabrauðsgerðinni var lokið
var boðið upp á kaffi og kökur og kom
þá greinilega í ljós að í Hamþorg, ekki
síður en á íslandi, er bakað rækilega
fyrir jólin.
-HS, Hamborg.
Iðnfyrirtæki lokað
vegna vanefnda
Flugleiða
— Tuttugu kflóa pakki hefur beðið
heimf lutnings f rá Glasgow síðan
4. desember
,,Ég held að reynslan sýni að við
íslendingar ættum að fara varlega í
sakirnar með að veita einkaleyfi til
flugrekstrar á ákveðnum leiðum,
ekki síður en í einkaleyfi til annarra
hluta. Almenningsfé á heldur alls
ekki að renna til þeirra sem veita ekki
öruggari þjónustu heldur en flugfrakt
Fiugleiða,” sagði Axel Aspelund,
iðnrekandi í Mosfellssveit, sem vegna
vanefnda hjá flugfrakt Flugleiða
verður af jólaönnum í fyrirtæki sínu
og verður að senda starfsfólk heim.
Axel rekur fyrirtækið Lexa, sem
framleiðir hálsbindi, slaufur og
fleira.
Raunasaga Axels er sú að 4. des.
var lagður inn í afgreiðslu Flugleiða í
Glasgow pakki, sem vegur 20 kg og
kostar samtals 55 þúsund krónur, til
sendingar til íslands 5. desember. Til
öryggis fór Axel fram á að Flugleiðir
sendu héðan telexskeyti til Glasgow
með áréttingu um að pakkinn kæmi
með umræddri ferð. Pakkinn kom
ekki, en öll skjöl hann varðandi
komu og voru afgreidd hér að
morgni fyrsta vinnudags banka-
manna eftir verkfall. Þá kom í ljós að
pakkinn var enn í Glasgow, viku eftir
að staðfastlega var lofað að senda
hann til íslands — og var þar enn í
gær.
,,Ég geri varla ráð fyrir að minn
pakki sé eini pakkinn sem ekki hefur
náð heim,” sagði Axel. „Það er þvi
miður staðreynd að frá þeim flug-
höfnum, þar sem önnur flugfélög en
Flugleiðir hafa ekki viðkomu, þá eru
fragtpakkar látnir biða og bíða
hversu áríðandi sem þeir eru. Eftir að
Iscargo hóf samkeppni við Flugleiðir
um flugfrakt á nokkrum flugleiðum,
skilja Flugleiðir aldrei eftir pakka
þar. En Iscargo nær ekki til flug-
fraktar í Glasgow vegna einkaleyfis
Fiugleiða og því fer sem fer,” sagði
Axel.
-ARH.
Stálverksmiðja á
að geta skilað
arði hérlendis
Stálverksmiðja hérlendis á að geta
skilað viðunandi arði og reynzt
nokkuð stöðugt fyrirtæki. Nýlega
skilaði verkefnisstjórn um stál-
bræðslu, er iðnaðarráðuneytið
skipaði í sumar, áætlun um fram-
leiðslu steypustyrktarjárns hérlendis.
Markmiðið með slíkri áætlun var að
kanna hvort framleiðsla steypu-
styrktarjárns gæti talizt arðbær hér-
lendis.
Stofnkostnaður slíkrar verk-
smiðju er áætlaður um 8 milljarðar
og framleiðslumagn um 15 þúsund
tonn. Tekið er fram að stjórnvöld
gætu orðið að vernda framleiðsluna
tímabundið gegn verðfellingu er-
lendra framleiðenda þannig að verk-
smiðjan búi við svipað afurðaverð og
érlendir framleiðendur í heimalönd-
um sínum. Stálfélagið hf., sem var
stofnað fyrir um 10 árum í því skyni
að reisa og reka stálbræðslu, hefur
sýnt þessu máli mikinn áhuga. Hefur
félagið áform um að gangast fyrir
aimennri hlutafjársöfnun.
Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið
að heimila Stálfélaginu afnot af
áætluninni um framleiðslu
steypustyrktarjárns hér á landi. Síðar
verður tekin til athugunar aðiid
ríkisins að slíkri verksmiðju.
-JH.
íslenskir
athafnamenn
Bragi Einarsson í Eden.
Allir þekkja það fræga fyrirtæki en færri
manninn, sem stendur aö baki athöfn-
unum. Athafnaþrá, bjartsýni og dugn-
aður var eina veganestiö og oft hefur
Bragi og þau hjón, þurft aö beygja bakiö
á fyrstu árunum. Erfiöleikarnir létu
ekki á sér standa, en ekki var bugast og
árangurinn blasir viö.
Helgi Eyjólfsson.
Byggingameistari. Hagsýni og dugnað-
ur eru þungamiðja hans starfssögu.
Honum hefur verið sú list lagin að fram-
kvæma hlutina á hagkvæmari hátt en
aðrir og oft hefur hann gert það sem
flestir töldu ófært. Má þar m.a. nefna
byggingu verksmiðjanna á Djúpuvik og
Hjalteyri, sem hann byggöi við aðstæð-
ur sem vægast sagt voru ekki aölaöandi.
En Helgi fann ráð við öllum vanda og
svo hefur verið allar hans athafnir.
Kristmundur Sörlason.
Fátækur sveitastrákur af Ströndum.
Byrjaði sinar athafnir i smáskúr, eftir
ýmiskonar svalk á sjó og i landi. Hefur
nú ásamt Pétri bróður sirium, komið á
fót umsvifamiklu fyrirtæki, Stálveri
h.f., sem hefur fitjaö upp á ýmsum ný-
ungunj. M.a. smiðaö vél sem framleiðir
is úr sjó og margt fleira mætti telja sem
aðhafst er á þeim bæ. Áþreifanlegt
dæmi þess, hverju vilji og dugnaður fær
áorkað.
Páll Friðbertsson.
Forstjóri, Súgandalirði. Hann er að
segja má fæddur inni sitt hlutverk. Faö-
ir hans var forustumaður um atvinnu-
mál og það hefurfallið i hlut Páls að
halda uppi merkinu. Oft hefur veriö
þungt fyrir fæti, en nú hefur fyrirtækinu,
sem hann hefur stjórnað, tekist aö koma
á fót einu best búna frystihúsi á landinu
og eignast nýjan skuttogara.Páll hefur
átt þvi láni að fagna að eiga ágæta sam-
starfsmenn'og Súgfirðingar hafa staðið
fast saman um sin atvinnumál.
Soffanias Cecilsson.
Hefur nokkra sérslöðu i þessum hópi.
Hann byrjaði formennsku og fyrirvinnu
heimilis i barnæsku. Var um árabil af-
burðafengsæll skipstjóri. FJn hætta skal
hverjum leik þá
hæst hann ber.
Soffanias rekur nú
fiskvinnslufyrirtæki
á Grundarfirði.
Hefur átt i vmsum
brösum yið kerfið
en ekki látið undan
siga. Temur sér
ekki víl eða vol.
Litrik persóna
sem gaman er að
kynnast þeg-
ar allt er undirlagt
afbölsýni
og barlóm.
Þorsteinn Matthfasson hefur
skráð þessa þætti, af sinni al
kunnu háttvisi. Honum er það helst
til foráttu fundið að hann leitar
fremur eftir þvi betra i fari sinna
viðmælenda. Málshátturinn
„Fár bregður þvi betra ef hann veit hið verra” er
honum víðsfjarri. Hann er ekki i nýtískulegri leit að ávirðingum
og hneykslismálum. Það er óhætt að fullyrða aö þessi bók er
lærdóinsrik og auk þess skemmtileg og myndum prýdd
Ægisútgáfan